Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1999, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1999, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 1999 31 DV Sport Bjarki með 12 - þegar Afturelding sigraði FH fyrst liða í Krikanum „Við vorum staðráðnir í að vinna þennan leik og spila betur en í síðustu tveimur leikjum. Þetta gekk eftir en ég tel samt að við eigum töluvert inni enn þá. FH-ingar voru aldrei langt und- an en við náðum sem betur fer aldrei að hleypa þeim inn í leik- inn,“ sagði Bjarki Sigurðsson, leikmaður Aftureldingar, eftir sigur á FH, 27-30, í Kaplakrika. Bjarki átti skínandi leik og skoraði 12 mörk úr 15 skotil- raunum þrátt fyrir að hann gengi ekki heill til skógar. Bjarki er með brotið bátsbein í hendinni og með rifinn vöðva í framanverðu læri sem gerði það af verkum að hann átti bágt með hlaupa. „Það var á mörkunum að ég gæti spilað vegna meiðsl- anna í lærinu en ég harkaði af mér og var vel stemmdur fyrir leikinn," sagði Bjarki. FH-ingar, spm höfðu fyrir leikinn ekki tapað 11 deildar- leikjum í röð á heimavelli, skor- uðu fyrsta markið og var það í eina skiptið sem þeir höfðu for- ystu. Mosfellingar náðu fljótt undirtökunum í leiknum og áttu ekki í teljandi vandræðum með að finna leið fram hjá lekri vörn Hafnflrðinga. Um miðjan seinni hálfleik náðu FH-ingar að hleypa spennu í leikinn þegar þeir minnkuðu muninn í eitt mark í nokkur skipti en Mosfell- ingar áttu góðan endasprett og unnu sanngjaman og ömggan sigur. Vörn og markvarsla hefur verið sterkasta vopn FH-inga í vetur en í þessum leik vom þetta hlutirnir sem urðu þeim að. falli. Ungu strákarnir Brynj- ar Geirsson og Sigurgeir Ámi Ægisson voru bestu leikmenn FH. Brynjar er með skemmtileg- an skotstíl sem hann hefur erft frá fóður sínum (Geir Haflsteins- syni) og Sigurgeir, sem er efni í mikla skyttu, skoraði nokkur glæsileg mörk með uppstökkum en var einnig mjög óheppinn því nokkur þrumuskot hans lentu í tréverkinu. Bjarki var í banastuði hjá meisturnum og gat nánast skor- að að vild þrátt fyrir að vera þjáður í fætinum. Gintas Savu- kynas lék vel á miðjunni og Jón Andri var drjúgur ásamt Magn- úsi Má Þórðarsyni. Einar Gunn- ar Sigurðsson lék ekki með vegna meiðsla og var það skarð fyrir skildi og ekki síst hvað varðar varnarleikinn. -GH FH 27 (12) - Afturelding 30 (15) 1-0, 2-3, 4-4, 6-6, 6-8, 8-9, 9-11, 11-14, (12-15), 13-17, 15-18, 18-21, ________ 20-21, 23-24, 24-29, 27-30. LYJ Brynjar Geirsson 7, Sigurgeir Árni Ægisson 6, Guðmundur Pedersen 6/4, Hálfdán Þórðarson 5, Lárus Long 2, Gunnar Beinteinsson 1. Varin skot: Egidijus Petkevicius 2/1, Magnús Árnason 6. Brottvisanir: 10 mínútur. Rauó spjöld: Engin. Vitanýting: Skorað úr 4 af 5. Áhorfendur: 250. Gœði leiks (1-10): 5. Dómarar (1-10): Hlynur Leifsson og Anton Pálsson, 4. Bjarki Sigurðsson 12/5, Jón Andri Finnsson 6, Gintaras Savukynas 5, Magnús Már Þórðarson 3, Gintas Galkauskas 3, Þorkell Guðbrandsson 1. Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 14/1. Brottvisanir: 10 mínútur. Rauó spjöld: Engin. Vítanýting: Skorað úr 5 af 6. Maður leiksins: Bjarki Sigurðsson, Áftureldingu. HK 25 (11) - Valur28(12) 0-2, 2-2, 3-3, 4-3, 4-4, 6-6, 6-8, 8-8,10-10, 10-12, (11-12), 15-12,15-14, 16-14, 16-16, 18-17, 18-20, 19-20, 22-23, 22-26, 24-26, 24-27, 25^28. u mm karia FH-ingar voru búnir að leika 11 deildarleiki í röð í Krikanum án þess að tapa fyrir leikinn gegn Aftureldingu á laugardag og það var liðið rúmlega ár síðan Stjörnumenn sóttu þar tvö stig síöastir liða. ÍR-ingar hafa aðeins einu sinni náð að vinna defldarleik gegn Stjömunni i Garöabæ en liðin hafa alls 12 sinnum mæst i Ásgarði í efstu deild, Stjarnan hefur unnið sjö leiki og um helgina gerðu liðin fjórða jafnteflið. HK hefur aðeins unnið tvo af 11 heimaleikjum sínum gegn Val í efstu deild en Valsmenn unnu sinn áttunda sigur í Digranesinu um helgina. Valsmönnunum Davíó Ólafssyni og Július Gunnarssyni hentar greinilega mjög vel að að spila á laugardagskvöldum en þeir gerðu samtals 13 mörk úr 19 skotum í leik HK og Vals sem hófst klukkan sjö á laugardag. Davíð nýtti þar af 7 af átta skotum sínutn og fór oft illa með varnarmann sinn i vinstra hominu. Báðir hafa þeir félagar verið mjög rólegir til þessa í vetur og vom samtals með 11 mörk saman í fyrstu 11 umferðum tímabilsins og skoruðu því 2 mörkum fleira í þessum leik. Valsmenn nýttu 14 sóknir í röð á 19 mínútum í seinni hálfleiknum gegn HK eftir að hafa þurft að bíða i átta og hálfa mínútu og sjö sóknir eftir fyrsta marki hálfleiksins. Alls var Valsliðið með 64% sóknarnýtingu i seinni hálfleiknum. Kynnirinn á leik Stjörnunnar og ÍR- inga gerði góölátlegt grin að mætingarleysinu í Garðabæ þegar hann bað fólk um að þjappa sér saman á bekHjunum rétt fyrir leik. Þá voru aðeins 20 áhorfendur mættir en síðan rættist úr og voru orðnir um 150 áður en langt um leið. „Það var sárt að tapa þessu í lokin en í raun hefði sigurinn getað endað hvorum megin sem var. Það hefði kannski verið ósanngjarnt ef við hefðum unnið en við fórum samt illa með tvö færi til þess undir lokin. Ég er samt sáttur við leik okkar, sérstaklega varðandi vömina," sagði Ragnar Óskarsson, sem var langbestur ÍR-inga gegn Stjörnunni. -ÓÓJ/-HI Heimaleikjasigurganga HK á (Hlíðar)endastöð: Tími Davíðs og Júlíusar Fjögurra leikja sigurganga HK á heimavelli sínum í Digranesi komst á endastöð á laugardagskvöldið, nánar til getið á Hlíðarendastöð, þegar Valsmenn frá Hlíðarenda unnu þar 25-28 sigur. Eftir jafnan fyrri hálfleik virtust heimamenn vera að taka frumkvæðið í upphafi seinni hálfleiks er HK gerði 4 fyrstu mörkin í hálfleiknum. Valsmenn skoruðu ekki fyrr en eftir átta og hálfa mínútu og HK var 15-12 yfir. En þá kom sjálfstraustið i Valsliðið með góðum leik Davíðs Ólafssonar og Júlíusar Gunnars- sonar, sem báðir hafa legið í „dvala“ lengstum i vetur en þeirra tími er greini- lega laugardagskvöld. Valsmenn skoruðu í 14 sóknum i röð og komust í 22-26 og héldu síðan vefli út leikinn. Auk þeirra félaga áttu Axel Stef- ánsson og Snorri Guðjónsson góðan leik en leikur HK stóð og féll með framgöngu Óskars Elvars Óskarssonar og Sverris Björnssonar en þeir áttu báðir góðan leik en það var bara ekki nóg. -ÓÓJ ®Óskar Elvar Óskarsson 10/4, Sverrir Björnsson 7, Hjálmar Vilhjálmsson 5, Alexander Amarson 1, Jón Bessi Ellingsen 1, Samúel Ámason 1. Varin skot: Hlynur Jóhannesson 13/1, Kristinn Guðmundsson 2. Brottvísanir: 4 mínútur. Rauð spjöld: Engin. Vítanýting: Skorað úr 4 af 5. Áhorfendur: 50. Gœði leiks (1-10): 7. Dómarar (1-10): Valgeir Ómarsson og Bjarni Viggósson (7). Davíð Ólafsson 7, Júlíus Gunnarson 6, Snorri Guðjónsson 5, Markús Máni Michaelsson 5/3, Sigfús Sigurðsson 2, Bjarki Sigurðsson 2, Daníel Ragnarsson 1. Varin skot: Axel Stefánsson 19/1. Brottvisanir: 6 mínútur. Rauó spjöld: Engin. Vitanýting: Skorað úr 3 af 4. Maður leiksins: Davíð Ólafsson, Val. Hart tekist á f leik FH og Aftureldingar í Kaplakrikanum á laugardag. FH tapaði sínum fyrsta heimaleik f vetur. DV-mynd E.