Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1999, Blaðsíða 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1999
ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1999
27
Sport
DV DV
Bland i poka
Gústaf Bjarnason var í aöalhlutverki
hjá Willstatt og skoraði 6 mörk þegar
lið hans tapaði, 26-18, iyrir Eisenach í
þýsku A-deildinni í handbolta um
helgina. Magnús Sigurósson, sem er
meiddur í öxl og leikur fyrst og íremst
I vöminni, skoraði eitt mark fyrir
WUlstatt en Róbert Julian Duranona
gerði 2 fyrir Eisenach.
Sigurður Bjarnason skoraði 4 mörk
fyrir Wetzlar sem tapaöi fyrir Bad
Schwartau, 28-24, og Dagur Sigurös-
son gerði 2 mörk og Heiömar Felix-
son eitt fyrir Wuppertal sem steinlá
gegn Guömundi Hrafnkelssyni og fé-
lögum í Nordhom, 31-20.
Herbert Arnarson skoraði 6 stig fyrir
Donar Groningen sem vann Nova
Drenthe, 72-79, á útiveUi í hoUensku
A-deiidinni í körfubolta um helgina.
Donar er í 7. sæti með 16 stig úr 14
leikjum.
Hermann Hreiöarsson og félagar í
vöm Wimbledon vom fimasterkir
gegn Arsenal í ensku A-deUdinni í
knattspymu á laugardag. Hinir frægu
sóknarmenn Arsenal fundu fáar leiðir
fram hjá Hermanni og hinum jöxlun-
um í öftustu línu Wimbledon en leik-
urinn, sem fór fram á Highbury, end-
aði 1-1. Hermann lék aUan leikinn að
vanda.
Helgi Kolviðsson lék aUan leikinn á
miðjunni hjá Mainz þegar liðið tapaði,
2-1, fyrir Mannheim í þýsku B-deild-
inni í knattspymu um helgina. Mainz
er í 10. sæti með 22 stig en í efstu sæt-
um era Köln með 40 stig, Cottbus með
31 og Númberg með 27 stig.
Mainz sækir stórliðið Bayem Mún-
chen heim i þýsku bikarkeppninni
annað kvöld og gifurlegur áhugi er
meðal stuðningsmanna liösins. Reikn-
að er með að þeir verði um 8.000 á
Ólympíuleikvanginum í Múnchen en
fjórar fuUar jámbrautalestir og 50 rút-
ur munu flytja þá til Bæjaralands.
Vikingur tapaði fyrir KA, 1-3, í 1.
deúd kvenna í blaki í Víkinni á laug-
ardag. Þróttur úr Neskaupstaö er á
toppi deUdarinnar í jólafríinu með 24
stig, ÍS er með 19, KA 11, Þróttur úr
Reykjavík 11 og Víkingur rekur lestina
með aðeins 2 stig.
Svetlana Smirnova, handknattleiks-
kona frá Rússlandi, hefur verið dæmd
í tveggja ára keppnisbann vegna lyfja-
notkunar. Smimova lék með Rússum
á heimsmeistaramótinu í Noregi og
Danmörku fyrr í þessum mánuði.
Lyfjapróf sem tekið var af henni eftir
leik gegn Þjóðveijum leiddi í ljós að
hún hafði notað steralyfið nandrolone.
Boris Makarov, framkvæmdastjóri
rússneska handknattleikssambands-
ins, skýrði frá þessu í gær og sagði um
leið að þetta væri mikið áfaU, enda í
fyrsta skipti sem rússneskur hand-
knattleiksmaður yrði uppvís að lyfja-
misferli.
Jonas Buskenström og Hanna Dögg
Maronsdóttir frá Ólafsfirði unnu
bæði tvöfalda sigra á fyrsta bikarmóti
SKÍ í skíðagöngu á þessum vetri sem
fram fór í HlíðarfjaUi við Akureyri um
helgina. Bæði sigraðu þau í 10 km
göngu með með hefðbundinni aðferð á
laugardeginum og með frjálsri aðferð á
sunnudeginum.
Imants Bleidelis, landsliösmaður
Lettlands í knattspymu, hefúr skrifað
undir þriggja og hálfs árs samning við
enska A-deUdarliðið Southampton.
