Dagblaðið Vísir - DV - 31.12.1999, Síða 18
Rósa Ingólfsdóttir
auglýsingateiknari:
Reyni að passa upp á budduna m
„Ég strengi þess heit núna um þessi áramót, eins og ég wL jlÉ8
hef reyndar gert um hver áramót, aö standa mig vel gagn- 'SI
vart mínum skuldum, þaö er að segja að losa mig úr þeimHH&. H
skuldum sem hafa komiö á árinu, koma skuldunum frá. Svo er^^'i
mér alltaf ofarlega í huga að stefna að hamingjusömu heimilislífi, að
gera heimilið eins fallegt og ég get. Það hefur nú yfirleitt gengið vel hjá mér að
standa við þau heit sem ég hef sett mér því að þegar maður er einyrki, það er
að segja með lítið fyrirtæki, þá hefur maður litla sjóði að baki þannig að þetta er
geysileg ögrun. En þetta er skemmtileg ögrun sem mér finnst skemmtilegt að
takast á við því þá verður maður til. Ögrunin við að standa vörð um budduna."
Davíð Þór Jónsson
skemmtikraftur:
Ætla ekki að hætta að reykja
„Þessi áramótin hef ég ákveðið að setja mér heit en
skiljanlega vil ég ekki deila því meö öðrum því að þá er
hægt aö klína þvi upp á mig. Samt veit ég ekki hvort ég næ
að standa við þessi heit því þegar ég hugsa til baka þá hef ég^^BHHP^
verið mjög gjarn á að svíkja mín heit. Ég hef gjarnan ætlað að hætta að
reykja um áramót en sökum þess að ég á afmæli snemma á nýja árinu þá hef
ég mjög gjarnan átt það til aö springa á reykingabanninu. Þannig að í gegnum
tíöina hef ég mjög oft verið reyklaus fyrstu viku nýja ársins og síðan ekki söguna
meir. Ég er nú svo heppinn að vera það vel af guði gerður að ég þarf ekkert vera
að gefa heit til að venja mig af einhverjum ósiðum. Ef mér hefur fundist að ég
þurfi að bæta ráð mitt á einhvern hátt þá hef ég nú iðulega reynt að gera þaö
óháð einhverjum heitum og árstíma. Það þarf engin áramót til. Hins vegar hef ég
einn stóran galla og það er að mér finnst nikótínið alveg rosalega gott og það
hefur verið svolítið erfitt að losna við það. Ég hef hins vegar ákveöið að hætta
ekki að reykja um þessi áramót."
Snorri Asmundsson
myndlistarmaður:
Minn eigin sigurvegari
„ Ég hef nú svona í gegnum tfðina ekkert veriö mikið fyr-
ir heit en þó heiti ég mér því yfirleitt alltaf að fara inn f \íSs
næsta ár sem sigurvegari, þaö er að segja sigurvegari I^^B
mfnu lífi og á mfnum eigin forsendum. Þetta hefur gengiö
veg ágætlega hjá mér. Þetta er eitthvað sem fer alltaf f gegnum huga
minn um hver einustu áramót og ég held að þau áramót sem eru aö skella á
verði þar engin undantekning. Það heit sem ég hef staðið viö og er mjög stolt-
ur af er þaö að ég hét mér því einu sinni aö hætta að drekka og því fylgdi vit-
anlega breyttur lífsstíll. Þessum lífsstíl hef ég alveg náö aö halda og er mjög
ánægöur meö hann."
Hulda Bjarnadóttir
dagskrárgerðarkona:
Nammidagur alla daga ársins
„Ég man sérstaklega eftir áramótaheitinu þegar ég ■, ■ hJ
ákvað aö hafa bara nammidag á laugardögum eíns og litlu '8§|
krakkarnir gera. Þetta áramótaheit setti ég mér fyrir^Hj
nokkrum árum en ég held að ég hafi veriö innan viö mánuð
svíkja þaö. Núna eru nammidagar hjá mér á hverjum einasta degi, allan
ársins hring. Ég ætlaði að taka til f mínum Ifkama og mfnum nammimálum en
það dugöi nú skammt. Mér gekk svo hræðilega meö þetta heit að ég hét mér þvi
eiginlega að strengja engin heit framar. Það eina sem ég geri þegar nýtt ár er aö
renna af stað er að fara yfir það f huganum að vera trú mfnum vinum og sjálfri
mér. Þannig að þaö má eiginlega segja að ég sé hætt aö setja einhver formleg
áramótaheit og reyni þess í staö að heita einhverju óháö þvi hvaða tími ársins
er, þaö hentar mér miklu betur."
Orn Arnason
leikari:
Er orðinn of góður maður m
„Ég hef bara aldrei verið með neitt áramótaheit og get
þannig ekki deilt neinum heitum með lesendum Fókuss. „ :,Æ
Ég hef bara alveg sleppt þessum heitum og tek þess í stað
bara hverjum degi sem kemur og læt honum nægja sfna þján- ^^BBBW>%
ingu. Þaö er ekkert vit I því aö vera aö strengja einhver áramótaheit,
springa svo á miöju ári og lifa með samviskubit þaö sem eftir er af árinu. Ég er
þvf ekkert fyrir svona. Ég hef samt alltaf reynt að lofa þvf f upphafi árs að verða
betri maður en ég er en ég þori eiginlega ekki aö lofa þessu um þessi áramót
þvi að ég er búinn aö lofa þessu svo oft með þeim afieiðingum að ég er orðinn
alveg rosalega góöur maöur. Ég má bára eiginlega ekki við meiru."
