Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Side 26
26 MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2000 Afmæli Borgar Símonarson Borgar Símonarson, bóndi í Goð- dölum í Skagafirði, er sjötugur í dag. Starsferill Borgar fæddist í Teigakoti i Lýt- ingsstaðahreppi og ólst þar upp til þriggja ára aldurs. Hann flutti þá með foreldrum sínum í Kelduland í Akrahreppi og síðan að Goðdölum er hann var fimm ára og hefur átt þar heima síðan. Borgar var í farskóla í Skagafirð- inum, stundaði nám í einn vetur hjá séra Halldóri Kojbeinssyni á Mæli- felli og annan vetur hjá séra Gunn- ari Gíslasyni, alþm. í Glaumbæ. Borgar ólst upp við öll almenn sveitastörf, vann á búi foreldra sinna á unglingsárunum og sem ungur maður og tók síðan við búi í Goðdölum ásamt bræðrum sínum, Trausta og Grétari. Trausti hóf síð- an búskap annars staðar en þeir Borgar og Grétar hafa lengst af stundað saman búskap í Goðdölum og hefur nú sonur Borgars tekið við búi Grétars. Borgar og Grétar voru lengst af með blandaðan búskap en hafa ein- göngu verið með fjárbúskap í Goð- dölum frá 1980. Borgar starfaði í ungmennafélagi Lýtingsstaðahrepps og sat í stjórn þess um skeið, sat i hreppsnefnd Lýtingsstaðahrepps i u.þ.b. áratug, sat í stjórn og var lengi formaður Búnaðarfélags Lýtings- staðahrepps, var fyrsti formaður Sauðfjárbænda- félags Skagafjarðar, sat f sóknarnefnd um árabil og hefur gegnt fleiri trúnað- arstörfum fyrir sina sveit. Fjölskylda brautaskóla Norðurlands á Sauðárkróki. Bræður Borgars eru Trausti, f. 23.10. 1920, bóndi í Litlu-Hlíð í Skagafirði; Grétar, f. 20.4. 1923, fyrrv. bóndi í Goð- dölum. Foreldrar Borgars voru Símon Jóhannsson, f. 26.5.1892, bóndi í Goðdöl- um, og k.h., Monika Sveinsdóttir húsfreyja. Eiginkona Borgars er Rósa Sigurbjörg Guðmundsdóttir, f. 26.1. 1940, húsfreyja. Hún er dóttir Guðmundar Sveinbjörnssonar, bónda í Sölvanesi, og k.h., Sólborg- ar Hjálmarsdóttur ljósmóður. Börn Borgars og Rósu eru Sigþór Smári, f. 22.10. 1959, bóndi i Goðdöl- um, kvæntur Sigríði Sveinsdóttur frá Varmalæk og eiga þau fjögur böm; Monika Sóley, f. 15.12. 1960, sundlaugarvörður í Varmahlíð, bú- sett í Varmahlíð og á hún tvær dæt- ur; Guðmundur Símon, f. 27.7. 1965, húsasmiður í Mosfellsbæ, kvæntur Ragnheiði Þórólfsdóttur frá Hjalta- stöðum í Akrahreppi og eiga þau þrjú börn; Borgþór Bragi, f. 22.10. 1970, bóndi á Hofsvöllum en kona hans er Guðrún Björk Baldursdóttir og eiga þau tvær dætur; Sólborg Sig- urrós, f. 30.7. 