Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Qupperneq 29
I>"V MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2000
29
Svava Bernharðsdóttir er ein
þriggja tónlistarmanna sem
koma fram á tónleikum í Kaffi-
leikhúsinu í kvöld.
Neðri-
strengir
austurbæjar
Tónleikar verða í Kaffileikhús-
inu í kvöld kl. 20.30. Svava Bern-
harðsdóttir, víólu, Sigurður Hall-
dórsson, selló, og Gunnlaugur T.
Stefánsson, kontrabassa, eru
ílytjendur á tónleikunum. Þau
Svava, Sigurður og Gunnlaugur
hafa stundað nám út um allan
heim, meðal annars í London,
New York, Basel, Haag, Ant-
verpen og Brussel. Þau eiga það
sameiginlegt að starfa öll með
Bachsveitinni í Skálholti á sumr-
in og spila þá á barrokhljóðfæri
Sýningar
en nú spila þau í fyrsta sinn sam-
an þrjú á nútímahljóðfæri.
Svava starfar í Slóveníu með
Fílharmóníusveitinni og kennir
við tónlistarháskólann í Ljublj-
ana. Sigurður starfar í Reykjavík
og hefur sérhæft sig i barrok- og
kammertónlist. Hann leikur með
Caput og Camerarctica. Gunn-
laugur kennir við tónlistarskól-
ann á Akureyri og tónskóla Sig-
ursveins og leikur með Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands.
Á verkefnaskrá kvöldsins eru
meðal annars olnbogabörn
klassíkurinnar, gleymdur bar-
roksellisti og óperutónskáld: G.
Rossini, Dittersdorf, Barriére, T.
Hauta-aho og M. Haydn.
Lýs, flær og
maurar
Á morgun, kl. 12.30, verður hald-
inn fræðslufundur í Tilraunastöð
HÍ í meinafræði, Keldum, í bóka-
safninu í miðhúsi. Karl Skírnisson
dýrafræðingur, Keldum, flytur er-
indi um lýs, flær og maura á íslend-
ingum að fornu og nýju.
Sameindalíffræði
í dag, kl. 16, flytur dr. Sigurður
Ingvarsson líffræðingur fyrirlestur
um sameindalíffræði ristil- og
brjóstaæxla á vegum líffræðiskorar
á Grensásvegi 12.
ITC-deildin Melkorka
Fundur verður í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi í kvöld, kl. 20.
Fundurinn er öllum opinn.
Kyrrðarstund og
Biblíulestur
Á fimmtudögum, kl. 12, er kyrrð-
arstund í Hallgrímskirkju með org-
eltónlist, íhugun og léttum máls-
verði á eftir. Á miðvikudagskvöld-
um, kl. 20-21, er Biblíulestur í kirkj-
Samkomur
unni. Fyrstu fjóra miðvikudagana
frá 12. janúar til 2. febrúar mun sr.
Jón Dalbú sjá um fræðsluna. Efni
fyrstu Biblíulestranna verður um
bænina, það er lesinn verður texti
sem fjallar um bæn og reynt að gera
grein fyrir því hvað ritningin kenn-
ir um bæn og bænaiðju.
Bellatrix heldur sína fyrstu tón-
leika hér á landi á þessu ári í Iðnó í
kvöld og opnar húsið kl. 20.
Upphitunarhljómsveit verður
Fálkarnir. Bellatrix heldur síðan
aftur til Englands þar sem hún hitar
upp fyrir gena í London Forum á
fóstudagskvöld. Framundan er
ströng tónleikaferð hljómsveitar-
innar um Bretlandseyjar og þaðan
til Noregs og Danmerkur seinni
Skemmtanir
hluta febrúar og mars. Ráðgert er að
tónleikum Bellatrix í Kaupmanna-
höfn, sem verða 3. mars, verði út-
varpað beint í Ríkisútvarpi Dana.
Einnig mun hljómsveitin koma
fram í BBC í þætti sem heitir Even-
ing Sessions.
Ný smáskífa með Bellatrix er
væntanleg hér á landi í enda janúar,
en í Englandi kemur hún út 14. febr-
úar. Á henni er The Girl With the
Sparkling Eyes. BBC hefur þegar
hafið spilun á laginu og
munu blaðamenn frá
Times og öllum helstu tón-
listartímaritum fylgja
hljómsveitinni hingað til
lands og vera á tónleikun-
um í kvöld.
Bellatrix hefur stutta viðdvöl á íslandi aö þessu sinni og leikur aðeins á einum tónleikum.
Gaukur á
Stöng
í kvöld ætlar Leynifjelagið
að heija nýja öld með nýju
efni í bland við eldri perl-
ur. Það ætti enginn að láta
þessa hljómsveit fram hjá
sér fara enda er hún þekkt
fyrir frábæran flutning.
Tónleikarnir eru í beinni á
www.xnet.is. Annað kvöld
er það svo SSSól sem
skemmtir gestum á Gaukn-
um.
Bellatrix í Iönó
Kaldast í innsveitum
austanlands
Norðan 10-15 m/s verða í fyrstu,
en hæg vestlæg átt vestan til síðdeg-
is og norðvestan 8-13 austanlands.
Veðrið í dag
É1 verða norðaustanlands fram eftir
degi en annars yfirleitt léttskýjað.
