Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 Spurrúngin Hvernig líst þér á að fá Atla Eðvaldsson sem landsliðsþjálfara? Jón Árnason trésmiður: Mér list ekkert á það. Ellert Ingvarsson rafvirki: Mér líst vel á það. Bjöm Torfason bóndi: Mér líst ágætlega á það fyrst við getum ekki haft Guöjón áfram. Alexander Hafþórsson, 13 ára: Bara vel. Kristófer Logi Hafþórsson, 7 ára: Bara vel. Thelma Þorbergsdóttir nemi: Mér finnst það fínt. Lesendur Leikskólarnir: Bornin heim og þenslan minnkar Færri börn á leikskóla og þenslan í þjóðfélaginu minnkar, er álit bréfritara. SAS og Flugleiðir hf.: Dregur nær sameiningu Anna Guðmundsdóttir skrifar: Það er eins og holskefla hörm- unga sé að ríða yfir foreldra sem eiga böm á leikskólum borgcirinnar. Svo mikiö írafár er yfir því vand- ræðaástandi sem mörgum foreldr- um stendur ógn af - nefnilega að búa við þá óvissu að þurfa að ná í böm sín á leikskólana, jafnvel alveg óvænt hvenær sem er. Auðvitað er hér um óheppilega ráðstöfún að ræða hjá Reykjavíkurborg. En þaö hafa engin lög verið brotin á okkur foreldrum þótt dvalarsamningum hafi verið eða verði sagt upp á leik- skólunum. Hér er um óviðráðanlegt ástand að ræða og ekkert þýðir fyrir okkur foreldra að krefjast þess að málið verði bara leyst með því að fóstrum eða leikskólakennurum verði greitt hærra kaup. Sú kauphækkun myndi líka óðar dynja á okkur sem greiðum fyrir bömin á leikskóla. Ég á eitt barn á leikskóla og annað sem ég ráðgerði að senda þangað bráð- lega. Ég er hætt við það nú þegar og mun sætta mig við (næstum fegin- samlega) að taka hitt bamið heim. Margt mun breytast við þetta. Ég mun hætta að vinna úti og verða heima alfarið. Ég er búin að búa við mikið spennuástand undanfarin tvö og hálft ár og er raunar við það að gefast upp á hlaupum fram og til baka, í vinnu, úr vinnu, á leikskól- ann, fara með og sækja strákinn minn. Yngsta bamið er heima hjá Sigríður Jónsdóttir skrifar: Frá kosningu Ingibjargar Sólrún- ar borgarstjóra hefur sífellt verið klifað á því hversu snjöll hún sé. Þetta kallast foringjadýrkun. Ekk- ert sem foringinn gerir er rangt, að áliti aðdáendanna. Ingibjörg Sólrún braust jú til valda í Reykjavík með nánast það eina loforð að vopni að hún myndi bæta leikskólakerfí borgarinnar. Að hennar sögn var það afskaplega einfalt mál. Eyða hundmðum milljóna í að reisa nýja Ingólfur Hannesson, íþróttastjóri Sjónvarps, skrifar: Þaö er ekki andskotalaust að lenda i skotlínu DV-manna, en það hef ég fengiö að reyna í nokkur skipti í sumar og haust. Enda verð- ur oft fátt um vamir þegar einstak- lingur á ritstjóm dagblaðs er í fýlu og notar vandmeðfarið vald sitt til þess að fá útrás. Fyrr í vikunni tók þó steininn úr í illkvittnu „sandkomi11 þar sem mér var brigslað um að misnota að- stöðu til þess að sýna á skjánum eitt kvennalið i handbolta öðmm frem- ur - skýringin sú að ég væri i stjóm kvennaráðs félagsins. Loks var klykkt út með spjalli um hagsmuna- árekstra. Hér var einfaldlega logið og síðan dregnar ályktanir, ósmekk- legar og ósæmandi. Ég sit ekki í umræddu kvennaráði Gróttu/KR, hætti afskiptum af viðkomandi fé- lagi um leið og dóttir mín hætti handboltaiðkun síðla sl. sumar. ömmu sinni sem hefur hlaupið í skarðið fyrir mig um nokkurra mánaða skeið. Ég mun hætta þessu öllu, vera heima og við hjónin mun- um líklega komast betur af en áður. Við emm búin að reikna þetta út. Ég held að þenslan í þjóðfélaginu myndi minnka vemlega ef stór hluti bama á leikskólum yrði tek- inn heim til mæðranna, allra sem það raunvemlega geta. Þær em sem betur fer mjög margar sem það geta. Það er full þörf á að hægja á þensl- unni og hraðanum sem þjóðfélagið og glæsilega leikskóla. Og það geröi hún. Þessi einsýni borgarstjóra hefur kostað okkur mikið. Nú eigum við fjölda nýrra leikskólahalla, sem enginn, eða a.m.k. takmarkaður rekstur, er í. En Ingibjörg Sólrún heldur áiram að byggja. Ekkert fær stöðvað hana. Enginn þorði að segja henni að hún væri á leið til glötun- ar, því hún tekur gagnrýni afskap- lega illa, að sögn. Við, barnafólkið, sem höfðum trú- Reyndar hef ég síðustu 9 árin fylgt henni eftir í hópi foreldra, sem hafa haldið starfinu gangandi, nánast af þeirri hugsjón aö það sé hollt fyrir börn og unglinga að stunda íþróttir. Að vera síðan stimplaður fyrir „hagsmunaárekstra" á opinberum vettvangi fyrir slíka hluti er nánast hlægilegt. Reyndar grátbroslegt, m.a. í ljósi þeirrar staðreyndar að yfirmaður íþróttadeildar DV er þjálfari liðs í efstu deild karla í handbolta! Það em væntanlega býr við. Það er