Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Síða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2000
Spurningin
Notaröu sokkabuxur
eöa gammosíur
í vetrarkuldanum?
Sigrún Hafþórsdóttir nemi: Nei,
ekki nema ég fari upp á fjöll sem ég
geri aldrei.
Árný Bergsdóttir þjónustufull-
trúi: Ég nota hvorugt nema ég fari
á skíði.
Gylfi Jónsson nemi: Nota það bara
ef ég fer á bretti.
Rannveig Guðmundsdóttir bar-
þjónn: Hvorugt. Ég læt mér nægja
að vera í hlýjum flíkum.
Eygló Rut Sveinsdóttir, starfs-
stúlka á Stjörnutorgi: Frekar
gammosíur en sjaldan þó.
Lesendur
Óheppilegar opin-
berar auglýsingar
- Umferðarráö rassskelli gatnamálastjóra
„Nú þegar eru fjúkandi jólatré um alla borg og upplýst var hjá lögreglunni
aö umferðaróhöpp hefðu þegar orðið vegna þessa,“ segir m.a. í bréfinu.
Kristinn Snæland skrifar:
Full ástæða er til að vekja athygli
fólks á stórhættulegum áróðri og
auglýsingum sem
gatnamálastj órinn
í Reykjavík ber
ábyrgð á. Furðu-
legt má telja að
embættið skuli
ekki hafa verið
lögsótt.
í fyrra lagi vek
ég athygli á að
gatnamálastj órinn
hefur uppi skipu-
lagðan áróður fyrir því að borgar-
búar aki almennt á ónegldum snjó-
dekkjum að vetrarlagi. Um leið og
embættið gerir þetta ætti það og þó
kannski heldur Umferðarráð að
taka fram og leggja áherslu á að í
hálku er bifreið talin vanbúin sem
ekki er með alla hjólbarða neglda
eða með keðjur.
Umferðarráð ætti að taka í
hnakkadrambið á gatnamálastjóra
og benda á að keðjulaus eða nagla-
laus ökumaður getur skert rétt til
bóta lendi hann í óhappi. Þá er bara
eftir að vita hvort gatnamálastjóri
er reiðubúinn að bæta það tjón sem
hlotist hefur af áróðri hans.
Gatnamálastjóri hvetur borgar-
búa meö auglýsingum að láta jóla-
tré sín út fyrir lóðamörk. Þegar
þetta er ritað, seint á sunnudegi,
spáir Veðurstofan hvassviðri um
götur borgarinnar, hann á að rjúka
upp í 23 metra á sekúndu, jafnvel
meira. Nú þegar eru fjúkandi jóla-
tré um alla borg og upplýst var hjá
lögreglunni að umferðaróhöpp
hefðu þegar orðið vegna þessa.
Hugsanlega mætti lögsækja eig-
anda trés sem með foki veldur
skemmdum á bíl eða öðrum eign-
um. Það byggðist þá á því að sann-
anlegt væri hver eigandinn væri.
Að öðrum kosti gæti tjónþoli þurft
að sækja gatnamálastjóra til saka
um að bæta tiltekið eignartjón. Tjón
bila sem aka saman vegna þess að
ökumaður er að forða bíl sínum frá
fjúkandi jólatré getur verið mikið.
Sá sem hvetur til þess að borgar-
búar afhendi jólatré sín út fyrir lóða-
mörk, inni á umráðasvæði borgar-
innar, hlýtur að taka ábyrgðina á
vörslu trjánna og þar með ábyrgðina
á því sem upp á kann að koma á
ferðaiagi þeirra um götur borgarinn-
ar. - Með tilliti til allra trjánna og
naglalausu og keðjulausu bílanna
ætti Umferðarráð að rassskella
gatnamálastjóra Reykjavíkurborgar.
Skemmtilegt Gullna hlið
í Þjóðleikhúsinu
Guðbjörg skrifar:
Ég get ekki orða bundist eftir að
hafa lesið allhranalegt lesendabréf í
blaðinu í dag (3. janúar) þar sem
maður nokkur hneykslast á því að
verið sé að sýna Gullna hliðið í Þjóð-
leikhúsinu - og það í „nútímaupp-
færslu"! Samkvæmt bréfinu virðist
hann ekki hafa séð sýninguna.
