Dagblaðið Vísir - DV - 31.12.1999, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.12.1999, Qupperneq 4
Handgert perluarmband frá Suður-Ameríku. Noi, kr. 4.500. Breið bönd á hend-l urnar Arm- eða úlnliðabönd eru það heitasta i skartgripabransanum þessa stundina. Það er þó ekki sama hvemig armböndin eru. Þessi mjóu gormaarmbönd sem voru svo vinsæl í sumar eru löngu dottin út enda eiga armbönd vetrarins að vera breiö. Leðurarmbönd í líkingu við þaö sem söngkonan Madonna hefur gengið mikið með voru fyrr í vetur seld í versluninni Noi á Laugavegi en eru nú löngu uppseld. Það sama má segja um indversk paUiettuarmbönd sem verslunin hefur einnig selt. Reykvískar konur eru sem sagt gjörsamlega fallnar fyrir þessum breiðu úlnliðabönd- um. Að sögn Valgerðar Ólafsdóttur, verslunarstjóra i Noi, eiga arm- böndin að vera jafnbreið, helst ein- lit og einföld eöa þá fara alveg í hina áttina og vera brjálæðislega skrautleg. Sem sagt, hendumar eiga að sjást og undirstrikast með breiðum böndum á úlnUönum. -snæ Noi, kr. 995. íllnllðaband úr ullarefni. Ti i þremur litum. Spaksmannsspjar- ir, kr. 900. Aldamot á Maki þinn heimtar að fara á ára- mótadansleik I Perlunni þar sem aðgöngumiðinn kostar 32.000. Þú mótmælir svona djöfuls þruðli og hjónaerjurnar taka völdin. Rifrildið leiðir til allsherjaruppgjörs og þess að þið eyöið hvorki þessum né fleiri áramótum saman. Þú ert búinn að leggja þig allan fram I forvarnarstarfi fyrir tvö þúsund-vandann og rétt nærð að klára allar hugsanlegar ráðstafanir á gamlársdag. Þær áhyggjur hverfa á eldingarhraða þegar áramótaskaupinu lýk- ur og það rennur upp fyrir þér að þú gleymdir að kaupa kampavlnið, flugeldana, pappahattana og bjóða fólkinu. Skyndilega verður þér alveg sama um allt sem við kemur tímamótunum og ferð að sofa. Á nýársmorgun vaknarðu grautþunnur og manst einhveija frasa á borö við: Vál Það er áriö 2000 og Skál fyrir árþúsund- inu. Svo snýrðu þér á hina hliöina og er viðbeinsbrotið gerir vart viö sig manstu eftir Í3ES3B skapfúla leigubílstjóran- um sem henti þér út úr bílnum I morgunsárið því þú gleymdir tvöfalda taxt- anum og áttir ekki næg- an pening. Þú hlærö þig vitlausan að áramótaskaupinu og hef- ur aldrei vitað neitt eins hræöilega meinfýndið. Svo líturöu í kringum þig og sérð að allir hinir hafa laum- að sér inn í svefnherbergi sökum leiðinda. Þar er hafið djúsl kynsvall I anda Kubricks og þegar þú ætlar að fá að vera með er þér meinaöur aðgang- ur. Þannig endarðu ein(n) fyrir framari sjónvarpið að horfa á kampavinstappadansinn. Þú fattar að þetta var ekkert djók með tvö þúsund-vand- ann þegar rússnesk kjarn- orkueldflaug stefnir ískrandi I gegnum háloftin á Kana- stöðina I Keflavik. En hugg- un harmi gegn gefst lítill tlmi til að býsnast yfir kæruleys- inu hjá forriturunum. Bróðir þinn, sem er nýbyrjaður I Hjálparsveitunum og var að vinna I flugeldasölunni, mætir á svæðið með bílfermi af afgangsflugeld- um. Hann heldur uppi stanslausu sjóvi frá því að Skaupið klárast og tönglast alltaf á því að nú séum við sko flottust I hverfinu. Á miðnætti stillir hann upp þremur járnstautum og dregur upp tlvolí- bombur um leið og hann tautar I sífellu: „Þessar eru sko bannað- ar og ekki fyrir aukvisa." Millenium-geðveikin tekst ekki betur en svo að hann snýr þeim öllum vitlaust I rörunum og sprengir af sér báðar hendurnar með tilheyrandi látum. Þú hlakkar ofboðslega mikið til að upplifa alvöru aldamót og ert ekki mönnum sinnandi allan gaml- ársdag. Sest við fjölvarþiö á hádegi, svissar á milli aldamótaheimsfrétta og drekkur vodka I appelsíni til að grynnka á spennunni og gæsahúðinni. Á mið- nætti kurrarðu hálfdauöur og slefandi I sófanum og heyrir klukkuna slá þessi tólf vanalegu högg. Fyrst áramótin eru svona rosaiega merkileg þetta árið verður allt að vera fullkomið. Hins vegar er ekki auðvelt að semja við forlagafrúna og sannast hefur að hún er stundum helvítí nastí... Sextugur faðir þinn er nýkominn úr meðferð, orðinn grænmetisæta og nýgenginn I Krossinn. Hann situr með saklaust bros og viðurkennir rétt undir kvöldið að hafa hent öllu áfenginu, tó- bakinu og steikinni. Hins vegar keypti hann hlaup I poka, eplasafa og leigði Jón Odd og Jón Bjarna til að gleðja ykkur systkinin. Þú ferð I nýju, dýru ára- mótafötin og kemst að því að þau þola ekki rammís- lenska veðráttu. Þegar skellur á með blautum byl skreppa þau saman að of- anverðu og þegar þú mæt- ir I þartíið spretta stinnar geirvörturnar út og bjóða gott kvöld. Þá er hins veg- ar lítiö annað að gera en aö fá sér einn tvöfaldan. Þegar nýja árið gengur I garð og allir ætla að skála áttarðu þig á þvl að þú keyptir óvart sex flöskur af óáfengu barnakampavini I staðinn fyrir alvöru kampavin. Þar klúðrast sénsinn sem átti að landa og enginn nennir að hanga með þér það sem eftir lifir kvölds. HANN VAR VÍST EKKI TVÖ bú SUND -HÆPUR. ... OF&AMALT forritið í honum... f ÓkllS 30. desember 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.