Dagblaðið Vísir - DV - 31.12.1999, Blaðsíða 15
;
Þegar litið er yfir árið í kvikmyndum fá nöfn þeirra Harmony Korine og Spike Jonze marga til að hlakka
til þess næsta. Þessír ungu leikstjórar sem renndu sér upphaflega inn í kvikmyndabransann á
hjólabrettum sendu báðir frá sér mjög athyglisverðar myndir á árinu. Gamanmyndin Being John Malkovich
í leikstjórn Jonze rakaði saman seðlum í Hollywood. En dogma-mynd Korine, Julien donkey-boy, sópaði
til sín upphrópunarmerkjum í blöðunum.
Þótt Being John Malkovich sé
fyrsta kvikmynd hins þrítuga Spike
Jonze hefur hann verið þekktur
myndbanda- og auglýsingaleikstjóri
í Hollywood um nokkurn tíma.
Hann er maðurinn á bak við mörg
frumlegustu myndbönd þessa ára-
tugar og fastur gestur á uppskeruhá-
tíð MTV-sjónvarpsstöðvarinnar. En
það var áhugi Jonze á hjólabrettum
sem leiddi til þess að hann byrjaði
að gera myndbönd.
Upphaf plebbatískunnar
Eftir gaggó fluttist Spike til Los
Angeles og gerðist blaðamaður viö
BMX- og brettablaðið „Dirt“ en í
hans huga var hjólabretti hið full-
komna farartæki. Hann áttaði sig
fljótlega á að honum þætti skemmti-
legra að taka myndir en skrifa og
geröi það reyndar ágætlega því
mamma hans hafði kennt honum
undirstöðuatriðin í ljósmyndun.
Hann stakk pennanum í vasann og
byrjaði að ljósmynda skeitarana fyr-
ir blaðið. Með fram myndatökunum
dundaði hann sér við að gera stutt-
mynd sem heitir The Blind Skatebo-
arding Team. Kim Gordon og Thur-
ston Moore í Sonic Youth komust
síðar yfir myndina og hrifust af
rugluðum húmor og krafti hennar.
Þau settu sig umsvifalaust í sam-
band við Spike og báðu hann að út-
færa hjólabrettaatriði fyrir mynd-
band sem gera átti við lagið 100%.
Það tókst svo vel að stuttu síðar bað
Kim Gordon hann að leikstýra öðru
myndbandi við lagið Cannonball
með hljómsveitinni Breeders. Og sú
fallbyssukúla Spike Jonze þýtur enn
i gegnum loftið.
Síöan hefur hann gert myndbönd
eins og Sabotage (Beastie Boys), It’s
Oh So Quiet (Björk), Electrobank
(Chemical Brothers), Praise You
(FatBoy Slim), Buddy Holly (Weez-
er) og mörg fleiri. Auk þess hefur
hann leikstýrt fjölda auglýsinga sem
hafa vakið athygli. Allt það sem
Jonze snertir á þykir verða sérstak-
lega sprelllifandi, fyndið og
skemmtilegt. Myndbönd hans eru
keyrð áfram af prakkaralegri lífs-
gleði eins og í It’s Oh So Quiet þar
sem Björk skoppar brosandi um í
besta og fegursta heimi allra heima.
Eða aulahúmor og lúðadýrkun eru
ríkjandi eins og í Praise You þar
sem Spike fer sjálfur fyrir hópi fólks
sem rembist við að dansa eins asna-
lega og það getur. Upphaf plebba-
tískunnar og „vertu þú sjálfur"
mottóið sem hefur ríkt undanfarinn
áratug má auðveldlega rekja beint
til Spike Jonze.
Ein frumlegasta kvik-
mynd Hollywood
Being John Malkovich fjallar um
lif misheppnaða brúðumeistarans
Craig (John Cusack) sem er giftur
lúðalegum eiganda gæludýraversl-
unar að nafni Lotte (Cameron Diaz).