1975, nemi við Fjöl- Ætt Símon var sonur Jóhanns, vinnu- manns að Skíðastöðum í Laxárdal, Eyjólfssonar, b. á Þverfelli og í Kálfárdal, bróður Sigurlaugar, langömmu Eyjólfs Konráðs Jóns- sonar alþm. Eyjólfur var sonur Meingrundar-Eyjólfs, bróður Mar- grétar, langömmu Jónasar Guð- laugssonar skálds. Eyjólfur var son- ur Jónasar, b. á Gili í Svartárdal, Jónssonar, bróður Jóns á Finna- stöðum, afa Sigurðar Bjarnasonar frá Vigur, alþm. og sendiherra. Móðir Meingrundar-Eyjólfs var Ingibjörg yngri Jónsdóttir, ættfoður Skeggstaðaættar, Jónssonar. Móðir Jóhanns var Sigþrúður Jónsdóttir, b. í Kolgröf og Kálfárdal fremri, Ólafssonar, b. í Valadal, Andrésson- ar. Móðir Sigþrúðar var Oddný Árnadóttir. Móðir Símonar var Ingibjörg Guðjónsdóttir, b. á Ulugastöðum á Laxárdal ytri og Áshildarholti, Jónssonar, b. í Bitrugerði i Kræk- lingahlíð, Ólafssonar. Móðir Ingi- bjargar var Hallfríður Þorkelsdótt- ir, vinnukona í Flugumýrarsókn. Monika var systir Snjólaugar, móður Sveins í Héðni og Ásmundar Guðmundssonar í Stálsmiðjunni. Önnur systir Moniku var Þórey, móðir Sveins Tómassonar sem var slökkviliðsstjóri á Akureyri. Monika var dóttir Sveins, b. i Bjarnastaðahlíð, Guðmundssonar, b. í Fremri-Svartárdal, Guðmunds- sonar, b. á Vindheimum, Tómasson- ar, bróður Tómasar, afa Gríms Thomsen. Móðir Sveins var Helga Steinsdóttir, b. á Þorljótsstöðum, Ormssonar og Ástríðar Stefánsdótt- ur, b. á Þorsteinsstöðum, Hjálms- sonar, bróður Sigriðar, móður Jóns Steingrímssonar eldprests. Móðir Moniku var Þorbjörg Ólafsdóttir, b. í Litluhlíð, Guðmundssonar, b. á Barkarstöðum, Eyjólfssonar, b. á Ei- ríksstöðum, bróður Ingibjargar yngri en þau voru börn Jóns, ætt- foður Skeggsstaðaættar, Jónssonar. Borgar er að heiman á afmælisdaginn. Fréttir Dregiö var í Dreamcast-leiknum 16. desember sl. sem er á vegum Joy Stick í Kringlunni og Japis. Hin heppna, Anna Björg Þorvaldsdóttir, hlaut 28’ Panasonic sjónvarpstæki frá Japis. Með henni á myndinni eru Franz Gunnarsson, verslunarstjóri í Joy Stick, og Hendrikka Waage, markaösstjóri Japis. Slökkvilið Akureyrar: Lítils háttar fleiri útköll hjá slökkviliðinu Hafnarfjörður: Yfir 60 fengu „gula spjaldið" Lögreglan í Hafnarfirði gerði víðreist um bæinn í fyrrinótt og límdi aðvörunarmiða á sjötta tug bifreiða sem ekki hafa verið færðar til skoðunar á réttum tíma. Að sögn lögreglu hafa sumir þeir sem nú fengu „gula spjald- ið“ trassað frá því um mitt síð- asta ár að mæta með bifreiðir sínar til skoðunar, en aðrir skemur. Nú fengu allir þessir bifreiðaeigendur miða á rúðuna og vikufrest til að mæta í skoð- un, auk 8 þúsund króna sektar. Númerin fjúka hins vegar af að viku liðinni hafi bifreiðimar ekki verið skoðaðar þá. -gk Vestmannaeyjar: Þyrlan sótti tvo I neyðarflugi Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti tvo sjúklinga til Vest- mannaeyja í fyrradag. Annar hinna sjúku hafði meiðst illa á auga. Vegna mikils óveðurs var engin önnur leið til að koma sjúklingunum tveimur upp á land en að senda þyrluna. Þrátt fyrir mikla veðurhæð gekk þetta neyðarflug vel og lenti þyrlan við Sjúkrahús Reykjavíkur um klukkustundu eftir að lagt var upp í ferðina frá Reykjavík. -gk Ekið á gangandi vegfarenda Ekið var á gangandi vegfar- anda í Bankastræti á mánudags- morgun. Vegfarandinn slasaðist á