Bleidelis er miðjumaður sem leikið
hefur með Skonto Riga. Þar með verða
tveir Lettar í herbúðum Southampton
en fyrir er framherjinn Marian
Pahars sem leikið hefur mjög vel á
leiktíðinni.
-VS/GH
Hasar hjá West Bromwich Albion:
Samherjar slógust
eftir tapleikinn
- Lárus Orri fékk rautt spjald og missir af næstu leikjum
Leikmenn enska knattspymufé-
lagsins West Bromwich Albion
vilja eflaust gleyma sem fyrst ferð
sinni til Ipswich á laugardaginn,
þar sem þeir töpuðu, 3-1, í B-
deildinni. Það verður þó ekki svo
auðvelt því hún hefur talsverða eft-
irmála.
I leiknum sjálfum rak hvert
áfalliö annað. Ipswich var komið í
2-0 eftir 27 mínútur og rétt á eftir
var Lárusi Orra Sigurðssyni sýnt
rauða spjaldið. Hann hrinti David
Johnson, sóknarmanni Ipswich,
eftir að leikurinn hafði verið
stöðvaður.
í byrjun síðari hálfleiks fékk fé-
lagi Lárusar Orra, Matt Carbon,
einnig rauða spjaldið og Ipswich
komst i 3-0. Níu leikmönnum WBA
tókst þó að laga stöðuna áður en
yfir lauk.
Eftir leikinn voru leikmenn
Lárus Orri Sigurðsson fékk rauða
spjaldið og missir af næstu leikjum
WBA.
WBA látnir „hlaupa sig niður“ á
veilinum eins og algengt er. Hiti
var enn í sumum þeirra og tveir
liðsmanna lentu í slagsmálum.
Vallarstarfsmaður sem kom aðvíf-
andi varö fyrir meiðslum þegar
hann reyndi að skilja slagsmála-
hundana að.
John Wile, stjómarmaður WBA,
vildi ekki skýra frá þvi hvaða leik-
menn aettu í hlut og hann sagði að
atvikið hefði ekki verið tilkynnt til
lögreglu. Vallarstarfsmennimir og
Ipswich hefðu verið beðin innilegr-
ar afsökunar á framferðinu og tek-
ið yrði á málinu af festu innan fé-
lagsins.
Hvað Láms Orra varðar, bætist
rauða spjaldið á syndalista hans,
en hann tekur út leikbann annað
kvöld þegar WBA sækir Blackbum
heim í ensku bikarkeppninni.
Hann má því búast við því að
missa úr fleiri leiki strax eftir ára-
mótin. -VS
Preston er loks-
ins á uppleið
- metaðsókn og liðið er í öðru sæti B-deildar
Preston North End, eitt gamalgrón-
asta félag Englands og fyrsti meistar-
inn þar í landi árið 1889, virðist vera
að vakna úr löngum dvala. Félagið
hefur hírst í tveimur neðstu deildum
ensku knattspymunnar síðan 1981 og
ekki átt sæti í efstu deild síðan 1961,
en nú virðast bjartir tímar fram und-
an.
Preston lagði Blackpool, 3-0, í C-
deildinni á laugardaginn og er í öðra
sæti, með jafnmörg stig og Wigan.
Bjarki Gunnlaugsson er kominn í
byrjunarlið Preston eftir að hafa verið
að mestu á varamannabekknum frá
því í haust.
Hann var reyndar tekinn af velli á
65. mínútu gegn Blackpool og mörkin
þrjú komu eftir það, þannig að spum-
ing er hvort hann haldi sæti sínu fyr-
ir næsta leik.
Um 17 þúsund manns mættu á leik-
inn, sem er met í C-deildinni í vetur,
enda um nágrannaslag að ræða.
Ivar Ingimarsson og félagar í Brent-
ford töpuðu fyrir toppliöinu, Wigan,
Bjarki Gunnlaugsson er kominn i
byrjunarliðið hjá Preston North End
og stendur sig vel.
1-0, og lék ívar allan leikinn. Lið hans
hefur dalað nokkuð eftir góða byrjun í
haust.
Varnarleikurinn felldi Stoke
Stoke tapaði heima, 1-2, fyrir Bristol
Rovers og tapaði því í fyrsta skipti
undir stjóm Guðjóns Þórðarsonar.
Guðjón sagði við enska fjölmiðla að
slakur vamarleikur eftir að liðið
komst 1-0 yflr hafi orðið því að falli.
