Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2000, Síða 32
, MILLENNIUMsubaru
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö f DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2000
V axtahækkunarleiðin:
Grefur undan
samkeppnis-
stööu
^ - segir Ari Edwald
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, segir ekk-
ert nýtt að frétta
af samningamál-
um, en um ára-
mót hafi verið
ýmislegt sem
benti til að þau
yrðu erfið.
„Það sem Sam-
tök iðnaðarins
voru að segja í
gær er bara í
samræmi við okkar málflutning. Ég
er sammála því mati að vaxtahækk-
anir séu illskárri kostur en aukin
verðbólga, en báðir kostimir eru
j^slæmir. Eini kosturinn sem tæki á
viðskiptahalla og vegur ekki að
samkeppnisstöðunni er aukið að-
hald opinberra fjármála. Það er það
sem á vantar og við höfum tekið
undir það.“
Ari segir að vaxtahækkunarleið-
in sé skárri fyrir fyrirtækin en
hærri verðbólga, en hún ýti undir
að grafist undan samkeppnistöðu ís-
lenskra fyrirtækja með hækkun á
gengi krónunnar og lækkun á inn-
flutningi. -HKr.
Ari Edwald.
“Erfitt sjúkra-
flug í nótt
Béiðni barst til Landhelgisgæsl-
unnar um miðnætti um að sækja al-
varlega veika konu til ísafjarðar.
Veður var slæmt fyrir vestan þegar
beiðnin barst, en TF-Líf fór þó í loft-
ið klukkustund síðar. Flogið var
með ströndinni vestur og tók flugið
þangað um 2 klukkustundir.
Eftir um klukkustundarstopp á
ísaflrði var haldið af stað aftur suð-
ur með konuna. Veður hafði þá
gengið niður. -gk
„ Víkingaskip
á uppboði
„Þetta var mikil óheppni og hefði
aldrei átt að gerast,“ sagði Gunnar
Marel Eggertsson, eigandi víkinga-
skipsins íslendings sem komið er á
uppboð og hefur verið auglýst í Lög-
birtingablaðinu sem slíkt. „Það
voru engin efni til þessa og reyndar
kom ég af fjöllum þegar ég sá að vík-
ingaskipið var komið á uppboð.
Skipið verður aldrei boðið upp,“
sagði Gunnar Marel sem ætlar að
sigla vikingaskipinu vestur um haf
17. júní til að minnast landafund-
anna forðum.
-EIR
Páll Oskar Hjálmtýsson söng sig inn í hjörtu barnanna á Barnaspítala Hringsins í gærdag. Japis afhenti spítalanum leikjatölvur og fleiri gjafir.
Snjóflóðahrina á norðanverðum Vestfjörðum í gærkvöld:
Maður hætt kom-
inn í Kirkjubólshlíð
- tvö snjóflóð féllu þar og fjögur í Súðavíkurhlíðinni
Eiríkur Ragnarsson frá Súðavík
verður að teljast heppinn að hafa
sloppið ómeiddur úr snjóflóði sem
féll yst í Kirkjubólshlíð í Skutulsflrði
rétt fyrir miðnætti í gærkvöld. Hann
var einn á ferð, á leið frá Súðavík.
Hann komst út úr
bifreið sinni og
lét vita um flóðið
á lögreglustöðinni
á ísafirði.
Að sögn lög-
reglu telur Eirik-
ur að farsíminn
hafi bjargað því
að hann lenti ekki
inni í miðju snjó-
flóði. Eiríkur,
sem var á leið til
ísafjarðar, ákvað að
snúa við til Súðavíkur og hringdi
þangað til að láta vita af sér. Hann
hægði á bílnum á meðan á símtalinu
stóð og þá féll flóðið að mestu fyrir
framan hann. Bifreiðin lenti á kafl en
lögregla segir að vart hefði þurft að
spyrja að leikslokum ef meginþungi
Eiríkur Ragnars-
son.
Oshyrna
V. O'
\
■ ÍP
ísafjörður
“ snlöflóö
Frá vettvangi í morgun eftir aö mokað hafði veriö í gegn.
DV-myndir Björn
þess hefði lent á bifreiðinni. Flóðið
féfl yst í Kirkjubólshlíðinni þar sem
heitir Básar. Guðmundur Gunnars-
son hjá Vegagerðinni á ísaflrði sagði
reyndar í morgun að tvö snjóflóð
hefðu fallið í Kirkjubólshlíðinni í
gærkvöld. „Við erum ekki búnir að
mæla stærð flóðanna, en þau voru
stór og menn tala um að þau séu með
þeim stærstu sem
þar hafa fallið.
Flóðið sem bíll-
inn lenti í var t.d.
um einn og hálfur
metri að þykkt,
því bíllinn var
nánast á kafi í
flóðinu," sagði
Guðmundur.
Vegagerðarmenn
hófust handa við
að opna veginn
um Kirkjubóls-
hlíð snemma í
morgun og var
því verki lokið
um klukkan átta.
Guðmundur sagði að það hefði tafið
fyrir að ekki náðist til mannsins sem
hafði lent í flóðinu, og bifreið hans
var til trafala þegar verið var að
opna veginn.
Þá féllu fjögur snjóflóð í Súðavík-
urhlíð í gærkvöld og var þar um tals-
'vert stór flóð að ræða. Flutningabif-
reið sem var þar á ferð lenti á milli
tveggja flóðanna en ekki var um
hættuástand að ræða. Veður hafði
batnað á Vestfjörðum í morgun og
reiknaði Guðmundur Gunnarsson
hjá Vegagerðinni ekki með að fleiri
flóð myndu falla þar á næstunni.
-gk/rt
Veðrið á morgun:
Bjartviöri
fyrir austan
Á morgun verður suðvestanátt,
5-10 m/s en 10-15 m/s við norður-
ströndina. Dálítil slydda og síðan
súld eða rigning með köflum vest-
anlands en lengst af bjartviðri
austanlands.
Hlýnandi veður.
Veöriö í dag er á bls. 29.