Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1999, Blaðsíða 6
Hann virðist dúkka upp alls staðar. Ef ekki á sjónvarpsskjánum þá á djamminu.
Alltaf smart, eiturhress, nýklipptur og kannski einum of happí. En hver er þessi
maður sem hlotið hefur viðurnefnið tískulögga og prédikar yfir landanum um allt
milli himins og jarðar? Fókus gekk í málið og náði Svavari Emi á eintal og upplýsir
hér með þjóðina um hvaða mann þessi piltur hefur að geyma.
„Ég er 25 ára reykvíkingur, ein-
hleypur og barnlaus," er svarið sem
Svavar Öm gefur eitt hádegið á Hót-
el Borg við spurningunni hver hann
eiginlega sé. Hann ilmar af ein-
hverju jurtagumsi og glansar eins og
bamsrass í framan enda nýkominn
úr andlitshreinsun.
„Ég hef aldrei farið í alvöravið-
tal áður en þó hef ég oft verið beð-
inn um það. Mér hefur hins veg-
ar alltaf fundist ég ekki hafa
neitt merkilegt að
segja, alla
vegna ekki
eitthvað sem
væri efni í
viðtal," seg-
ir Svavar
Örn og
kveikir sér
S a 1 e m
Light, tek-
ur vænan
slurk af
kolsvörtu
kaffinu og
setur sig í
stellingar
til að geta
sagt frá lífi
sínu.
Nú en
hvaö hef-
uröu svona
merkilegt að
segja núna?
„Aðalfrétt-
in er sú að ég
er byrjaður
aftur í íslandi í
dag á Stöð 2 eft-
ir nokkurt hlé
og ég er alveg
rosalega ánægður
með það,“ svarar
Svavar og ánægjan
hreinlega lýsir af
honum.
„Já, passið ykkur,
ég kem og geri eitt-
hvað geggjað," hótar
Svavar sjónvarpsáhorf-
endum vetrarins og
segist vera kominn
endumærður til baka.
Vildi verða mót-
orhjólalögga
Svavar Örn er ekki
bara þekkt andlit á skján-
um heldur er hann einnig
vinsæll hárgreiðslumaður
með biðlista oft margar vik-
ur fram í tímann.
En hvernig byrjaöi eiginlega
allt þetta œvintýri, hvernig verö-
ur klippari sjónvarpsstjarna?
„Þegar ég var 18 ára fékk ég
það starf að greiða dag-
skrárgerðarfólkinu á
Stöð 2. Einn dag-
inn er ég svo
beðinn um
a ð
sjá um eitt svona tískuinnslag og eft-
ir það fór boltinn að rúlla,“ segir
Svavar sem reglulega hefur átt efni í
ísland í dag síðustu tvö árin og í
sumar var rödd
hans að heyra
á Bylgjunni.
Svavar ætlaði þó aldrei að verða
fjölmiðlamaður, hvað þá klippari.
„Nei, ég ætlaði að verða mótor-
hjólalögga eða flugþjónn en þegar ég
er 15 ára dett ég inn i hárgreiðsluna.
g hafði verið að vinna sem hand-
langari hjá múrara en var orðinn
hundleiður á þeirri sumarvinnu
og ákvað að ég ætlaði að
vinna i búð þetta sum-
ar. Ég gekk á
mifli verslana
en enginn
v i 1 d i
■
■
ráða mig svo ég endaði á hár-
greiðslustofunni á Klapparstígnum.
Ég leit fyrst og fremst á þetta sem
sumarvinnu en fljótlega kom í ljós
að starfið átti einkar vel við mig. Ég
var einungis tvo mánuði á Klappar-
stígnum en fór svo yfir til Elsu á
Salon Veh og er þar enn.“
Þó Svavar sé kominn á skjáinn er
hann síður en svo hættur að klippa.
Hann segir að það sé mjög gott að
blanda þessum tveimur störfum
saman og margar hugmyndirnar
bak við sjónvarpsefnið kvikni
einmitt á hárgreiðslustofunni þar
sem fólk tali mikið í hárgreiðslu-
stólunum.
ísland er æðislegt
Það passar vel fyrir Svavar
að vera partur af þætti sem
ber heitið ísland í dag þar
sem hann hreinlega elskar
ísland. Hann segist ekki
geta hugsað sér að búa
annars staðar og sé alltaf
jafnfeginn að komast
heim þegar hann er er-
lendis. Svavar ætlaði þó
einu sinni að flytjast út.
