Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2000 Fréttir Foringi Samfylkingarinnar setur sig upp á móti nýju fjarskiptalögunum: Hótað lífláti - vill hafa heimild til að verja sig með segulbandsupptökum „Því miöur samþykkti ég fjar- skiptalögin en í ljósi ruddalegra og ógeðfelldra hótana sem ég og fleiri hafa fengið í gegnum síma þá mun ég taka mál- ið upp í þing- flokki Samfylk- ingarinnar og beita mér fyrir því að ákvæði um bann við seg- ulbandsupptök- um á símtölum verði afnumið," sagði Margrét Frímannsdóttir, tals- maður Samfylkingarinnar, sem hef- ur þurft að þola líflátshótanir sím- leiðis sem linnti ekki fyrr en hún kærði; símtöl voru rakin og rann- sóknarlögreglan á Selfossi leysti málið fljótt og vel. „Það er flókið ferli að kæra í svona málum því orð getur staðið á móti orði. Ef ég hefði hins vegar átt upptökutæki við sím- ann minn heföi ég getað hljóðritað hótanirnar og lagt fram með kærunni. Nú er ég búin að kaupa mér svona tæki en má ekki nota það,“ sagði Margrét. Það var í aðdraganda síðustu al- þingiskosninga sem Margréti fóru að berast hótanir í gegnum síma. Það var karlmannsrödd sem hótaði henni lífláti svo og hennar nánustu: „Mér leist ekki á blikuna þegar maðurinn var farinn að ræða um bamabarn mitt og virtist fylgjast með ferðum mínum frá því klukkan 7 á morgnana og fram að miðnætti. Hann vissi hvenær og hvort ég fór með bamabarn mitt á dagheimili. Hvort ég ók Þrengslin eða Hellis- heiðina til Reykjavikur og hann fylgdist jafnvel með því hvort ég stoppaði og fékk mér kaffisopa í Litlu kafflstofunni á Sandskeiði. Það var engu líkara en hann hefði kortlagt daglegt líf mitt. Þá kærði ég,“ sagði Margrét. En hvers vegna samþykktir þú fjarskiptalögin? „Mér brá heiftarlega þegar fjöl- miðlar vöktu athygli okkar þing- manna á þessu ákvæði í lögunum sem banna segulbandsupptökur en það er einu sinni þannig að við þingmenn komumst ekki yfir að lesa allt sem við samþykkjum. Við erum með menn i nefhdum sem fara yfir málin með okkur og ekki man ég að þetta ákvæði hafi sérstaklega verið rætt í þingflokki Samfylking- arinnar. Þetta hefur bara slæðst með,“ sagði Margrét sem ætlar að taka málið upp og reyna að ná fram nauðsynlegum breytingum svo hún og aðrir geti varið sig með gögnum þegar ósvífnir einstaklingar mis- nota fjarskipti með þeim hætti sem fyrr greindi: „Það felst visst öryggi í segul- bandsupptökum á símtölum og þess öryggis vil ég geta notið þegar mér er misboðið símleiðs," sagði Mar- grét Frímannsdóttir. -EIR mannsdóttir. Kópavogur: Janni skal hann heita „Ætli ég kalli hann ekki Janna sem er stytting úr Janúar," sagði stoltur hesteigandi, Lárus Sigfús- son, við DV í fyrradag. Lárus á hesthús í Gusti í Kópavogi. Þar er hann með allmörg hross, bæði tamin og trippi. Á aðfaranótt mánudags kastaði ein hryssan hans, Rósalind, myndarlegu rauðu hestfolaldi. Það er sjaldgæft að folöld fæðist á þessum árstíma. En Lárus vissi að hryssan var fylfull og tók hana á hús í nóvember. „Ég átti ekki von á því að hún kastaði strax því það var engin mjólk komin í hana,“ sagði hann. „Svo þegar ég kom í húsið um morguninn var þetta rauða