Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Side 10
vikuna
21.1-27.12000
4. vika
Red Hot Chilli Peppers sitja sem
fastast í fyrsta sætinu. Líklegust til að
ógna þeim eru Bowie og Houston sem
sækja stöðugt á. Greifarnir gætu líka
eftirað ná langt, á öruggri uppleið.
Sálin pompar niður en harðasta
skellinn fær Emiliana Torrini.
Topp 20
(01) OtherSide Red Hot Chilli Peppers S. Vikur I á lista 04
(02) Under Pressure (Rah Mix) Queen & David Bowie t 4
(03) 1 Learned From The Best Whitney Houston t S
(04) The Dolphins Cry Live 4, 8
(05) OkkarNótt Sálin Hans Jóns Míns 4- 7
(06) Learn To Fly Foo Fighters t 5
(07) ViltuHitta MigíKvöld Greifarnir& EinarÁgúst t 2
(08) All The Small Things Blink 182 4 3 i
(09) Kerfisbundin Þrá Maus 4> 5
(ÍO) IflCouldTurnBackTheHandsOfTime R.Kelly 4^ 6
(TT) Sexbomb(Remix) Tom Jones t 4
(12) The World Is Not Enough Garbage (James Bond) U 6
(l3) The Great Beyond R.E.M. U 3
14 Alive Beastie Boys 4- 3
(75) WhatA Girl Wants Christina Aquilera t 5
(76) Vínrauðvín Ensími t 3
(77) TheBadTouch Bloodhound Gang 4- 5
(18) DearLie TLC n s
(79) IAm Selma
(20) BabyBlue Emiliana Torrini i 3 T 1
Sætin 21 til 40
Q topplag v/kunnar
/ hástökkvari
vikunnar
nýtt á listanum
%■' stendur I stað
/K hækkar sig frá
' síðrstu viku
JL lækkar sig frá
'® sifljstu VÍKU
?
fall vikunn ar
21. Rainbow Country Bob Marley & Funkstar De... 14 2
22. Shake Your Bon Bon Ricky Martin t 3
23. Tarfur Ouarashi X 1
24. Sexxlaws Beck t 3
25. Born To Make You Happy Britney Spears t 2
26. Keep On Movin Five 9
27. Northen Star Melanie C. t 2
28. No One To Love Páll Óskar 4- 5
29. Move YourBody Eifell 65 t 3
30. Tricky Tricky Lou Bega t 2
31. María María Santana t 4
32. ShowMe The Meaning... Backstreet Boys X ? 1
33. Model Citizen Quarashi 6
34. Better Be Good Páll Óskar X 1
35. Örmagna Land og Synir 4. 6
36. Dr.Love Smokin Beats X 1
37. Miss Sarajevo George Michael 'Þ 5
38. U Know What's Up DonellJones t 2
39. Sexual Healing Michael Bolton •L 4
40. Don't Call Me Baby Madison Avenue X 1
Ifókus
Það er við hæfí í
upphafi nýs árs að
líta aðeins á það
hvaða plötur eru
væntanlegar á næstu
mánuðum. Þar er af
nógu að taka og hér
á eftir fer listi yfir
nokkrar þeirra.
Janúar
Nýja Primal Scream-platan
Exterminator er væntanleg þann
31. Þar er við góðu að búast ef
marka má fyrstu smáskífuna af
henni - Swastika Eyes sem kom út
fyrir nokkrum vikum.
Febrúar
Þann 14. er von á nýrri plötu frá
frönsku hljómsveitinni Air. Þetta
er tónlist úr kvikmynd Sofie
Coppola (dóttur Francis Ford), The
Virgin Suicides. Nýja Oasis-platan,
Standing on the Shoulder of Gi-
ants, kemur þann 28. og vafalaust
eru margir spenntir fyrir henni. í
febrúar er líka von á eftirfarandi:
•Fabio - Liquid Funk (mixplata).
•The The - Naked Self
•Cure - Bloodflowers
•Ghostface Killah - Supreme Cli-
entele
•Jean Michel Jarre - Meta-
morphosis
•Smashing Pumpkins -
MACHINA: The Machines of God,
•Jurassic 5 - Quality Control
Mars/apríl
Þann 20. mars er von á nýju Asi-
an Dub Foundation-plötunni
Community Music. ADF er hik-
laust eitt best heppnaða rokk/dans-
afsprengið og það verður því
spennandi að sjá hvert það er að
þróast á þessari nýju plötu. í mars
og apríl kemur líka þetta:
•Nýja Bentley Rhythm Ace-platan
For Your Ears Only sem er búin
að vera lengi í vinnslu, enda
dregur puff-neysla þeirra félaga
væntanlega verulega úr vinnu-
hraðanum.
•Ný plata frá The Orb.
•Ný Paul Weller-plata.
•Fyrsta sólóplatan frá Richard As-
hcroft úr the Verve.
•Ný Way out West-plata.
•Ný Elastica-plata
•Elliot Smith - Place de Gaulle.
•Space - Love You More than
Footbail.
•Saint Etienne - Sound of Water.
•Björk - Dancer in the Dark.
Maí/júní
Ný plata frá Radiohead er vænt-
anleg i maí eða júni. Hún hefur
ekki enn hlotið nafn en það er ljóst
að mjög margir bíða spenntir eftir
því að sjá hvernig tekst að fylgja
eftir OK! Computer. í maí og júní
er líka von á þessum:
•All Saints - I Need the Mic.