„Þegar ég var tvítugur
fór ég til London og lærði
förðun þar í hálft ár. Þegar
ég kom til baka sagði ég
við mömmu að ég væri
bara í stuttri heimsókn
en ég er nú ekki farinn
til baka ennþá. Þetta
var alveg frábær tími,“
segir Svavar og það
vottar fyrir smátrega í
röddinni. Hann segist
ekki skilja þennan
endalausa barlóm í
löndum sínum því ís-
land sé æðislegt og það
sé ekkert verra að búa
hér en í öðram löndum.
Fólk sé einfaldlega sinn-
ar eigin gæfu smiður og
ef það er ekki ánægt að
vinna í skúringum á ís-
landi þá hjálpar litið að
fara til Danmerkur og
skúra þar.
„Ég veit alla vega að ég er
afskaplega heppinn að vera aö
vinna við eitthvað sem ég hef
gaman af,“ segir Svavar, dæs-
ir og sléttir úr peysunni.
Hefuröu alltaf veriö svona
smart og áhugasamur um
tísku?
„Ég var afskapleg pjattrófa
sem barn og hafði snemma
sterkar skoðanir á því í hverju
ég vildi vera. Ég var meira að
segja kominn með strípur í
hárið 10 ára,“ minnist
Svavar.
„Margir líta á mig
sem algjöran
trúð með
greindarvísitölu á við sódavatn.
Það eina sem ég hugsa um era
gestalistar, ný fót og djammið.
Þeim fmnst ég minna á einhverja
fígúru úr þáttunum „Absolutely
fabulous“, segir Svavar Örn og
hlær. Hann viðurkennir að hann
hafi afskaplega gaman af gljálífi en
hann hugsi nú lika um ýmislegt
annað.
„Ég hef t.d mikinn áhuga á alls
konar forvörnum og einelti og
finnst mikilvægt að segja ungu
fólki frá þessum málum. Því reyni
ég oft að fjalla um þessi mál í mín-
um innslögum á Stöð 2.“
Þú ert samt mikiö á djamminu?
„Ja, ég er náttúrlega einhleypur
og bý í miðbænum svo ég kíki nú yf-
irleitt út um helgar,“ svarar Svavar.
Á ekki eldavél
Talið herst að piparsveinalífinu
og Svavar segist bara ekkert skilja
i því að hann sé ekki genginn út.
„Maður er bara svo að segja bú-
inn að gleyma því hvaöa annað
notagildi þetta tól hefur en að pissa
með því,“ segir hann bendir niður,
„Ég er samt ekkert orðinn desper-
at og eiginlega þá verð ég að játa að
ég er afskaplega ánægður með lífið
eins og það er nákvæmlega núna.
Það er mikið að gera hjá mér og ég
fila það i botn enda er ég algjör
stressfikill en kannski myndi ég ró-
ast ef ég væri ekki einhleypur. Alla
vega eins og staðan er í dag þá þarf
Amor að skjóta ástarörvum sínum
af þó nokkru færi þar sem ég er
alltaf á svo miklum hlaupum."
Svavar er sem sagt ennþá ekta
piparsveinn. Hann er svo mikill
piparsveinn að hann hefur búið
eldavélarlaus í tvö ár.
„Ég var afskapleg
pjattrófa sem bam og
hafði snemma sterkar
skoðanir á þvf í hverju
ég vildi vera. Ég var
meira að segja kominn
með strípur í
hárið 10 ára.“
„Ég lifi alveg á mötuneyti ís-
lenska útvarpsfélagsins og svo á ég
mömmu og góða vini sem bjóða
mér oft í mat. Ef ég ætti eldavél þá
myndi ég ekki nota hana því ég
kann ekkert að elda og ég get ekki
einu sinni eldað pylsur án þess að
þær springi.“ segir Svavar sem er
einnig tíður gestur á veitingastöð-
um miðborgarinnar en játar þó að
heimalagaðar kjötbollur í brúnni
sósu eigi engan sinn líka.
En hvemig sér Svavar annars
framtíðina fyrir sér?
“Þetta verður bara skemmtileg-
asta framtíð ever og ef hún verður
ekki björt þá bara geri ég hana
bjarta. Kannski ég læri einhvem
tímann að elda, gangi svo vonandi
út og haldi bára áfram að vera jafn-
hamingjusamur og ég er í dag,“
segir Svavar Öm, fullur bjart-
sýni á nýtt árhundrað. „
-snæ
6
f Ó k U S 12. nóvember 1999