Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Ákært fyrir tilraun til Qársvika meö því að „láta stela“ 1,8 milljóna króna bíl:
Jagúar ýtt fram
af stórgrýtiskanti
- starfsmenn Atlantshafsbandalagsins í
Fjórir menn hafa verið ákærðir
fyrir tilraun til fjársvika með því að
hafa með skipulögðum hætti komið
1,8 milljóna króna Jagúarbifreið í
sjóinn í Hvalfirði og síðan reynt að
fá „tjón“ eigandans bætt. Það voru
vaktmenn á athafnasvæði Atlants-
hafsbandalagsins í Hvalfirði sem
komu upp um svikastarfsemina
þannig að tryggingafélag og iögregl-
an fóru í málið.
Samkvæmt sakargiftum er málið
þannig i pottinn búið að eigandinn
skildi bifreiðina, Jaguar Vanden
Plas, eftir ólæsta við Stórholt 19-21
kvöld eitt í janúar síðastliðnum.
Hann hafði þá fengið félaga sinn til
að útvega menn til þess að eyði-
leggja og fela bílinn - síðan ætlaði
hann að fá bílinn bættan hjá Sjóvá-
Almennum.
Þeir sem fengnir voru til verksins
fóru með bílinn upp í Hvalfjörð. Þar
var honum ýtt fram af stórgrýtis-
Hvalfirði komu upp
kanti við athafnasvæði NATO, inn-
arlega í Hvalfírði norðanverðum.
Daginn eftir lagði eigandinn fram
kæru hjá lögreglu um að Jagúarinn
hans væri horfinn - bíllinn hefði
verið tekin í heimildarleysi við
Stórholt 19-21. Þann 29. janúar til-
kynnti eigandinn starfsfólki trygg-
ingafélagsins síðan um atburðinn í
því skyni aö fá tjón sitt bætt.
Sá galli var hins vegar á gjöf
Njaröar að Jagúarinn var alls ekki
um tryggingasvik
hústryggður.
Vaktmenn hjá NATO höfðu til-
kynnt um bílinn uppi í Hvalfirði.
Hann var þá orðinn skemmdur og
var sóttur.
í kjölfarið voru þrír menn fyrir
utan eigandann yfirheyrðir og ligg-
ur nú fýrir ákæra á hendur þeim og
eigandanum. Sá síðastnefndi er
ákærður fyrir tilraun til fjársvika
en þremenningunum er gefin að sök
hlutdeild í brotunum. -Ótt
Ásakanir um haröýögi við hross í Hestaskólanum:
Þéttleiki í vinnubrögðum
Grunnskólarnir að fyllast af GSM-símum:
Óhollt og
óæskilegt
- segir yfirsálfræðingur
„Ég tel þessa þróun óæskilega og
óholla. Við vitum ekki um afleiðing-
amar og þar með hvort þetta sé
skaðlegt eða ekki,“ sagði Hákon Sig-
ursteinsson, yfirsálfræðingur hjá
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. „Ég
tel að böm yngri en 16 ára hafi ekk-
ert með GSM-síma að gera í skólum
en það er að sjálfsögðu mat foreldra
hversu langt er gengið í þessum efn-
um,“ sagði Hákon.
Grunnskólar Reykjavíkur era nú
óðum að fyllast af GSM-símum og
em dæmi þess að meirihluti nem-
enda í 8. bekk sé kominn með síma.
Þegar ofar dregur verða símarnir al-
Hríseyjarferjan
aftur á land
Nýja Hríseyjarferjan margum-
talaða er enn og aftur komin í
slipp hjá Stálsmiðjunni. Skipið
var í annað skipti sjósett í fyrra-
dag og tekið á land aftur í gær.
Að sögn Gunnars Gunnarsson-
ar, formanns ferjunefndar Vega-
gerðar ríkisins, var það ekki stýr-
isbúnaður skipsins sem var að
angra menn í þetta skiptið heldur
skrúfubúnaðurinn og einhver bil-
un í drifi. -gk
Fræðslumiðstöðvarinnar
gengari og í 10. bekk er GSM-síminn
af mörgum talinn jafnsjáifsagður og
skólataskan.
