Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2000 9 DV Utlönd Trump neitar að heilsa með handabandi: Dauðhræddur við bakteríur kjósenda George Bush, ríkisstjóri Texas, sem keppir að því að verða forseta- frambjóðandi Repúblikanaflokks- ins, er orðinn þjálfaður í að heilsa- kjósendum með handabandi. Kveðst Bush nú geta tekið í hendurnar á 1000 til 1200 manns á dag áður en hægri höndin á honum fer að bólgna. A1 Gore, varaforseti Bandaríkj- anna, sem ein'nig vill verða forseti, fullyröir að hann sé í svo góðri æf- ingu að hann finni ekki lengur fyr- ir nokkrum sársauka. Baráttan fyrir forkosningarnar er nú að skella á og þá verða" allir frambjóðendur að geta heilsað kjós- endum með handabandi. Það er visst samband sem kjósendur krefj- ast af frambjóðendum. Þetta er hins vegar mikið vanda- mál fyrir auðkýfmginn Donald Trump sem hyggst bjóða sig fram fyrir Umbótaflokkinn, flokk sem annar milljarðamæringur, Ross Per- ot frá Texas, stofnaði. I kosningunum. 1992 hlaut Perot 19 prósent atkvæða. Því þykir ekki ástæða til að vanmeta möguleika Trumps. Hann þykir góður samn- ingamaður og nafn hans stendur á nokkrum skýjakljúfum Manhattans í New York. Menn spyrja sig hins vegar að því hvernig hann geti sigr- ast á hræðslu sinni við bakteríur. Hræðslan er svo mikil að Trump neitar að heilsa fólki með handa- bandi. Hann segir meira að segja að siðurinn að taka i hendur ókunnugs fólks sé hræðilegur og villimannleg- ur. Trump verður óglatt sjái hann einhvem koma út af salemi með út- rétta hönd. Trump, sem nú er á ferðinni til að undirrita nýja bók sína, The Amer- ica We Deserve, hefur með sér líf- verði sem eiga að sjá til þess að eng- ir stuðningsmenn reyni að heilsa Donald lætur lífveröi sína sjá til þess að enginn reyni aö heilsa honum með handabandi. honum með handabandi. Ekki alls fyrir löngu lét Trump dreifa hand- hreinsiefni til fréttamanna sem fylgdu honum á kosningafund í Kaliforníu. Það er mat margra að þessi tregða við að heilsa með handa- bandi hljóti að vera baggi i landi þar sem margir frambjóðendur hafa staðið sig eins og hetjur í því sam- hengi. Eftir baráttuna fyrir kosning- arnar 1960 voru hendur Johns F. Kennedys sagðar hafa verið blóðug- ar. Lyndon B. Johnson vildi vera meistari í faginu og naut þess að kreista kjötið eins og hann orðaði það. Bill Clinton forseti stendur sig ekki miklu verr. Hann réttir oft út báðar hendurnar i einu þegar hann kemur á mannamót. Metið á Theodore Roosevelt for- seti, sem dag nokkum 1907 á að hafa heilsað 8150 manns með handa- bandi. Þessir frísku guttar í Jakarta, höfuöborg Indónesíu, eru sjálfsagt guðslifandi fegnir yfir aö búiö er aö framlengja frí í skólanum um einn mánuð svo múslím- ar geti haldið hina miklu Eid al-Fitr-hátíö. Á meöan geta strákarnir líka buslað í sundlauginni eins og þá lystir. Weizman af- henti saksókn- ara varnargögn Ezer Weizman, forseti ísraels, afhenti ríkissaksóknara í gær gögn sem eiga að hreinsa hann af áburði um að hafa brotið lög með því að taka við háum fjárhæðum frá vini sínum. Málið snýst um liðlega þrjátíu milljónir króna sem Weizman þáði á meðan hann var þingmað- ur og ráðherra frá árinu 1988 þar til hann varð forseti 1993. Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels, sagðist í gær vera þess fuliviss að forsetinn myndi gera það sem rétt væri. „Ég ber virðingu fyrir honum. Við erum með forseta í ísrael. Hann mun vita hvað rétt er að gera,“ sagði Barak í viðtali við ísraelska sjónvarpsstöð í gær þeg- ar hann kom heim frá friðarvið- ræðufundinum með Sýrlending- um í Bandaríkjunum. Allt frá því upp komst um pen- ingagjafirnar tU Weizmans fyrir tveimur vikum hafa margir þing- menn og ijölmiðlar krafist afsagn- ar hans. Um leið hafa þeir velt fyrir sér hver kæmi í staðinn. Barak sagði ekki tímabært að ræða eftirmann forsetans á opin- berum vettvangi. íbúum Thule veitt gjafsókn íbúum Thule, sem voru fluttir nauðugir frá heimilum sínum 1953 vegna framkvæmda Banda- ríkjahers, hefur verið veitt gjaf- sókn til að fylgja eftir skaðabóta- kröfum sínum í hæstarétti í Kaupmannahöfn. Lögmaður íbú- anna upplýsti þetta í gær, að því er segir í skeyti frá dönsku frétta- stofunni Ritzau. Grænlendingarnir krefjast skaðabóta sem eru 272 sinnum hærri en þær sem þeim voru dæmdar í Eystri landsrétti í ágúst á síöasta ári. Rétturinn komst að þeirri niðurstöðu að greiða bæri íbúunum sameiginlega fimm milljónir íslenskra króna i skaða- bætur en lögmaður þeirra vill um 1,3 milljarða íslenskra króna. Rússar í vanda í Tsjetsjeníu: í varnarstöðu Rússneskir hershöfðingjar voru komnir i vamarstöðu í Tsjetsjeníu í morgun eftir mjög harðar árásir uppreisnarmanna múslíma á bæi undir stjórn Rússa í gær. Þá var barist nærri höfuðborginni Grozní. Misvísandi fréttir bárust í gær af ástandinu í bæjum á yfirráðasvæði Rússa. Rússneskir herforingjar sögðust hafa náð öllum bæjunum aftur á sitt vald. í skýrslum þeirra um ástandið í gærkvöld kom hins vegar fram að þeir hefðu látið skjóta úr stórskotaliðsbyssum á skotmörk skæruliða nærri íjölda bæja sem sagt var að þeir hefðu náð fyrir mörgum vikum. Uppreisnarmenn segja á vefsíðu sinni að þeir hafi nokkra mikilvæga þjóðvegi á valdi sínu, svo og ýmsar byggingar í bæjum sem Rússar réðu áður yfir. Rússnesk herþyrla á eftirlitsflugi nærri varðstöö i Ingúsjetíu, næsta bæ við Tsjetsjeníu. Ungur banda- rískur morðingi tekinn af lífi Christopher Thomas í Virginíu í Bandaríkjunum var 17 ára þegar hann fyrir 9 árum skaut tii bana ásamt vinstúlku sinni foreldra hennar þar sem þeir höfðu bann- að unga fólkinu að hittast. Dóttir- in var bara 14 ára og var því dæmd i fangelsi til 21 árs aldurs. Hún er frjáls í dag. Christopher var hins vegar tekinn af lifi á mánudagskvöld. Sameinuðu þjóðirnar banna dauðadóma yfir unglingum sem voru undir 18 ára þegar þeir frömdu brot sitt. Einu aðildarlönd Sameinuðu þjóðanna, sem ekki hafa undirritað samþykktina, eru Bandaríkin og Sómalía. Nú bíða tveir aðrir ungir menn í Bandaríkjunum eftir aftöku vegna glæpa sem þeir frömdu 17 ára. Hillary enn á eftir Giuliani Rudolph Giuliani, borgarstjóri i New York, er enn með forskot á Hillary Clinton, forsetafrú Banda- rikjanna, í baráttu þeirra um sæti í öldungadeildinni fyrir New York. Þetta er niðurstaða fylgiskönnunar sem gerð var nokkrum dögum eftir að Hillary flutti í nýtt hús forseta- hjónanna í New York. Samkvæmt skoðanakönnuninni nýtur Giuliani fylgis 49 prósenta kjósenda en Hillary 40 prósenta. 11 prósent eru enn óákveðin. Skoðanakönnunin sýnir jafn- framt að 52 prósent New York-búa eru hrifln af því að forsetafrúin skuli hafa látið skrá sig í borg þeirra. 80 prósent telja að hún hafi einungs gert það af pólitískum Hillary Clinton. Símamynd Reuter ástæðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.