Ég fór á 3. sýningu á Gullna hlið-
inu milli jóla og nýárs og hafði
ómælt gaman af. Ég er komin á sjö-
tugsaldur og á mér minningar um
að minnsta kosti tvær eldri upp-
færslur á verkinu. Þessi nýja sýn-
ing er dálítið öðruvísi en þær fyrri
en ótrúlega falleg og heillandi og
þau Edda Heiðrún og Pálmi Gests-
son eru ákaflega góð í hlutverkum
sinum, kerlingar og Jóns bónda.
Ég vil þakka Þjóðleikhúsinu fyrir
að hafa sýnt okkur að það er hægt
að gera þetta gamla verk á svona lit-
ríkan og skemmtilegan hátt enn
þann dag í dag og kynna það um
leiö nýjum kynslóðum. Og til
mannsins sem skrifaði bréflð ofan-
nefnda og vildi fá að eiga í friði
minningar sínar um Gullna hliðið,
frá því hann var 10 og 15 ára, vil ég
segja þetta: Á að meina ungu kyn-
slóðinni að eignast sínar eigin
minningar um þetta ágæta leikrit?
Nei, ég hvet alla, unga sem aldna,
til að fara í Þjóðleikhúsið og njóta
góðrar leiksýningar.
Tvísköttun lífeyrisbóta
Skarphéðinn Einarsson skrifar:
Að mínu mati hefur núverandi
heilbrigðisráðherra skipað sér á
bekk með verstu
ráðherrum frá lýð-
veldisstofnun árið
1944. Ráðherrann
stóð fyrir því að
tvískattleggja bæt-
ur úr lífeyrissjóð-
um. Þarna er um
að ræða fjármuni
sem sjóðfélagar
hafa greitt skatt
af. Þegar fólk þarf
svo að njóta bóta er aftur lagður
skattur á þessa peninga. Þetta líkist
ráni um miðjan dag.
í hennar tíð hefur hagur og kjör
þeirra sem nota lyf og aðra þjónustu
á heilbrigðissviðinu versnað til
muna svo þessi hópur fólks býr við
þjónusta
allan sólarhringinn
pO
Lesendur geta sent mynd af
sér með bréfum sínum sem
birt verða á lesendasíðu
Skarphéðinn
Einarsson.
Bréfritari telur öryrkja og el I i I íf ey risþega
vera verulega afskipta þegar kemur að
eftirlaunum og heilbrigðisþjónustu.
verst kjör miðað við Evrópulöndin,
svo dæmi sé tekið.
í Bretlandi er læknisþjónusta
ókeypis - öll þjónusta sérfræðinga,
þar með talin röntgenmyndataka.
Ellilifeyrisþegar, öryrkjar og at-
vinnulausir fá frí lyf. Hér á landi er
hins vegar illa búið að öryrkjum
og öldruðum, þeim sem vörðuðu
veginn og færðu þessari kynslóð
það samfélag sem hér er nú.
Þetta fólk fær smánareftirlaun;
allir nema þingmenn, ráðherrar
og aðrir hópar sem skammta sér
sín laun sjálfir þótt látið sé líta
svo út sem þeir fái skammtað af
Kjaradómi eða öðrum nefndum
sem sérstaklega eru búnar til í
þeim tilgangi.
Þá er ekki úr vegi að minnast á
þann ósóma sem hér tíðkast að
uppgjafaráðherrar fái sendi-
herrastöður og bankastjórastöð-
ur, burtséð frá því hvort þeir
hafa næga menntun til að gegna
svo veigamiklum stöðum eður
ei. í þessar stöður á að sjálfsögðu
að ráða menntaða menn í hag-
fræði eða efnahagsmálum, burt-
séð frá stjórnmálaskoðunum. Og
auðvitað hefur góðærið á íslandi
skilað sér til þeirra hópa sem ég
nefndi hér að ofan.
Göbbels, áróðursmeistari Hitlers,
hafði aö viðkvæði: „Eina leiðin til
að fá þjóðina til að trúa er að Ijúga
nógu stórt - enginn trúir ef lítið er
logið.“ - Og að ellilífeyrisþegum og
öryrkjum á Islandi hefur verið logið
stórlega.
DV
Kosningafé
frá Í.E.
