Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Page 8
8
FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999
Útlönd
Kvennqmót í snóker
Kvennamót í snóker verður haldið ó
Billiardstofu Reykjavíkur, Hverfisgötu 46,
sími 552 5300,
laugardaginn ó. nóv.
Skróningu lýkur föstudaginn 5. nóv., kl. 23.30.
Þátttökugjald er 1000 krónur.
Vegleg verðlaun!
Gerhard Schröder Þýskalandskanslari lauk Kínaheimsókn sinni í morgun
með heimsókn til Forboðnu borgarinnar þar sem tuttugu og fjórir keisarar
höfðu höll sína, eða allt til ársins 1911.
UPPB0Ð
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum veröur háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Furubyggð 5, íbúðarhúsalóð, Mosfellsbæ,
þingl. eig. Halldóra Friðriksdóttir og Am-
ór Guðbjartsson, gerðarbeiðandi Ibúða-
lánasjóður, þriðjudaginn 9. nóvember
1999, kl. 11.00.
Smalaskáli, landspilda úr Elliðakotslandi,
50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Guð-
mundur R. Lúðvíksson, gerðarbeiðandi
Spor ehf., þriðjudaginn 9. nóvember
1999, kl. 13.30.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Lögreglan í
Seattle róar
borgarbúa
Lögreglustjórinn í Seattle í
Bandaríkjunum reyndi í gær að
róa skelfingu lostna íbúa borgar-
innar. Morðinginn, sem skaut tvo
menn til bana og særði tvo aðra í
skipasmíðastöð í borginni í fyrra-
dag, leikur enn lausum hala.
Lögreglustjórinn sagði skiljan-
legt að fólk væri óttaslegið. „Við
erum sannfærðir um að þetta var
ekki handahófsverk. Við teljum
að hinn almenni borgari sé ekki i
hættu,“ sagði lögreglustjórinn.
Morðinginn, sem var í frakka yfir
fotum í felulitum, kom inn á skrif-
stofu skipasmíðastöðvarinnar á
miðvikudagsmorgun og skaut á
alla fjóra mennina sem þar voru.
Texas-Bush féll
á leiðtogaprófi
Þótt Ástralir séu ekkert allt of
hrifnir af sambandinu við Bret-
land bendir allt til að þeir muni
hafna stofnun lýðveldis í þjóöar-
atkvæðagreiðslu á morgun, með
53 prósentum gegn 47.
Landamæri Tsjetsjeníu opnuð á ný:
George W. Bush, ríkisstjóri i
Texas og líklegur forsetafram-
bjóðandi Repúblikanaflokksins,
féll á prófi um erlenda leiðtoga
sem sjónvarps-
stöð i Boston
lagði óvænt fyr-
ir hann. Bush
er víst annars
gjam á að rugl-
ast á nöfnum er-
lendra ríkja.
Bush var beð-
inn um að nafngreina leiðtoga
fiögurra ríkja sem mjög hafa ver-
ið í fréttum að undanfómu, Ind-
lands, Pakistans, Tsjetsjeníu og
Taívans. Forsetaframbjóðandinn
vissi aðeins nafnið á Taívanleið-
toganum.
Þegar niðurstaðan lá fyrir
reyndi Bush aðeins að malda í
móinn og sagði að þótt hann
þekkti ekki nöfnin á erlendum
leiðtogum væri ekki þar með sagt
að hann gæti ekki haldið utan um
utanríkisstefnu.
Ástralir munu
hafna lýðveldi
Flóttamennirnir
Búist er við að þúsundir flótta-
manna flýi átökin í Tsjetsjeníu í dag
og fari yfir til nágrannaríkisins
Ingúsjetíu. Rússnesk stjórnvöld
opnuðu landamærin á ný í gær og
komst þá mikill fiöldi flóttamanna
burt. Fólkið hafði verið strandaglóp-
ar við landamærin í hálfan mánuð.
Sergei Sjoigú, ráðherra neyðar-
mála í Rússlandi, hefur lofað að að-
stoða flóttamenn við að komast yfir
landamæri Tsjetsjeníu og Ingúsjetíu
og sendinefnd frá Sameinuðu þjóð-
unum, sem er í héraðinu, hét því að
auka neyðaraðstoð við flóttamenn-
ina.
Sjoigú skoðaði landamærastöð í
gær og þar veittist reiður múgurinn
aö honum og Rúslan Ausjev
Ingúsjetiuforseta.
Rússneski ráðherrann sagði að
ástandið við landamærin myndi
færast aftur í eðlilegt horf í dag,
Vladímír Pútín, forsætisráðherra
Rússlands, ræðir ástandið f
Tsjetsjeníu við forsætisráðherra
Tyrklands í dag.
fóstudag.
Fjöldi flóttamanna lét lífið fyrr í
vikunni þegar þúsundir reyndu að
troðast í gegnum pínulitla
landamærastöð. Nærri tvö hundruð
þúsund manns hafa lagt á flótta frá
Tsjetsjeníu frá því Rússar hófu sókn
sína fyrir meira en mánuði, flestir
til Ingúsjetíu.
Rússar hafa ekki sýnt þess nein
merki að þeir ætli að draga úr sókn
sinni í Tsjetsjeníu, þrátt fyrir að er-
lendir ráðamenn á borð við Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands,
og Madeleine Albright, utanrikis-
ráðherra Bandaríkjanna, hafi hvatt
þá til að hefia viðræður við upp-
reisnarmenn múslíma.