Tapið hefði verið mikil synd því lið-
ið hefði lengst af leiknum spilað mjög
vel. Sigursteinn Gíslason og Einar Þór
Daníelsson léku báðir með Stoke.
Staða efstu liða er þannig að Wigan
og Preston eru með 45 stig, Bristol
Rovers 44, Millwall 42, Bumley 40,
Gillingham 38, Notts County 38 og í
8.-9. sætinu era Brentford og Stoke
með 34 stig.
Tvö efstu liðin fara beint upp og lið í
sætum þrjú til sex fara i aukakeppni
um eitt sæti í B-deildinni.
-VS
Rivaldo með verðlaun sín í gær. Engum vafa er undirorpið að þar fer stórsnjall
knattspyrnuunnendur með snilli sinni allt þetta ár.
knattspyrnumaður sem glatt hefur
Reuter
Rivaldo bestur í Evrópu
Brasilíumaðurinn Rivaldo, sem leikur með spænska
stórliðinu Barcelona, var í gær útnefndur knattspymu-
maður ársins í Evrópu en tímaritið France Football stóð
að kjörinu eins og endranær.
Rivaldo var lykilmaðurinn í liði Börsunga sem vann
spænska meistaratitilinn í vor og þá var hann aðalmaður-
inn í landsliði Brasilíumanna sem vann Ameríkubikarinn.
Rivaldo er annar Brasilíumaðurinn sem hlýtur þessa út-
nefningu en Ronaldo varð fyrir valinu árið 1997. Þá er
Rivaldo fjórði leikmaðurinn úr liði Barcelona sem verður
fyrir valinu en hinir þrír vora Luis Suarez (1960), Johan
Cruyff (1973 og 1974) og Hristo Stoichkov (1994). Rivaldo
hlaut samtals 219 atkvæði en hann var á dögunum valinn
knattspymumaður ársins af lesendum knattspymutíma-
ritsins World Soccer.
„Ég tileinka þessi verðlaun fóður.mínum sem hvatti mig
eindregið á sínum tíma til að fara út á braut
atvinnumennskunnar á sama tíma og aðrir höfðu lítið álit
á mér,“ sagði Rivaldo sem er annar Brasilíumaðurinn til
að hljóta útnefhinguna en hinn var Ronaldo fyrir tveimur
áram.
Rivaldo hefur lengi verið gagnrýndur í fjölmiðlum i
Brasilíu og honum jafiian kennt um þegar landslið
Brasilíu hefur ekki náð ætlunarverki sinu eins og á
Ólympíuleikunum í Atlanta 1996.
Rivaldo fór í gær lofsamlegum oröum um helsta
keppinaut sinn um útnefninguna, David Beckham hjá
Manchester United.
„David Beckham er frábær leikmaður og hann átti alveg
eins skilið aö vinna að þessu sinni og ég. Sendingar hans
eru magnaðar en það sem ég held að hafi gert gæfumuninn
að þessu sinni er að ég skoraði svolítið meira af mörkum,"
sagði Rivaldo.
David Beckham, leikmaður fjórfaldra meistara
Manchester United og enska landsliðsins, varð í öðra sæti
í kjörinu en hann hlaut 154 atkvæði.
í þriðja sæti varð Andriy Shevchenko, landsliösmaður
Úkraínu og leikmaður með AC Milan á Ítalíu. Hann hlaut
64 stig.
Enginn af þeim leikmönnum sem urðu i efstu þremur
sætunum í fyrra, Zinedine Zidane, Ronaldo eða Davor
Suker, komust á lista yflr þá 10 bestu í kjörinu að þessu
sinni.
-GH/-SK
Boseman
til Hauka
- Chris Dade var rekinn
Úrvalsdefldarlið Hauka í
körfuknattleik fær nýjan Banda-
ríkjamann til liðs við sig eftir ára-
mótin. Sá heitir Stais Boseman og
mun hann leysa landa sinn, Chris
Dade, af hólmi en Haukamir
ákváðu fyrir helgina að losa sig við
Dade.
Boseman hefur leikið í banda-
rísku CBA-defldinni og þá lék hann
eitt ár í Kóreu. Hann er væntanleg-
ur tfl landsins 2. janúar og spflar
sinn fyrsta leik með Haukunum
gegn Tindastóli á útivelli 6. janúar.
