Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2000
19
DV
Harrison vill
betri bíómyndir
Þau stórtíðindi hafa gerst vest-
anhafs að Hollywoodstjarnan
Harrison Ford er að leita sér að
umhoösmanni í glitborginni
góðu. Það hefur kappinn ekki
gert í fimmtán ár. Ástæðan er
einfold: Leikarinn vill fá að leika
í betri myndum en hann hefur
gert að undanfömu, að minnsta
kosti myndum sem fá meiri að-
sókn. Siöustu myndir Harrisons
hafa ekki átt allt of góðu gengi
að fagna. Engu að síður fékk
leikarinn verðlaun á dögunum
fyrir að vera uppáhaldskvik-
myndaleikari almennings.
Spáð í Cate í
Hannibaismynd
Vangaveltur eru um það vest-
anhafs að leitað verði til
áströlsku leikkonunnar Cate
Blanchett um að taka hlutverkið
sem Jodie Foster hafnaði í fram-
haldsmyndinni um mannætuna
Hannibal Lecter. Heimildar-
menn innan kvikmyndaiðnaðar-
ins segja að myndatökur hefjist
sennilega í aprá. Um tíma leit þó
út fyrir að ekkert yrði af mynd-
inni. Áður hefur verið greint ffá
því að vinkona okkar Gillian
Anderson úr Ráðgátmn komi til
greina sem eftirmaður Jodie.
Kærasti Juliu
er himneskur
Julia Roberts er ekkert feimin
við að viðurkenna hrifningu
sína á kærastanum Benjamin
Bratt. Hætt er þó við að kven-
réttindakonur verði ekki yfir sig
hrifnar af orðum hennar. „Ég er
alveg á því að konur eigi aö
stjórna heiminum en allar vilja
þær karl,“ segir Julia. „Hann fer
hjá sér við þetta tal í mér en það
er erfitt að tala ekki um hann.
Hann er himneskur." Og af ást-
inni eirini saman er Julia hætt
að nota ilmvatn og raka sig
undir höndunum.
Sviðsljós
Madonna seldi húsið sitt í London af öryggisástæðum:
Græddi um
70 milljónir
Söngkonan Madonna hefur selt
húsið í London sem hún keypti fyrir
nokkrum mánuðum af öryggis-
ástæðum. Breska blaðið Times
greinir frá því að ráðgjafar
Madonnu hafi ráðlagt henni að
selja húsið, sem er í Chelsea-
hverfmu, af öryggisástæðum. Ekki
sé hægt fyrir fræga manneskju að
búa í húsi sem sést frá götunni.
Fræga og ríka fólkið í London er
felmtri slegið eftir árásina á George
Harrison um jólin og morðið á
sjónvarpskonunni Jill Dander í
apríl síðastliðnum.
Blaðið Evening Standard segir að
Madonna hafi þegar selt húsiö, sem
hún bjó aldrei í, með sjötíu milljóna
króna hagnaði.
Húsið hafði Madonna keypt af
Svía, einum af kóngunum í
glerríkinu í Smálöndum i Sviþjóð.
Sagt er að hún hafi sjálf leitað
glerkónginn uppi og boðið honum
Madonna flutti aldrei inn í húsið sitt
í London. Símamynd Reuter
upphæð sem hann gat ekki hafnað.
Sænskt blað hefur það eftir
heimildarmanni sínum að húsið
hafi kostað um 550 milljónir
íslenskra króna. Glerkóngurinn
hafi elskað húsið sitt og flutt út
fullur trega. Hann geri sér nú grein
fyrir að boð Madonnu hafl ekki
verið jafn frábært og hann hélt í
fyrstu.
Breskir fjölmiðlar fullyrða að
söngstjarnan vilji nú flytja í Notting
Hill hverflð eftir aö hafa séð
kvikmynd frá hverfinu með sama
nafni.
Madonna á að hafa boðið 120
miiljónir í íbúð á Portobello Road.
Annar kaupandi hafl hins vegar
orðið á undan. Madonna á sem sé
engan bústað í London sem stendur.
Hún hefur þó húsaskjól því hún á
bústaði í New York, Los Angeles og
Miami.
Kate Moss
er kominmeð
nýjan kærasta
Ofurfyrirsætan Kate Moss á
nýjan kærasta ef marka má frá-
sagnir erlendra blaða. Þau
greina frá því að Kate og Jesse
Wood, sonur gítaristans Rons
Woods í Rolling Stones, hafi ver-
ið par í tvo mánuði. Nýlega voru
þau saman í fríi I Taílandi. Kate
Moss var með Hollywoodstjöm-
unni Johnny Depp í mörg ár.
Síðastliðið sumar var fullyrt að
hún væri með rokkaranum
Lenny Kravitz og nokkrum vik-
um seinna var greint frá því að
hún væri með bassagítaristan-
um Langdon í Spacehog.
Það sem skiptir máii á þessari mynd er ekki fyrirsætan eöa fötin, heldur leö-
urtuöran. Allt er þetta frá tískuhúsinu Prada og var sýnt í Mílanó.
Clooney í föt Sinatra
Sápusjarmörinn George Clooney
úr Bráðavaktinni hefur tekið að sér
hlutverk sem Frank „Bláskjár"
Sinata lék í den í kvikmyndinni
Ocean’s 11. Leikstjóri þeirrar mynd-
ar verður Steven Soderbergh, sá
hinn sami og stjómaði Clooney í
myndinni Out of Sight.
Sinatramyndin segir frá Danny
nokkrum Ocean og tíu félögum
hans sem gera sér lítið fyrir og
ræna hvert einasta spilavíti í Las
Vegas á einu og sama kvöldinu.
Ekki hefur enn verið ráðið i hlut-
verk hinna bófanna tíu en í gömlu
myndinni léku þar menn á borð við
Sammy Davis, Dean Martin og Pet-
er Lawford, eða Rottugengið.
Blaðberar óskast
í eftirtalin hverfi:
Aragata, Grettisgata, Hverfisgata,
Eggertsgata, Frakkastígur, Vatnsstígur,
Fossagata, Klapparstígur, Lindargata.
%&> j Upplýsingar veitir afgreiðsla
DV í síma 550 5777
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Verkfæral
10-4
i
afsláttur af verkfærum
Elu veltisög
• Bútsög
• Ristisög
• Auðveld að flytja
69.995 kr.