Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1999, Blaðsíða 4
Rósa Ingólfsdóttir stendur fyrir sann- Kallaðri dömusýningu næstkomandi sunnudag. Daman drekkur roðagylltan drykk „Sýningln er til þess að konur liti um öxl og sjái hvaö hefur gerst á öldinni hjá þeim,“ segir Rósa Ing- ólfsdóttir um sýninguna Konan í aldarlok. „Þá er ég að tala um útlit, heimili og allt sem viðkemur kon- unni. Við reynum eftir bestu getu aö fara yfir aldarlitrófið á einni kvöldstund." Vinna fleiri konur aó sýningunni en þú? „Það vinna margar konur að sýn- ingunni og þar verða kynntir hlutir sem tengjast konum. Til dæmis veröur brúðarkjólaleiga Dóru á staðnum og Ijósmyndastofa Sigrlðar Bachmann, en Sigríður er nokkurs konar frumkvöðull í nútíma-brúð- kaupsmyndum,“ segir Rósa og bæt- ir við að alls kyns fyrirtæki og upp- ákomur verði á staðnum. „Þar verður tískusýning, hárkollusýning og hárgreiðslumeistari sem greiðir konunum. Svo verða sýnd antikhús- gögn sem eru prýði á hverju heim- ili. Royallyftiduftið minnir konur á sig og þær geta skoðað uppskriftir, pakkningar og auðvitað Royalmat- arsódann. Yngingartæki fyrir kon- ur á öllum aldri veröur frumsýnt. Herbalife gleymist ekki og við sýn- um handunnin austurlensk bæna- teppi frá Töfrateppinu. Andrea Gylfa syngur rómantísk lög og Karl Karlsson kynnir roðagylltan dömu- drykk. Þessi drykkur verður tvi- mælalaust drykkur dömunnar á næstu öld. Hvernig datt þér i hug að setja allt þetta uppfyrir eitt sýningar- kvöld? „Mér datt þetta bara i hug enda rennur mér blóð til skyldunnar að verja hið kvenlega. Ég rek líka menningarfyrirtækið íðir sem skipuleggur svona sýningar. Hins vegar eru sýningarnar alltaf menn- ingartengdar. Það er stutt siðan ég kom frá Færeyjum þar sem ég skipulagði fegurðarsamkeppni frá a til ö,“ segir Rósa og býður alla vel- komna á Grand Hótel á sunnudags- kvöldið, karla jafnt sem konur. Sýningin hefst kl. 20.00 og það kost- ar 500 krónur inn. -AJ GRIM- Hljómsveitina Geirfuglana þarf að kynna. Þessir sex strákar hafi spilað oftar en tölu verður á komið við ólíklegustu tækifæri síðustu árin en þó vita fæstir hverjir þetta eru. í dag kemur út annar hljómdiskur bandsins - „Byrjaðu í dag að elska" - og Dr. Gunni fór á BSÍ með eina spurningu í huga: Hvaða fuglar eru þetta? ur eru i \ eldrí kantinu BSÍ er einn af uppáhaldsstöðun- um mínum í Reykjavlk. Það er svo gaman að fara eitthvað að það er jafnvel gaman að hafa það bara á tilfinningunni að maður sé að fara eitthvað eins og maður hefur á BSÍ. Og þó maður fari ekki neitt kostar kaffið ekki nema 100 kall með enda- lausri áfyllingu. Nei, sko. Hér hafa þrír Geirfuglar komið sér fyrir í horni. Sœlir strákar! Þeir veifa glaðlega. Þrír fuglar við huggulegt borð að ryðja í sig exótísku sjoppufæði: leikarinn Halldór Gylfason, sonur Magga Eiríks, Stefán Már, og trommar- inn Kristján, sem er að læra ís- lensku í HÍ. Kristján er frá ísafirði eins og bassaleikarinn Vernharð- ur, einn af þeim sem er ekki mætt- ur. Aðrir ómættir eru Þorkell líf- fræðingur (harmoníka) og Freyr bamaskólakennari. Seinna kemst ég að því að hinir mættu em gler- augnalausa deildin í Geirfuglun- um. Jœja, er þetta band ekki eldgam- alt? spyr ég og rámar í plötuna „Drit“ sem kom út fyrir tveim árum. „Jú, blessaður vertu,“ segir Hall- dór. „Ég, Þorkell og Freyr byrjuð- um, held ég, ‘91 að fíflast eitthvað og semja lög.“ „Þrír strákar frá Liverpool," grínast Kristján. Stefán bættist svo við þegar Drit var í vinnslu og ísfirska rytmapar- ið í fyrra. Sætir strákar. „Við spilum mjög mikið,“ segja þeir. „Eitt og eitt bargigg, oft úti á landi meira að segja, í veislum, í Húsdýragarðinum...“ Og svo spiluöuö þiö á elliheimili um daginn, heyröi ég. „Já, á fóstudaginn," jánkar Hall- dór. „Þetta var annað elliheimilis- giggið sem við tökum. Við spiluð- um 100% frumsamið fyrir gamla fólkið." „Það er mjög þakklátt,“ segir trommarinn. „Ég sat á horninu á sviðinu, rétt hjá þrem gömlum kon- um sem sátu við borð. Ég heyrði þær segja: „O, þetta eru svo sætir strákar.““ „Nei, er það!“ hrópa Stefán og Halldór vongóðir og Stefán bætir við: „Já, ég sá að ein var að gefa mér auga.