„Við höfum grennslast vel fyrir
um þennan leikmann og allar upp-
lýsingar sem höfum aflað um hann
eru þær að þama sé á ferðinni góð-
ur spilari,“ sagði ívar Ásgrímsson,
þjálfari Hauka, í samtali við DV í
gær.
Haukar léku án Chris Dade I
leiknum gegn KFÍ á fostudagskvöld-
ið en það kom ekki i ljós fyrr en
háltíma fyrir brottför vestur að
Dade myndi ekki mæta. Það var að
tilstuðlan umboðsmanns hans, Sig-
urðar Hjörleifssonar, og era Haukar
allt annað en ánægðir með vinnu-
brögð hans að sögn ívars.
Úrvalsdeildin hefur sjaldan eða
aldrei verið jafnspennandi en sex
lið eru í einum hnappi við topp-
deildarinnar.
„Það stefnir í þrælspennandi
keppni nú eftir áramótin og við
Haukarnir ætlum að sjálfsögðu aö
blanda okkur alvarlega í þá baráttu.
Það er ekkert ólíklegt að titillinn yf-
irgefi Suðurnesin að þessu sinni
enda hafa lið eins og KR, Tindastófl
og Haukar burði til að fara langt í
vetur," sagði ívar.
-GH
Dion Dublin, lengst til vinstri, var Ijónheppinn um síðustu helgi. Reuter
Millímetrum frá að
lenda í hjólastólnum
Sóknarmaðurinn skemmtflegi í
Aston Villa, Dion Dublin, var svo
sannarlega heppinn um liðna helgi i
leik í enska boltanum.
Dublin, sem er markahæsti leik-
maður Villa á leiktíðinni, meiddist
illa í leik Villa gegn Sheffleld Wed-
nesday, hálsbrotnaði, og það mun-
aði aðeins hársbreidd að hann yrði
bundinn við hjólastól eftir óhappið.
„Það er auðvitað mikið áfall fyrir
okkur að missa Dublin í þessi
meiðsli í 3 mánuði en gleðifréttim-
ar eru þær að hann mun ná sér
þrátt fyrir að það hafl aðeins mun-
að milliímetrum að hjólastóllinn
yrði hlutskipti hans það sem eftir
er. Það er hægt að þakka guði fyrir
hvemig þetta allt fór og Dublin mun
ná sér að fullu af þessum meiðsl-
um,“ sagði John Gregory, stjóri
Villa í gær. -SK
íþróttamaður ársins hjá DV-Sport:
Síðasta tækifærið
til að taka þátt
Á hádegi á morgun, miðvikudag, rennur út frestur lesenda DV og Vís-
is.is sem vilja taka þátt í kjöri blaðsins á íþróttamanni ársins 1999. Seð-
illinn hér til hægri er sá síðasti sem birtist og nú þurfa lesendur að hafa
hraðar hendur við að fylla hann út og skila honum á ritstjóm DV.
Sem fyrr er einnig hægt að taka þátt í kjörinu á Vísi.is en það er gert
með því að fara inn á íþróttavefinn og velja þar „íþróttamaður DV 1999“.
Niðurstaðan í kjörinu verður síðan birt í mánudagsblaðinu 27. desember.
Nafn heppins þátttakanda verður dregið út og fær viðkomandi
vöruúttekt hjá versluninni Inter Sport að andvirði 25 þúsund krónur.
íþróttamaður ársins fær vegleg bókaverðlaun frá Máli og menningu og
glæsilegan bikar að auki.
^ Ólafur Gottskálksson er enn þá varamarkvörður hjá Hibernian:
„Eg verð að vera jákvæður“
- ekki leikið með aðalliðinu í sex leikjum en segist bíða þolinmóður eftir tækifærinu
Ólafur Gottskáksson, markvörður
hjá skoska liðinu Hibemian, hefur
ekki leikið með aðalliðinu í síðustu
sex leikjum. Fram að þeim tíma var
Ólafur í markinu og stóð sig vel og
fékk góða dóma í skoksu pressunni.
Framkvæmdastjóri liðsins, Alex
McLeish, tók þá ákvörðun að taka
Ólaf úr liðinu og valdi Nick Colgan í
staðinn en hann kom til liðsins fyrir
tímabilið frá Boumemouth. Hann
hafði sex árin á undan verið á mála
hjá Chelsea.