Brúðumar hans Craigs þykja jafn
ógnvekjandi og rugluðu gæludýrin
sem Lotte tekur að sér að fóstra á
heimili þeirra hjóna. Vegna blank-
heita neyðist Craig til að finna sér
annað lifsviðurværi. Hann fær skrif-
stofustarf hjá fyrirtæki sem er til
húsa á 7 1/2. hæð svo að starfsfólkið
þarf að ganga kengbogið um gólf. Á
bak við einn skjalaskápinn á þessari
undarlegu hæð uppgötvar Craig sér-
stakan leynigang. Hann stígur inn á
ganginn og. sogast skyndilega í gegn-
um tima og óskilgreint rúm og end-
ar inni í höfði leikarans Johns Mal-
kovich. í fimmtán mínútur fær hann
að líta heiminn augum töffarans
með tvíræða brosið en dettur svo úr
skýjum og skellur á jörðinni aftur.
Craig hefur aö sjálfsögöu aldrei lent
í öðru eins og byrjar að selja vinnu-
félögum sínum aðgang að heila
Johns Malkovich sem leikur sjálfan
sig í myndinni. Þegar hann sjálfur
fær síðan að fara inn á ganginn sem
liggur að hans eigin heila fer sögu-
þráðurinn að verða verulega
skemmtilega þvældur. Being John
Malkovich þykir með frumlegri
kvikmyndum sem hafa komið frá
Hollywood árum saman og gagn-
rýnendur eru í skýjunum. Ekki sist
vegna þess að í myndinni er úrelt-
um formúlum snúið á hvolf með
þeim árangri að áhorfendur
skemmta sér konunglega.
Raunsær Korine
Þegar Harmony Korine var
sautján ára að leika sér á hjólabretti.
í Central Park gekk ljósmyndarinn
Larry Clark að honum og bað hann
að sitja fyrir. Sú ljósmyndataka þró-
aðist þannig að Harmony skrifaði
handritið að myndinni Kids sem
Clark tók að sér að leikstýra. Mynd-
in sýndi ameríska æsku í nýju ljósi
og þótti svo sjokkerandi að síðan
hefur Korine lítinn tíma haft fyrir
brettið sitt. í dag er hann undra-
bamið í listakreðsum New York-
borgar og á góðri leið með að verða
einn athyglisverðasti leikstjóri
landsins. Tveimur árum eftir frum-
sýningu Kids skrifaði Harmony
handrit að annarri mynd og leik-
stýrði henni sjálfur. Sú heitir
Gummo og segir frá tveimur vinum
í ameríska smábænum Xenia sem
hjóla um götumar á BMX-hjólum og
veiða ketti fyrir asískt veitingahús.
Bærinn er í rúst eftir hvirfilbyl og
íbúamir að sama skapi ansi tættir.
Annars er lítill söguþráður í mynd-
inni og hún minnir helst á einhvers
konar sambland af geggjuðum
fyllirísspuna og fríksjóvi. En líklega
er auðveldast að líta á hana sem enn
eitt raunsætt sýnishorn Korine af
ameríska draumnum.
Flassbrennd barnastjarna
Eins og Spike Jonze er brosmildur
og bjartur í sínum verkum er Harm-
ony Korine ungur og svartur. Á með-
an Spike snýr kankvís upp á formúl-
urnar virðist meginmarkmið Korine
að leggja þær í rúst. Eftir Gummo
sendi hann frá sér tvær bækur og
byrjaði að fást við myndlist með
markvissum hætti. Ljósmyndabók
hans, The Bad Son, er létt daður við
barnaklám og inniheldur ögrandi
myndir af fyrrverandi bamastjöm-
unni Macaulay Culkin, sjúskuðum
og hálfnöktum. Bókin var prentuð í
þúsund eintökum og gefin út í Japan
en er ófáanleg í dag nema á upp-
sprengdu verði í safnarabúðum. Hin
bók Korine heitir The Crack Up at
the Race Riots og er óskilgreinanleg-
ur grautur af ljóðum, hugleiðingum,
smásögum, krassi og einhverju.
í fyrra sýndi Harmony innsetn-
ingu í galleríi í New York sem hét
The Diary of Anne Frank (Part Two).
Hún samanstóð af þremur sjónvörp-
um sem sýndu fatlaðan mann í hjóla-
stól með gegnsósa bleiu reyna að
grafa dauðan hund. Og nýlega
kláraði Harmony vídeóverkið Fight
Harmony Korine hefur fengist við myndlist af ýmsu tagi.
