Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 J3*V
Keflvíkingur ákærður í sakamáli þar sem flölskylda hans var „óvenjulega veik“:
Falsaði erlend sjúkra-
gögn og sveik út bætur
- falsaði gögn frá sjúkrahúsum i Evrópu og Bandarikjunum og lögreglu í Austurríki
Tæplega sextugur Keflvíkingur hef-
ur verið ákærður fyrir fjársvik og
skjalafals þar sem hann notaði sjálfan
sig, eiginkonu og son - þar sem þau
voru erlendis - til að svíkja út miiljón-
ir króna frá tryggingafélögum hér
heima og Tryggingastofnun sem
greiddu út bætur fyrir veikindi og slys
sem áttu sér enga stoð í raunveruleik-
anum.
Þannig falsaði maðurinn meðal ann-
ars lögregfuskýrslur i Austurríki, vott-
orð frá spítölum í Þýskcdandi, Austur-
ríki, Lúxemborg og Bandaríkjunum,
iæknisvottorð læknis hér heima og
ýmislegt fleira. VÍS, Sjóvá-Almennar,
Trygging hf. og Tryggingastofnun ís-
lands fara fram á tæplega 2 milljónir
króna í skaðabætur í málinu sem Rík-
islögreglustjóri sækir fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur. Málin eru komin
talsvert til ára sinna enda hefúr verið
eríitt að ná til ákærða sem hefúr dval-
ið mikið erlendis.
í ágúst 1989 framvísaði ákærði gögn-
um um veikindi eiginkonu sinnar í
Þýskaiandi og fólsuðu vottorði heilsu-
gæslulæknis hér heima, bæði hjá
Brunabótafélaginu og Sjóvá-AImenn-
um. Bæði félögin greiddu bætur fyrir
sömu meintu veikindin. í janúar 1990
framvísaði maðurinn tilbúnu og röngu
vottorði Stadt Krankenhaus í Koblenz
um veikindi konu sinnar, greiðslugögn
um lyfja- og lækniskostnað og fleira.
Nú greiddu bæði VÍS og Sjóvá-Al-
mennar manninum samtals 240 þús-
und krónur fyrir sama meinta veik-
indatilfelli konu hans - á grundvelli
sjúkra- og ferðatrygginga.
í febrúar 1991 tilkynnti Keflviking-
urinn um slys sonar síns á ferðalagi í
Austurríki. Þar framvísaði hann
fólsuðum austurriskum lögreglu- og
laeknaskýrslum. í þessu tilfelli greiddi
VÍS út 142 þúsund krónur á grundvelli
ÍWAP-gátt:
Fjórfaldur
hraði
Ííslandssimi býður nú, fyrst fjar-
skiptafyrirtækja á íslandi, upp á
WAP-þjónustu fyrir GSM-síma. Að-
gangurinn er á stafrænu formi og
mun hraðvirkari en boðið hefúr
s verið upp á í WAP-kerfinu til þessa.
WAP-kerfið er ein helsta nýjung
| á sviði þráölausra fjarskipta síöan
> NMT-kerfið var tekið í notkun. Til
að hafa aðgang aö WAP-kerfi þarf
S WAP-síma. Þeir eru með innbyggð-
5 um vafra og geta verið í gagnvirku
sambandi við WAP-gátt. Þeir sem
hafa aðgang að WAP-kerfi meö
; símunum sínum geta nýtt sér marg-
háttaða þjónustu sem býðst á Net-
; inu. Þeir geta til að mynda lesið
í tölvupóst í símanum, skoðaö dag-
bækurnar sínar, sinnt bankavið-
skiptum, bókað ferðir o.fl. Með til-
5 komu WAP-þjónustu á stafrænu
| formi, eins og hjá Íslandssíma, er
þetta hins vegar hægt á mun
> skemmri tíma en áður.
| Tækin nýtist einnig þeim sem
:i hafa aðgang að vefsíðum með WAP-
| miðlara. íslandssimi býður fyrir-
| tækjum og stofnunum sem hafa hug
j á að bjóða upplýsingar eða þjónustu
£ af netsíðum sínum fyrir farsimanot-
endur afnot af þeim búnaði sem til
þarf í samstarfi við hugbúnaðarfyr-
í irtækið Dímon. Dímon sér þá um að
breyta hefðbundnum vefsíðum yfir
í á WAP-form.