•Marilyn Manson - In the Shadow
of the Valley of Death.
•Ash - The New One.
•Ný Lo-Fidelity Allstars-plata.
Auk þess er á árinu von á nýjum
plötum frá Daft Punk, Reprazent, Dav-
id Holmes, Belle & Sebastian, Spiritu-
alized, Gay Dad, Pulp, New Order og
Fatboy Slim, svo eitthvað sé nefnt.
MJ Cole er ótvírætt mjög hæfileikaríkur. Lagiö hans, Sincere, vakti mikla at-
hygli og komst m.a. inn á topp 40 í London.
Nýtt ár, nýjar stjörnur
En hvaða nýjum tónlistarmönn-
um er svo beðið eftir með mestum
spenningi á árinu? Við tippum á
nokkra og byrjum á Tipper:
Tipper
Dave Tipper er Breti sem starfar
undir nafninu Tipper og hefur gert
það gott í breakbeat-geiranum í
nokkur ár. Hann rekur plötufyrir-
tækið FUEL sem m.a. sendi frá sér
ágæta safnplötu, 8 Track, í fyrra.
Hann hefur mikið dálæti á bassa-
sándi og amerískum köggum og
sameinar það með bíl sem hann
hefur breytt í risavaxið hátalara-
kerfl. Þetta áhugamál hefur haft
miður æskileg áhrif á atgervi pilts-
ins því að hann er nú að jafna sig>
eftir áverka sem hann hlaut á öðru
innra eyranu. Þessir áverkar komu
af því að hlusta á of hátt stillta tón-
list og meinuðu þeir honum um
tíma að hreyfa höfuðið! Tónlistin
hans er gerð undir áhrifum frá
klassískri tónlist, LFO, Soul Sonic
Force, Miami Bass og hljóðum úr
náttúrunni, t.d. jarðskjálftahljóð-
um og ýmiss konar veðurfræðileg-
um hljóðum. Hann hefur í nokkum
tima verið talinn einn af þeim
ferskari á bresku breakbeat-sen-
unni. Fyrsta sólóplatan hans, The
Critical Path, er væntanleg 31. jan-
úar á Higher Ground og ef eitthvað
er að marka smáskífurnar af
henni, L.E.D. Down og Supersport,
er þama á ferðinni alvöruplata frá
alvörutónlistarmanni.
Kid Koala
Kid Koala er kanadískur „plötu-
spilaristi" (tumtablist) sem sendir
frá sér sína fyrstu plötu hjá Ninja
Tune í febrúar. Þetta er svona
súpemörd - náungi sem er bæði of-
boðslega fær á plötuspilarana og
líka með mjög ákveðnar hugmynd-
ir um það hvemig hann vill hafa
hlutina. Platan hans, Carpel Tunn-
el Syndrome, er t.d. unnin ein-
göngu með plötuspilurum og göml-
um plötum, mest keyptum á fom-
sölum. Hann notar allt upp í 30
plötur til að búa til hvert lag og
notar ekki önnur tæki en plötu-
spilarana! Mix-spólan hans,
Scratchhappy Land frá 1996, er frá-
bær og á Ninja Tune-tónleikunum í
Shepherds Bush Empire í nóvem-
ber, þar sem auk hans komu fram
m.a. Coldcut og Cinematic
Orchestra, stal hann senunni alger-
lega. Hiklaust plata sem gaman
verður að heyra og hiklaust náungi
sem væri þess virði að snara ein-
hvem tímann á leiðinni yflr At-
lantshaflð til að spila á Thomsen.
Ovuca
Ovuca er Finninn Aleksi Perala.
Hann hefur verið að búa til raftón-
list í áratug en er nú nýkominn á
samning hjá Rephlex. Fyrsta plat-
an hans, Lactavent, sem er safn
efnis frá 1990-1998, kom út i októ-
ber sl. og plata með nýju efni er
væntanleg á nýja árinu. Lactavent
er ein af þessum skemmtilegu
Rephlex-plötum sem ná því að vera
í senn tilraunakenndar og poppað-
ar. Með Ovuca bætist enn einn sér-
vitringurinn í Rephlex-hópinn.
Fyrir eru jú, auk Aphex Twin
sjálfs, m.a. pólski rafvirkinn Bogd-
an Raczynski, Ed DMX Krew og
Chris „CYLOB“ Jeffs. Ovuca dans-
ar villt þegar hann spilar á tónleik-
um og hristir sína síðu lokka.
MJ Cole
MJ Cole er listamannsnafn Bret-
ans Matthew James Firth Cole-
man. Fyrsta sólóplatan hans er
væntanleg frá Talkin’ Loud í april.
MJ Cole, sem er hámenntaður í
klassískum píanó- og óbóleik og
jafnframt fyrrverandi drum- &
bass-pródúser, er talinn vera fyrsta
súperstjarna „underground gar-
age“-stefnunnar í Bretlandi. Hann
er ótvírætt mjög hæfileikaríkur og
menn eru að vona að hann geri fyr-
ir þessa tónlistarstefnu það sama
og Roni Size gerði fyrir d&b. Lagið
hans, Sincere, vakti mikla athygli
og komst m.a. inn á topp 40 í
London.
Trausti Júliusson
10
f Ó k U S 21. janúar 2000