Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1999, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1999, Blaðsíða 12
MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 1999 38 Allt vitlaust í London - á leik Millvall og Cardiff í enska boltanum Lögreglan átti veru- lega í vök að verjast á leik Millvall og Cardiff í ensku knattspyrnunni um helgina. Gríðarleg skrílslæti brutust út i London en leikurinn fór fram á heimavelli Millvall sem sigraði, 2-0. Snælduvitlausir stuðningsmenn liðanna slógust eins og hundar og kettir og gerðu harðar árásir að lögregluþjón- um og lögreglubílum. Þá voru margar rúður brotnar í verslunum og á ölkrám. Alls voru um 30 bullur handteknar og munu ólætin örugglega draga dilk á eftir sér fyrir bæði lið. -SK Breska sjónvarpsstöðin Sky hef- ur unnið baráttuna um sýning- arréttinn í Evrópu frá næstu tveimur keppnum um Ryderbik- arinn í golfi. Sýnt verður beint frá Ryderbikamum árið 2001 á Englandi og árið 2003 í Detroit í Bandaríkjunum á Sky Sport. Argentínski knattspymumaður- inn Claudio Caniggia hefur verið sakaður um að berja ljós- myndara í verslunarmiöstöð. Caniggia, sem frægastur varð fyrir að leika í sókn argentínska landsliðsins við hlið Maradona, neitar þessum ásökunum. Charles Barkley, leikmaður Houston í NBA-deildinni í körfuknattleik, þarf að snara fram 1,5 milljón króna til greiðslu sektar. Barkley var dæmdur til að greiða sektina vegna yfirlýsinga sem hann gaf um dómara nýverið og er þetta ekki í fyrsta skipti sem orðbragð hans kostar hann peninga. Hnefaleikakappinn Muhamed Ali hefur verið útnefndur „iþróttamaður 20. aldarinnar" af bandaríska íþróttatímaritinu Sport Illustrated og kom niður- staðan fáum á óvart. Þýska knattspyrnuliðid Bayer Leverkusen er að fjárfesta í ung- um knattspyrnumönnum þessa dagana. Nýverið keypti Leverku- sen Króatana Jurica Vraanjes, 19 ára, og Marko Babic, 18 ára, frá króatíska liðinu Osijek. Um helgina var síðan gengið frá samningum við 16 ára strák, Philipp Weissenberger frá aust- urríska liðinu FCHard Vorarl- berg. Argentínski knattspyrnuþjálfar- inn, Osvaldo Ardiles, sem var rekinn frá Króatía Zagreb á dög- unum, er líklega á leið til Japan á nýjan leik. Ardiles, sem um tima lék með Tottenham í enska boltanum, hefur fengið tilboð frá japönsku 1. deildar liði en hann þjálfaði í Japan áður en hann tók við króatíska liðinu. Austurríski skíðamaðurinn Hemann Meier sigraði ekki í brunkeppni heimsbikarsins á skíðum sem fram fór um helgina og telst það til tíðinda þegar þessi snjalli skíðamaður stendur ekki á efsta þrepi verðlauna- pallsins. Hannes Trinkl sigraði og Hermann Meier varð í öðru sæti. -SK Dieter Baumann er á góðri leið með að fá uppreisn æru eftir mikla niðurlægingu. Baumann vann gullið í 5000 metra hlaupi á ÓL í Barcelona 1992. Reuter Rannsóknir benda til sakleysis þýska hlauparans Dieters Baumanns: Dóp í túbunni Undarleg staða er komin upp í lyfjamáli þýska hlauparans Dieters Baumanns. Baumann féll á lyfja- prófl sem gert var nýverið. Hann hefur um árabil verið í fremstu röð íþróttamanna sem barist hafa gegn neyslu ólöglegra lyfja í íþróttum og því komu niðurstöður lyfjaprófanna verulega á óvart. Strax og niðurstöður lyfjapróf- anna voru ljósar lýsti Baumann sig saklausan og hét því að komast að því hvemig stæði á því að hann hefði fallið á lyfjaprófunum. Nú hefur honum orðið nokkuð ágengt í því að hreinsa mannorð sitt. Baumann setti málið strax í rann- sókn. Sérfræðingar mættu á heimili hans, rannsökuðu matvæli og margt annað sem varpa kynni ljósi á mál- ið. Eitt af þvi sem sérfræðingamir tóku með sér og rannsökuðu var tannkremstúba sem Baumann hafði notað er hann burstaöi I sér tenn- umar. Wilhelm Schaenzer, læknir á rannsóknarstöð í Köln sem sérhæfir sig í rannsóknum vegna lyfjaprófa, sagði um helgina að sannað væri að steralyfinu nandrolone hefði verið komið fyrir í tannkremstúbu sem Baumann hefði notað. Samstarfs- menn hans á rannsóknarstofunni burstuðu í sér tennumar og notuðu tannkrem Baumanns. Þeir gengust síðan undir lyfjapróf og féllu allir sem einn. „Þetta er að mínu mati stórt skref í þá átt að ég geti sannað sakleysi mitt. Þaö var ailtaf ætlun mín að komast að því hver hefði gert mér þennan óleik. Ég vona að yfirvöld komist að því með rannsókn í tengslum við þau málaferli sem fram undan eru hver sé sekur um það glæpsamlega athæfi að setja lyf- ið í tannkremið mitt,“ sagði Bau- mann í þýskum fjölmiðlum og bætti við: „Þetta mál snýst ekki lengur um lyfjanotkun mina. Það er ljóst að einhver aðili hefur reynt að sverta mannorð mitt og dómstólar munu komast að því hver er sekur í þessu máli.“ Talið er að Baumann standi vel að vígi í málinu en hann eigi nokk- uð í land ennþá með að sanna sak- leysi sitt. Til þess verði hann að geta sannað að lyfinu hafi verið komið fyrir í tannkreminu áður en lyfjaprófið var tekið og að það nandrolone sem fannst í þvagi hans hafi komið úr tannkreminu. -SK Fiat Bravo Abarth 3/98 Fiat Seicento Abarth 7/98 Ek.32.þ. 3d ,5g. ABS, geislasp, Ek. 20 þús 3dyra, 5 gíra, CD, samlæs, loftpúðar, 17”álfelgur 14" álfelgur, rafm.rúður, saml.. Tilboðsverð kr. 1.390.000 Tilboðsverð kr. 690.000 Útsala á notudum bílum Istraktor Fiat Marea Weekend 5/97 Ek. 50 þús 5d. 5 gíra.ABS, loftp, samlæs, rafm í rúðum. Tilboðsverð kr. 1.190.000 Smiðsbúð Renault Clio 1.4 S 5/95 Ek.42 þ. 3d. 5g. Rafm.rúður, álfelgur, sportstólar, vökvastýri Tilboðsverð kr.650.000 Opel Astra 1.6 GLSt. '97 Ek.47þ. 5d. 5g. Dráttarkúla, samlæsingar. Tilboðsverð kr. 950.000 Toyota Corolla Stat. 4X4 '94 Ek.140þ. 5d. 5g Samlæsing, útvarp/segulband Tilboðsverð kr. 750.000 2 Garðabæ . Sími 5 400 800 Opið virka daga kl. 8 - 18 laugardaga kl. 13 - 17

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.