Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2000 Fréttir i>v sandkorn Ríkissaksóknari segir öll skynsemisrök mæla með að Þórhallur hafi banað Agnar W: Vafalaust sekur - verjandi leggur m.a. þunga áherslu á að fingraför Þórhalls fundust ekki á 4 hnífum Pórhallur Ölver ávarpa&i dóminn tvisvar í réttarhaldinu í gær. Hann hélt því m.a. fram að vitni, vinir Agnars heitins, hefðu logið. Myndbandsupptaka úr íbúð Agnars vakti óhug. DV-mynd Pjetur „Þetta er svo ótrúverðugt að það dæmir sig sjálft... til hans sást fara frá vettvangi... það er enginn skyn- samlegur vafi um sekt ákærða í þessu máli,“ sagði Bogi Nilsson rík- issaksóknari í sóknarræðu sinni undir lok réttarhalda í gær í morð- máli ákæruvaldsins gegn Þórhalli Ölveri Gunnlaugssyni. Bogi sagði jafnframt að manndrápið hefði ver- ið hrottalegt og hinn látni, Agnar W. Agnarsson, hefði verið friðsemd- armaður og því engin ástæða til að ætla að hann hefði haft nokkurt frumkvæði að átökum með hníf eins og ákærði hefur haldið fram. Myndbandsupptaka úr íbúð Agn- ars heitins frá vettvangsrannsókn lögreglu var sýnd i réttarsalnum í gær. Dauðaþögn ríkti enda voru myndirnar sláandi þar sem lík Agn- ars lá á bakinu með eldhnúshnif rekinn beint ofan í brjósthol og ótrúlegur holskurður var á hálsi. Maðurinn var með 11 brjósthols- stungur sem allar eru taldar hafa getað leitt til dauða auk stungna á baki. Hægindastóll lá á bakinu, skúffur höfðu verið teknar og sturt- að úr sumum þeirra og blóðugir og bognir eldhúshnífar lágu í eldhúsi og á stofugólfi. Blóð var á gólfi og blóðkám var víða, m.a. við hnífa- statíf í eldhúsi. Það er deginum ljósara að þarna hafði vitfirrtur maður skilið Agnar heitinn eftir látinn í blóði sínu. „Ég var útúrspíttaöur...“ Sakborningurinn tók til máls undir lok réttarhaldanna. Hann sagðist hafa orðið vitni að sorgleg- um vitnaleiðslum daginn áður. „Ég tala nú ekki um yflrheyrslur ríkis- saksóknara," sagði Þórhallur. Hann sagði að þjóðin öll heföi veriö búin að dæma sig fyrirfram fyrir morðið á Agnari heitnum þegar hann kom frá Danmörku þar sem hann var handtekinn nokkrum dögum eftir atburðinn. Hann kvaðst hafa verið „útúr- spíttaður" og undir áhrifum „læknadóps" þegar hann kom á heimili Agnars heitins aðfaranótt 14. júlí. „Ég var ekki tilbúinn að fara heim og vildi bara spjalla. Hann átti líka oftast í pípu,“ sagði Þórhallur sem sagðist hafa farið ár- angurslaust heim til annars vinar til að reyna að verða sér úti um fíkniefni. „Ég var búinn að vera í stanslausri neyslu frá 20. mars,“ sagði sakborningurinn. Hann sagði að lokum: „Ákæruvaldið hefur rangt fyrir sér í þessu máli. Það vill bara ekki viðurkenna það.“ Þórhallur hafði einnig fengið fyrr um daginn að ávarpa dóminn. Þá sagði hann m.a. að nokkrir vinir Agnars, sem komu fyrir dóminn daginn áður, hefðu logið að dómin- um. Ekki lögfull sönnun Hilmar Ingimundarson, verjandi Þórhalls, krefst aðallega sýknu til handa skjólstæöingi sínum. Hann lagði m.a. þunga áherslu á að engin fingraíor sem pössuðu við hendur Þórhalls hefðu fundist á þeim fjór- um hnífum sem greinilega voru not- aðir til að bana Agnari heitnum með. Hann sagði líka að Þórhallur hefði á sinum tíma verið sannfærð- ur um að lögreglan myndi flnna flngrafor af einhverjum öðrum á hnifunum. Hilmar sagði að allan vafa í mál- inu bæri að meta ákærða í hag. „Ég get ekki séð að ákæruvaldið hafl lagt fram lögfulla sönnun ...,“ sagði Hilmar. Varðandi framburði vitna sagði Hilmar m.a. að athyglisvert væri að kona á hæðinni fyrir ofan Agnar, sem vaknaði upp umrædda nótt, hefði m.a. sagt að sér hefði heyrst einhver segja: „Hvað hef ég gert þér, Guðmundur. „Ekki heitir ákærði Guðmundur, hann heitir Þórhall- ur,“ sagði Hilmar. Neitun kom