Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 5 p v__________________________________Fréttir Veiöimanni var bannað að skjóta tófu á heimalandi: Bændur friða tófu „Bóndinn leyfir rjúpnaveiöar á landinu sínu en svo bannar hann mér að veiða tófu á landinu," segir Páll J. Pálsson sem lenti í þeirri óvenjulegu stöðu um daginn að vera bannað að veiða tófu á heimalandi. „Málið er þannig að ég á heima á Akranesi og var á veiðum uppi í Borgarfirði núna í október. Ég frétti af og sá tófu þar inni á heimalandi bónda, Sverris í Hvammi, Norðurár- dal. Nú, þar sem þetta var heima- land vildi ég ekki fara þama nema með leyfi og hringdi því í hann og spurði hvort ég mætti reyna við tóf- una. Hann sagði nei og þegar ég bað um ástæðu sagðist hann í fyrsta lagi vera búinn að leigja landið til ijúpnaveiða en þá sagði ég að ég væri ekki í slíkum hugleiðingum. Þá sagði hann að hann vildi enga umferð af mönnum með byssur þama. Þetta kom mér mjög á óvart en ég vár búinn að frétta af þessari tófú því hún er búin að sjást þama í haust og ég veit nákvæmlega hvar hún er og það er ekkert mál að vinna hana. En hann neitaði mér að fara þama inn og þar af leiðandi má ég ekki veiða hana. Ég þekki þenn- an bónda og fékk að veiða rjúpu hjá honum áður en hann leigði landið en nú fæ ég ekki að veiða tófu hjá honum!“ -hdin Tvíhöfði upp í himinhvolfið - hefur gert Tvíhöfðafélag- arnir Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr hafa undirritað samn- ing við fyrirtæk- ið Norðurljós sem gerir út Bylgjuna og Stöð 2. Undanfarin misseri hafa þeir starfað hjá Fín- um miðli og ver- ið fastir liðir í morgunútvarpi 97,7. Hafa þeir vakið mikla at- hygli fyrir uppá- tæki sín í þáttun- um og trúlega er frægust uppá- koma sem þeir efndu til í beinni útsendingu á áhorfendapöllum Alþingis og hlutu skilorðsbundinn dóm fyrir. Ekki er ólíklegt að fóstum hlustend- um 97,7 þyki goð- in nú vera að svíkja lit með samningnum við Norðurljós og spuming hvort sá hópur fer þá að hlusta á gömlu gufuna í mót- mælaskyni.-HKr. samning við Norðurljós um þáttagerð Tvíhöfðafélagarnir Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr. (þntineníal Vetrardekk fyrir vandláta SÓLN/NG Smiðjuvegi 32-34 • Kópavogi • Sími: 544 5000 KLAUSTRIÐ Veitinga- og skemmtistaðurinn Khmstrið Klapparstíg 26 • Simi 552 6022 Opið frá hádegi frara á rauða nótt. Nýr matseðill Af því tilefhi leika Dos Paraguayos frá 22.30-24.00. Veitingar verða í boði ViA klaustursins 1X2 1X2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.