Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1999, Blaðsíða 7
32 MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 1999 MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 1999 33 Sport Sport Hamar(31) 94 - Haukar (35) 97 0-3, 8-7, 13-17, 22-20, 23-27, 27-31 (31-35), 31-37, 3fr41, 39-45, 45-45, 47-51, 49-56, 63-72, 68-73, 73-73. 75-77. 78-77, 81-79, 81-81. 85-83. Brandon Titus 28, Pétur Ingvarsson 20, Hjalti Jón Pálsson 15, Ómar Sigmarsson 10, Svavar Pálsson 7, Óli S. Bardal 6, Skarphéöinn Ingason 4, Kristinn Karlsson 4. Fráköst: Hamar Haukar 36. 3ja stiga: Hamar 23/11, Haukar 16/5. . Dómarar (1-10): Helgi Bragason og Rúnar Gíslason (7). Gœdi leiks (1-10): 8. Vlti: Hamar 30/23 , Haukar 45/40. Áhorfendur: 270. Maður leiksins: Guðmundur Bragason, Haukum. Tvær fram DV, Hveragerði: Gríðarlegur harður slagur var háður í Hvergerði í gær- kvöld þar sem heimamenn í Hamri tóku á móti Haukum. Viðureignina þurfti að tví- framlengja og áður en upp var staðið fögnuðu Haukamenn sigri. Að loknum venjulegum leiktíma var staðan 73-73 en lokatölur urðu 94-97. Á þriðja hundrað áhorfend- ur lögðu leið sina á leikinn en vont veður á svæðinu í gær- kvöld kom í veg fyrir betri að- sókn. Fyrri hálfleikur ein- kenndist af klúðri og bæði lið- in misstu oft boltann. Hauk- amir höfðu þó yfirleitt forystu í fyrri hálfleik. Allt annað var að sjá til lið- anna í síðari hálfleik. Meira jafnvægi var í leik þeirra og þau hittu enn fremur betur. Undir lok venjulegs leiktíma jafnaði Svavar Pálsson fyrir Hamar, 73-73, og framlenging blasti við. Hún var jöfn út í gegn en Brandon Titus hitti illa úr skotunum en þrjú slík geiguöu á skömmum tima. í annarri framlengingu hittu Hamars- menn illa og Haukamir tryggðu sér sigurinn. Hamar hefur tapaö 4 af síðustu 5 leikjum sínum Pétur Ingvarsson og Svavar Pálsson voru bestu menn heimamanna. Þetta var annar tapleikur Hamars á heimavelli í deildinni í vetur. Hamars- menn eru erfiöir heim að sækja því þeir hafa unnið þrjá af fimm heimaleikjum og tap- að tveimur með samtals sjö stigum. Guðmundur Bragason og Ingvar Guðjónsson voru bestir í Haukaliðinu. -KB 'txSÁ Steinar Kaldal og félagar í KR áttu ekki í erfiðleikum með að innbyrða sigur gegn slökum Borgnesingum í gærkvöld. DV-mynd E.ÓI. ■ ■ KR (49) 98 - Skallagrímur (36) 64 0-2,5-2, 5-6,15-6,17-10, 23-10, 23-16, 25-18,30-18, 33-26, 38-26,38-33, 47-33, (49-36), 59-36, 59-39, 70-39, 72-44, 76-51, 86-51, 98-64. % Keith Vassell 24 Ólafur Ormsson 21 Jónatan Bow 13 Jakob Sigurðarson 10 Jesper Sörensen 10 Iljalti Kristinsson 8 Sveinn Blöndal 5 Steinar Kaldal 4 Ingvar Ormarsson 3 Fráköst: KR Skallagrímur 28. 3ja stiga: KR SkaUagrímur 3/17. 43, 11/27, Dómarar (1-10): Kristinn Óskarsson og Jón Bender, 8. Gœði leiks (1-10): 6. Víti: KR 9/15, SkaUagrímur 13/22. Áhorfendur: 200. Hlynur Bæringsson 14 Torrey John 13 Ari Gunnarsson 8 Sigmar EgUsson 8 Pálmi Þórisson 5 Tómas Holton 5 Birgir Mikaelsson 4 Vöiundur Völundarson 3 Finnur Jónsson 2 Ingvi Gunnlaugsson 2 Maður leiksins: Ólafur Jón Ormsson, KR. Ástralir unnu Davis-bikarinn - sigruðu Frakka í úrslitum Ástralir hafa á að skipa besta landsliði heims í karlaflokki í tennis. Þetta sýndu þeir og sönnuðu um helgina er þeir tryggðu sér hinn eftirsótta