“ „Grúppíurnar eru i eldri kantin- um!“ gantast Halldór. Blönduós-slagurinn Nú spenni ég beltin þvi von er á fleiri rokksögum af Geirfuglum: Stefán: „Eftirminnilegasta giggið var þorrablót á Blönduósi. Við fengum sumarbústað til afnota þarna rétt hjá ballinu, niðri við Blöndu. Svo spilum við ballið og ekkert með það, mikil ánægja bara, nema hvað nú bauð Blönduós sér í partí í bústaðinn til okkar. Húsið troðfylltist á hálftíma og við misst- um stjóm á öllu. Þá fórum við að henda fólkinu út.“ Kristján: „En það vom allir mjög kurteisir, fóru úr skónum og svona, nema gaurinn sem var í fyrstu fermingarjakkafotunum sín- um, en við skulum ekki nafngreina hann.“ Stefán: „Nei, við skulum ekki nafngreina hann Ása.“ Kristján: „He, he. Og svo þegar hann var kominn í partíið var hann kominn í bol og tilbúinn í slaginn." Halldór: „Þessi gæi neitaði að fara út og stóð á miðju gólfi: „Fer ekki út ... fer ekki út...“ tuldraði hann. Þá bárum við hann út og þegar hann var kominn hálfur út úr dyrunum réðust nokkrir vinir hans á okkur því þeir vora komnir með ástæðu til að lemja okkur.“ Stefán: „Þetta endaði með hörku- slagsmálum. Það brotnuðu tvenn gleraugu og það þurfti að sauma nokkur spor í Frey. Við hringdum í lögguna á Blönduósi og hún kom eftir klukkutíma, reif kjaft og sagði að við gætum sjálfum okkur um kennt.“ Alla vega ekki keimlíkir „Mér finnst svo ógeðslega gaman að fara út á land,“ segir Halldór þrátt fyrir slagsmálin. „En mér finnst vera vonleysi í fólkinu. Það er kannski búið að loka mjólkurbú- inu eða kvótinn farinn. Þetta er brýnt vandamál sem stjórnvöld eiga að takast á við strax.“ „Við þurfum að fara einn hring og redda þessu," segir Kristján og það verður eflaust gert þvi nú þarf að kynna nýju plötuna. Þetta er mjög fjölbreytt plata, enda semja allir félagarnir lögin. í púkkinu voru ein fimmtíu lög þegar hafist var handa en þau urðu 12 að lokum sem sluppu á diskinn. Nú spyr ég níðþungrar spurning- ar: Ef foreldrar plötunnar ykkar væru tvœr aörar plötur, hvaöa plöt- ur vœru þaö? „Vá, vá,“ stynja strákarnir eins og í munnlegu poppprófi. „Það væru alla vega tvö hundrað foreldrar," segir Stefán. „Það væra stjúpforeldrar og fóst- urforeldrar," segir Halldór. „Pogu- es er kannski svona stjúpmamma, dettur mér í hug i sambandi við eitt lag.“ „Þetta er popp í heildina," segir Kristján, „poppaðar útsetningar." Já, og rammíslenskt. Sumt minn- ir t.d. á Spilverkiö og Mannakorn, ekki satt? „Að foreldrar okkar séu þá Maggi Eiríks og Shane Macgow- an?“ „Kannski erum við afleiðing org- íu. Já, kannski ætti næsta plata að heita Orgía.“ „Var ekki hljómsveit sem hét ... nei, það var Orgill.“ „Ef kona yrði ólétt að tvíburum eftir hópreið, ætti hún þá að skíra börnin Orra og Gígju?“ „He, he. Þetta er bara plata fyrir þá sem hafa gaman af tónlist en ekki einhverjum töffurum eða sæt- um stelpum. Þetta er tónlist af öll- um toga.“ Er ekki hœttulegt aö vera meö svona mikla blöndu? „Er það? Þarf alltaf að vera heild- arsvipur? Það er oft talað um það i plötudómum, þennan heildarsvip.“ „Já, það er oft sagt í plötudómum að það vanti heildarsvip. Eða þá að lögin séu of keimlík." „Við eram alla vega ekki keim- líkir.“ Toppnum náð Platan komin út. Allir í stuöi. Hvaö nú? Hvaö halda þessir fuglar aö gerist núna? „Ekki neitt,“ segir Stefán blátt áfram. En hann er nú dálítið svart- sýnn og ætlar bara að leigja sér vídeó á gamlárskvöld. „Við höldum bara áfram að spila og höfum gaman af því,“ segir Hall- dór og bætir við að það væri svo sem alveg í lagi að selja upp í kostnað. En hver er íslenski poppdraumur- inn? „Fá að hita upp fyrir Stuðmenn." „Komast í „Hemma Gunn“. Nei, hann er hættur." „Eram við ekki bara komnir á toppinn að sitja hér á BSÍ? Menn komast ekki miklu lengra.“ Því er ég hjartanlega sammála. - Dr. Gunni MAÐUR. GETUR TRETST ÞY> BETUft 'l PARÍS FRAKKARNtR BOROA SVO SÓOAN HAT,„ HVAR ER.T Wi BtölNLR&A BtitNM AO V6RA? 06 MJ HEFUft MÁTTÚRUEGA FEWStO t*ÉR NAUTAK3ÖT ? AMO Á MANNASKtT HA!? É6 SKRAPP TIL PARÍSAR... 06 LOMOON JÁ Ekl BARA 1 PARIS.,. EKKI UONDON f Ó k U S 12. nóvember 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.