Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Blaðsíða 16
*
#
fyrr en David Koepp las hana og fór
að leita fyrir sér um kvikmynda-
réttinn. Matheson, sem bæði er rit-
höfundur og handritshöfundur,
vildi sjálfur ekki eiga við hana á
sínum tíma. Matheson, sem meðal
annars gerði nokkur handrit i sjón-
varpsþáttaröðina The Twilight
Zone, hefur skrifað margar sögur
sem hafa verið kvikmyndaðar. Má
þar nefna Duel (fyrsta kvikmynd
Stevens Spielbergs), Somewhere In
Time, The Omega Man og What
Dreams May Come. Þess má svo að
lokum geta að Mathieson skrifaði
handrit að nokkrum þekktustu
hrollvekjum sjöunda áratugarins,
meðal annars The Raven, Pit and
the Pendulium, The Comedy of Ter-
rors og The House of Usher. -HK
Stir of Echoes er nýr sálfræðitryllir sem frumsýndur er í dag
í Kringlubíói, Stjörnubíói, Nýja bíói í Keflavík og Nýja bíói á
Akureyri. í henni leikur Kevin Bacon sem eftir dáleiðslu sannfær-
ist um að til sé dularfullt afl sem hann hefur engan skilning á.
I Stir of Echoes leikur Kevin
Bacon ósköp venjulegan mann,
Tom Witzky, eiginmann og föður
sem eftir dáleiðslu er viss um að
einhver ókunn öfl hafi komist inn í
vitund hann, öfl sem hafa látið
hann fá tilfinningu fyrir því að
morð hafi verið framið í nálægð
hans. Sonur hans hefur fengið
þessa sömu tilflnningu og nú fara
feðgarnir á stjá til að komast að þvi
hvað hefur komið fyrir stúlku úr
nágrenninu sem hvarf fyrir
nokkrum misserum. Ekki nóg með
þetta heldur hefur Tom einnig á til-
finningunni að einhver búi inni á
heimili hans, einhver sem ekki er
lifandi. Með fram þessari vitneskju
fær Tom mikinn höfuðverk og van-
líðan og hann heitir því að komast
að upptökum hins ókunna, hvað
sem það kostar.
Stir of Echoes er byggð á skáld-
sögu eftir Richard Matheson sem
kom út 1958. Skrifaði hinn kunni
handritshöfundur David Koepp
handritið og leikstýrir einnig mynd-
inni en meðal handrita sem Koepp
hefur skrifað má nefna Jurassic
Park, Mission: Impossible, The Lost
World og Snake Eyes. Þetta er önn-
ur kvikmyndin sem hann leikstýrir,
hafði áður leikstýrt The
Trigger Effect árið 1996.
Auk Kevin Bacons fara
með stór hlutverk í Stir of
Echoes Kathryn Erbe,
Illeana Douglas og Kevin
Dunn.
Skáldsagan Stir of
Echoes hefur lengi verið í
eigu Universal eða um
það bil þrjátíu og fimm ár
en enginn hafði lagt í að
gera handrit eftir henni
Vinsælasta kvikmyndin í Bandaríkjunum um síðustu helgi
var Next Friday. Hún er frumsýnd í Laugarásbíói í dag
- Nssstð
Eftir að Stuart litli hafði
verið í efsta sæti yfir kvik-
myndir sem best eru sóttar í
Bandaríkjunum í þijár vikur
tók Next Friday óvænt topp-
sætið og Reykvíkingar geta
barið þessa kvikmynd augum
um helgina því hún er frum-
sýnd i Laugarásbíói í dag. Vin-
sældir myndarinnar liggja að
mestu í því að svartir Banda-
ríkjamenn flykktust á hana
enda myndinni fyrst og fremst
beint til þeirra. Next Friday er óbeint
framhald Friday. í henni léku aðal-
hlutverkin Chris Tucker og Ice Cube.
í Next Friday er Chris Tucker fjarri
* góðu gamni en rapparinn og leikar-
inn Ice Cube er aftur kominn I hlut-
verk Craigs, sem enn þann dag í dag
býr með foreldrum sinum, er með
hálfum huga að leita sér að vinnu og
lifir í minningunni um frægð sína
þegar hann lagði Debo. Þegar það
fréttist að Debo er laus úr fangelsi og
Rapparinn og leikarinn lce Cube leikur aðal-
hlutverkið í Next Friday.
hyggur á hefndir er Craig sendur til
Elroy frænda sem vann í lottóinu og
býr í fínu úthverfi.
Auk Ice Cube leika í Next Friday
Mike Epps Justin Pierce, John
Witherspoon, Tamala Jones og Don
„DC“ Curry. Eins og gefur að skilja
er mikið um rapptónlist í myndinni
sem þekkir rapparar á borð við Ice
Cube, Wyclef Jean, Aaliyah, Lil Zane,
Wu-Tang Clan, Toni Estes og N.W.A.
flytja. -HK
bíódómur
í Rouge Trader er farið nokkuð
frjálslega með ævisögu Nicks
Leesons, sem varð frægur á einni
nóttu þegar hann setti Barings-
bankann í Englandi á hausinn eftir
að hafa tapað óhugnanlegum fjár-
hæðum á peningamarkaðnum í
Singapore og valdið einu svakaleg-
asta fjármálahneyksli sem upp hef-
ur komið.
Nick (McGregor) er metnaðar-
gjam bankastarfsmaður sem fær
tækifæri til að komast fljótt áfram
með því að taka við útibúi bankans
í Austurlöndum fjær þar sem hann
er alveg látinn leika lausum hala.