„Ég er eins og gefur að skilja hund-
fúll með þessa ákvörðun fram-
kvæmdastjórans. Hann hefur ekki get-
að gefið mér skýringu af hverju hann
tók mig úr liðinu en mér hafði gengið
vel. Það er eins og hann hafi viljað
gefa Colgan tækifæri fyrst að hann
var keyptur fyrir timabilið.
Það er erfitt að sætta sig við þetta
en maður verður bara að vera jákvæð-
ur og vera tflbúinn þegar eitthvað fer
úrskeiðis. í byrjun var töluvert fjallaö
um þessa ákvörðun og áhangendur
liðsins voru jafnframt hissa. Sam-
keppnin um markvarðarstöðuna er
mikfl en ég er viss um að ég fer aftur
inn i liðið. Þetta tekur bara tíma,“
sagði Ólafur Gottskálksson í samtali
við DV í gær.
Versti skellur Hearts í 27 ár
Hibemian vann um helgina góðan
útisigur á erkifjendunum í Hearts og
er þetta versta útreið sem Hearts hef-
ur fengið af nágrönnunum í 27 ár.
Hibernian er í fimmta sæti deildar-
innar og sagði Ólafur að það ríkti al-
menn ánægja með stöðu liðsins á
fyrsta ári þess í efstu deild.
Síðasta umferðin í skosku deildinni
verður annan í jólum og síðan veröur
þriggja vikna frí. Öll liðin fara þá til
heitari landa í æflnga- og keppnis-
ferðir.
Hibemian fer tfl Trinidad og
Tobago í 10 daga ferð og jafnframt æf-
ingum leikur liðið þar þrjá leiki.
-JKS
Sport
NBA-DEILDIN
Úrslitin í nótt:
Boston - LA Lakers.........90-99
Walker 24, Anderson 21, Williams 12
- O'Neal 34, Bryant 27, Fisher 13.
Philadelphia - Detroit . . .122-121
Iverson 32, HUl 22, McKie 21 -
Hill 32, Stackhouse 23, Mills 14.
Cleveland - Minnesota ... .94-100
Sura 20, Knight 16, Kemp 16 -
Gamett 24, Brandon 17, Jackson 12.
New York - Charlotte . . .112-109
Houston 31, Sprewell 30, Johnson 14 -
Jones 23, Wesley 19, Campell 18.
Orlando - Utah...........104-102
Armstrong 22, Wahad 14, Williams 13
- Malone 29, Stockton 15, Eisley 13.
Chicago - Seattle..........84-93
Benjamin 19, David 14, Brand 14 -
Baker 25, Payton 22, Patterson 16.
Dailas - Miami ............89-92
Trent 22, Finley 13, Cebellos 13 -
BrOwn 25, Mouming 18, Lenard 17.
Denver - Portland..........97-88
Mercer 22, McDyess 20, LaFrentz 11 -
Stoudamire 19,Wallace 14, Schrempf 11.
Phoenix - Milwaukee . . . .108-101
Rogers 24, Robinson 19, Miller 17 -
Allen 31, Robinson 19, Cassel 19.
Golden State - Sacramento 111-99
Caffey 26, Mills 20, Starks 20 -
Williamson 24, Stojakovic 19, Divac 10.
Úrslitin í fyrrinótt:
Toronto - LA Lakers .......88-94
Carter 29, Davis 19, Willis 10 -
Bryant 26, Shaq 24, Rice 22.
New Jersey - Atlanta.......96-88
Van Horn 20, Feick 16, Gill 15 -
Rider 20, Jackson 15, Henderson 13.
Vancouver - LA Clippers . . 85-84
Dickerson 26, Rahim 20, Bibby 13 -
Odom 24, Taylor 20, Nesby 16.
C
TVAR FLIKUR
IEINNI
HEITUR
OG
ÞURR
THERMO-varmanærfötin eru í
raun tvær flíkur í einni. Tveggja
laga spunatækni flytur rakann
frá líkamanum og heldur þér
heitum og þurrum.
Notaðu Thermo-nærfötin í
næsta ferðalag.
Þú sérð ekki eftirþví.
Sportvörugerðin
Mávahlíð 41, Rvík,
sími 562 8383