geðlækni á óvart Geðlæknir sem rannsakaði Þór- hall Ölver með því að fara 6 ferðir austur á Litla-Hraun og ræða við hann mætti fyrir dóminn í gær. Þar kom fram að á meðan á geðrann- sókninni stóð hafði Þórhallur þegar játað á sig verknaðinn - að hafa ver- ið einn á staðnum með hinum látna og lent í átökum við hann áður en maðurinn var allur. Geðlæknirinn sagði að vegna þess að Þórhallur hefði verið búinn að játa á þessum tíma geti hann sér þess til að honum hafi þótt auðveld- ara að ræða um og opna sig gagnvart atburðinum. Þegar einn dómaranna, Hjörtur 0. Aðalsteinsson, spurði geð- lækninn hvort honum hefði komið það á óvart þegar Þórhallur dró játn- inguna til baka og breytti framburði svaraði hann því játandi. Hann sagð- ist taka það fram að þetta væri lög- fræðilegt atriði - það væri ekki sitt að meta það. Læknirinn útskýrði jaðarsturlun- areinkenni og greinilega skapgerðar- bresti Þórhalls sem hann þyrfti að- stoð við. Þar ræddi hann m.a. um ýkt viðbrögð, tortryggni og heift. Slíkt væri ekki beint sjúklegt að sínu mati en i Svíþjóð t.d. gæti slíkt verið dæmt sjúklegt. Niðurstaða geðlæknisins var að Þórhallur væri sakhæfur. Var hissa á fjórum hnífum Björgvin Björgvinsson lögreglufull- trúi, sem stjómaði morðrannsókn- inni, sagði fyrir dómi í gær að þegar Þórhallur viðurkenndi við fyrstu yfir- heyrslur átökin við Agnar heitinn hefði hann verið trúverðugur. Þá hefði hann líka haft réttargæslumann með sér. Hann sagði Þórhall þó hafa átt erfitt með að lýsa sjálfum átökun- um. Þegar Hilmar, verjandi, spurði Björgvin hvort ekki hefði verið rétt að ákærði hefði verið hissa á að 4 blóðugir hnífar hefðu verið í íbúðinni en ekki einn viðurkenndi lögreglu- fulltrúinn að svo hefði verið. Þórhall- ur hefði heldur ekki áttað sig á fram- angreindum hálsáverka. Valtýr Sigurðsson dómsformaður lýsti því yfir við lok réttarhaldanna að málið yrði nú tekið til dóms. Dómur verður upp kveðinn þann 1. febrúar klukkan 14.00. Sér hver sjálfan sig DuíihfJ um tárvota peninga. Raunveruleg hlutekning samstarfsmanna byggði á raunverulegri upplifun þeirra. Þeim rann blóðið til skyldunnar. Mis- kunnsami Samverjinn sá til þess að þeir létu fé af hendi rakna svo stöðva mætti tárin á leiðinni í maltkexið og tryggja eiginkonu og dóttur, sem að sögn höfðu látist, sómasamlega útför. En allt byggðist þetta sjónarspil á tómri lygavitleysu. Hvorki dóttir né eiginkona höfðu farið yfir móð- una miklu en tárin voru framkölluð af raunveru- legri sorg sem leikin var af svo mikilli innlifun að hún ekki aðeins sýndist raunveruleg heldur var það. Með sjónhverfingum tókst súkkulaði- manninum að leika sér að tilfinningum og ná- ungakærleika samstarfsmanna. En það var varla hálfur sigur. Hann hefur verið kærður og má bú- ast við refsingum. En samstarfsfólkinu var vorkunn og varast skal að dæma. Við lifum á tímum sjónhverfinga þar sem veruleikinn er skældur og skekktur svo enginn veit lengur hvað snýr aftur á bak eða áfram. Dag hvern er fullyrt að svart sé hvítt og hvítt sé svart. Og viðbrögðin eru samkvæmt því. Þess vegna hleypur annar hver íslendingm: eftir alls kyns dóti á útsölum áður en kortatímabil jólainnkaupanna er liðið í stað þess að spara í al- vöru með því að sitja heima. Fólk kýs einn stjóm- málaflokk en ekki annan vegna þess að hvít lygi hefur teygt raunveruleikann og togað. Minnihlut- inn segir góöverk meirihlutans vera spellvirki þar til að hann verður meirihluti og spellvirkið verður góðverk. Sér hver sjálfan sig. Dagfari. Það getur oft verið þrautin þyngri þegar menn ætla að henda gaman að tilverunni í rituðu máli, setja hlut- ina í sérkennilegt eða kaldhæðnislegt sam- hengi í þeim tilgangi að kalla fram bros eða í það minnsta glott. En nú