Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1999, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 1999
25
DV
Sport
Bland i poka
Nýsjálendingurinn Greg Turner
bar sigur úr býtum á ástralska PGA-
mótinu í golfi sem lauk í Melboume
i gær. Turner lék á 278 höggum eða
10 höggum undir pari vallarins.
Shane Tait frá Ástralíu varð annar
á 280 höggum og þeir Craig Perry,
Nick O’Hern og Robert Allenby, all-
ir frá Ástralíu, komu á 281 höggi.
Nic Henning sigraði á suður-afriska
meistaramótinu í golfi sem lauk í
Höfðaborg í gær. Henning og Bret-
inn Darren Clarke luku báðir
keppni á 276 höggum en Henning
hafði betur á 2. holu í bráðabana. I
þriðja sæti var Bretinn Alan Mc-
Lean á 277 höggum.
Öm Amarson, sundmaðurinn knái úr Hafiiarfiði,
sýndi og sannaði snilli sína í sundíþróttinni í gær
þegar hann tryggði sér annan Evrópumeistaratitil á
Evrópumeistaramótinu í sundi sem lauk í Lissabon
í Portúgal í gær. Öm, sem á fostudaginn kom fyrst-
ur í mark í 200 metra baksundi og varði
Evrópumeistaratitil sinn í greininni, sigraði í 100
metra baksundinu í gær á nýju glæsilegu íslands-
meti, 53,13 sek., en gamla metið, sem hann átti sjálf-
ur, var 53,30 sekúndur.
Öm, Derya Buyukuncu frá Tyrkiandi og Úkrainu-
maðurinn Volodymyr Nicolaychuk börðust hart um
titilinn en Emi tókst að innbyrða sigurinn með grið-
argóðum endaspretti eftir að hafa verið í 7. sæti eftir
50 metra. Buyukuncu kom í mark á 53,17 sekúndum
og í þriðja sæti varð svo Nicolaychuk á 53,27 sekúnd-
um en hann synti best í undanúrslitinum og fekk
sama tfma og Öm í úrslitasundinu.
Hjálpaði mér að vera handleggjalangur
„Ég vann þetta á endasprettinum og það hefur ef-
laust hjálpað mér að vera handleggjalangur. Ég
vissi eftir undanúrslitin að ég gæti barist um guilið
en yrði að synda svolítið hraðar sem og ég gerði. Ég
var fúllur sjálfstrausts eftir sigurinn í 200 metrun-
um og það hjálpaði líka til. Ég var mjög vel stemmd-
ur fyrir mótið og var í góðu formi,“ sagði Öm við
DV í gær.
Var þessi árangur hjá þér eitthvað sem þú
reiknaðir með?
„Ég veiktist rétt áður en ég fór út þannig að ég
vissi ekki alveg hvar ég stóð en ég var ákveðinn í að
hafa gaman af þessu. í og með hugsaði ég um að
komast á verðlaunapail i 200 metrunum en ég var í
sjáifii sér ekki með neitt sérstakar væntingar. Ég
bjóst ekki við því fyrir mótið að ná svona langt í 100
metrunum og sigurinn var því fyrir vikið mjög sæt-
ur. Ég hef lent í ýmsum meiðslum á árinu en það
endar sem betur fer jafnvel og það byijaði.“
Hvað er fram undan hjá þér?
„í janúar mun ég og fleiri fara til Danmerkur og
reyna við lágmörkin fyrir Ólympíuleikana og svo
taka yið æflngar meira og minna fyrir Ólympíuleik-
ana. Ég á betri tíma en þessi lágmörk en ég þarf að
synda undir þeim aftur.“
Hvað með Ólympíuleikana eftir þennan frá-
bæra árangur?
„Þar verða allir bestu sundmenn á meðal kepp-
enda svo menn geta rétt ímyndað sér hversu sterkt
þetta mót verður. Það er erfitt að gera sér grein fyr-
ir möguleikunum þar. Þar spilar inn í hvemig æf-
ingamar munu ganga og hvemig hinum keppend-
unum reiðir af fyrir leikana. í sjálfu sér yrði ákveð-
inn sigur að komast í úrslitin," sagði öm að lokum.
