Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Síða 3
ef ni.
meömæli
Hvernig væri að hætta þessu sulli og fá sér al-
mennilegt kaffi til tilbreytingar. Kaffitárið í
Bankastrætinu er staðurinn sem býður upp á
það. Það er fátt meira hressandi en skokka
þangað og grípa með sér tvöfaldan espresso
til brottnáms. Hann skýtur þér upp á himin-
hvolfið og heldur þér gangandi það sem eftir
er af deginum. Auðvitað má líka setjast niður
og sötra í rólegheitunum. Kaffitárið er líka
meö mikiö úrval af eðalkaffi til aö malla
heima og starfsfólkið er mjög vel að sér í öllu
sem viðkemur baununum. Niður með sjálfsal-
anal
Tölvupóstur er hið
mesta þarfaþing og fátt
unaðslegra i gráma
vinnudagsins en að fá
hugljúfar kveðjur frá
vinum sínum á Net-
inu. Það er
óvitlaust að
muna eftir
netfanginu sínu þegar
stund gefst milli stríða og heilsa upp á sem
flesta eða senda út léttar viðreynslukveðjur
fýrir helgina. Þeir sem eru ekki með netfang
ættu að drífa í því að fá sér eitt slíkt. Enda
jafnast fátt á við tvírætt daður á Netinu.
Við getum mælt með því að þeir sem veröa
svangir á röltinu í miöbænum setjist inn á
Café Vlctor til að seðja hungrið. Smáréttaseð-
ilinn er sérlega athyglisverður. Á honum leyn-
ast réttir sem eiga rætur sínar að rekja til
skyndibita, en eru bæði gómsætari og betur
úti látnir. Vilji maður venjulegan mat má alltaf
velja rétt dagsins. Hann er á svipuðu veröi og
smáréttirnir og ríflega skammtaður. Fyrir glor-
hungraða er hægt að fá sér súpu á undan án
þess að borga meira. Ekki spillir að brauðið
með súpunni er glænýtt, ekta baguette.
Ferðatilboðin á Netinu eru erkisnilld. Sláðu til
og komdu með út í heim og ekkert kjaftæði.
Síðustu tllboð hljómuðu til dæmis á þennan
hátt: 24.000
til New York...
vó, vó, vó!!!
14.900 til '
Kaupmanna- j
hafnar og ;
London - og aðeins 7000 ef þú kaupi „One
Way Ticket" til annarrar borgarinnar og fiýrð
endanlega af Fróni. Svo þú getur bara sungið
Köben, ó Köben... ogtekið stuðmannastökkið
með stæl.
Hljómsveitin Mínus gaf út plötuna „Hey Johnny“ í nóvember.
Útgáfutónleikarnir verða hins vegar haldnir í kvöld, tveimur mánuð-
um eftir útkomuna. Þeir verða kröftugir í meira lagi því sveitin hefur
fengið þrjár ungar og upprennandi hljómsveitir til liðs við sig.
r' '• -sg
ð| ■.Æjjt'! i SM
„Þetta eru frekar síöbúnir út-
gáfutónleikar. Viö ætluðum að
halda útgáfutónleika þegar platan
kom út en vildum halda þá í Norð-
urkjallara MH en fengum ekki hús-
næðið. Nú höfum við hins vegar
fengið kjallarann og verðum með
þrusutónleika í kvöld,“ segir
Frosti Logason gitarleikari
Mínuss. Það skal tekið fram að
enginn í Mínusi er í MH en þeim er
hins vegar afar hlýtt til Norður-
kjallarans.
„Þetta er einfaldlega langbesti
tónleikastaðurinn. Sviðið er svo
lágt og maður nær þar af leiðandi
svo góðu sambandi við áheyrend-
ur. Kraftmestu tónleikamir sem ég
Hljómsveitin Klink á að sögn Mínuss
framtíð fyrir sér.
Loksins ætlar Mínus að halda útgáfutónleika en platan kom út í nóvember.
hef farið á hafa verið í Norður-
kjallaranum,“ segir Frosti og
lofar miklum krafti frá Mínusi.
Heyrðu í þeim
gegnum vegginn
Mínusmenn verða ekki ein-
ir á sviðinu því einnig koma
fram þrjár imgar og upprenn-
andi hljómsveitir sem eru allar
á sama róli og Mínus, þ.e.a.s
spila hadcorerokk. Þetta eru
sveitirnar Klink, Elexír og
Buming Eyes.