hest- folald komið í heiminn. Sá litli var hress þótt hann væri ekkert farinn að fá. Ég gaf honum sykurvatn og nú er hann farinn að leita eftir mjólkursopa hjá móður sinni. Mér sýnist hún vera að byrja að mjólka honum núna,“ sagði hinn stolti eigandi um leið og hann strauk fol- aldinu um makkann. -JSS Lárus með hryssuna Rósalind og hestfolaldiö Janna sem hún kastaði aðfaranótt mánudags. Sá litli var varla oröinn þurr og fannst veröldin greinilega hálfhráslagaleg. Úr því rættist þó þegar hann var búinn að fá volgt sykurvatn. DV-mynd GVA Jón Steinar: Segulbands- lögin í endur- skoðun „Mér finnst einsýnt aö eðli- legir og lögmætir hagsmunir geti oft mælt með því að mönnum eigi að vera heimilar slíkar upp- tökur án þess að afla fyrst sérstaks sam- þykkis hjá viðmælanda sínum,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugs- son hæstarétt- arlögmaður um það ákvæði nýju sem bannar Jón Steinar Gunnlaugsson. fjarskiptalaganna upptökur af símtölum án leyfis þess sem rætt er við. „Dæmi um þetta geta verið símtöl með hót- unum. Af öðrum dæmum má nefna hagsmuni fréttamanna af því að hafa rétt eftir viðmælend- um sínum og varðveita sannanir um ummæli. Þegar slíkir menn ræða við aðra hljóta viðmælend- umir að gera ráð fyrir að viðtal sé tekið til birtingar nema annað sér sérstaklega tekið fram. í ljósi alls þessa tel ég brýnt að þessi lagasetning verði endurskoðuð," sagði Jón Steinar. -EIR Hræringar á internetmarkaðnum: Vísir.is og Leit.is sameina krafta Tvö af þremur stærstu netsvæöum Islendinga, Vísir.is og Leit.is, hafa sam- einaö krafta sína. Gengið hefur verið frá umfangs- miklum samstarfssamningi milli net- miðilsins Vísir.is og islensku leitar- vélarinnar Leit.is samfara kaupum Vísis.is ehf. á 35% hlut i Nova Media ehf. sem á og rekur Leit.is. Þetta telj- ast töluverð tíðindi á íslenska inter- netmarkaðnum þar sem um er að ræða tvö af þremur fjölfórnustu net- svæðum á íslandi. Eins og kunnugt er sameinuðust netmiðlarnir Vísir.is og Fjölnet.is síð- astliðið vor en Fjölnet var internet- svæði sem íslenska útvarpsfélagið og Islandia héldu úti með efni, m.a. Stöðvar 2, Bylgjunnar og Sýnar. Því eru nú komnir undir einn hatt allir sterkustu internetmiðlar landsmanna að Vefútgáfu Morgunblaðsins undan- skilinni. í nýlegri könnun Gallup reyndist Vísir.is vera stærsti netmiöill íslend- inga, en um helmingur notenda vefs- ins heimsækir Vísi reglulega, Vefút- gáfa Morgunblaðsins var í öðru sæti og Leit.is í þvi þriðja. „Vísir.is og Leit.is sameina nú krafta sína í tengsl- um við opnun á nýrri forsíðu Vísis en hún hefur á undanfórnum mánuðum verið að styrkja sig í sessi sem fjöl- famasta „super-portal“ á íslenska Internetinu. Með því að eina alvöru leitarvél íslendinga er komin til liðs við okkur og með það gríðarlega bak- land sem Vísir.is á í þeim fjölmiðlum sem að honum standa, þ.e. DV, Stöð 2, Dagur, Viðskiptablaðið, Bylgjan og Sýn, svo eitthvað sé nefnt, þá teljum við að staða okkar sé mjög sterk. Það breytir því ekki að Intemetið er gífur- lega lifandi og skemmtilegur starfs- vettvangur og því stöðugt eitthvað að gerast. Þannig viljum við hafa það,“ sagði Þorvaldur Jacobsen, fram- kvæmdastjóri Vísis.is, í samtali við DV i gær. Samhliöa ofangreindum kaupum keypti Vísir.is hlut í tveimur fyrir- tækjum sem Nova Media hefur stofn- að en þau munu vinna á afmörkuðum sviðum Internetsins, þ.e. á sviði greiðslumiðlunar og stafrænnar fjöl- miðlunar. Gert er ráð fyrir að breikka mjög hluthafahóp þeirra fyrirtækja. Framkvæmdastjóri Nova Media er Halldór Axelsson. -rt Stuttar fréttir i>v Titringur Dagur segir frá því í dag að titr- ingur sé innan ríkisstjórnar vegna Vatneyr- ardómsins. Halldór Ás- grímsson, for- maður Fram- sóknarflokks- ins, er sagður vilja breytingar á kvótakerfinu á meðan Davíð Oddsson, formað- ur Sjálfstæðisflokksins, vilji engu breyta. Fleiri í sund Metaðsókn var í sundlaugar ÍTR á árinu 1999. Alls komu 1.659.805 gestir sem er fjölgun um 75 þúsund gesti frá árinu áður. Af heildargestafjölda voru gestir Laugardalslaugar tæplega 536 þúsund og Árbæjarlaugar rúm- lega 393 þúsund. Vísir.is sagði frá. Lóðaskortur Grindavík er orðinn eftirsóttur staður til búsetu. Vegna mikillar eftirspurnar á árinu 1999 er svo komið að lóðaskorts er farið að gæta í Grindavík. Grindvíkingum fjölgaði mikið á nýliðnu ári, eða um 2,35%, sem er tvöföld fjölgun á landsvísu.'Dagur greindi frá. Dansleikjahús Fyrsta dansleikjahúsið sem byggt hefur verið í hjarta Reykja- víkur í áratugi frá því borgin var byggð er að rísa í Austurstræti. Húsið mun rúma um 900 manns og kosta um 400 milljónir króna. Það verður tekið í notkun í maí eða júní. Stöð 2 greindi frá. Tómas Ingi saklaus Tómas Ingi Olrich segist í við- tali við Dag ekki vera huldumað- ur sá er upp- lýsti í viðtali við frönsku sjónvarpsstöð- ina Canal+ að íslensk erfða- greining hefði styrkt alla stjórnmála- flokka. Andlit viðmælanda sjón- varpsstöðvarinnar var gert óþekkjanlegt. Tómas Ingi segir Frakkana hafa tekið langt viðtal við sig en ekkert birt. Atlantsskip vann Atlantsskip og systurfyrirtæki þess hafa unnið mál fyrir áfrýjun- ardómstóli í Bandaríkjunum vegna flutninga fyrir Vamarliðið. Ehnskip höfðaði mál á hendur bandaríska hemum til þess að fá hnekkt samningum Atlantsskipa og bandaríska hersins um flutn- inga fyrir Varnarliðið milli Bandaríkjanna og íslands. Dómur gekk Eimskip í vil fyrir undirrétti í febrúar 1999. Innherjar á Vísi.is í dag verður opnaður á Við- skiptavefnum á Vísi.is nýr vett- vangur upplýsinga- og skoðana- skipta. Innherjar nefnist þetta raf- ræna torg og verður þar hægt aö koma upplýsingum á framfæri, varpa fram spurningum, ögrandi skoðunum eða getgátum um hvernig þræðirnir í viðskiptalíf- inu liggja á hverjum tíma. Getur fólk bæði komið fram undir nafni eða nafnlaust. Samskipti af þessu tagi hafa verið fastur þáttur í starfsemi Vísis.is frá upphaíi, en miðillinn er nú fjölfórnustu gatnamótin á íslenska Internet- inu. Dýr launahækkun Ríkið þarf að reiða ffam um það bil 540 milljónir króna vegna launa- hækkana lög- reglumanna. 200 milljónir á ári er áætlað að þurfi að reiða fram við 8,1% hækkun sem viðmiðunamefnd ákvað lögreglumönnum um ára- mót. Stöð 2 sagði frá. -hdm/-rt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.