Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1999, Side 12
T
Strákar kvarta oft
yfir því hve stelpur
eru lengi að taka
sig til. Þær eyða
allt of löngum tíma
á baðherberginu
og láta alltaf bíða
eftir sér. En að
sjálfsögðu er
ástæða fyrir því að
þær láta strákana
bíða. Fókus fékk
þrjá karlmenn til að
komast betur til
botns í því af
hverju kærustur
þeirra eru lengi á
baðinu.
•Burt með þykkan
þekjandi farða.
•Engar útlínur né
skarpar línur.
•Eyelinerlnn er út.
•Ekki gllmmer heldur
glans.
| •Kinnalltur er inn en
I samt ekki of mikill.
| •Varirnar elga að vera
| eðlilegar, gjarnan
lilla.
I *Á augun er notaður
iítill maskari, Jafnvel
bara glær.
•Á augnalokin eru not-
aðir Ijósir litir.
•Heildarsvlpurinn eðli-
legt náttúrlegt gljá-
andf útlit.
„Maður notaði stundum eitthvað
svona til að fela unglingabólumar
en maður þurfti ekki svona mikið,“
segir Jón Ómar Erlingsson og lít-
ur áttavilltur yfir vöruvalið í versl-
uninni Face á Laugavegi. Hann er
hingað kominn ásamt kærustunni,
Ástu Kristjánsdóttur, og tveimur
öðrum karlmönnum og þeirra spús-
um til að taka þátt í smá tilraun á
vegum Fókus. Ætlunin er að gefa
hverjum karlmanni 15 mínútur til
að mála sína konu og athuga hvort
þeir séu tilbúnir að fara með þær út
úr húsi á eftir, eða kannski þeir átti
sig á því að 15 mínútur á baðinu er
ekki mikill timi fyrir konu til að
hafa sig til á. Fyrir utan þau Ástu
og Jón Ómar er parið Bryndís
Björg Einarsdóttir og Sigmar Vil-
hjálmsson mætt til leiks, sem og
María Gréta Einarsdóttir og Ró-
bert Aron Magnússon. Reglurnar
eru einfaldar. Strákarnir fá enga
hjálp, hvorki frá sínum konum né
förðunarfræðingnum, Fríðu Maríu
Harðardóttur, sem passar upp á að
enginn fari sér að voða og beri t.d.
naglalakk á augnalokin. Strákarnir
fá að valsa frítt um verslunina og
nota allt sem þeir vilja. Einu skil-
yrðin eru að þeir verða að nota
meik, varalit, maskara og
augnskugga á konurnar og gera sitt
besta.
Eins og gleðikona
Reglurnar eru samþykktar og
„Þetta er eins og að mála ofan í Picasso": Sigmar
Vilhjálmsson, dagskrárgerðarmaður á Mónó, er
vanari að handleika míkrófóninn en maskarann en
bar sig þó fagmannlega að.
klukkan byrjar að tifa. Strákarnir
ráðast á meikkrukkurnar og hella í
andlit kvennanna.
„Voðaleg klessa er þetta, hvernig
sléttar maður eiginlega úr þessu?“
spyr Jón Ómar og á í vandræðum
með að dreifa úr meikinu sem er
komið í eina klessu á annarri kinn-
inni á Ástu.
„Þetta er eins og að mála ofan í
Picasso," segir Sigmar og finnst
greinilega kærastan sín vera nógu
sæt eins og hún er.
„Já, ég er nú eiginlega ekki hrif-
inn af því að konur máli sig mjög
mikið. Þetta náttúrulega útlit er
Fríða kíkir á stelpurnar þegar verkinu er lokið og gefur góð ráð. Hún benti strákun-
um á það að Face stæði fyrir förðunarnámskeiðum.
langflottast," segir Ró-
bert.
„Ertu þá líka hlynntur
því að konur raki sig ekki
undir höndunum?" spyr
Sigmar og Róbert dregur
eitthvað í land með nátt-
úrufegurðarkenninguna.
Meikið er komið á hjá öll-
um og þá tekur vanda-
samara val við.
Púðurdósirnar og
maskararnir eru skoðuð.
„Ég skil ekki þetta með
maskarana. Það stendur
hér að þeir séu water-
proof en samt washes off
easily," segir Sigmar og
mundar tækið á augnhár
Bryndísar.