eins og oftar sann- ast nú hið fomkveðna að þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Dagfari þarf ekki að hafa fyrir því að setja sig í sérstakar stelling- ar. Fréttir af raunveru- legu fólki sem er áð fást við raunveruleg verkefni og úttala sig um raunveruleg mál eru oft svo fáránlegar að veruleikinn verður fáránlegri en nokkur útúrsnúningur eða gamansaga krydduð með sam- blandi af öfugsnúningi, aíbökun og meinfyndni. Hafa skal það sem sannara reynist. Sem er ágætt. Þvi veruleikinn tekur yfirleitt lyginni fram. Er fáránlegri, fyndnari og grátbroslegri en nokkur tilbúningur. En stundum verður veruleikinn svo fáránlegur og vitlaus að hann getur ekki, eftir á að hyggja, hafa byggst á öðru en tilbúningi, lygi og leikaraskap sem var svo raunverulegur að enginn greindi muninn. Raunverulegur grátur og raunveruleg tár sem runnu ofan í maltkex á færibandi súkkulaðiverk- smiðju kveiktu raunveruleg viðbrögð nánustu samstarfsmanna sem hófu samskot og gáfu hin- Fjárhagnum reddað Nú mun búið að finna snjalla lausn á hinum gríðarlega ijárhags- vana Isaíjarðarbæjar. Við gaumgæfilega skoðun Halldórs Halldórssonar bæj- arstjóra og fjármála- spekinga bæjarins tóku þeir eftir því að á Hlíf, íbúðar- húsi aldraðra sem er upp á fjórar hæðir, hefur hing- að til verið boðið upp á öll dag- blöðin íbúum tU aflestrar. Hafa blöð- in legið frammi í setustofum á hverri hæð hússins. Nú verður breyting þar á og bruðlinu hætt. Fjárhagur sveitarfélagsins verður snarlega réttur við með því að fækka keyptum eintökum dagblað- anna þriggja úr fjórum í eitt. Fi-am- vegis mega íbúarnir því slást um eina eintakið af DV, Degi og Mogga í andyri hússins... Leitin að Antoni Lítið hefur farið fyrir talsmanni Samfylkingarinnar, Margréti Frí- mannsdóttur, að undanfórny. For- ingjakreppan er í al- gleymingi á þeim bæ þó reyndar þyki hafa rofað til með stuðn- ingsyfirlýsingum við Össur Skarp- héðinsson. Þó þyk- ir ljóst að ekki verði ahir sáttir við Össur i forystusætinu og kannski ekki við öðru að búast þegar haft er í huga að Samfylkingin er kosninga- bandalag margra flokka og Össur hef- ur verið í tveimur þeirra. Svartir húmoristar segja að foringjaleitin eigi eftir að vera jafn árangursrík og ef leitað yrði að sveinbarni íslensku sem héti Anton Blær í höfuðið á for- ingja breskra „verkamanna"... Geir söng Á þrettándafagnaði Karlakórsins Heimis var Geir H. Haarde fjár- málaráðherra ræðu- maður kvöldsins. Þótti Geir fara á kost- um í málflutningi sinum og þótti kórfé- lögum því viðeig- andi að athuga hvort fjármálaráð- herrann gæti sung- ið á við Skagfirð- inga. Var hann kall- aður á svið að syngja Stenka Rasin, rússneskt kósakkalag. Sungu þeir saman einsönginn, Geir og Einar Halldórsson, einsöngvari kórsins. Stóðu þeir sig saman með þvílíkum ágætum að þess var óskað að Geir kæmi óðara með sitt ráðuneyti í Skagaíjörð. Sönghæfileikar ráðherr- ans mættu ekki lengur fara til spillis í héruðum fyrir sunnan, þar sem söngurinn er ekki í jafruniklum met- um. Var því jafnframt lofað að eitt- hvað yrði hægt að finna handa Ingu Jónu Þórðardóttur að gera.... Akrahreppi stjórnað? Að þessu var gerður góður rómur. Kynnir kvöldsins, Hjálmar Jónsson alþingismaður, sem verið hefur kynnir á þrettándafagnaði Heimis undanfarin ár og kallað hefur til ræðumenn til þess að hafa uppi gam- anmál, rammaði óskir og nánast ákvarðanir Skagfirðing- anna og inn í eftirfarandi vísur: Kórinn syngur harla hátt, hresst og glatt er teitið. í Skagafjörðinn flytur brátt Ij árm álar áðuneytið. Inga koma einnig má því ei mun henni fórnað. Ætli hún gæti ekki þá Akrahreppi stjórnað? Umsjón: Haukur L. Hauksson Netfang: sandkorn @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.