Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2000 15 Rétt og rangt í markaðshyggjunni Þegar talað er um siðferðilegar kröfur setja flestir upp skeifu: æ, á nú að fara að pré- dika yfír mér? Má mað- ur ekki vera í friði og gera það sem manni sýnist? Að vísu eru flestir ósparir á dóma um ranglæti og skepnu- skap sem aðrir gera sig seka um - en þeir vilja sem mest sleppa við að verða sjálfir spurðir um rétt og rangt. Og þó getur ekkert mannlegt félag staðist án siðferðilegra mæli- kvarða sem reynt er að gera að sameign manna með þeirra samþykki, það vita menn líka. Er græögi góð? Eitt af slysum sögunnar er það að syndin var í skelfilega ríkum mæli fest við hegðun manna í kyn- lífl, og ber kirkjan, einkum sú kaþ- ólska, mikla ábyrgð á því. Meðan að syndaselir ágirndar og græðgi sættu furðumiklu umburðarlyndi. Þetta kemur m.a. fram í því, að í því kirkjurækna stórveldi, Banda- ríkjunum, er sjálf- sagt að segja við forsetann: þú skalt ekki hór drýgja. En sá sem segði í sama landi við forstjóra stórfyrirtækis: þú skalt ekki stela, hann yrði talinn eitthvað skrýtinn og ef hann ráðlegði þeim sama að gefa verðbréfagróðann fátækum, þá yrði hann talinn Klepps- matur. Einn stærsti sið- ferðisvandi samtím- ans er einmitt þessi: markaðs- hyggjan heldur því hiklaust fram að græðgi sé góð. Hér er um að ræða verulega breytingu frá því sem áður var talið gott og gilt með- al þeirra sem fóru með völd yfir peningum og fyrirtækjum. Við- horf þeirra voru stundum lands- föðurleg: þeir tóku ábyrgð á sínu fólki, virtu það í nokkru að vinn- andi menn höfðu sýnt þeim holl- ustu og unnið lengi hjá þeim og gerðu kannski fleira fyrir þá en lög eða samningar sögðu til um. Þessir menn þurftu líka að mæta kröfum vinstrimanna og verka- lýðshreyfingar sem börðust fyrir meiri jöfnuði og voru þá reiðubún- ir til að viðurkenna siðferðilegar skyldur sínar við samfélagið - t.d. að greiða hikstalaust í sameigin- lega sjóði og segja ekki fólki upp störfum þótt ýtrustu arðsemiskröf- ur heimtuðu það. Það eru ekki nema tveir áratug- ir eða svo síðan seðlabankastjóri Þýskalands orðaði þessa afstöðu sem svo: „Maðurinn lifir ekki til þess eins að anda og eins rekur hann ekki fyrirtæki til þess eins að græða“. Og aðrir höfðingjar vestur-þýska efnahagsundursins tóku undir: þeir ætluðu að „þjóna“ samfélaginu en ekki bara græða á því - enda vildu þeir kalla sína viðleitni „félagslegan markaðsbú- skap“. Raddir sem þagna Davíð Oddsson minnti á þessi viðhorf í áramótaávarpi: frelsi at- hafnamanna á að verða öllum til góðs, annars glat- ar það réttlætingu sinni. En í við- skiptaheimi heyr- ast slíkar raddir æ sjaldnar. Þar hefur annað siðferði tek- ið við sem segir is- kalt: fyrirtæki hafa engar skyldur nema við hluthafa. Milton Friedman markaðspostuli segir: ég vona að þeir forstjórar sem fjasa um þjónustu við samfélagið meini ekkert með því - fyrirtæki eru ekki félagsmálaskrifstofur. Haldin eru námskeið undir fyrir- sögninni: niður með tilfinninga- stjómun, sem þýðir: segjum öllum upp sem hægt er að losna við. Fólk er barasta kostnaðarauki. Og það er gert - eins þótt fyrirtæki séu ágætlega stödd. Krafan um hærri arð hefur algjöran forgang. Og þeir sem í því standa að gera fyr- irtæki sín „grennri og grimmari" skjóta sér á bak við það að Hnatt- væðingin