Harm sem sýnir hann sjálfan reyna
að snapa slagsmál á götum New
York. Áður en Harmony byrjaði á
verkinu setti hann sér tvær reglur.
Önnur var sú að hann mátti ekki
hefja slagsmálin heldur reita vegfar-
endur til reiði þar til þeir réðust á
hann. Hin reglan var að þeir sem
kvikmynduðu slagsmálin fyrir
Harmony máttu ekki grípa inn i at-
burðarásina. Nema sá sem hann var
að slást við væri að drepa hann.
Reyndar átti þetta vídeóverk að vera
heimildamynd en náði bara ekki til-
ætlaðri lengd. Harmony var ekki bú-
inn að taka upp nema fjörutíu mín-
útur af efni þegar búið var að bijóta
í honum nokkur rifbein og báða
ökklana svo hann neyddist til að
hætta.
Fyrsta ameríska dogma-
myndin
Það kemur ekki á óvart að mað-
ur sem virðist hafa gaman af að
fylgja reglum en jafnframt brjóta
þær um leið skyldi hrífast af
danska dogma-sáttmálanum. Julien
donkey-boy er fyrsta ameríska
dogma-myndin og fjallar um geð-
klofann Julien (Ewen Bremner).
Hann býr með snarklikkuðum föð-
ur sínum (Werner Herzog), nokkuð
eðlilegiun bróður (Ewan Neumann)
og systur (Chloe Sevigny) sem
gengur með barn þeirra Juliens.
Fjölskyldulifið er í meira lagi
skrýtið og litað af andlegu oföeldi
föðurins. Hann gengur um gólf með
gasgrímu fyrir andlitinu, rakkar
niður böm sín og útkljáir rifrildi
þeirra með þvi að láta þau keppa
hvert við annað í fjölbragðaglímu.
í myndinni er Harmony Korine
enn að velta fyrir sér amerískum
gildum og nú er það sjálfur hom-
steinn samfélagsins sem er tekinn
og mölvaður. Þetta er í senn sorg-
legt, fyndið og ruglingslegt því
sjónarhornið er út frá Julien og
erfitt að átta sig á hvað á sér ein-
göngu stað í hausnum á honum og
hvað í kringum hann. Útlit mynd-
arinnar er i senn ofur raunsætt og
súrrealískt og stundum virðist að-
alpersónan Julien hreinlega stödd í
abstrakt videólistaverki. Systirin
missir fóstrið á skautasvelli,
handalaus trommari lendir í rifr-
ildi við svartan albínóa og Herzog í
hlutverki föðurins fer með langar
ræður um heimsmeistaramót
talandi páfagauka. Það er engin til-
viljun að Wemer Herzog leikur
höfuð íjölskyldunnar í myndinni
en hann og Harmony Korine eru
Spike Jonze vann um skeið sem
blaðamaður fyrir hjólabrettablað.
helstu aðdáendur hvor annars.
Formbylting á nýrri öld?
Gagnrýnendur hafa ýmist hamp-
að Julien donkey-boy sem meistara-
verki eða fjallað um hana af ótta-
blandinni virðingu. Hún þykir
stytta bilið á milli amerískra kvik-
mynda og vídeólistar rétt eins og
Being John Malkovich nálgast mús-
íkmyndbandið meira en kvikmyndir
hafa gert hingað til. Og vonandi eru
myndir Spike og Harmöny vísir að
einhvers konar formbyltingu í am-
erískri kvikmyndagerð á nýrri öld.
Korine er reyndar kominn á kaf í
nýja mynd ásamt leikstjórunum Gus
Van Sant og Wemer Herzog þar sem
hver þeirra leikstýrir einum hluta.
En Spike hefur tekið að sér að fram-
leiða myndina Human Nature eftir
Charlie Kaufman, handritshöfund
Being John Malkovich. Henni verð-
ur leikstýrt af Frakkanum Michel
Gondry sem einnig er þekktur aug-
lýsinga- og myndbandaleikstjóri.
-HB
<
-
30. desember 1999 f Ó k U S
15