í engu samræmi við það sem gerist meðal annarra þjóða. Atvinnulífið allt myndi hrökkva í lægri gír og það er full þörf á því. Kannski þyrfti ekkert að gera annað til að hægja á þenslunni. - Ég vona bara að sem flestir foreldrar og bamafólk hafi tök á að fara þessa leið. Ef foreldrar em með einhverj- ar aðgerðir í bígerð er það hinn mesti bjamargreiöi við flest okkar. Þær myndu aöeins auka þá spennu og streitu sem fyrir er. - Hemjum okkur í hraðaþjóðfélaginu. að loforðum og dómgreind Ingi- bjargar Sólrúnar, gerðum ráðstafan- ir á grandvelli loforðanna. Og dóm- greindarinnar. Við lögðum út í fjár- hagsdæmi sem byggðust á því, að bæði hjónin ynnu úti, þar sem böm- in hefðu ömggt leikskólapláss á meðan. Nú em allar forsendur fjárfest- inga okkar að bresta. Ekki getur Ingibjörg Sólrún kennt Sjálfstæði- flokknum um því hún hefúr ráðið málum í borginni í 6 ár! öngvir hagsmunaárekstrar þar og ekkert tilfefni til sandkoms, eða hvað? Það er ábyrgöarhluti að saka fólk á opinbemm vettvangi um að mis- nota aðstöðu sína, og vera í raun sakaður um óheiðarleika, en þar sem minn skrápur er orðinn býsna þykkur verður þetta mál ekki tilefni til eftirmála. Það eina sem beðið er um framvegis er að þaö sé staldrað við og hugsað, áður en gengið er frá texta af þessu tagi. Reynir hringdi: Er ekki að koma á daginn það sem margir sögðu þegar hin nána samvinna Flugleiða við SAS var til- kynnt fyrir ekki löngu síðan? Að hér væri ekki bara um samvinnu að ræða, heldur yrði sameining fé- laganna brátt að veruleika. Nú hef- ur SAS lokað sölu- jm«« skrifstofu sinni hér á iandi eftir nær 30 ára , jsw starfsemi og við taka 'L ~ ~ , Flugleiðir. Og áætlun- arferðir SAS hingað til lands hafa þegar verið lagðar af. Og það er margt fleira að breytast hér varðandi starfsemi SAS. Það virðist nú sem SAS sé ráðandi afl í markaðssetningu hótelsins í Bændahöllinni. Þar er nú ekki leng- ur auglýst nafnið Hótel Saga - held- ur „Radisson SAS Saga Hotel“. Þetta góða hótel er kannski ekki lengur í íslenskri eigu heldur? Já, það er margt að breytast hér með tilkomu SAS í samgöngumál lands- manna. Reyklaust ís- land árið 2000? Steindór Einarsson skrifar: Það hefur verið talað um að hér væri orðið reyklaust land árið 2000. Ef svo á að vera, þyrfti að byrja sem fyrst að hætta að selja tóbak, og a.m.k. reyktóbak. Þeir sem reykja lenda margir hverjir á Vifilsstöðum og þurfa að burðast með öndunarvél. Þeir sem reykja mikið nota einnig mikið af lyfjum, ekki síst verkjatöflum. Þá koma veikindadagar til sögunnar og era þeir kostnaðarsamir þjóðfélaginu. Það yrði mikill spamaður fyrir ríkið ef tækist að gera hér reyk- laust land á næsta ári eins og til stóð. Hvemig skyldu mál standa nú þegar skammt er í aldamótin? Nú er það Aba í Nígeríu Magnús Sigurðsson skrifar: Það hlaut að koma aö því, svo miklar bréfaskriftir sem farið hafa á milli íslendinga og múltimilla í Nígeríu sem falast hafa eftir að geyma peninga sína hér um stund- arsakir. íslensk fyrirtæki hafa ekki haft undan að svara, flestir að vísu neitandi, því svona sé bara ekki við hæfi á íslandi. En nú stendur yfír íslensk kaupstefna í borginni Aba í Nígeríu, þar sem ís- lenskir kaupahéðnar á sviði flutn- ingaþjónustu, sjávarútvegs ásamt fulltrúa frá utanríkisráðuneytinu, alls 15 talsins, stunda kynningu sína á íslensku lostæti - item; skreið og þurrum þorskhausum. Nú er um að gera að selja og selja vel - og krefjast greiðslu við ham- arshögg. Ekkert minna, því það hefur oftasta orðið djúpt á greiðsl- um frá strákunum í Lagos. Selt inn á Þingvelli? Svana hringdi: Ég tel mig vita fyrir víst að hug- myndin um að selja inn á friðlýst svæði, t.d. á Þingvelli og víðar, á ekki fylgi að fagna. Þama ætti að leggja árar í bát sem allra fyrst. Þetta er líka hlægi- legt í eyr- um landsmanna sem alla sína tíð hafa getað ferðast um landið án nokkurrar hindrunar. Ef ég tek aft- ur Þingvöll sem dæmi er þar í raun ekkert að sækjast eftir. Þar er lítil sem engin þjónusta og aðeins náttúran og tjaldstæðið það sem menn sækjast eftir. Að geta hvílt sig í eina, tvær nætur án ágangs. Ég er sammmála ferðamálastjóra um að þama sé ekki eftir miklu að slægjast fyrir ríkið. Fimmtán millj- ónir? Er þetta eitthvað til tcda um, þegar batteríið í kringum inn- heimtuna er talið með? Hinn snjalli borgarstjóri Rangar ályktanir dregnar - sit ekki í kvennaráði Gróttu/KR Sit ekki í umræddu kvennaráði Gróttu/KR og er hættur afskiptum af viðkom- andi félagi, segir Ingólfur m.a. í bréfi sínu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.