Eitt besta afrek íslensks íþróttamanns
„Þessi árangur Amar er betri en bjartsýnustu
menn þorðu að vona. Þegar við fórum út þá var
markmiðið fyrst og fremst að komast í úrslitin og sjá
hvað svo mundi gerast eftir það. Þetta er ekki bara
besti árangur íslensks sundmanns heldur vil ég
meina að þetta sé eitt af betri íþróttaaffekum sem ís-
lenskur íþróttamaður hefúr náð,“ sagði Magnús
Tryggvason, framkvæmdastjóri sundsambandsins, i
samtah við DV í gær.
Framundan em Ólympíuleikar í sumar. Hvað
heldur Magnús að öm geti gert þar?
„Markmiðið þar hlýtur að vera að komast í úrslit.
Það verður ekki auðvelt enda eiga til að mynda Ástr-
alar og Bandarikjamenn mjög sterka sundmenn. Öm
er ungur að árum og hann hefúr alla burði til að gera
enn betur en í dag. Hæfileikamir era alla vega fyrir
hendi,“ sagði Magnús.
Tíu íslandsmet
Fjögur íslandsmet féllu á lokadegi mótsins en auk
metsins hjá Emi í 100 metra baksundinu bætti Lára
Hrund Bjargardóttir íslandsmetið í 200 metra skrið-
sundi en tími hennar var 2:02,87 mínútur sem er bæt-
ing um 0,46 sekúndur.
öm Amarson bætti metið í 50 metra baksundi í
4x50 metra fjórsundinu. Tími Amar var 25,35 sek-
úndur og bætti hann eigið með um 0,19 sekúndur. Þá
setti islenska sveitin met í greininni. Hún kom i
mark á 1:44,44 sekúndum sem er bæting um 2,69 sek-
úndur. Sveitina skipuðu: Öm Amarson, Jakob Jó-
hann Sveinsson, Friðfinnur Kristinsson og Ómar
Snævar Friðriksson. Alls fellu 10 íslandsmet á Evr-
ópumótinu og að sjálfsögðu bar árangur Amar lang-
hæst. En hvað segir Magnús um árangur hinna?
Ákveðinn reynslubanki
„10 met er að sjálfógðu mjög góður árangur. Það
vora margir ijósir punktar í þessu. Lára Hrund synti
til að mynda rosalega vel í 200 metra skriðsundinu
og hún komst í B-úrslitin í 100 m fjórsundinu. Frið-
finnur gerði góða hluti á sínu fyrsta stórmóti en
hann setti tvö met og komst f B-úrslit. Við hefðum
viljað koma fleirum inn í B-úrslitin og við áttum von
á að Kolbrún gerði betur en það verður ekki á allt
kosið í þessu. Við Utum á þetta mót sem ákveðinn
reynslubanka fyrir átökin ffarn að Ólympiuleikum
og ég er ekki í nokkrum vafa um að það mun skila
sér,“ sagði Magnús. -GH
Ríkharður fær 40 milljónir á ári
- hjá þýska liðinu Hamburger SV sem hann samdi við til þriggja og hálfs árs
Ríkharður
Daöason, lands-
liðsmaður í
knattspymu,
gekk í raðir
þýska félagsins
Hamburger SV á
fóstudaginn.
Hann gerði
þriggja og hálfs árs samning við fé-
lagið sem greiddi Viking Stavanger
um 75 miUjónir króna fyrir leik-
manninn sem átti eitt ár eftir af
samningi sinum viö félagið. Félögin
sömdu einnig um aö Hamburger
verði að greiða Viking 20% af and-
virði sölunnar ákveði þýska liðið að
selja Ríkharð.
Norska blaðið Aftenbladet segir
að Ríkharður fái um 40 miUjónir
króna í árslaun hjá Hamburger.
Labba ekki í liðið
„Hamburger er stórt og gott félag
og mér líst vel á borgina. Ég mun
nota janúnarmánuð til að koma mér
í gott form og verð vonandi klár í
slaginn þegar tímabUið hefst að
nýju í febrúar. Ég geri mér alveg
grein fyrir því að ég labba ekkert í
liðiö. Sjálfur Anthony Yeboah er á
undan mér en vonandi fæ ég eitt-
hvað að spreyta mig á þessu tíma-
bili,“ segir Ríkharöur í samtaU við
Afienbladet.
Ríkharður eyddi 'nelginni í Ála-
borg í Danmörku með félögunum
sínum í Viking Stavanger, en þar
áttu þeir góðar stundir, en í þessari
viku byrjar alvaran hjá Ríkharði.
