Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1999, Qupperneq 7
i
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1999
45
Nýja þriggja strokka vélin var aðeins sýnd sem frumgerð en öruggt má telja að nýja Ford Fiestan sem sýnd var í
Frankfurt verður með fyrstu bílum til að fá þessa vél. Mynd DV-bílar SHH
Þriggja strokka vistmild vél
Ford sýndi í Frankfurt frumgerö
af þriggja strokka bensínvél með
beinni innspýtingu, sérstaklega
hannaða til að draga úr mengun og
eldsneytisnotkun í þéttri og hæg-
gengri borgarumferð. Þessi vél hef-
ur hlotið heitið Ford Zetec SE 13
DISI og er 1,1 1 að rúmtaki, með 4
ventla á hverjum strokk og tvöfald-
an yfirliggjandi kambás og skilar 75
hö. við 5500 sn.mín. Hún er með
jafnvægisás til að tryggja mjúkan og
hnökralausan gang á hvaða snún-
ingshraða sem er og á að vera
fjarska hljóðlát.
Eyðslu- og mengunartölur liggja
ekki fyrir en tæknimenn Ford full-
yrða að vélin geri betur en standast
þær kröfur sem Evrópusambandið
gerir á þessu sviði fyrir árið 2004.
Ekki liggur heldur fyrir í hvaða
bílum við eigum fyrst von á þessari
sparneytnu og vistmildu þriggja
strokka vél en óhætt mun að slá því
fóstu að litlu bílarnir, svo sem Ka
og Fiesta, verði hvað fyrstir til að
njóta hennar. -SHH
Ford Zetec SE 13 DIS11,1 - ný vél
frá Ford sem einkum er ætluð í
minni bfla til innanborgaaksturs.
Lada Sport með
dísilvél
Þessir bílar koma manni óneitanlega til að staldra við þeg-
ar maður sér þá á alþjóðlegum bílasýningum. Þetta er rúss-
neski nettjeppinn Lada Niva sem hérlendis var kallaður Lada
Sport allt ffá því hann kom fyrst fram fyrir 21 ári eða svo,
teiknaður af Giugiario - raunar stækkun á teikningu hans á
Fiat 127 sem var þá orðin næstum 10 ára gömul. Tæknimenn
Porsche fóru austur til Sovét til þess að hjálpa þarlendum að
búa til aldrifið, eins konar rússneskt quadratrack, sem að
breyttu breytanda var síðan notað í þýska eðal-aldrifs-sport-
bíla. Það sem vakti mesta athygli íslensks blaðamanns í
Frankfurt á þessum gamalkunna bíl var innréttingin sem
óneitanlega var snoturri en í Ladasportinum sem hann átti
sjálfur fyrir tíu árum. Þama voru komin ný og nútímalegri
Útlitið er með öllu óbreytt síðustu tvo áratugina: Lada
Sport. Mynd DV-bflar SHH
Ladasportinn er kominn með ný sæti, nýtt mælaborð og
miðjustokk milli sæta.
sæti, mælaborðið endurhannað og miðstokkurinn milli sæt-
anna; hurðaspjöldin voru þó óneitanlega í gamla dúmum.
Tæknilega var munurinn sá að sýningarbíllirm var með
með Peugeot dísilvél en þær em einhverjar vinsælustu og best
metnu dísilvélar Evrópu um þessar mundir - jafiivel þó viöar
væri leitað. -SHH
Flestir þekkja heila,
óbrotna línu
í sjöundu umferðargetraun
DV-bíla var spurt hvað hvít, heil
og óbrotin lína á þjóðvegi tákn-
aði. Mikil þátttaka var í getraun-
inni enda góð verðlaun í boði.
Langflestir vissu hvað þessi veg-
armerking táknar og kom það
nokkuð á óvart, miðað við al-
menna umferðarhegðun, en um-
sjónarmenn DV-bila verða mjög
varir við að ökumenn hafi þetta
viðvörunarmerki að engu.
í 24. gr. reglugerðar um umferðar-
merki og notkun þeirra segir í a-lið:
Óbrotin lína [(hindrunarlina)] (L31)
[sem] gefur til kynna að hættulegt
sé að aka yfir hana og óheimilt
nema brýna nauðsyn beri til.
1. vinningur í þessari getraun var
fjögur BF Goodrich Alaska vetrar-
dekk undir fólksbíl, frá Bílabúð
Benna. Þennan vinning hlaut Hjör-
dís Davíðsdóttir, Álakvísl 84,
Reykjavík.
2. vinningur var Safety Seal
dekkjaviðgerðasett fyrir jeppa og
fólksbíla, frá Bílabúð Benna. Vinn-
ingshafi er Einar Gunnarsson, Hlíð-
argötu 6, Fáskrúðsfirði.
3. vinningur var Maglite-vasaljós
fyrir venjulegar rafhlöður, að vali
vinningshafa, frá Bílabúð Benna.
Þessi vasaljós eru með 10 ára
ábyrgð. Vasaljósið hlaut Helena Sig-
urbergsdóttir, Digranesvegi 72A,
Kópavogi.
Vinningshöfum hefur verið send
tilkynning um vinningana.
