Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 ÍúJ> V fréttir Kvörtun til Samkeppnisstofnunar dregur dilk á eftir sér: Þjóðleikhússtjóri frystir sjálfstæðu leikhúsin Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri hefur lokað á allt samstarf við sjáif- stæðu leikhúsin á meðan umkvörtun- arefni þeirra um óeðlileg imdirboð rík- isstyrktu leikhúsanna er til meðferðar hjá samkeppnisyíirvöldum. „Við stígum bara á bremsuna og efnum ekki til frekara samstarfs við sjálfstæðu leikhúsin á meðan þetta mál er í gangi,“ sagði Stefán Baldurs- son þjóðleikhússtjóri í gær. „Við höf- um átt ánægjulegt samstarf við sjáif- stæðu leikhúsin og ég hef alltaf litið á þau sem samstarfsaðila en ekki samkeppnisaðila. Mér fmnst þetta allt heldur ómaklegt í ljósi þess sem við höfum gert fyrir þau,“ sagði Stefán og neitaði því aðspurður að hann væri í hefndarhug. Það voru Sam- tök sjálfstæðra leikhúsa sem sendu Samkeppn- isstofnun erindi vegna sérstakra tilboða Borgarleikhússins og Þjóð- leikhússins á aðgöngumiðum. Vildu samtökin fá úr þvi skorið hvort það samrýmdist eðlilegum samkeppnis- reglum að ríkis- styrkt leikhús, sem þæðu mörg hundruð milljón króna styrki frá hinu opinbera, gætu á þennan hátt undirboðið samkeppnisaðila. „Það verður hver að dæma fyrir sig hvort þjóðleikhússtjóri er í hefndarhug. Mér þykja viðbrögð hans hins vegar undaiieg i ljósi þess að maðurinn er nýbúinn að skrifa undir samning við menntamálaráðherra þar sem bein- línis er kveðið á um stuðning Þjóð- leikhússins við sjálfstæð leikhús," sagði Magnús Geir Þórðarson, for- maður Samtaka sjálfstæðra leikhúsa og leikhússtjóri í Iðnó. „Þessi afstaða hans verður ekki aðeins til þess að við fáum ekki leikara lánaða úr Þjóð- leikhúsinu heldur lokar hann einnig öllum deildum og hirslum stofhunar sinnar og veitir okkur ekki aðgang að leikmunum og búningum Þjóð- leikhússins sem honum ber reyndar skylda til,“ sagði Magnús Geir Þórð- arson. -EIR Stefán Baldursson. Of snemmt fyrir börnin að hjóla „Bömin eru svo snögg að ná í hjólin þegar snjóa leysir að foreldrar þurfa virkilega að vera á varðbergi," sagði Óli H. Þórðarson, framkvæmdastjóri Um- ferðarráðs, í samtali við DV. Óli sagði það vera mjög fátítt að hjól bama væm nægilega vel búin og í raun flokkist þau frekar sem leiktæki. Þrátt fyrir að veðrið hafi leikið við landsmenn siðustu daga og að dagamir lengist hvetur Umferðarráð foreldra til að láta hjól bamanna vera kyrr í geymslunni. Enn er of dimmt til að skyggni geti talist nægilegt. Margir fara allra sinna ferða á reið- hjóli og hefúr notkun nagladekkja auk- ist yfir vetrartímann. Vert er þó að at- huga að þegar götumar era auðar er mim þyngra að hjóla á nagladekkjum. Óli sagði notkun endurskinsmerkja vera ábótavant hjá mörgum og eru því foreldrar hvattir til að huga að þeim. Umferðarráð hvetur því hjólreiða- menn til að athuga ljós, glitmerki og að vera í ljósum fatnaði. -hól Margur karlinn fékk blómvönd frá konu sinni á bóndadaginn í gær. Þessar voru aö ná sér í vönd til aö fara meö heim og gleöja sinn heittelskaöa - og sjálfar sig líklega i leiöinni. Karlakór Reykjavíkur: Faðir feita söngv arans hættir Of lfew5 Ör „Ég tilkynnti stjóm kórsins að ég myndi ekki syngja með Karlakór Reykjavíkur á með- an þeir höguðu sér svona,“ sagði Margeir Jóhannsson sem sungið hefur meö Karlakór Reykjavíkur frá árinu 1957 og ver- ið formaður byggingamefndar kórsins vegna stórhýsisins við Skógarhlíö sem ráögert er aö vigja meö viðhöfn í lok mánaöarins. „Ég lýk þó ekki störfum mínum sem byggingarnefndarformaður fyrr en húsið hefur verið vígt vegna eftirgangssemi stjómar- manna. Eftir það er ég hættur," sagði Margeir sem telur að ómak- lega hafi verið troðið á Jóhanni Frétt DV Um zzssðsSzs* Pétri syni sínum og nokkmm öðrum sem vísað var úr kómum vegna þess að þeir voru of feitir, eins og fram kom í DV skömmu fyrir síö- ustu jól. „Vissulega er sárt að skilja við Karlakór Reykjavíkur á þennan hátt eftir öll þessi ár en stoltið skiptir mig meira máli,“ sagði Margeir Jóhannsson. -EIR - eftir 43 ára söng Stangaveiðimann í Kópavogi rak í rogastans: Maðkar í vorverkum „Þetta kom mér mjög á óvart og sýnir