Davis-bikar eftir skemmtilega úrslitaleiki gegn mjög sterku liði Frakka. Ástralir unnu þrjár viðureignir í úrslitunum en Frakkar aðeins eina þrátt fyrir að þeir léku á heimavelli. Það var aðeins í fyrsta leiknum sem Frakkar unnu sigur en síðan ekki söguna meir. Lið Ástrala hefur í gegnum árin verið afar sterkt í keppninni um Davis-bikarinn og aðeins lið Bandaríkjanna hefur unnið bikarinn oftar en Ástralir. Ástralir unnu í gær í 27. skipti en Bandaríkjamenn hafa unnið í 31 skipti. Keppt var um Davis-bikarinn í 100. skipti að þessu sinni en keppnin hefur staðið yflr allt þetta ár. -SK Ástralir fögnuðu rosalega eftir sigurinn gegn Frökkum og Ijóst að Davis-bikarinn var kominn í örugga höfn í 27. skipti. Reuter - sigur KR í röð sem þar með komst á toppinn Það er létt yfir KR-ingum í körfunni þessa dagana því karlalið félagsins vann auðveldan 98-64 sigur á Skalla- grími í gær. Þetta var fimmti sigur liðsins í röð, bæði alls og á heimavelli og með hon- um komst liðið á toppinn. Skallgríms- menn prufukeyrðu Torrey John í þess- um leik en áttu ekkert svar við sterku KR-liði þar sem vamarleikurinn er í lykilhlutverki en þetta var þriðji leik- urinn í röð sem andstæðingar ná ekki upp í 70 stiga múrinn gegn þeim. Það hafa mótherjar KR heldur ekki gert i öllum fimm leikjum liðsins í nýja KR- húsinu og hefur KR fengið aðeins 62,6 stig þar að meðaltali á sig í deildinni. Ofan á sterka vöm spilar KR-liðið skynsamlegan og árangursríkan sókn- arleik þar sem boltinn fær að ganga vel en alls átti liðið 30 stoðsendingar í leiknum í gær. Enn einn stórleikurinn hjá Ólafi Jóni Ormssyni Ólafur Jón Ormsson átti enn einn stórleikinn, skoraöi 21 stig, tók 10 frá- köst, gaf 6 stoðsendingar og stal 4 bolt- um auk þess sem Keith Vassell var að- eins einu frákasti og einni stoðsend- ingu frá því að ná þrefaldri tvennu en hann var stigahæstur heimamanna með 24 stig og hitti úr 8 af 12 skotum sínum. Hjá Skallagrími var það helst Hlynur Bæringsson sem stóð upp úr en hann tók 13 fráköst, þar af 9 í fyrri hálfleik og gerði reyndar 16 stig en hann setti svo ört ofan í í lokin að ritara leiksins tókst að missa af einni körfu stráksins og auk þess að bursta Borgnesinga með 34 stiga mun sendu KR-ingar þá heim með tveimur stigum minna en þeir í raun gerðu. Ekki er hægt að hverfa frá þessum leik án þess að minnast á unga KR- inga, tvö „ný andlit" gerðu góða hluti í gær, þeir Hjcdti Kristinsson og Sveinn Blöndal, en sá síðamefndi tók meðal annars 12 fráköst, þar af 5 í sókn og fiskaði tvö sóknarbrot, þrátt fyrir að spila aðeins í 15 mínútur. -ÓÓJ Snæfell lék mjög vel - og vann stóran sigur á Grindvíkingum, 74-57 „Þetta var hörkuleikur af okkar hálfu,“ sagði Bárður Eyþórsson aðstoðarþjálfari Snæfells sigurreifur í lok leiks Snæfells og Grindavik- ur í úrvalsdeildinni í gær- kvöld. „Vörnin gekk sér- staklega vel og menn hjálp- uðust að og það gerði gæfumuninn," sagi Bárður enn fremur. Óhætt er að taka undir þau orð Bárðar að vörnin hafi gengið vel því það eru ekki mörg lið sem halda Grindvíkingum undir 60 stigum í heilum leik. Það var greinilegt að það hlé sem gert var á deildinni hef- ur nýst Snæfelli betur en Grindvíkingum og alveg frá upphafi var augljóst að þeir ætluðu sér ekkert nema