Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1999, Page 16
í.
Þau enda stundum furðulega ferða-
lögin sem fólk fer í. Stephanie Cara-
dec, þá nýútskrifuö úr Beaux-Arts í
París, dvaldi sumarlangt á fslandi fyr-
ir einu ári á ferðalagi með vinkonu
sinni um íslensk fjöll. Þær dvöldu að-
eins hálfan mánuð 1 Reykjavík og um
það leyti sem þær voru að stíga á skip
með húsbllinn sinn hittu þær íslensk-
an mann. Á þeim fundi kviknaði sú
hugmynd að þær stöllur ættu að opna
bar með frönskum vínum í Reykjavík.
Hugmyndin er nú orðin að veruleika
því í kvöld opnar Stephanie barinn
Sirkus á Klapparstíg 30 þar sem Grand
Rokk var áður.
Innan dyra bíða nú hæfilega gömul
húsgögn i anda tískubara Parisarborg-
ar, tilbúnir að taka á móti gestum. „Ég
vildi hafa barinn svolítið sirkuslegan.
Þegar
sirkus kem-
ur í bæinn
er fólk
ánægt en
það vill
ekki að
hann dvelji
lengi. Svo
er barborð-
ið líka
hringlaga
eins og
sirkussvið,
bleiki litur-
inn á hús-
inu hailærislegur og svolítið skúraleg-
ur. Mér fannst nafnið skondið en ég
hef orðið vör við að sumir hefðu viljaö
sjá franskt nafn,“ segir Stephanie.
Glasið á hálfvirði
Á Sirkusi verður mest áhersla lögð á
léttvín sem Stephanie fær beint frá litl-
um vínbændum i Frakklandi. „Ég er
með þrjár tegundir af Bordeaux,
Chevemy og Chiroubles frá Beaujoiais,
sem er uppáhaldsvínið mitt, og
Sancerre sem er mjög gott hvítvín."
Stephanie segist halda að víndrykkja
hljóti að fara vel í íslendinga sem allir
segist vera skáld. Það sé líka góö til-
breyting frá öllu bjórþambinu. „Ég
ætla að halda verðinu niðri. Glasið
kostar á bilinu 350 til 400 krónur glas-
iö og stór bjór er á sama verði. Ég býð
auðvitað upp á sterka drykki, þó ekki
kokkteila," segir hún og hryllir sig.
Sirkus verður opinn frá hádegi og
fram yfir miðnætti. Það verður boðið
upp á kafii úr nýmöluðum baunum, te
t japönskum bollum og samlokur. „Til
að byrja með verð ég með týpískar
franskar samlokur i hvitu brauði, með
> skinku, osti og súrum gúrkum," segir
Stephanie sem ætlar að spila framhald-
ið eftir eyranu og óskum kúnnans.
Sirkus opnar dyr sinar klukkan 21 i
kvöld og býður ókeypis veitingar
fyrsta klukkutimann. Vínglasið verður
selt á 200 krónur fyrsta kvöldið.
-MEÓ
t Stephanie Caradec bar-
eigandi býður upp á fá-
gæt frönsk vín.
Skíðahúfur: Hver man ekki eftir þessum? Ingmar Stenmarkshúfur og aðrar
iitríkar skíðahúfur eru aftur orðnar inn. Einar af þeim ódýrustu í bænum.
Spútnik, kr. 900.
Dlesel húfa: Tvöföld ull-
k ar- og akrýlhúfa með
Pk. silfurmynstri. Spari-
leg en um leið hlý.
B Sautján, kr. 2.200.
Þið getið ekki lengur horft fram hjá því, Esjan er orðin hvít
og veturinn er kominn með öllum sínum kulda. Það er því
löngu tímabært að taka fram vetrarfötin og ekki síst húfurnar.
Eyrun eru nefnilega ótrúlega viðkvæm og þurfa á hlýjum húf-
um að halda.
Eins og allir gamlir skátar vita þá er mikil útgufun frá höfð-
inu og með því að setja húfu á kohinn þá getur manni hitnað á
tánum. Ef maður gengur ekki með húfu getur það valdið sýk-
ingu i eyrnagöngum, heilahimnubólgu eða langvarandi sýkingu
í miðeyra, Fókus þrammaði í verslanir í miðbænum og kíkti á
húfuúrvalið sem var reyndar í lakasta lagi en batnar líklega
þegar nær dregur jólum. Annars er náttúrlega alltaf hægt að
taka fram prjónana og búa til eina sjálfur.
Tvílit ullarhúfa: Skemmtilega sér-
stök I laginu. Rott á strákana.
GK, kr. 2.900.
Eyrnahúfur: Frekar gisnar
og kannski ekki fyrir köld-
ustu vetrardagana. Hann-
aðar af Dóru Emils.
Nælon og jaröarber, í
kr. 3.900.
Mohairhúfur: Krúttlegar
húfur I mörgum litum,
hannaðar af Dóru Emils.
Nælon ogjarbarber,
kr. 3.300.
Gamaldags húfur: %»V'
Heklaðar húfur meö eyr-
um og bandi undir hökuna.
Rómantlskar I meira lagi.
Spútnik, kr. 1.200.
Gas húfa: Með akrýl- og ullar-
blöndu i ytra laginu og flís í því
innra. Þessi húfa er rosalega
sniðug þar sem það er eigin-
lega hægt aö snúa henni á
báða vegu. Tvær í einni.
Kjallarinn, kr. 1.600.
Twlangle húfa: Tvílit flls-
húfa. Pottþétt fyrir snjó-
brettaníðinga. Reiri litir.
Mótor, kr. 1.500.
Ladysoul flls-
húfa: Álfaleg I
laginu en
samt nógu sið
fyrir eyrun.
Smash,
kr. 2.900.
Stussy-húfa: Úrgerviefni.
Flott fyrir þá sem heita
nafni sem byrjar á essi.
Smash, kr. 2.500.
Burton húfur: Úr
100% ull. Passa
bæði fyrir stráka
og stelpur.
Margir litir.
Týndi hlekkur-
inn, kr. 2.500.
Lambsskinnshúfa: Sama I hvaöa stórhríð þú
lendir, með þessa húfu á höföinu hvorki týnist
þú né verður kalt. Hönnuð af Sigríði Sunnevu.
Nælon og jaröarber, kr. 9.900.
y
J
Þú færð LIVE-hárlitina í
verslunum Hagkaups og
apótekum víða um land.
Heildverslun Kjartans
Magnússonar s. 565 6222.
Schwarz.kopt'
Nýju LIVE-hárlitirnir
gefa óendanlega möguleika.
• Áberandi litir
• Með Multi Reflex Pigments
• Fastir litir og skol
i 1
I0NER
f Ó k U S 12. nóvember 1999