Meðal fjármálastofiiana sem nýfa
’ WAP-tæknina er Búnaðarbankinn.
j Notendur Heimilisbanka Búnaðar-
bankans geta skráð sig fyrir þessari
| þjónustu i gegnum Heimilisbank-
| ann. -hlh
ferðatryggingar gullkortshafa.
17. janúar 1991 tilkynnti maðurinn
um veikindi sonar síns á ferðalagi í
Lúxemborg, framvísaði fólsuðum
læknisskýrslum og vottorði frá sjúkra-
húsi ytra og fölsuðu heilsufarsvottorði
læknis hér heima. Nú greiddi VÍS hon-
um 304 þúsund krónur í ferða- og
sjúkratryggingu. Hann lék sama leik-
inn hjá Tryggingastofhun ríkisins
vegna sama veikindatilfellis sonarins.
TR greiddi honum 228 þúsund krónur
sem erlendan sjúkrakostnað.
Aftur lék maðurinn sama leik gagn-
vart tveimur tryggingafélögum og
einnig gegn Tryggingastofnun ríkisins
vegna sama svikna tilfellisins. 11. sept-
ember lagði hann fram læknisvottorð
frá AUgemeines Krankenhaus í Aust-
urríki um nýmaaðgerð eiginkonu
sinnar. Hann framvísaði einnig fals-
aðri austurrískri lögregluskýrslu og
fölsuðu vottorði læknis sins hér heima
- hann vildi fá bætur vegna slyss og
sjúkrahúsvistar erlendis og veikinda-
frí í framhaldi af því.
Trygging hf. greiddi manninum nú
tæpar 87 þúsund krónur en Trygginga-
miðstöðin greiddi honum 49 þúsund á
grundvelli ferðatryggingar Visa.
Tryggingastofnun rikisins greiddi síð-
an manninum 275 þúsund krónur
vegna erlends sjúkrakostnaðar.
Að síðustu er maðurinn ákærður
fyrir að hafa krafið TR um greiðslu
sjúkrakostnaðar á grundvelh falsaðs
vottorðs frá General Hospital og
Clearwater um eigin sjúkrahúsvist þar
og eftirlits læknis. Á grundvelli þess-
ara gagna og fleiri greiddi Trygginga-
stofnun ríkisins manninum 406 þús-
und krónur. -Ótt
■ifT Sí ra g 3
Gott flugveöur hefur veriö undanfarna daga þrátt fyrir aö nú sé hávetur, samkvæmt dagbókum landsmanna. Ljós-
myndari DV tók þessa mynd á Reykjavíkurflugvelli í blíöunni þar sem verið var búa smávéi til flugtaks, líkt og á vor-
degi. Snjórinn hefur veriö kveöinn burt, í bili aö minnsta kosti. DV-mynd ÞÖK
Gagnvirk miðlun hf. kynnir:
Gagnvirkt, staf-
rænt sjónvarpsnet
- fyrstu heimilin tengjast netinu á þessu ári
Gagnvirk miðlun hf. hefur hafið
undirbúning á stafrænu sjónvarps-
neti og gera eigendur ráð fyrir að
fyrstu heimilin geti tengst netinu á
þessu ári. Með gagnvirku, stafrænu
sjónvarpsneti er verið að leiða sam-
an íslenska ljósvakamiðla, fjar-
skiptafyrirtæki, eigendur flutnings-
réttar og aðra hagsmunaaðila,
ásamt íslenskum heimilum um land
aflt.