Egill Helgason
blaðamaður:
Með krónískt samviskubit
„Ég hef nú bara aldrei sett mér áramótaheit og hvaö þá
staðið við þau. Ég get alveg svarið fyrir það að ég hef -^^pPs
aldrei sett nein áramótaheit. Ég er að lofa bót og betrun ali- "/»]M
an sólarhringinn, allt lífið, stanslaust. Ég er alltaf að fara að^*Th ,\.
taka mig á þannig að áramótin eru bara partur af því, þau falla bara und-
ir þaö. Ég er alltaf að reyna að taka mig á en útkoman er eiginlega bara sú að
ég er með krónískt samviskubit yfir þessu öllu saman. Þannig að áramótin meika
ekkert diff í mínum huga."
Gísli Marteinn Baldursson
fréttamaður:
Hafdís Huld
söngkona:
Slappur í líkamsræktinni hHl.
„Ég set mér yfirleitt ekki mikið af áramótaheitum heldur WW
reyni frekar að bæta úr þvi sem má laga strax í staðinn * •
fyrir að geyma það fram að áramótum. Það er miklu betra en
að geyma til dæmis eitthvað sem má laga f janúar eða febrúar í ^
fram að næstu áramótum. Ég hef nú samt nokkrum sinnum strengt heit
um áramót, svona með straumnum. Ég reyki ekki þannig að ég hef ekki getað
hætt þvi. Hins vegar hef ég oft sett mér markmið hvað varðar líkamsrækt, þaö
er að segja stunda heilbrigðara líferni. Það markmið hefur mér þó alltaf tekist að
svikja, hvort sem það eru áramót, mánaöamót eða vikumót. Ég svfk þetta alltaf.
Á mínum framhaldskólaárum drakk ég alveg svakalega mikið af kóki og ég hét
mér þvf að minnka kókdrykkjuna og það hef ég nú náð að standa nokkuð vel við.
Ég get því miður ekki sagt aö ég hafi sett mér einhver heit sem snúa að því að
vinna einn dag f mánuði fyrir líknarfélög. Ég vildi að ég hefði einhvern tímann sett
mér svoleiðis heit. Þannig að svoleiðis heit hef ég aldrei staðið við eða svikiö.
Samt er ég nú þannig að ef ég ætla mér aö gera eitthvað, hvort sem það snýr
aö áramótaheitum eða einhverju öðru, þá geri ég það. Það sem ég hef svikið er
meira eitthvað svona sem maður hefur kastað fram ábyrgðarlaust. Ég get hins
vegar alveg upplýst áramótaheitið mitt þessi áramótin en það er að standa mig
eins vel og ég get f þættinum sem ég er aö byrja með á RÚV í byrjun nýs árs.“
Slapp fyrir horn WBk W' jjj
„Ég hef i rauninni aldrei vanið mig á aö strengja ára-
mótaheit því að ég er þannig manneskja aö ef ég segist ^B
ætla aö gera eitthvað þá geri ég það. Ef ég heiti einhverju ^JBf
þá verö ég að standa viö það. Ég gæti aldrei heitið einhverju og
svikið það sfðan, sérstaklega ef ég hef heitiö því fyrir framan einhverja.
Einu sinni þegar ég var pínulítil þá hét ég þvf að prófa aldrei að reykja. Svo gerð-
ist þaö um daginn að ég var að leika stórreykingamann f bfómynd og átti þar af
leiðandi að reykja. Veistu að mér leið bara virkilega illa að þurfa að brjóta eitt-
hvert heit sem ég meira að segja hafði bara heitiö sjálfri mér. Þetta var ekki einu
sinni opinbert heit. Ég og aðstandendur myndarinnar ræddum þetta fram og til
baka og á endanum varö ofan á að pantaðar voru sfgarettur frá Bretlandi sem
eru hvorki með nikótíni né tóbaki. Þetta var bara gert svo að mér gæti liðiö vel
og þyrfti ekki að svíkja gefið heit. Þannig að ég er nú kannski stundum einum of
samkvæm því sem ég segi og með það i huga þá þakka ég guði fyrir að ég er
ekki með mörg heit á bakinu því þá væri gjörsamlega ómöguiegt fýrir mig aö kom-
ast í gegnum daginn og ég færi sennilega bara ekkert út úr herberginu mfnu.
Svona er ég sem sagt, ef ég lofa einhverju þá stend ég við það.“
Islendingar og áramótaheit er eitthvað sem passar mjög vel saman. Það er nú samt þannig að fólk á
misjafnlega auðvelt með að standa við gefin heit. Þar sem aldamótin eru nú að skella á með pompi
og prakt annað kvöld ákvað Fókus að bjalla í nokkra einstaklinga og biðja þá um að deila með
þjóðinni sviknum áramótaheitum ásamt þeim heitum sem þeir hafa staðið við og eru hvað stoltastir
Eg strengi
30. desember 1999