Hann fer fljótlega að beita ólögleg-
um aðferðum við að sýna fram á
gróða og fyrr en varir er hann sokk-
inn í botnlausan pytt milljarða-
skulda sem urðu til þess að ein af
virðulegustu og rótgrónustu pen-
ingastofnunum heimsins riðaði til
falls. Saman við sögu gjaldþrotsins
fléttast ástarsaga þar sem sambandi
Nicks og síðar hjónabandi við Lisu
(Friel) er lýst. Þetta er saga ungs
manns sem kemur sér í aðstæður
sem engan gæti órað fyrir. Um tíma
virtist sem öll veröldin lyti valdi
ungs galgopa með ótakmörkuð fjár-
ráð sem misst hafði jarðsambandið.
Með hlutverk Leesons
fer Ewan McGregor. í
öðrum hlutverkum eru
Anna Friel, Yves Be-
neyton og Betsy
Brantley. Leikstjóri er
James Darden og skrif-
aði hann einnig handrit-
ið. Darden hóf feril sinn
sem handritshöfundur
og skrifaði meðal annars
handritið að Fatal
Atraction. Fyrsta kvik-
myndin sem hann leikstýrði var
Pascali’s Island með Ben Kingsley,
Charles Dance og Helen Mirren.
Ewan MacGregor hefur á fáum
árum unnið sig upp í að vera einn
vinsælasti breski leikarinn. Fyrsta
kvikmyndin sem hann lék í var
Being Human þar sem mótleikari
hans var Robin Williams en það var
Trainspotting sem kom honum á
kortið. Skemmst er að minnast þess
að hann lék Obi Wan Kenobi í Star
Wars, The Phantom Menace, og
mun bregða sér í sama hlutverk í
næstu Star Wars-kvikmynd. -HK
Háskólabíó /Bíóhöllin - Double Jeopardy ★ ★
Ástralski leikstjórinn Bruce Ber-
esford hefur gert nokkrar gæða-
myndir þar sem fremstar eru
Breaker Morant og Driving Miss
Daisy. Eru þessar kvikmyndir
dæmigerðar fyrir stíl hans þar sem
dramatískur þungi er undirtónn-
inn í frekar hægri atburðarás. Á
löngum ferli hefur Beresford aldrei
gert þriller fyrr en nú að hann leik-
stýrir Double Jeopardy. Segja má
að hann sé að nokkru leyti fastur í
viðjum vanans því ef það er eitt-
hvað sem einkennir myndina, sem
byggð er á sögu sem ætti að vera
uppfull af óvæntum uppákomum,
þá er það hæg atburðarás, ekki
bætir úr skák að persónur eru
grunnar og litlausar. Þá hefði van-
ur þrillerleikstjóri aldrei gefið jafn
mikið upp í byrjun og gert er.
Aðalpersónan er Libby (Ashley
Judd) sem er hamingjusamlega gift
móðir fimm ára drengs. Á nýfeng-
inni skútu fjölskyldunnar vaknar
hún einn morguninn öll útötuð í
blóði og eru blóðslettur um alla
skútima. Það er eins og við mann-
inn mælt, þegar hún finnur blóðug-
an hníf og tekur hann upp mætir
strandgæslan á staðinn og hún er
ákærð fyrir morð á eiginmannin-
um og síðar dæmd fyrir manndráp.
í fangelsinu kemst hún að því að að
það er ekki nóg með að besta vin-
kona hennar sé horfln með son
hennar heldur er hún farin að búa
með „myrtum" eiginmanni hennar í
San Francisco. Þetta gerist allt á
fyrstu tuttugu mínútunum og er
ekki laust við að manni þyki súrt að
búið er að upplýsa svona mikið því
eiginkona á jú eftir að sitja tíu ár í
fangelsi. Þegar hún sleppur út vegna
góðarar hegðunar eftir sex ár hefur
hún það að leiðarljósi að ekki er
hægt að dæma sömu manneskjuna
tvisvar fyrir sama morðið...
Ashley Judd, Tommy Lee Jones
og Bruce Beresford hafa öll gert
góða hluti í kvikmyndum og því
ekki skrýtið að búast við góðri
kvikmynd frá þessu úrvalsfólki, en
Double Jeopardy er hálfgert miðju-
hnoð eins og þeir mundu segja í fót-
boltanum - mikið um sendingar
sem ekkert verður úr. Það besta
við myndina er Ashley Judd. Þessi
unga leikkona býr yfir miklum
hæfileikum og gerir margt gott í
hlutverki persónu sem er ekki oft
trúverðug. Tommy Lee Jones virk-
ar aftur á móti þreyttur í hlutverki
fyrrum prófessors í lögum sem hef-
ur eftirlit með fongum sem hefur
verið sleppt á skilorði.
Öll þrjú hafa gert betur. Það
verður þó að segjast að þrátt fyrir
vankanta er Double Jeopardy
aldrei leiðinleg, meira hefði bara
átt að koma á óvart, þá hefði hún
staðið undir nafni.
Leikstjóri:
Bruce Beres-
ford. Handrit:
David Weis-
berg, Douglas
S. Cook og Le-
onard Gold-
berg. Kvik-
myndataka:
Peter James.
Tónlist: Norm-
and Corbeil.
Aöalleikarar:
Ashley Judd,
Tommy Lee Jo-
nes, Bruce
Greenwood og
Annabeth Gish.
Hilmar
Karlsson
16
f Ó k U S 21. janúar 2000