„Það þýðir ekkert að
biðja mig að gera þetta um
næstu helgi,“ segir Róbert og Mæja
kinkar glöð kolli. Henni líst greini-
lega ekkert á þennan gyllta lit sem
hann er í óðaönn að ausa á augna-
lok hennar.
„Sjáðu, geturðu ekki gert mig
eins sæta og hana?“ segir Mæja og
bendir á Bryndísi.
„Á maður að nota einhver áhöld í
þetta eða tekur maður þetta bara
með puttunum?" spyr Sigmar og
horfir yfir augnskuggaúrvalið.
„Þú ert alltaf með bláan lit, Bryn-
dfs, er það ekki,“ spyr Sigmar.
„Ég er eins og gleðikona,“ segir
Ásta eftir að hafa litið í spegilinn og
séð þennan græna augnskugga sem
Jón Ómar hefur valið á hana. Hún
er greinilega ekkert mjög ánægð.
„Já, þama sérðu, svona vill hann
hafa þig. Eins og gleði-
konu,“ skýtur Sigmar
inn í og er greinilega
skemmt.
Tveir tónar í var-
irnar
Það eru fimm mfnút-
ur til stefnu en Róbert
er búinn að leggja
áhöldin frá sér og segir
að Mæja sé tilbúin.
Hann geti ekki gert bet-
ur. Hann virðist lfka
vera hálfuppgefinn eftir
að hafa þurft að berjast
við heljarmikla klessu
út á höku eftir varablý-
antinn.
„Hvað á ég að gera?“
spyr Ásta.
Sigmar, Jón Ómar og Róbert kíkja á úrvalið og eru ekki alveg vissir til
hvers allt þetta dót er nú notað.
„Vertu bara kyrr,“ svarar Jón
Ómar og mundar brúnan varablý-
ant. Hann er mjög einbeittur á svip
og rekur út úr sér tungima við
verkið.
næstu helgi": Róbert Aron Magnússon plötusnúður
var ekkert sérstaklega öruggur með augnblýantinn.
„Guð minn góður, var-
imar á mér eru eins og á
Andrés önd,“ segir Ásta.
Sigmar er búinn að
finna bleikan varablýant
og leitar að varalit í stíl.
„Já, á þetta ekki allt að
vera í stíl? Einhvers staðar
sá ég það,“ segir Sigmar og
ber sig mjög fagmannlega.
„Ég set líka tvo tóna í var-
imar svo þær stækki."
Einhverjir em farnir að
halda að Bryndís hcifi
kennt Simma heima áður
en á hólminn var komið
því förðunarfrasarnir
renna upp úr honrnn. Þau
bera hins vegar allan slíkan óhróð-
ur af sér.
Jón Ómar setur varalit á Ástu og
lætur hann hana bíta í klósettpapp-
ír á eftir.
„Ég hef séð þetta gert í bíómynd-
unum, sjáið, þetta er allt annað,“
segir hann stoltur og rífur klósett-
„Vertu bara kyrr“: Jón Omar Erlingsson, hljómsveit-
armeölimur í Sóldögg, reynir að teikna beina línu
með varalitablýantinum.
pappfrinn úr munninum á Ástu.
„Það vantar eitthvað þó þeir segi
less is more,“ segir Sigmar og virð-
ir Bryndísi fyrir sér. En þá hringir
klukkan, korterið er liðið og strák-
arnir verða að gjöra svo vel að
sætta sig við útkomuna.
-snæ
Bryndís: "Liturinn á meikinu var
í lagi en mér finnst að augun
hefðu mátt vera sterkari. Svo
var ég ekki hrifin af þessu
glimmeri. Ég myndi aldrei fara
svona út, ekki nema þá á grimu-
ball. Mér fannst Simmi samt
leyna ótrúleg á sér."
Sigmar: „Hvaða vitleysa, við
erum á leiöinni út... Ég verð að
viðurkenna aö Bryndís er mun
betri í þessu en ég. Ég var alls
ekki nógu öruggur með öll þessi
tæki og tól."