Hann heldur til Þýskalands og byrj-
ar að æfa hjá nýjum vinnuveitend-
um.
Viking Stavanger hefur þegar
fundið eftirmann Ríkharðs en það
er Erik Nevaland, fyrrum leikmað-
ur félagsins, sem verið hefur á mála
hjá Manchester United. Norska liðið
greiðir United 6 miUjónir króna fyr-
ir Nevland og aðrar 6 milljónir þeg-
ar hann hefur leikið 50 leiki.
-GH
Rússar unnu þrefaldan sigur í 5 og
7,5 krn skíðagöngu kvenna í heims-
bikarmóti á Italiu um helgina. í 5 km
göngunni sigraði Olga Danilova,
Larissa Lazutina varð önnur og
Nina Gavriljuk hafnaði í þriöja
sæti. 17,5 km göngunni í gær var
það Lazutina sem kom fyrst í mark,
Gavriljuk varö önnur og Danilova
þriöja.
Karlarnir kepptu á sama stað í 10
km göngu og þar kom Norðmaður-
inn Thomas Alsgard fyrstur í
mark, landi hans, Espen Bjervig,
varð annar og Stephan Kunz frá
Liechtenstein hafnaði í þriðja sæti.
nla Janica Kostelic
frá Króatiu sigraði
á heimsbikarmóti í
svigi í Sestriere á
Italíu i gær. Anja
Person frá Svíþjóð
varð önnur og
franska stúlkan
Cristel Saioni varð
þriðja. Þetta var
annar sigur
Kostelic í svigi í heimsbikamum á
þessu timabili og hún hefur tekið
forystuna í stigakeppninni.
Ben Johnson, kanadíski sprett-
hlauparinn sem settur var í lífstíðar-
bann vegna lyfjaáts, hefur verið ráð-
inn til að þjálfa leikmenn í landsliði
Líbýu í knattspyrnu og meðal þeirra
leikmanna sem Johnson mun þjálfa
er sonur Muammars Gaddafis,
leiðtoga landsins. Johnson á að sjá
um styrktar- og þolæfingar landsliðs-
ins.
Hin 17 ára
Þýski knattspyrnumaðurinn Lothar
Mattháus mun yfirgefa herbúðir
Bayen Múnchen í marsmánuði og
ganga í raðir New York-New Jersey
MetroStars sem leikur í bandarísku
atvinnumannadeildinni. Á dögunum
var rætt um að Mattháus myndi
klára tímabilið með Bæjurum en Uli
Höness, framkvæmdastjóri félags-
ins, sagði um helgina að ákveðið
væri að Matthaus færi í mars.
Ástralski sundmaðurinn Michael
Klim gerir það ekki endasleppt þessa
dagana. t gær bætti hann heimsmetið
í 100 metra flugsundi í annað sinn á
þremur dögum. Klim synti á 51,82 sek-
úndum og setti met en gamla metið
sem hann setti á föstudaginn var 52,03
sekúndur.
Franska iþróttablaóid L’Equipe
hefur útnefnt brasilíska knatt-
spyrnumanninn Pele
sem besta íþrótta-
mann aldarinnar. í
öðru sæti varð
bandaríski hnefa-
leikakappinn
Muhammed Ali og
bandaríski frjáls-
íþróttakappinn Carl
Lewis varð þriðji.
Efsti Norðurlandabú-
inn í kjörinu varð finnski hlaupar-
inn Paavo Nurmi en hann lenti i 7.
sætinu og sænski tenniskappinn
Björn Borg varð í 13. sætinu.
Sviar hlutu flest gullverðlaun á
Evrópumótinu i sundi sem lauk í
Portúgal í gær. Svíar fengu 10 gull, 6
silfur og 1 brons. Þjóðverjar hlutu 5
gull, 13 silfur og 8 brons og Úkraínu-
menn fengu 5 gull, 1 silfur og 3
brons. Aðeins fimm þjóðir hlutu
fleiri gullverðlaun en Islendingar en
Bretar og Hollendingar hlutu þrenn
og Króatar, Spánverjar og Slóvakar
hlutu tvenn gullveröalaun eins og
íslendingar.
-GH
ÞÍN FRÍSTUND
-OKKAR FAG
V
llNTER
SPORT
Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020
• www.intersport.is