„Það er bannað að tala I GSM-
síma í kennslustundum og ætti
reyndar að banna það einnig í frí-
minútum en þetta getur verið erfitt
við að eiga. Ef börnin eru að tala í
síma í kennslustundum eru símam-
ir teknir af þeim og færðir skóla-
stjóra. Bömin geta svo náð i símana
að loknum skóladegi. Þetta er eitt af
þeim „rnustum" sem upp koma en
ég kann ekki dæmi þess að böm
hafi þurft að líða fyrir það í skólum
að eiga ekki GSM-síma,“ sagði Há-
kon Sigursteinsson.
Símafyrirtækin hafa komið til
móts við þessa nýju „barnanotkun"
á farsímakerfinu og bjóða nú sér-
stök símakort á 2000 krónur. Þegar
kortið er uppurið er ekki lengur
hægt að hringja úr símanum en
hins vegar hægt að hringja í hann.
Fyrir 2000 krónur er hægt að tala í
100 mínútur á dagtaxta. Margir for-
eldrar hafa lýst yfir ánægju sinni
meö að nú sé alltaf hægt að ná í
bömin hvar sem þau séu.
„Ég held að það sé falskt öryggi,"
sagði Hákon Sigursteinsson yfirsál-
fræðingur. -EIR
Nemendur i 7. bekk í Austurbæjarskóla með GSM-símana sína í frímínútun-
um. DV-mynd Pjetur.
- og glaðir nemendur, segir Hafliði Halldórsson skólastjóri
„Þetta er ekki rétt. Hér er um að
ræða þéttleika í vinnubrögðum,
annað ekki,“ segir Hafliði Halldórs-
son, skólastjóri Hestaskólans, vegna
ummæla fyrrverandi og núverandi
nemenda skólans þess efpis að hann
beiti of mikilli hörku við hrossin.
Fjölmargir höfðu samband við DV í
gær vegna frétta af hestaskólanum.
Sumir höfðu sögur að segja af
hörku i meðhöndlun hrossa þar.
Aðrir sögðu Hafliða aga hrossin, en
aðeins þegar nauðsyn bæri til og
lýstu ánægju með skólann.
Hafliði segir að ekki fari verra orð
af skólanum en svo, að nú þegar sé
hann næstum búinn að fylla tvö
næstu námskeið af tamningatrippum
sem eigendurnir biðji hann fyrir. ís-
lenski hesturinn sé sterkur og nái
hann yfirhöndinni sé hann hættuleg-
ur. Skólinn sé að bjóða upp á kennslu
í tamningu hrossa sem koma villt úr
sínu náttúrulega umhverfi.
„Það er blóðugt og sárt að þurfa
að heyra svona áburð,“ segir
Hafliði. „En ég hef ekkert að fela.“
Aðspurður um fullyrðingar þess
efnis að hann hafi bundið hest á
taglinu við stoð segir hann það
„hefðbundna aðferð" hér á landi við
hesta sem era erfiðir í jámingu. „í
þessu tilfelli var haldið í hann og ég
studdi hann með því að taka taglið,
setja þaö í þrjá hringi utan um súlu
til þess aö hesturinn slasaði ekki sig
né nemendur. „Hafliði segist ávíta
erfið hross meö rödd og jafnvel með
því að slá þau með flötum lófa.
Spurður um fullyrðingu Irmu
Hafliði Halldórsson, skólastjóri
Hestaskólans.
Schortinghuis, í grein í DV í dag,
þar sem hún segir að hann hafi sett
reipi utan um hálsinn á hesti og
hert að þar tU hesturinn hafi ekki
náð andanum, segir Hafliði að
þarna hafi verið um að ræða erfiða
ótemju. „Þama er sett hálsreim um
hestinn, án þess að hún herði að.
Þetta er gert til þess að hesturinn
slíti ekki aUt í sundur og slasi ekki
sjálfan sig eða aðra. Það er öryggis-
hnútur á bandinu."
