Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1999, Side 10
32
FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999
&lar
KawasakiGPz 900 1985
Þótti og er enn vinsælt hjól og er góö blanda feröa- og
kappaksturshjóls.
mótorhjól aldarínnar
Saga mótorhjólsins á íslandi er
næstum jafngömul sögu bilsins.
Fyrsta hjólið kom til landsins 20.
júní árið 1905, réttu ári eftir komu
fyrsta bílsins, og var það bílstjóri
Thomsens-bílsins sem flutti það inn.
Sá hét Þorkell Clemenz og hafði
ekki verið sáttur við valið á bílnum
þar sem hann var aflvana og bilaði
mikið. Til að sýna fram á fleiri og
betri kosti fyrir okkar erflðu að-
stæður flutti hann inn þetta mótor-
hjól og sótti um leið um einkaleyfi á
nafni fyrir gripinn og kallaði það
ELG. í auglýsingu í blaðinu Reykja-
vík segir Þorkell frá ferð þessa hjóls
á milli Reykjavíkur og Hafnaríjarð-
ar, sem farin var á 19 mínútum, en
Thomsens-bíllinn hafði farið sömu
leið árið áður á rúmum tveimur
tímum og ekki náð að klára alla
leiðina. Mótorhjól voru því fljót að
taka forystuna hvað hraða snerti
hér sem annars staðar. Hvað af
þessu hjóli varð veit svo enginn því
ekki fer frekari sögum af þvi.
Frekari innflutningur
Það næsta markverða í mótor-
hjólainnflutningi gerðist ekki fyrr
en á árum fyrri heimsstyrjaldarinn-
ar þegar mikið framboð af herhjól-
um leiddi til þess að hægt var að fá
Eitt af vinsælli hjólum í kringum
1970 var Triumph Bonneville 650.
þau ódýrt og nýttu nokkrir sér það.
Þá voru flutt inn þekkt merki, eins
og BSA, Henderson, Harley David-
son og Indian. Mótorhjólum smá-
fjölgaði hér á millistríðsárunum en
næsta stóra stökkið er ekki fyrr en
í seinni heimsstyrjöldinni, líkt og
hjá biladeildinni. Þá fluttu Bretarn-
ir þau inn í gámavís, gerðir eins og
Royal Enfield, Matchless og BSA.
Árið 1939 voru aðeins rúmlega 100
hjól skráð hér á landi en árið 1946
hafði sú tala meira en flmmfaldast.
Lögreglan í Reykjavík flutti líka inn
sín fyrstu hjól árið 1942 af Harley
Davidson gerð og er saga þeirra stór
hluti af mótorhjólasögunni.
Innrásin úr austri
Næsta sprengja í mótorhjólainn-
flutningi varð svo ekki fyrr en með
tilkomu japönsku hjólanna upp úr
1965 og samkeppni þeirra bresku
við þau en breski mótorhjólaiðnað-
urinn var þá svo gott sem í dauða-
teygjunum. Nú eru til skráð á land-
inu eitthvað um 2000 mótorhjól og
þá eru ekki taldir með næstum 3000
vélsleðar og önnur slík tæki. Undir-
Lögregluþjónn á NSU Prima skelli-
nöðru. Þetta hjól fékk lögreglan á
Akureyri seinna og er hjólið enn til
þar í einkaeign.
ritaður gerði það að gamni sínu að
velja tiu bestu hjól aldarinnar að
sínu mati og fylgir niðurstaðan og
rökstuðningur hér á eftir:
Indian 1917
Eitt vandaðasta mótorhjól síns
tíma og bauð upp á margar
tækninýjungar, eins og fullkomið
rafkerfi og blaðfjaðrir bæði framan
Royal Enfield-mótorhjól fyrir utan
bragga í Reykjavík árið 1947.
Kawasaki GPz 900
1983
Hjólið sem sló flestu öðru út i afli
og hraða á sínum tíma. Þetta þóttu
einstaklega vel heppnuð hjól og bil-
uðu lítið. Þarna fóru menn að sjá
tæknikunnáttu Japananna í verki.
NSU Prima 150 1958
Þetta hjól var einkennandi fyrir
tímabilið eftir stríð. Þá gekk hér
sem annars staðar yflr mikil skefl-
inöðrubylgja og þetta hjól var til
hér í nokkru upplagi. Eitthvað er
til af þessum hjólum enn þá.
Sex stykki Harley Davidson, þar af
þrjú þeirra 1934-árgerð, fyrir framan
Tryggvaskála á Selfossi.
hjólum og þóttu þau endingargóð.
Nokkuð er enn til af þeim í umferð
sem segir nokkuð til um seiglu
þeirra.
Royal Enfield 1942
Þetta var meginuppistaðan í mót-
orhjólaflota Bretanna. Voru hjólin
mikið notuð til póstflutninga og
könnunarferða. Til er saga af fimm
breskum hermönnum i könnunar-
ferð um uppsveitir Borgarfjarðar
sem fórust þegar þeir kcyrðu ofan í
Gljúfurá í Borgarflrði en þá lá veg-
urinn í krappa beygju rétt við gil-
barminn.
Honda CB 750 1967
Þetta var fyrsta alvöru fjögurra
strokka hjólið frá Japan sem má
með réttu kalla „Superbike",
draumahjól allra mótorhjólaáhuga-
manna á sínum tíma.
Fyrsta japanska ofurhjólið var Honda CB 750 með þverstæðri fjögurra
strokka vél með yfirliggjandi knastási.
Indian-hjól af 1920-árgerð. Eins og sjá má er þaö afar nýtískulegt fyrir sinn
tíma.
Suzuki GSXR1100
1987
og aftan. Var nokkuð flutt inn af
þessum hjólum í lok fyrri heims-
styrjaldarinnar og grind af sliku
hjóli er til fyrir austan fjall.
Harley Davidson 1934
Eitt vinsælasta hjól millistríðs-
áranna, með seigum siðuventla-
mótor sem þoldi nokkurt basl. Þá
fóru menn fyrst að ferðast af ein-
hverju viti um landið á mótorhjól-
um og urðu þá til fyrstu „mótor-
hjólaklúbbamir“. Fóru þessi hjól
marga vegleysuna fyrst allra öku-
tækja.
Triumph 650 Bonneville
1970
var aðalkeppinautur japönsku
bylgjunnar og flutti Fálkinn þau inn
í tugatali á þessum tíma. Þau þóttu
úrelt þegar þarna var komið en
höfðu haldist lengi í framleiðslu svo
til óbreytt.
Kawasaki Z650 1977
Mikið var flutt inn af þessum
Þetta er líklega eitt vinsælasta
hjól íslandsögunnar. Það var viss
bylting á sinum tíma hvað afl og
léttleika varðaði og gaf tóninn fyrir
mörg af þeim hjólum sem fylgdu í
kjölfarið.
Yamaha R1 1998
Nýjasta tækniundrið frá Japan. í
þessu hjóli náðu þeir því takmarki
að búa til 1000 rúmsentímetra hjól í
svipuðum stærðarflokki og 400 hjól.
-NG
10 helstu
á íslandi
- að mati blaðamanns DV-bíla