ígor Sergeijev, landvamaráð-
herra Rússlands, ítrekaði í gær þá
stefnu stjómvalda að ná aftur fulln-
aðaryfirráðum í Tsjetsjeníu sem
Rússar urðu að gefa eftir 1996.
streyma í gegn
Auglýsing um innlausnarverð
ECU-tengdra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSN INNL AU SN ARVERÐ
1994-1.fl.D ECU 05.11.99 kr.: sjá skilmála
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 5. nóvember 1999
SEÐLABANKIÍSLANDS
Brundtland í
stríð við tóbaks-
framleiðendur
Gro Harlem Brandtland, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar, WHO, undir-
býr nú alþjóðlega samþykkt um
eftirlit með tóbaki. Setja á viðmið-
unarreglur um eftirlit með reyk-
ingum og takmörkun þeirra. Berj-
ast á fyrir alþjóðlegu banni við
auglýsingum á tóbaki og öðrum
aðferðum til að selja það. Einnig á
að reyna að koma í veg fyrir
smygl á tóbaki og reyna að stjóma
viðskiptum með það.
„Á hverjum degi byrja á milli 82
þúsund og 99 þúsund unglingar að
reykja um allan heim. Það kemur
ekki á óvart því tóbaksframleið-
endur beina auglýsingavél sinni
einmitt að ungu fólki,“ segir
Brundtland. Tóbaksframleiðendur
verja sig með því segja að fólk eigi
að hafa frelsi til að velja. „En sið-
menntaðar þjóðir verja þegna sína
undir 18 ára aldri. Þær láta þá ekki
fá vöru sem drepur annan hvern
notanda," segir Bmndtland.
Stuttar fréttir i>v
Lífstíð fyrir hommamorð
Rúmlega tvítugur maður í
Wyoming hefur verið dæmdur í
tvöfalt lífstíðarfangelsi fyrir að
myrða samkynhneigðan stúdent.
Blair með gott forskot
Verkamannaflokkur Tonys Bla-
irs, forsætisráðhema Bretlands,
hefur hvorki meira né minna en
24 prósentu-
stiga forskot á
íhaldsflokkinn
samkvæmt
nýrri skoðana-
könnim Gallups
fyrir blaðið
Daily Tele-
graph. Verka-
mannaflokkurinn hefur aukið for-
skot sitt um eitt stig frá í síðasta
mánuði.
Leita svarta kassans
Bandarískt herskip hélt í gær
til leitar að svarta kassanum úr
egypsku flugvélinni sem hrapaöi
undan austurströnd Bandaríkj-
anna á sunnudagsmorgun.
Létust í flóðum
Á þriðja hundrað manns hafa
farist í flóðum í Víetnam undan-
fama daga. Fjölda er saknað.
Leigubílastríð
Átta menn féllu í skotbardaga
milli stríðandi fylkinga leigubíl-
stjóra í Suður-Afríku í gær.
Afsögnin var rétt
Meirihluti frönsku þjóðarinn-
ar, eða 78 prósent, telur að það
hafi verið rétt af Dominique
Strauss-Kahn að
segja af sér
embætti fiár-
málaráðherra.
Strauss-Kahn
sagði af sér til
að reyna að
hreinsa mann-
orð sitt en hann
hefur verið sakaður um að hafa
þegið um 7 milljónir íslenskra
króna af tryggingafélagi náms-
manna fyrir staif sem hann innti
ekki af hendi.
Deyja í varðhaldi
Að minnsta kosti sex félagar í
Falun Gong hreyfingunni hafa
látist í varðhaldi í Kína frá því í
ágúst, að sögn mannréttindasam-
taka. Kínversk yfirvöld hafa
bannað hreyfinguna.
Ráðist á flóttamenn
Byssumenn á V-Timor réðust í
gær á hóp flóttamanna á leið
heim til A-Tímor. Enginn særðist
í árásinni.
Vill 2 milljarða í bætur
Maður, sem sat fastur i 40
klukkustimdir í lyftu í skýjakljúf
i New York, krefst nú 2 milljarða
króna í bætur af eiganda fasteign-
arinnar. Segist maðurinn hafa
hlotiö sálarmein af atvikinu.
Kveðst vera skrímsli
Kólumbíski raðmorðinginn,
sem hefur viðurkennt misnotkun
og morð á 140 börnum, sagðist í
gær hafa orðiö
að stjórnlausu
skrímsli. Á
myndbandi, sem
sjónvarpað var í
gær, bað Luis
Alfredo Garavito
kólumbísku
þjóðina og móður sína um fyrir-
gefningu. Sagöi Garavito að hon-
um hefði verið nauðgað í bemsku
og hann beittur ofbeldi.
35 lögreglumenn felldir
35 íranskir lögreglumenn vora
drepnir í gær í átökum við vopn-
aða fíkniefnasmyglara á landa-
mæmm írans og Pakistans. Ekki
er vitað hversu margir smyglarar
féllu.
Fangar struku
26 fangar struku á miðvikudag-
inn úr fangelsi í Argentinu eftir
að hafa tekið 7 manns í gíslingu.
Tólf strokufanganna hafa verið
gripnir.