Hafiiði sagði að þegar upp væri
staðið töluðu staðreyndimar sínu
máli um gæði kennslunnar í skólan-
um. Þaðan færu glaðir og ánægðir
nemendur sem hefðu útskrifast með
góðum árangri eftir hvert nám-
skeið. -JSS
37 milijarða kauphækkun
Launagreiðslur sem rötuðu aUa
leið á skattskýrslur landsmanna í
upphafi ársins, þ.e. laun ársins 1998,
voru rúmlega 37 miUjörðum króna
(13,7%) hærri heldur en árið áður,
eða aUs rúmlega 310 mfiljarðar
króna. Dagur sagði frá.
Sólveig skoðar barnakiám
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráð-
herra hefur ákveðið að fela refsirétt-
arnefnd dóms-
málaráðuneytis-
ins að skoða
hvort ástæða sé
tU þess að herða
viðurlög við
vörslu og dreif-
ingu á
barnaklámi frá því sem nú er. Mbl.
sagði ffá.
Ofvirkni eldist ekki af
Ástæður athyglisbrests með of-
virkni eru líffræðUegar og eiga ræt-
ur að rekja tU röskunar á boðefnum
í heUa. Stutt er síðan ljóst varð að
sjúkdómurinn eldist ekki af fólki og
er talið að mUli 2000 og 6000 einstak-
lingar hérlendis séu ofvirkir. Mbl.
sagði ffá.
Hagkerfið ofurheitt
„Hagkerfið.hefur einfaldlega of-
hitnað og fyrir vikið er stöðugleikinn
í hættu,“ sagði forstjóri Þjóðhags-
stofnunar, Þórður Friðjónsson, í
samtali við Dag.
Segist saklaus
Pétur Þór Gunnarsson heldur enn
fram sakleysi sínu í málverkafölsun-
armálinu þrátt fyrir að hann hafi í
gær verið dæmdur í 6 mánaða fang-
elsi. í samtali við Skjá einn sagði
hann dóminn hafa verið aUs óvænt-
an og mikið áfaU. Hann segist vonast
tU að sannleikurinn komi í ljós þótt
síðar verði.
Spurt um mannshvörf
Björgvin G. Sigurðsson varaþing-
maður hefur lagt fram fyrirspum tU
dómsmálaráð-
herra um manns-
hvörf. Björgvin
spyr hversu mörg
óupplýst manns-
hvörf hafi orðið
síðan 1944, hve oft
lögreglan hafi
rannsakað manns-
hvörf sem hugsanleg sakamál, hve oft
lögreglan hafi rannsakað mannshvörf
vegna gruns um ólöglegt athæfi, en
feUt málið og hve oft dómstólar hafi
dæmt í málum um óupplýst manns-
hvaif. Dagur sagði frá.
Gagnrýna aukin útgjöld
Stjórnarandstæðingar gerðu í gær
harða hríð að fjáraukalagafrumvarpi
ríkisstjórnar. Vanáætlun útgjalda
var sögð merki um skort á yfirsýn og
aga í ríkisfjármálum. Ráðherrar
voru kaUaðir útgjaldafíklar. RÚV
sagði frá.
Stórtap á Fljótsdalsvirkjun
13 miUjarða tap yrði á Fljótsdals-
virkjun, að mati Sigurðar Jóhannes-
sonar hagfræðings. Hann segir að
raforkuverð yrði að hækka og vextir
að lækka tU að reksturinn gæti verið
hagkvæmur. RÚV greindi frá.
Kynferðisdómur ómerktur
Hæstiréttur hefur ómerkt sýknu-
dóm og vísað tU héraðsdóms tU nýrr-
ar meðferðar máli manns sem ákærð-
ur var fyrir kynferðissamband við
þrettán ára stúlku. Dagur greindi frá.
FBA fór offari
FBA hefur verið dæmdur tU að
greiða fyrrum starfsmanni Fisk-
veiðasjóðs, Ásbirni
Þorleifssyni, 300
þúsund króna
miskabætur og 500
þúsund króna
málskostnað vegna
þess að stjómend-
ur FBA „hefðu
gengið lengra í
ávirðingum í garð Ásbjöms en þeim
var stætt á í bréfi tU ríkisendurskoð-
unar, sem dreift var tU nokkurs
íjölda manna, þegar þeir fuUyrtu að
tapið sem varð, væri honum einum
aö kenna." Dagur sagði frá. -GAR