hve hagstæð eða öllu heldur sérkennileg veðráttan er. Ég hef oft tínt maðk í kringum páska en kíkti nú af rælni. í ljós kom mikið af ið- andi ánamaðki," segir Þorgeir Kol- beinsson, stangaveiðimaður og ibúi í Kópavogi, sem sér til undrunar upp- götvaði að ánamaðkar voru komnir á kreik í garði hans við Álfhólsveg. Einmunatíðarfar undanfama daga hefur raskað vetrarró ánamaðkanna. „Venjulega halda þeir sig mjög djúpt að vetrinum, vel undir frosti, en nú hafa þeir greinilega fengið þau skilaboð frá náttúrunni að vorið sé komið. Fyrstu vorverk ánamaökanna era venjulega að koma sér upp og þá sér maður gjaman hrauka þar sem þeir hafa verið að hreinsa upp úr hol- um sínum. Þessir hraukar era nú að byija að sjást í garðnum. Það er þó viðbúið að þeir þurfi að skjótast nið- ur aftur þegar frystir en á meðan þessi tíð varir er veisla hjá starran- um og þrestinum. Nú bíðim maður bara eftir vorfuglunum," segir Þor- geir sem er mikill áhugamaður rnn laxveiðar og nýtir gjaman maðka úr eigin garði til veiðanna. „Þeð vantar ekkert nema laxinn í ámar til að veðurblíðan hafi sett allt á hvolf," segir Þorgeir. -rt Þorgeir Kolbeinsson í Kópavogi uppgötvaði aö ánamaökalífríkiö í garöi hans er vaöandi í villu og svima. Ánamaökarnir eru komnir á kreik og halda aö þaö sé komiö vor. DV-mynd ÞÖK stuttar fréttir IE fær starfsleyfi Líkur eru á að heilbrigði- ráðherra hafi ákveðið að veita íslenskri erfða- :S greiningu starfsleyfi fyrir gagnagrunni á ! heilbrigðissviði en ráðherra mun formlega til- kynna veitingu leyfisins í Ráð- herrabústaðnum klukkan 11 í fyrramálið. Þá hefur íslensk erfða- greining einnig boðað til blaða- » mannafundar sem haldinn verður r um klukkutíma síðar. Vísir.is greindi frá. Kröfur í laganámi Kolbrún Linda Isleifsdóttir, kennslustjóri lagadeildar Háskóla íslands, segir námsefni i almennri lögfræði vera inngangsfræði að öllu laganámi og því sé eðlilegt að gera mikla kröfur um árangur og vísar á bug að um óeðlilegar fjölda- takmarkanir sé að ræða. RÚV greindi frá. Upptökur veröa leyföar Samgönguráðherra og formaður samgöngunefndar Alþingis hafa ákveðið að endurskoða lög sem kveða á um upptöku símtala. Lög þessi hafa verið gagnrýnd töluvert og segir Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra að eðlilegt hljóti að vera að sá sem verður fyrir ónæði í síma geti hljóðritað samtalið án vitneskju eða samþykkis viðkom- andi. RÚV greindi frá. Haukur Haukur Ingi- bergsson, skrif- stofustjóri í fjár- málaráðuneyt- inu og fyrrum formaður 2000- nefndarinnar, hefur verið ráð- inn til að gegna starfi forstjóra Fasteignamats rík- isins frá og með 1. febrúar og Magnús Ólafsson, núverandi for- stjóri, mun taka við starfi fram- kvæmdastjóra Fasteignamats rík- isins. Vísir.is greindi frá. Tekjulitlir töpuðu Tekjuminna fólk tapaði á skatt- kerfisbreytingu ríkisstjómarinnar við gerð kjarasamningana árið 1997. Þetta kemur fram í útreikn- ingum Alþýðusambands íslands. Þar kemur einnig fram að hinir tekjumeiri högnuðust töluvert. RÚV greindi frá. ráöinn Kringlan veröur miöstöð í ár mun Kringlan verða við- burða- og upplýsingamiðstöð Reykjavíkur menningarborgar Evrópu árið 2000. Er ætlunin með samstarfi Kringlunnar og Menn- ingarborgarinnar að skapa skemmtilega tilbreytingu og mikil- væga þjónustu við allan þann fjölda gesta og viðskiptavina sem koma í Kringluna á viku hverri. Friðlýst svæöi frí Siv Friðleifs- dóttir, umhverf- isráðherra, og Sturla Böðvars- son, samgöngu- ráðherra, lögðu til á ríkisstjóm- arfundi í morg- un að ekki yrði krafist aðgangseyris af ferðamönn- um á friðlýstum svæðinum á ís- landi. Bylgjan greindi frá. Vilja vegagaframkvæmdir Stjóm Samtaka sveitarfélaga á höfúðborgarsvæðinu segir að öng- þveiti skapist ef vegaframkvæmd- um á svæðinu verði stöðugt frestað. IFyrstu samningarnir? Líklega undirrita forsvarsmenn Verslunarmannafélags Reykjavík- ur, Landssambands verslunar- manna og Samtaka verslunarinnar . nýjan kjarasamning fyrir félags- j! menn sína f dag þar sem komið ! verður á markaðslaunakerfi, I styttri vinnutima auk hækkunar á i lífeyrisframlagi. Stöð 2 greindi frá. -JAB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.