Óskar Sigurðsson skrifar:
Skemmtilegasta frétt sem hér
hefur lengi sést og heyrst var í sl.
viku þegar upp komst að allir
stjómmálaflokkamir, nema Sjálf-
stæðisflokkurinn, hefðu ýmist
óskað eftir fjármunum frá ís-
lenskri erfðagreiningu eða
myndu fá það. En þessi frétt kom
ekki frá Ríkisútvarpinu, heldur á
Stöð 2. Er ekki tímabært að ríkis-
fjölmiðlarnir taki nú á þessu máli
í alvöru en ekki af sýndar-
mennsku og boði formenn allra
vinstri flokkanna og Framsóknar-
flokks til þátttöku í umræðuþætti
þar sem þeir upplýsi málið. Ekki
hefur svo lítið verið hamrað á
Sjáifstæðisflokknum að hann upp-
lýsi hvaðan honum berst fé í
kosningabaráttu sína. En það eru
þá vinstri flokkarnir sem eru
stórtækastir? Eða hvað?
Ráða Kín-
verjar hér?
Guðjón Jónsson hringdi:
Það kemur mörgum íslending-
um spánskt fyrir sjónir að lesa
frétt-þess efnis að þótt íslenskur
þingmaður fari í kurteisisheim-
sókn til Taívans þurfi hann að til-
kynna það í kínverska sendiráð-
inu hér. Var einhver þörf á því,
eða emm við íslendingar að kom-
ast undir kínversk áhrif í utan-
ríkismálum? Ég veit ekki til þess
að öðrum erlendum sendiráðum
hér á landi þurfl að tilkynna fari
einhver stjórnmálamaður í heim-
sókn til annarra ríkja yfirleitt. Ég
vil að nú farifram rannsókn á því
hve langt við íslendingar þurfum
að ganga í tilkynningarskyldu
okkar gagnvart Kínyerjum.
Kosningaloforð
Ólafs Ragnars
Ólafur Stefánsson skrifar:
Ríkissjónvarpið birti sem
fyrstu frétt í síðustu viku að Ólaf-
ur Ragnar Grímsson ætlaði
kannski! aö bjóða sig fram til
embættis öðru sinni. Varla telst
þetta frétt því eitt af kosningalof-
orðum Ólafs var það að vera 2-3
kjörtímabil í embætti áður en
hann fengi hin ríkulegu eftirlaun
(skattlaus) sem embættinu fylgja.
Það hefði því verið frétt ef hann
ætlaði ekki að bjóða sig fram, í
trássi við gefin loforð. Sjónvarpið
hefur tekið að sér að birta við og
við fréttir um áform Ólafs Ragn-
ars til að halda honum í umræð-
unni. Allt ber þetta merki hönn-
unar atburðarásar, nema að þessi
atburðarás gengur upp, og þökk
sé fréttastofunni, en útreiðartúr-
inn misheppnaðist. Vilji ríkis-
rekna fréttastofan skipta sér af
framboðum til forsetaembættisins
ætti hún að krefja Ólaf Ragnar
svara um uppgjörið vegna síðustu
kosningabaráttu. F>TÍr fjórum
árum eltu fréttamenn frambjóð-
endur og kröfðu þá svara um fjár-
hagsuppgjör. Allir skiluðu upp-
gjöri til fjömiðla nema Ólafur. Af
hverju krefur fréttastofan Ólaf
ekki um uppgjör eins og alla
hina? Gilda önnur lögmál um
frambjóðandann Ólaf?
Auðvitað
erlend skip
Heiðar skrifar:
Auðvitað er það rétt hjá forsæt-
isráðherra, þrátt fyrir upphlaup
andstæðinga hans í stjórnmálum,
þ. á m. formanna stjórnarand-
stöðuflokkanna, að erlend skip
gætu vel átt þess kost að veiða
hér í landhelginni ef til þess
fengjust íslenskir aðilar sem lepp-
ar fyrir slík skip. Það þýðir ekk-
ert að hrópa upp einhver vandlæt-
ingarorð og segja sem svo að hér
finnist enginn sem myndi leppa
svona lagað. Hvað gera ekki ís-
lendingar þegar peningar eru
annars vegar? Ég undanskil eng-
an landsmann í þeim efnum. Og
hananú.