heimti þetta og við því verði ekki gert. Hér á íslandi er ekki það at- vinnuleysi sem er orðið sjálfsagð- ur hlutur í flestum hlutum heims. Við erum enn þá þeir sveitamenn að taka enn nokkurt mið af „til- finningastjórnun". En það stendur allt til breytinga því þeir markaðs- fúsu verða æ öflugri og harð- skeyttari. Og vel á minnst: nú um áramótin birti Viðskiptablaðið hjartnæma grein um sálrænar raunir þeirra yfirmanna í fyrir- tækjum sem standa í að segja upp fólki og boðar námskeiðahald til að „þjálfa stjórnendur í þessu erf- iða verkefni". Árni Bergmann „Markaðshyggjan heldur því hiklaust fram að græðgi sé góð.“ Kjallarinn Árni Bergmann rithöfundur „Einn stærsti siðferðisvandi sam- tímans er einmitt þessi: mark- aðshyggjan heldur því hiklaust fram að græðgi sé góð. Hér er um að ræða verulega breytingu frá því sem áður var talið gott oggilt meðal þeirra sem fóru með völd yfir peningum og fyrirtækjum í minningu Finns Ingólfssonar Pólitísku lífshlaupi Finns Ing- ólfssonar er lokið. Að undirlagi konu sinnar batt hann sjálfur ótímabæran enda á pólitíska hér- vist sína. Á gamlársdag kl. 20 flutti forsætisráðherra minningar- og kveðjuorð og vottaði flokki hans samúð. Finnur Ingólfsson var í hópi þeirra þingmanna, sem tengja hugsun sína við nútímann og framtíðina, sem nota heilann, í stað þess að ganga á mæmmni. Hann hengdi aldrei hring í nasim- ar til að bjóða loddurum að teyma sig. Merki jafnaðarmanna Eftir að Alþýðuflokkurinn hvarf úr ríkisstjórn vorið 1995 höfðu for- ystumenn hans áhyggjur af afdrif- um nokkurra mála sem flokkur- inn taldi nauðsyn að ná fram svo þjóðin hefði efni á velferðarkerfl jafnaðarmanna. Meðal þessara ókláruðu mála voru aukið frelsi í viðskiptum og aukið frelsi um starfsemi fjármálafyrirtækja og síðast en ekki síst barátta jafnað- armanna fyrir virkjun fallvatna og stóriðju. Á þessum árum kölluðum við jafnaðarmenn álmálminn „hvíta gullið" og fram- bjóðendur okkar í Reykjaneskjör- dæmi fundu upp þá snjöllu samlík- ingu að eitt tonn af áli jafhgilti einu tonni af þorski upp úr sjó. Og með virkjun á Eyjabökkum og línutumum yflr öræfln og álveri á Keilisnesi ætlaði Alþýðuflokkur- inn - takk fyrir, að færa þjóðinni verðmæti er jafngiltu hundrað og tuttugu þúsund tonnum af þorski upp úr sjó. Þegar Alþýðuflokkurinn fór svo úr ríkisstjórn 1995 hafði ekki sést fyrir enda neinna þessara mála. Að vísu höfðu verið gerðir verksamningar og fram- kvæmdir hafist við virkjun Eyjabakka en þeim var síð- an frestað vegna brottfalls orkukaupandans. Það létti því áhyggjum af mörgum þegar í ljós kom að i þessum mikilvægu málum hóf Finnur Ingólfsson merki jafnaðarmanna á loft af fullri einurð og barðist fyrir viðskiptafrelsi, virkjunum og stóriðju. Hagur aimennings Finni lánaðist að ná fram hluta- félagavæðingu bankanna. Hann keyrði fram af atorku samninga um álver í Hvalfirði. Þá heyrði ég í fyrsta sinn nafngiftina náttúru- verndarfasisti um andstæðinga stóriðju, ég heyrði hana úr munni alþýðuflokksmanns sem safnaði undirskriftum undir plaggið „Ál- ver, já takk“. Ég veit að þegar Finnur hóf að vinna að því að láta þann langþráða draum okkar jafnaðarmanna rætast að bæta hag almennings með því að virkja auðlegð- ina i Jökulsá á Fljótsdal þar sem hún flæmist yfir eigin aur- framburð á Eyja- bökkum ætlaðist