Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Page 8
Það eru ekki til nein lög í landinu sem segja nákvæmlega til um það hver megi nota eftirlitsmyndavélar og hvernig. Það er þó ekki þar með sagt að allir geti eða megi setja upp eftirlitsmyndavélar og nota þær til að njósna um náungann. Það má að vísu reyna en það væri laga- brot. Uppsetning eftirlitsmyndavéla er leyfisskyld og til að fá slíkt leyfi þarf að leita til tölvunefndar. Hún veitir ekki leyfið öðrum en þeim sem geta sýnt og sannað að uppsetning eftirlitsmyndavélanna sé eðlilegur hluti af starfsemi viðkomandi. Þetta þýðir að maður á ekki að geta njósnað um konuna í næsta húsi með eftirlitsmyndavél. En þetta þýðir líka að fyrirtæki, stofnanir og jafnvel skólar, að ekki sé talað um heilu húsfélögin, hafa verið að koma sér upp eftirlitsmyndavél- um til öryggisgæslu á undanförnum árum. í dag munu þær vera nokkur þúsund, aðeins á höfuðborgarsvæðinu. Eftirlitsmyndavélar Fyrirtæki sem sjá um öryggis- gæslu fyrir aðra, hvort sem það eru önnur fyrirtæki, einstaklingar eða stofnanir, mega hins vegar setja upp eftirlitsmyndavélar, sem þá eru kallaðar öryggismyndavélar. Securitas er líklega stærst þessara fyrirtækja hér á landi. Myndavéla- sérfræðingur þeirra, Þórir Helga- son, segir að þeir haíi nóg að gera við að setja upp öryggis- og eftir- litsmyndavélar og giskar á, að- spurður, að í borginni séu nú nokk- ur þúsund slíkar vélar. Hvert fyrirtæki og stofnun sem á annað borð á eftirlitsmyndavélar er yfirleitt með nokkrar, bæði inn- an húss og utan, til að vakta inn- gönguleiðir og aðra viðkvæma staði á eign sinni. Fyrirtækin nota myndavélamir ýmist með eða án mannlegrar gæslu. Ef enginn er til að horfa á upptökur af skjám þá taka myndavélamar upp á band, ferðir allra óboðinna - og boðinna - gesta, sem hægt er að skoða síðar ef upp kemst um eitthvað misjafnt. Þeir munu ekki vera margir ein- staklingamar sem óskað hafa eftir uppsetningu eftirlitsmyndavéla en áhugi á þeim fer vaxandi hjá húsfé- lögum fjölbýlishúsa. Þar eru marg- ir orðnir pirraðir á endalausri eyðileggingu á póstkössum en líka á óprúttnum stríðnispúkum, gröll- urum, sölumönnum, fyllibyttiun og eiturlyfjaneytendum sem vilja ryðj- ast til inngöngu. Með því að setja upp myndavélar við dyrabjöllumar og tengja þær sjónvarpskerfinu geta íbúamir tékkað á því hver er að dingla með því einu að kveikja á viðeigandi sjónvarpsrás. Slíkar myndavélar eru ekki tengdar við upptökutæki en fátt getur líklega komið í veg fyrir að íbúamir taki umganginn upp á eigið videótæki, detti þeim það i hug. Þó það sé bannað. Framan af voru öryggis- myndavélar sem þessar einna helst settar upp í blokkum fyrir aldraða en nú em vinsældir þeirra sífellt að aukast hjá alls konar fólki á öll- um aldri. Við erum vöktuð, það fer ekkert á milli mála. Og öllum viðmælend- um blaðsins virðist finnast það al- veg sjálfsagt mál þótt engum flnn- ist rétt að vinnuveitendur taki upp atferli starfsmanna sinna i kaffi- tímanum - en slíkt hefur gerst. Notkun eftirlitsmyndavéla lýtur sömu lögum og meðferð persónu- upplýsinga sem þýðir að ekki má Kortið sýnir hvar eftirlitsmyndavélar eru staðsettar í miðbæ Reykjavíkur. Lituðu fletirnir eiga að tákna það svæði sem hver myndavél nær til. mynda neinn án þess að hann sé látinn vita af því. Hið sama gildir um myndbandsupptökúr. Lögin segja að visu ekkert beint um eftir- litsmyndavélar og því er það ein- ungis háð túlkun tölvimefndar á lögunum hvað er leyfilegt og hvað bannað. Það gengur þó ekki til lengdar og því hefur dómsmálaráð- herra gert drög að úrbótum i formi frumvarps til laga sem lögð verða fram á Alþingi I næsta mánuði. í þeim er tekið tillit til tækninýjunga á borð við eftirlitsmyndavélar sem eiga eftir að verða enn „öruggari“ í framtíðinni. Þær eftirlitsmyndavél- E9Í ar sem nú eru uppi um allan bæ að biða eftir því óvænta munu þá verða leystar af hólmi af stafræn- um myndavélum sem geta rakið ferðir manns um tiltekið svæði, langt aftur i timann. Þá verður nóg að setja upplýsingar um viðkom- andi inn i vélina til að komast að því hvort hann hafl einhvem tím- ann verið á ferðinni „í mynd“. Þá fyrst verður öryggis gætt, því ör- yggi er það sem allir setja á oddinn. Enginn sem Fókus ræddi við, nema kannski löggan, minntist einu orði á „eftirlit". -MEÓ tvífarar Lesendur Fókuss mynda líf sitt á einnota myndavélar: Davld Duchovny leíkari. Andri Snær Magnason rithöfundur. David Duchovny leikari og Andri Snær Magnason rithöfundur eru drengilegir menn að sjá. Augnsvipurinn er kíminn og óræð- ur, auk þess sem þeir virðast oft hálfglottuleitir. Þetta eru menn með hátt enni, vel lagað nef og myndu báðir ganga út á Skugga- barnum eftir kortérsstopp. Þeir flagga báðir glaðlegu og allt að því bamslega sakleysislegu yflrbragði. Þetta yfirbragð væri til- valið fyrir hvaða fermingarbarn sem er en fæst þeirra geta stát- að af því. Þau eru töluvert gráðugri á svipinn en félagarnir Dav- id og Andri. Eitt atriði er þó ólíkt í útliti þeirra, þeir greiða topp- inn hvor út í sinn vangann. Vika mín í myndum Mánudagur 10. janúar Þetta var bara venjulegur skóla- dagur og svo fór ég að vinna á bókasafninu. Erna, samstarfs- kona mín, var yfir sig spennt allan daginn því maður- inn hennar var að koma frá Slóveníu og hún ætlaði að fara að sækja hann. Um kvöldið fórum við Anton, kærastinn minn, út að borða á Horn- inu í tilefni þess aö við erum þúin að vera saman í 2 mánuði. Ég fékk þjón- inn tii að taka mynd af okkur. Eftir matinn fórum við í bíó og svo heim til mín. Hér setur Anton sig í stellingar... Nafn: Hulda Sif Ólafsdóttir Aldur: 17 ára Starf: Á öðru ári i Verslun- arskóla íslands. Vinnur á bókasafni Versló og í eld- húsi Landspitalans. Heimili: Grafarvogur Og hér er allur skátahóp- urinn saman kominn. Sunnuda Dimmalimm, kötturinn minn, ákvað að ofsækja mig allan daginn og eiti mig á röndum um allt hús. Skátafélagið Land- nemar, sem ég er félagi í, átti 50 ára af- mæli í dag og það var mikiö um dýrðir. Hér æfa Hrönn, Anna og Eiríkur sig á gítarinn fyrir af- mælisfundinn. f Ó k U S 21. janúar 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.