hálsi, mjóbaki og hægri ökkla. Sjúkrabílar voru kallaðir til og var maðurinn fluttur á slysa- deild til aðhlynningar. Virðist full þörf á að hvetja fólk til að- gæslu í skammdeginu. -hdm DV, Akureyri: Slökkviliðið á Akureyri var kall- að út 113 sinnum á síðasta ári og fjölgaði útköllum um 17 frá árinu áður. Stærstu brunatjón á árinu voru þegar kviknaði í Hamri, félags- heimili Iþróttafélagsins Þórs, í maí og í íbúð við Tjamarlund skömmu fyrir jól. Af útköllunum 113 vora 74 án elds, þ.e. meðal annars vegna gruns um eld, vatnsdælingar og aðstoðar eða björgunar. I þeim 38 tilfellum þar sem um eld var að ræða voru flest tilfellin í íbúðum eða 16, í átta tilfellum var um eld að ræða i rusli, sinu eða mosa og 7 sinnum i öku- tækjum eða vinnuvélum. Sjúkraútköll á árinu vom 1193 og fækkaði um 44 frá árinu áður. Af þessum útköllum voru 279 bráðatil- felli. Sjúkraflutningsmenn fóru í 106 sjúkraflug með flugvélum Flugfé- lags islands. Sex þessara sjúkra- fluga voru til Grænlands og voru fimm fluttir til íslands en einn til Danmerkur. Slökkviliðið fékk nýja fullkomna slökkvibifreið á árinu sem bætir mjög vinnuaðstöðu slökkviliðs- manna og gerir það m.a. að verkum að fyrstu aðgerðir á eldsstað geta verið samhæföari og markvissari en áður. Þá fékkst loks á árinu heimild fyrir því að fjölga mönnum á vakt um 1 þannig að nú eru ávallt 4 menn á vakt allan sólarhringinn sem styrkir slökkviliðið verulega til átaka. -gk Til hamingju með afmælið 12. janúar 90 ára Kristján Sigurðsson, Háholti 18, Akranesi. 85 ára Guðjón Ingimundarson, Bárustíg 6, Sauðárkróki. Ingibjörg Sveinbjömsdóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. Kristín Kristjánsdóttir, Bláskógum 12, Reykjavík. 75 ára Jarþrúður Jónsdóttir, Varmalæk, Borgarfirði. 70 ára Ragna Stefanía Finnbogadóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. Þrúður Júlíusdóttir, Kirkjusandi 1, Reykjavík. 60 ára Bjami Mathiesen, Hjálmholti 13, Reykjavík. Daníel J. Kjartansson, Laufskógum 41, Hveragerði. Hanna Helgadóttir, Krókahrauni 12, Hafnarfirði. Katrín Hlif Felixdóttir, Heiðarholti 18b, Keflavík. 50 ára Ámi Guðjónsson, Vestri-Tungu, Rangárvallasýsiu. Herdís ívarsdóttir, Barrholti 17, Mosfellsbæ. Hlynur HaHdórsson, Miðhúsum, Múlasýslu. Hörður Júlíusson, Hlíðarhjalla 53, Kópavogi. Kristín Sigurbjörg Karlsdóttir, Laufási 1, Hellissandi. Sigurgeir Högnason, vélsmíðameistari og kafari, Álfhólsvegi 107, Kópavogi. Steinunn Thorsteinson, Stuðlaseli 17, Reykjavík. 40 ára Axel Reynisson, Baldursbrekku 12, Húsavík. Dóra Sveinbjörnsdóttir, Fellsbraut 13, Skagaströnd. Eva Jóhannsdóttir, Bollagötu 7, Reykjavík. Gunnar Már Eiríksson, Borgarholtsbraut 34, Kópavogi. Kjartan Már Kjartansson, Barðastöðum 17, Reykjavík. Kristín Runólfsdóttir, Fagurgerði 4a, Selfossi. Kristín Theódóra Óladóttir, Ásbúð 80, Garðabæ. -E]I.YFJA fy&S j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.