hann ekki til sérstaks þakk- lætis frá okkur jafnaðarmönn- um en viðsnún- ingur sumra okkar gegn eigin baráttumálum og eigin verksamningum urðu hon- um og fleirum nokkurt undrunar- efni. í framhaldi af pólitískri útfór Finns Ingólfssonar sl. gamlársdag vil ég nú þakka baráttu hans fyrir þessum veigamiklu málum okkar jafnaðarmanna. Ég vil svo að lokum votta póli- tískum aðstandendum Finns Ing- ólfssonar tilhlýðilega samúð mína. Birgir Dýrfjörð „Það létti því áhyggjum af mörg- um þegar í ijós kom, að i þessum mikilvægu málum hóf fínnur ing- ólfsson merki jafnaðarmanna á loft af fullri einurð og barðist fyr- ir viðskiptafrelsi, virkjunum og stóriðju. “ Kjallarinn Birgir Dýrfjörð jafnaöarmaöur Með og á móti Á Össur Skarphéðinsson að verða leiðtogi Samfylkingarinnar? Eins og DV greindi frá á dögunum hafa bæöi Sighvatur Björgvinsson og Margrét Frímannsdóttir stutt þá hug- mynd aö Össur Skarphéðinsson veröi leiötogi Samfylkingarinnar er flokkur- inn verður formlega stofnaöur. Mikill meirihluti þingflokks Samfylkingar- innar styður einnig Össur. Asta Ragnheiöur Jóhannesdóttir, þingmaöur Sam- fylkingarinnar. Hefur gott pólitískt nef „Össur Skarphéðinsson er nú- tímajafnaðarmaður sem hefur, eins og við öll, bæði kosti og galla. Hér er spurt um kost- ina. Ég hef þekkt hann lengi og veit að hann er mjög duglegur og vinnusamur að eðlisfari sem er nauðsynlegur eiginleiki fyrir þann sem val- inn er til for- ystu í stjórn- málum. Hann hefur einnig ákveðna forystuhæfileika og á auðvelt með að meta pólitíska stöðu og mál, þ.e. hefur pólitískt nef og víðtæka þekkingu á flest- um málaflokkum. Hann hefur munninn fyrir neðan nefið, getur verið hvassyrtur og líka fyndinn, sem er kostur. Hann lætur and- stæðinga sína ekki vaða yfir sig og er snjall ræðumaður. Víðtæk reynsla í stjómmálum og í fjöl- miðlum eins og Össur hefur er einnig mikilvæg fyrir þann sem tekur að sér forystuhlutverk. Skelegg framganga hans í um- hverfismálum, sérstaklega í Eyja- bakkamálinu í vetur, og viðtæk þekking hans á umhverfismálum er líka styrkur hans.“ Fortíðin til trafala „Við erum að stofna nýjan flokk og fara inn í nýja öld og því fmnst mér að við ættum að leita að nýju fólki til að leiða flokkinn í stað þess að leita til þeirra sem þeg- ar hafa verið nefndir. Við höfum nægan tíma enda langt í næstu kosn- ingar og því finnst mér að við ættum að skoða þessi mál gaumgæfilega og leita að fólki sem kemur inn með ferska strauma. Ég hef engan ákveðinn i huga en ég held að það sé skynsamlegt að leita meðal unga fólksins sem ekki hefur sömu fortíð að burðast með og eldri stjórnmálamennirnir. Það mætti t.d. leita meðal nýrra með- lima þingflokksins. Eins og ég áður sagði erum við að stofna nýjan flokk og því meg- um við ekki láta fortíðina flækjast fyrir okkur. Þrátt fyrir að Össur hafi gert margt gott á hann vissu- lega sína fortíð í stjórnmálum, eins og margir aðrir, sem gæti orðið honum til trafala." -GLM Guömundur Odds- son skólastjóri. Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaðið nema þær ber- ist í stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á Netinu. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni á stafrænu formi og í gagnabönk- um. Netfang ritstjórnar er: dvritst@ff.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.