Fríöa föröunarfræölngur: „Meik-
iö sem hann valdi var aðeins of
Ijóst og svo notaði hann púður-
kvastann til að jafna það út sem
maöur gerir alls ekki. Svo byrjaði
hann á aö setja maskarann á
áður en hann málaði augnalokin
sem er ekki rétt röð. Annars var
þetta vel unnið. Hann var mjög
vandvirkur við varirnar og valdi
litina af kostgæfni og var nokk-
uö flinkur með maskarann. Það
sem dró hann nokkuð niður var
að þegar hann var búinn að öllu
þessu þá fór hann aö bæta á
meikið."
Ásta: „Ég myndi aldréi vilja
fara út svona! Púðrið var allt of
dökkt og allt of greinileg skil á
hálsinum. Það er eins og mað-
ur sé nýkominn úr Ijósatíma,
bara með andlitsljósin á. Svo
notaði hann kolvitlaus áhöld.
Hann var samt laginn með
maskarann."
Jón Ómar:“ Mér finnst þetta nú
bara vera einhver smáatriði
sem er verið að setja út á. Mér
finnst þú mjög fin og færi alveg
með þér út svona."
Fríöa föröunarfræöingur: „I
fyrsta lagi þá notaði hann of
dökkt meik og átti í erfiðleikum
meö að dreifa vel úr því. Hann
var góður með maskarann og
varablýantinn sem var þó eng-
an veginn í stíl við varalitinn.
Svartar eða brúnar línur í kring-
um varir eru algjörlega komnar
úr tísku. Hann var sá eini sem
var til I að nota einhverja liti að
ráði, sem var djarft og mjög
gott, en hann fór of ofarlega á
augnalokið. Yfirleitt ber maður
ekki eyedusterinn svona hátt
upp."
María Gréta Einarsdóttir, dagskrárgerðar-
maður á Skjá einum, áður en henni var
breytt í Halloween-drottningu.
Eftir
Fyrir
Mæja: „Mér finnst eins og ég
sé á leiðinni á Halloween.
Þessi gulllitur er svo sem í lagi
ef hann væri bara betur settur
á. Svo finnst mér strikin undir
augunum vera allt of feit.“
Róbert: „Ég verð að játa að ég
er ekkert allt of æstur að fara
meö henni út svona útlítandi.
Mér fannst ég þó standa mig
ágætlega miðað við það að ég
hef ekki komist í snertingu við
neitt svona áður.“
Fríöa föröunarfræölngur:
„Meikið var of Ijóst en gengur
samt alveg. Hann púðraði ekki
strax eftir að meikið var komið
á sem er nú venjan. Hann
setti of mikinn eyeduster á
augnalokin og allt of neðar-
lega. Svo var hann nokkuð
fljótfær meö maskarann og
augnblýantinn. Einnig fór hann
frekár brussulega með vara-
blýantinn sem endaði í smá-
kámi. Aftur á móti setti hann
varasalva á varirnar áöur en
hann byrjaði að mála sem var
mjög gott því þær voru helst til
þurrar. Heildarútkoman er
svona full frjálsleg."
Tilboð sem erfitt
erað hafna!
■m KT T T 1 •
McHamborgan.
Aðeins 119 kr.!
\e9a'a9,„;cV.osWaí>u , a \s\andt\
eI hS kminn et'
me't31fþrae,n'sk°StnsS:- aí sem
finnUnd'- a , .„av.’-'Á
Alltaf gæði.
Alltaf góð kaup.
Suðurlandsbraut 56
Austurstræti 20 • Kringlan
x
Bubbi Morthens
Stórtónleikar frá miðnætti föstudagskvöldið 12. nóv.
Matseðill Speise Karte Súpa dagsins Tagessuppe Kr. 390
Grilluð matarpylsa, brauð, sirinep þýsk uppskrift Thiiringer Bratwurst Kr. 390
Bratwurst, grilluð rrteð brauði Bratwurst Kr. 190
Ritsíi, trvær sneiðar Pizza, z Schnitten Kr. 390
Svínasulta, steiktar tcartröflur, rauðrófur Schweinesiilze mit Bratenkartoflen und Roten Beeten Kr. 390
Rauðgrautur m/rjóma Rote Griitze mit Sahne Kr. 390
C
f ó k u s
12. nóvember 1999
12. nóvember 1999
f ó k u s