Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1999, Qupperneq 2
28
MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 1999
Sport
Hvað finnst þér?
Hvern myndir
þú velja sem
íþróttamann
ársins 1999?
Þorgeir Ingi Njálsson:
„Þetta er erfið spuming og
örugglega margir sem koma til
greina en ég held að ég velji
Eyjólf Sverrisson."
Örn Magnússon:
„Stöðu minnar vegna vel ég
handboltamanninn Bjarka
Sigurösson."
Ingvar Jónsson:
„Landsliðið í knattspymu
náði frábærum árangri á árinu
og ég held að Eyjólfur
Sverrisson sé góður samnefnari
fyrir liðið og verðskuldi að fá
titilinn."
Guðjón Árnason:
„Ég held að það sé mjög erfitt
að ganga fram hjá Eyjólfi
Sverrissyni. Hann leikur stórt
hlutverk með landsliðinu í
knattspymu og sinu félagi í
Þýskalandi."
Steingrimur Guðjónsson:
„Nú setur þú mig í vanda. Við
eigum marga góða íþróttamenn
en ætli ég mundi ekki velja
Eyjólf Sverrisson."
DV
Hótaði fyrrverandi
kærustu með byssu
Leon Smith, leikmaður Dallas Mavericks, er í verulega slæmum mál-
um. Á dögunum hafði hann uppi á fyrrum kærustu sinni og hótaði henni
öllu illu með byssu.
Smith, sem þykir mjög efnilegur leikmaður hefur átt í verulegum
vandræðum í einkalífmu og Don Nelson, þjálfari DaUas, sagði um helg-
ina að Smith þyrfti svo sannarlega á aðstoð að halda. Hann hefur áður
komist i kast við lögin og angrað þjálfara Dallas. -SK
Jóna Björg er enn
án leikheimildar
Jóna Björg Pálmadóttir, ein efnilegasta handknattleikskona landsins,
hefur enn ekkert leikið á yfirstandandi leiktíð i kvennahandboltanum.
Endalausar deilur um félagaskipti Jónu Bjargar úr Fram í Gróttu/KR
hafa verið fyrir dómstólum og nú síðast felldi Dómstóll HSÍ þann úr-
skurð að „viðurkennt væri að Jónu Björgu Pálmadóttur sé óheimilt, án
undangengis samþykkis áfrýjanda, handknattleiksdeildar Fram, að hafa
félagaskipti úr Fram í Gróttu/KR.“ -SK
Gunnlaugur Hjálmarsson, elsti dómari Nissandeildarinnar og Boris Akbachev, þjálfari IBV og elsti þjálfari deildarinnar, ræða málin í leik á dögunum. EÓI
Gunnlaugur Hjálmarsson dæmir enn á sjötugsaldri:
Ég hætti ekki fyrr
en ég verð rekinn
Gunnlaugur Hjálmarsson, trésmið-
ur og starfsmaður Gerplu, er elsti
starfandi handknattleiksdómari
landsins og þó víðar væri leitað.
Hann er enn að dæma af fullum
krafti, 61 árs að aldri. Gunnlaugur
lék á ferli sínum sem handboltamað-
ur með Fram og ÍR og var um árabil
fastur maður í íslenska iandsliðinu.
„í janúar verða liðin 40 ár frá því
ég tók dómarapróflð. Þar á undan
dæmdi ég í 5 ár próflaus. Yfirleitt
hafa menn hætt um fimmtugt en ég
er búinn að hóta því að hætta ekki
fyrr en ég verð rekinn. Ég geri mönn-
um það ekki til geðs að hætta fyr. Ég
sé ekki ástæðu til að hætta á meðan
ég stenst öll þau þrekpróf sem ég þarf
að standast og er ekki langt á eftir
mönnum sem eru 10 árum yngri en
börnin mín. Ég er einn af fáum sem
hafa mætt í hvert einasta þrekpróf,
sama þótt ég hafi verið veikur eða
illa fyrir kallaður. Ýmsir sem hafa
verið að dæma hér í 1. deild hafa
skotið sér undan því að mæta árum
saman. Dómaranefndin hefur ekki
verið að agnúast út í mig enda
kannski ekki mjög mikið af yngri
dómurum til að taka við.“
- Þú hlýtur að þurfa að œfa
mjög mikið?
„Ég æfi þetta fjórum tO fimm sinn-
um í viku, ekki sjaldnar, í líkams-
ræktarstöðinni í Sundlaug Kópavogs.
Ég er auðvitað kominn á þann aldur
að ég þarf að æfa mikið. Ég hef enn
mjög gaman af þessu og á meðan svo
er held ég áfram að dæma og geri
mönnum það ekki tO geðs að hætta.
Maður dæmir kannski misvel og það
kemur fyrir að ég ligg andvaka þegar
ég fer yfir leiki í huganum sem ég
var að dæma. Þetta kemur reyndar
líka fyrir þegar mér finnst að mér
hafi tekist vel upp.“
- Þú dœmir fyrir ÍA. Hvernig
stendur á því?
„Ég dæmdi lengi vel fyrir Fram og
IR. Þessi félög höfðu engan áhuga á
að nálgast mig eða tala við mig nema
þegar vantaði dómara á yngri flokka
mót. Þá var maður velkominn. Ég
reyndi að koma af stað handbolta á
Akranesi á sínum tima en það gekk
því miður ekki. Mér hefur aOtaf ver-
ið hlýtt til Skagamanna og þeir tóku
mér einstaklega vel.“
- Þú hefur hjálpað mörgum
handboltadómaranum fyrstu
skrefin ekki satt?
„Ég get með sanni sagt að margir
af bestu dómurum okkar í dag séu
nokkurn veginn aldir upp af mér.
Þar get ég nefnt dómara eins og Stef-
án Arnaldsson, Gunnar Viðarsson,
Sigurgeir Sveinsson á meðan hann
dæmdi og Rögnvald Erlingsson. Mér
er sérstaklega minnisstætt þegar
Rögnvald var að byrja í þessu. Þá
vildi enginn dæma með honum. Það
fannst öOum hann svo lélegur og því
tók ég hann upp á mína arma og
dæmdi með honum sjálfur. Allir vita
svo að hann varð einn albesti dómari
landsins um árabO."
- Handboltinn í dag?
„Það hefur ræst úr honum og þetta
er nokkuð skemmtOegt. Reyndar
fmnst mér stundum að kraftamir séu
farnir að bera leiknina ofurliði.
Handboltinn er hiklaust betri en í
fyrra og deildin jafnari. Hins vegar
mætti leikgleðin vera meiri. Þar hafa
peningagreiðslur til leikmanna og
þjálfara eitthvað að segja. Ég hef oft
sagt í gamni að enginn hafi hlegið í
íslenskum handknattleik frá því ég
hætti að spila. Menn eru oftar en
ekki í fýlu og aOa gleði vantar."
- Önnur áhugamál en handbolt-
inn?
„Ekki í augnablikinu. Ég fer þó að
hugsa fyrir eOinni. Ég hef komið mér
ágætlega vel fyrir, hef mín börn og
barnabörn og lifi hamingjusömu lifi.
Það er aldrei að vita nema ég taki
golfsettið fram aftur. Ég pakkaði þvi
niður fyrir 25 árum þegar ég kaus
það á fógrum sumarmorgni þegar ég
vaknaði klukkan sex að fara frekar í
golfið en vinnuna. Þá hét ég því að
snerta ekki settið fyrr en ég hefði
góðan tíma fyrir golfið. Sá timi gæti
runnið upp fyrr en síðar,“ sagði
Gunnlaugur Hjálmarsson.
-SK