„Elexir er óreyndust. Við
vorum að æfa í sama æfrnga-
húsnæði og þeir í Garða-
bæ og heyrðum í þeim í
gegnum vegginn. Okkur
fannst þeir svo góðir að við
vildum endilega fá þá til liðs
við okkur. Hljómsveitin
Burning Eyes er bílskúrs-
band úr Mosfellsbæ og það
sem er svo sérstakt við þá
hljómsveit er það að bassa-
leikarinn er stelpa. En það
eru ekki margar stelpur sem
spila hardcorerokk. Hvað
hljómsveitina Klink varðar
get ég bara sagt það að hún er
ein besta hljómsveitin í þess-
um geira,“ segir Frosti.
Ertu aö segja aö Klink sé
betri en Mínus?
„Eigum við ekki bara að
fjórum hljómsveitum sem stíga á stokk.
mikla
segja að við deilum titlinum. Þeir
em frumlegir og kraftmiklir," seg-
ir Frosti og er ekkert að skafa utan
af því. Hann er þó ekkert hræddur
um að þeir eigi eftir að skjóta
Mínusi ref fyrir rass.
Er samt ekki frekar hallœrislegt aö
halda útgáfutónleika tveimur mánuö-
um eftir aö diskurinn kom út?
„Nei, það finnst mér ekki. Tón-
leikamir verða miklu betri fyrir
vikið þar sem við höfum haft svo
góðan tíma til þess að æfa og þeir
verða því mun kröftugri," segir
Frosti. Húsið verður opnað kl. 21
og miðaverðið er 600 kr. en MH-
ingar fá einhvem afslátt. -snæ
Nýtt leikrit í
Borgarleikhúsinu:
Rússar
við
stjórnar-
taumana
Jóhanna Vigdís
er sem 0
stjarna á
skamm-
degishimni
Þúsundir örygg-
ismyndavéla í
Reykjavík:
Það er fylgst
með þér g
Lesendur Fókuss
mynda lífsitt:
% Vika mín í
myndum g
Popp:
Nóg af
nýjum 4 n I
plötumlu ^
væntanlegt
Ástarleikir á 12
framandi stöðum
Pornóið verður lofað á Spotlight um helgina. Þetta er annað pornókvöld staðarins á þessum vetri
enda fá gestir klúbbsins hreinlega ekki nóg og heimta meira eftir ótrúlega velheppnað „porn“ í haust
If
Hálft mannkynið horfir á pomó“
„Þetta verður svona celebrity of
life,“ segir skemmtanastjóri
Spotlight, Rósa, um pomókvöldið
sem verður á Spotlight á laugar-
dagskvöldið. Þetta er í annað sinn
sem klúbburinn stendur fyrir
svona skemmtun en álíka kvöld
var haldið í haust. Vegna fjölda
áskorana eftir það kvöld verður
leikurinn endurtekinn en á síðasta
pomókvöldi sprakk húsið hrein-
lega, svo mikO var ásóknin.
Páll Óskar sér
um tónlistina
Er fólk ekki oróió leitt á pornói?
„Ekkert frekar en á diskói, held
ég. Hálft mannkynið horfir á pomó
og þeim mun frjálsari umræða sem
skapast um kynferðismál þeim
mun betra og við sjáum ekki að
neinar hömlur séu af hinu góða.
Það verður mjög fijáls andi hjá
okkur og við munum bjóða fólki
upp á að dansa við sexí tónlist fram
á rauðan morgun," segir Rósa og
lofar góðu stuði.
Veröur þetta gróft?
„Við skulum orða það þannig að
við bjóðum ekki upp á neinn sóða-
eða subbuskap en „We will push the
limits,“ segir Rósa og vill ekki gefa of
mikið uppi. Þó er hægt að upplýsa að
í boði verða erótískar uppákomur af
ýmsu tagi og húsið verður skreytt í
tilefni kvöldsins. Eins og á síðasta
pomókvöldi mun Páll Óskar standa
vaktina í Dj. búrinu og spila sjóðandi
sexí tónlist þar til siðasti gestur húss-
ins dettur dauður niður. Á bamum
verða líka ýmis pornóleg tilboð í
gangi. Þar verður t.d boðið upp á kok-
teilinn „Pussy juice" og skotið „Cum“
á tilboðsverði. Þetta partí er sem sagt
ekki fyrir pempíulegar sálir.
-snæ
Kíkt á höslið í Reykjavík:
„Daður er a a
betra en lýsi“ 11
Lifid eftir vinnu
mmng
HM marmaraglað
rs
mgjar i
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíöumyndina tók Teitur af
Jóhönnu Vigdísi Arnardóttur.
21. janúar 2000 f Ókus
3