sig- ur. Ágætir dómarar leiks- ins leyfðu nokkra hörku og það nýttu bæði lið sér. Munurinn á liðunum var hins vegar sá að sóknarleik- ur Snæfells var mun betri en allt gat í raun gerst þar til í lok leiksins, þá virtust Grindvíkingar fara á taug- um og notuöu of mikla orku til að rífast í dómurunum í stað þess að einbeita sér að leiknum og það kann aldrei góðri lukku að stýra. í liöi Snæfells var liðs- heildin góð með Kim Lewis sem besta mann, einnig átti David Colbac sinn besta leik hingað til. Hjá Grindvíking- um var Brenton Birming- ham allt í öllu ásamt Pétri Guðmundssyni en liðið sýndi alls ekki sinn rétta styrk. -KS ÚRVALSDEILDIN KR 9 7 2 714-631 14 Grindavík 8 6 2 704-586 12 Njarðvik 7 6 1 662-535 12 Haukar 8 5 3 671-640 10 Hamar 9 5 4 688-744 10 Tindastóll 7 5 2 596-517 10 Ketlavík 6 4 2 608445 8 Snæfell 9 3 6 632-729 6 Þór A. 8 2 6 597-757 4 Skallagr. 9 2 7 730-811 4 KFÍ 7 2 5 559-593 4 ÍA 9 1 8 566-739 2 Leikjum KFÍ og Þórs og Tindastóls og Keflavíkur var frestað vegna veðurs og hafa þeir verið settir á i kvöld. Enn tapar Skaginn DV, Akranesi: Njarðvíkingar unnu sannfær- andi sigur á Skagamönnum, 64-91, í íþróttahúsinu á Akranesi í gærkvöld. Þaö var ljóst fljótlega í leiknum hvert stefndi og Njarð- víkingar sýndu mátt sinn og megin og juku forystuna sína jafnt og þétt. Þeir leyfðu sér þann munað að hvíla sína reynd- ari menn og í staðinn fengu óreyndari að spreyta sig og gerðu það með sóma. Af spilamennsku Skagamanna í þessum leik má ráða að þeir hali ekki mörg stig í deildinni í vetur. Ef ekki verður bæting á bíður liösins ekkert annað en fall i 1. deild. Það sem vakti athygli í leikn- um var að Teitur Örlygsson er kominn aftur til baka og endur- koma hans styrkir liðiö mikið. Eins og Njarövíkingar leika virðist ekki mikil þörf á erlend- um leikmanni en það er samt aldrei að vita hvað þeir gera i þeim efnum eftir áramótin. -DVÓ ÍA (28) 64 - Njarðvík (39) 91 12-13, 17-22, 22-30, (28-39). 28-54, 34-67, 44-83, 51-85, 58-87, 64-91. Snæfell (33) 74 - Grindavík (26) 57 12-2, 20-14, 27-14, (33-26), 33-33, 4440, 5240, 63-50, 74-57. Reed Beckett 13 Brynjar K. Sigurðsson 12, Ægir H. Jónsson 9, Magnús Guðmundsson 9, Chris Horrochs 6, Bjöm Einarsson 6, Hjörtur Hjartarson 5, Brynjar Sigurðsson 4. Fráköst: ÍA 27 , Njarðvík 35 . 3ja stiga: ÍA 18/8 , Njarðvík 15/7. Dómarar (1-10): (9) Björgvin Rúnarsson og Leifur Garðarsson. Gœói leiks (1-10): .7 Víti: ÍA 11/7 , Njarðvík 33/26 Áhorfendur: .100 w Teitur Örlygsson 21, Friörik rgnarsson 14, Páll kristinsson 14, Örlygur Sturluson 12, Friðrik Stefánsson 12, Hermann Hauksson 9, Rganar Ragnarsson 4, Ásgeir Guðbjartsson 3, Örvar kristjánsson 2. Kim Lewis 31 David Colbac 18 Jón Þór Eyþórsson 10 Pálmi Sigurgeirsson 7 Rúnar Sævarsson 6 Baldur Þorleifsson 2 Fráköst: Snæfell 39, Grindavík 29. 3ja stiga: Snæfell 4/20, Grindavík 8/33. Dómarar (1-10): Einar Þór Skarphéðinsson og Bergur Steingrimsson, 8. Gœói leiks (1-10): 8. Víti: SnæfeU 20/28, Grinda- vik 8/13. Áhorfendur: 150. Brenton Birmingham 27 Pétur Guðmundsson 10 Guðlaugur Eyjólfsson 8 Sævar Garðarsson 8 Helgi Már Helgason 3 Dagur Þórisson 1 Maður leiksins: Teitur örlygsson, Njarðvík Maður leiksins: Kim Lewis, Snæfelli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.