ÓI. Spenna í lokin Sjarnan 21 (12) - IR21(10) 0-1, 2-2, 4-3, 7-4, 8-6, 9-9, (12-10), 12-13, 15-14, 17-15, 18-17, 20-17, 20-21, 21-21. - er Stjarnan og IR skildu jöfn Mikil spenna var undir lok leiks Stjömunnar og ÍR i Ásgarði í gær og ÍR-ingar voru hér um bil búnir að stela sigrinum. Varnir beggja liða vora sterkar en los var á sóknarleik þeirra og í raun treystu félögin aöeins á einn mann þar á bæ, Stjaman á Hilmar Þórlindsson og IR á Ragnar Óskars- son. í síðari hálíleik voru markverðir liðanna, þeir Birkir og Hallgrímur, komnir í gang og vörðu mjög vel oft á tíöum. IR-ingar komust yfir með marki Ragnars þegar rúmar tvær mínútur voru eftir. Þó aö barátta ÍR-inga hafl verið góð á þessum kafla verður að segjast eins og er að þeir fengu töluverða hjálp frá dómurunum til aö ná þessu forskoti þar sem þeir ráku Stjörnumenn út af í tíma og ótima fyrir litlar sakir. Rögnvaldur jafnaði fyrir Stjömuna þegar mínúta var eftir og IR-ingar fengu síðan dæmt á sig sóknarbrot. Stjörnumenn náðu hins vegar ekki að nýta sér þaö og Hallgrímur varði á lokasekúndunum skot Rögnvalds Johnsen og því var niöurstaðan jafntefli. „Þetta var hörkuleikur og ÍR-ing- ar gerðu okkur erfltt fyrir. Við vor- um sterkari framan af en spiluðum óskynsamlega á köflum undir lok- in. Eg verð líka að segja að ég skildi ekki ýmsa af dómunum á lokakafla leiksins," sagði Einar Einarsson þjálfari Stjömunnar eftir leikinn. •HI . Hilmar Þórlindsson 11/3, Eduard Moskalenko 3, Konráð Olavsson 3, Arnar Pétursson 2, Sæþór Ólafsson 1, Rögnvaldur Johnsen 1. Varin skot: Birkir ívar Guðmundsson 14, Ingvar Ragnarsson 1/1. Brottvisanir: 12 mínútur. Rauó spjöld: Engin. Vitanýting: Skorað úr 3 af 4. Áhorfendur: 150. Gceði leiks (1-10): 6. Dómarar (1-10): Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson, 2. ÍSij Ragnar Óskarsson 11/2, Ólafur Sigurjónsson 3, Bjarni Jj Fritzson 2, Róbert Rafnsson 1, Einar Hólmgeirsson 1, y Finnur Jóhannsson 1, Björgvin Þorgeirsson 1, Erlendur Stefánsson 1/1. Varin skot: Hrafn Margeirsson 3, Hallgrímur Jónasson 12. Brottvisanir: 6 mínútur. Rauð spjöld: Engin. Vitanýting: Skorað úr 3 af 4. Maöur leiksins: Ragnar Óskarsson, ÍR. KA 27 (12) - Víkingur 27 (15) 1-1,2-2,3-5,6-6,7-8, 8-11, 10-14, (12-15), 14-17, 16-19, 18-21, 20-24, 23-24, 25-25, 25-26, 26-27, 27-27. fGuðjón V. Sigurðsson 9/1, Hafldór Sigfússon 4/1, Jóhann G. Jóhannsson 4, Bo Stage 3, Heimir Öm Árnason 3, Magnús Arnar Magnússon 3, Geir Kr. Aðalsteinsson 1. Varin skot: Reynir Þór Reynisson 9. Brottvisanir: 0 mínútur. Rauð spjöld: Engin. Vítanýting: Skorað úr 2 af 3. Áhorfendur: 250. Gœði leiks (1-10): 7. Ingimundur Helgason 8/4, Sigurbjöm Narfason 5, Hjalti Gylfason 5, Valgarð Thoroddsen 3, Hjörtur Arnarsson 2, Þröstur Helgason 2, Leó Örn Þorleifsson 2. Varin skot: Hlynur Morthens, 14/1. Brottvísanir: 4 mínútur. Rauð spjöld: Engin. Vitanýting: Skorað úr 4 af 4. Maður leiksins: Guðjón Valur Sigurðsson, KA. Dómarar (1-10): Stefán Amaldsson og Gunnar Viðarsson, 8.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.