Nagladekkin
eru öruggari
Um hverjar veturnætur hefst
umræða um hvort nagladekk séu
æskileg eða óæskileg og þeim er
kennt um margvíslegt böl - hávaða,
gatnaskemmdir og ryk. Allt má það
satt vera, svo langt sem það nær -
þó urðu vísindamenn Óslóborgar
langir í framan fyrsta veturinn sem
nagladekk voru bönnuð þar í borg
af því að rykmengunin varð sosum
ekkert minni - hvernig gat staðið á
því?
Það er óþarft að hafa uppi langar
lotur um hvort sé öruggara þegar á
reynir, að vera á nagladekkjum eða
ónegldum. í 19. tbl. sænska blaðsins
Teknikens Várld (þið vitið, þessu
sem tókst ekki að halda A-Benzin-
um á hjólunum) er sagt frá prófun
og samanburði á 6 nagladekkjum
og 4 „naglalausum nagladekkjum",
þ.e. vetrardekkjum sem ekki eru
ætluð til neglingar og eiga að hafa
líka eiginleika og nagladekk. Til
aukasamanburðar var síðan eitt
sumardekk prófað.
í stuttu máli sagt höfðu nagla-
dekkin yfirburði á ílestum sviðum.
í hemlun á ís á 50 km hraða fór
besta naglalausa dekkið 7,5 m
lengra en besta neglda dekkið, 6,3
m lengra en lakasta nagladekkið. í
viðbragði á ís, 5-20 km, var tveggja
sekúndna munur á lakasta nagla-
dekkinu og besta naglalausa dekk-
inu, nagladekkinu í hag.
Ef til vill má hafa það fyrir við-
miðun þegar menn velja milli þess
að aka á negldum dekkjum eða
ónegldum að ef aksturinn er ein-
vörðungu innan saltaðs gatnasvæð-
is er minni ástæða til að vera á
negldum dekkjum. Hins vegar
verða ökumenn alltaf að vera sér
meðvitandi um hvaö þeir hafa und-
ir bílnum og haga akstri sinum í
samræmi við það.
- Já, hvað um sumardekkið sem
TV prófaði? Umsögnin var m.a.
þessi: Hættulegt, ómögulegt, von-
laust. Það litla grip sem það gefur
hverfur gjörsamlega og fyrirvara-
laust - það er ógerningur að reiða
sig á það. Skelfileg lífsreynsla! -
sögðu prófararnir.
Meira segir af þessari prófun í
aukablaði DV um vetrarakstur nk.
miðvikudag. -SHH
Honda HR-V Sport 4x4 '99
rauður ek. 2 þ. 1.750.000
Nissan Almera 1,6 SLX '97
grænn ek. 50 þ. 990.000
Honda Accord EXI ssk. 4d. ‘91 102 þ. 690 h-
Honda Prelude 2,2 VII 2 d. '93 115 h. 1.490 b.
Honda Accord couoé V6 2 d. ‘99 3 6. 3.540 h-
Honda Shuttle 2,2 LSI 5 d. '99 io h. 2.290 b-
Honda Accord LSI ssk. 4d. '95 100 h. 1.250 h-
Honda Civlc 1,5 LSi 4 d. ■97 38 h. 1.180 h-
Honda Civlc LSi 5 g. 3d. '97 40 h- 1.150 b.
Honda Civic Si ssk. 4 d. ‘97 33 h. 1.150 h.
Honda Cívic LSi 5 g. 5d. '98 22 h- 1.570 b.
Honda CR-V RVi ssk. 5d. '98 65 h- 1.950 h-
Cltroen XM turtio 5g. 5 d. '93 138 h- 890 h-
Dalhatsu Terlos 4x4 ssk. 5 d. '98 14 h- 1.390 h-
MMC Lancer GLXi 5 g. 4 d. '98 23 h. 1.190 h-
MMC Carisma GDI ssk. 5 d. '98 52 h. 1.500 h-
MMC Lancer 5 g. 4d. '91 92 b. 499 h-
MMC Lancer ssk. 5 d. •92 58 h- 640 h-
MMC Lancer GL 5g. 4d. •93 115 b. 590 h-
MMC Lancer stw 4x4 5 d. •93 89 6. 799 b-
MMC Spacewagon ssk. 5 d. '93 137 h- 990 b.
Suzuki Sidekick 5 g. 5d. '93 105 b. 870 h-
Suzukl Vltara 5 g. 3 d. *97 18 b. 1.280 h-
Toyota Corolla ssk. 4d. '92 117 b. 730 b.
Toyota Corolla ssk. 4d. '96 49 6. 950 h-
Toyota Corolla GL 5 g. 4d. '92 113 b. 760 b.
Toyota Corolla GE 3d. •98 42 6. 1.190 h.
Toyota Tourlng 4x4 5 g. 5 d. •91 130 b. 620 h-
Volvo S40 ssk. 4 d '96 21 6. 1.820 h-
VWGoll Manhattan 2,0 5 d '96 416. 1.290 h-
VW Vento GL ssk. 4d '93 50 b. 990 b.
Hhonda
NOTAÐIR BÍLAR
. I
Vatnagörðum 24
Sími 520 1100
BASTA
strft/stick
sMcone i
OMISSANDIIVETRARAKSTRINUM
BASTA
BASTA
• ekkert hrím á rúðum
engar frosnar læsingar
• engar frosnar hurðir
• auðvelð gangsetning í kuldantim
• rakavörn fyrir ralkerliö
Olíufélagið hf
www.esso.is