Frost 0 til 14 stig, kaldast í innsveit-
um austanlands. Höfuðborgar-
svæðið: Norðan 8-13 m/s en fremur
hæg vestlæg eða breytileg átt síð-
degis. Léttskýjað. Frost 1 til 5 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 15.41
Sólarupprás á morgun: 11.20
Síðdegisflóð í Reykjavík: 13.50
Árdegisflóð á morgun: 01.28
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri snjókoma -2
Bergstaðir snjókoma -2
Bolungarvík skýjað -3
Egilsstaðir -11
Kirkjubœjarkl. léttskýjað -1
Keflavíkurflv. skýjaó -2
Raufarhöfn alskýjað -1
Reykjavík léttskýjað -1
Stórhöföi skafrenningur -1
Bergen skýjaö 5
Helsinki alskýjað 3
Kaupmhöfn þokumóða 3
Ósló alskýjað 4
Stokkhólmur súld 3
Þórshöfn léttskýjað 5
Þrándheimur skýjað 4
Algarve heiðskírt 9
Amsterdam þokumóóa 0
Barcelona heiðskírt 2
Berlín þokumóða -3
Chicago alskýjaó -2
Dublin súld 5
Halifax skúr 4
Frankfurt alskýjað 2
Hamborg hálfskýjað 0
Jan Mayen skafrenningur -3
London skýjað 8
Lúxemborg skýjað 0
Mallorca þokumóða 3
Montreal þoka 0
Narssarssuaq skýjað -16
New York skýjað 6
Orlando heiðskírt 13
París alskýjaó -1
Róm léttskýjaó 5
Vín hrímþoka -7
Washington heiðskírt 4
Winnipeg heiðskírt -27
Hálka og
hálkublettir
Talsverð hálka myndaðist á suðvesturhominu í
morgun og er víða hálka og hálkublettir auk þess
sem snjóþekja liggur yfir vegum. í morgun var ver-
Færð á vegum
ið að opna leiðir á Suðvesturlandi, Vesturlandi og
Suðurlandi, að öðru leyti er ágæt vetrarfærð á öll-
um aðalleiðum.
Ástand vega
Skafrenningur
m Steinkast
0 Hálka
Ófært
® Vegavinna-aftgát 0 Öxulþungatakmarkanir
Hl Þungfært © Fært fjallabflum
Silvía Rán
Myndarlega telpan á
myndinni heitir Silvía
Rán. Hún fæddist á FSA
9. júlí síðastliðinn kl.
23.35. Við fæðingu var
hún 3890 grömm og 52
Barn dagsins
sentímetrar. Foreldrar
hennar eru Ásta Jóhanna
Þorláksdóttir og Björgvin
Ómar Hrafnkelsson.
Silvía Rán á fjögur systk-
ini sem eru: Snjólaug
Ema, átján ára, Þorvald-
ur Hans, fimmtán ára,
Díana Mjöll, sex ára og
Diljá Sif, tveggja ára.
dagstOlIÞ
Ingvar Sigurðsson leikur aöalper-
sonuna, Pál.
Englar
alheimsins
Nýjasta íslenska kvikmyndin
Englar alheimsins hefur fengið
mjög góða aðsókn. I myndinni er
sögð er saga Páls (Ingvar Sigurðs-
son), fjölskyldu hans og félaga á
Kleppi. Páli er fylgt inn í myrkur
geðsjúkdóms þar sem hann ein-
angrast og verður stöðugt erfiðari í
samskiptum við foreldra sína og
systkini. Þetta endar með þvi að
hann er sendur á Klepp. Á Kleppi
koma við sögu sálufélagar hans, Óli
bítill (Baltasar Kormákur), ósköp
rólegur gaur sem heldur að
hann hafi samið öll
bítlalögin, Viktor /"//■ • •
Kvikmyndir
(Bjöm Jörundur) sem fiP®8
stundum breytist í Ad-
olf sjálfan Hitler og Pétur (Hilmir
Snær Guðnason), herbergisfélagi
Páls sem farið hefur yfir um á sýru.
Fylgst er með ævintýrum þeirra fé-
laga á og af Kleppi og örlögum Páls.
Fleiri góða leikara getur að líta i
myndinni, til dæmis Halldóru Geir-
harðsdóttur, Þór Tulinius, Egil
Ólafsson og Pálma Gestsson.
Nýjar myndir í kvikmyndahúsum:
Bíóhöllin: End of Days
Saga-bíó: Járnrisinn
Bíóborgin:The World Is not Enough
Háskólabíó: Englar alheimsins
Háskólabíó: Mickey Blue Eyes
Kringlubíó: The 13th Warrior
Laugarásbíó: Deep Blue Sea
Regnboginn: Drive Me Crazy
Stjörnubíó: Jóhanna af Örk
Krossgátan
1 2 3 4 5 6
7
b 10 11
12 13
U 16
17 18 19
5i
Lárétt: 1 klaufjárns, 7 áfram, 9 þjálf-
un, 11 leit, 12 kvabb, 13 tómt, 14 pár,
16 hvíli, 17 átt, 20 tóns, 21 skjótur.
Lóðrétt: 1 róta, 2 vargur, 3
hinkraði, 4 ætíð, 5 flökt, 6 skartgrip-
ur, 8 ánægður, 9 æviskeið, 10 skvett-
ur, 15 okkur, 18 varðandi, 19 slá.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 flokk, 6 ók, 8 jöfurs, 9
ögur, 10 óar, 11 rör, 13 fórn, 15 urt-
um, 17 ha, 18 gaurar, 19 orga, 20 kóf.
Lóðrétt: 1 fjörug, 2 lög, 3 ofur, 4
kurfur, 5 kró, 6 ósar, 7 kárnar, 12^.
örar, 14 ómak, 16 tug, 17 hró.
A NÆSTA
SÖLUSTAÐ
EÐA
í ÁSKRIFT
í SÍMA
550 5000