Stafræna sjónvarpsnetið gerir
landsmönnum kleift að taka á móti
öllum útsendingum útvarps og sjón-
varpsstöðva, panta myndefni til að
skoða eftir hentugleikum, stunda
flamám, auk þess að geta sinnt sín-
um innkaupum og bankaviðskipt-
um heima fyrir. Um er að ræöa risa-
stórt skref í þróun upplýsingamiðl-
unar hér á landi.
Forsvarsmenn Gagnvirkrar miölunar kynna sjónvarpsnetið. DV-mynd Teitur
Enginn kostnaður fyrir not-
endur
Ætlunin er að nýta þær flutnings-
leiðir sem fyrir eru en uppsetning
Stafræna sjónvarpsnetsins mun
kosta um 2,6 milljarða króna en þar
sem verð á búnaði til sliks reksturs
fer stöðugt lækkandi má gera ráð
fyrir að talan lækki með tímanum.
Sjónvarpsnetið mun ekki kosta not-
endur neitt því ekki er nauðsyn aö
fjárfesta í nýjum viðtækjum.
í samtali við Ágúst Ólafsson, tals-
mann Gagnvirkrar miðlunar, er
mikill áhugi fyrir þessu en undan-
fama daga hafa fulltrúar fyrirtækis-
ins kynnt áætlunina fyrir stjóm-
völdum, fjarskiptafyrirtækjum og
hluta af þeim sem hag hafa af því að
notfæra sér þetta nýja gagnvirka
dreifikerfi. Auk þess sagði Ágúst að
kosturinn væri að Gagnvirk miðlun
hf. er óháður aðili og um enga sam-
keppni aö ræða.
Auk þess sem að framan hefur
verið nefnt mun netið bjóða upp á
gagnvirk samskipti eins og þátta-
sölusjónvarp (Pay-per-view),
myndefhisveitu (Video-on-demand),
internetaðgang og tölvupóstþjón-
ustu, staðbundið uppýsingasjón-
varp, bankaviðskipti og netverslun,
auk fjölda tækifæra fyrir kennslu-
sjónvarp og fjamám.
Öflugir fjárfestar standa að Gagn-
virkri miðlun hf. og er fyrirhugað
að bjóða öðmm aðilum eignarþátt-
töku. Verkefnisstjóri við uppbygg-
ingu Stafræna sjónvarpsnetsins er
Jón Þóroddur Jónsson, fyrrverandi
yfirverkfræðingur Landssímans.
-hól
Tinaátúr
Ragnheiður Hanson, sem getið
hefur sér gott orð við að flytja inn
hljómsveitir, er ekki af
baki dottin þrátt fyrir áfallið í
fyrra þegar Rolling
Stones mættu ekki í
Sundahöfn. Nú mun
horft til þess að
Mick Jagger og fé-
lagar komi til ís-
lands árið 2001.
Gömlu jálkarnir
eru nú í hvíld eft-
ir að tveggja ára
heimsreisu lauk
en nú er talið fullvíst að þeir vilji
toppa ferilinn með þvi að fara á
túr á nýrri öld. En það er fleira í
pípum Ragnheiðar. Nú er þreifað á
Tinu Turner um að koma til ís-
lands í sumar en sú gamla stefnir
á túr. Reyndar er einnig til skoð-
unar að U2 komi eða jafnvel
Metallica. Ragnheiður er sem sagt
á fullri ferð....
Jólasaga
Sýslumaður ísfirðinga og Sto-
nes-aðdáandi númer 1, Ólafur
Helgi Kjartansson hélt þeim sið
sínum í ár að skrifa jólasmásögu. í
ár kvað þó við nýj-
an tón því sagan
var byggð á lífs-
reynslu og heitir
Rokk og ról um jól.
Þar fjallar hann
um Lísu nokkra
sem flytur inn
hljómsveitir og
verður harka-
lega fyrir barðinu
á fjölmiðlum þegar Rofling Stones
mæta ekki. Þama fjallar sýslumað-
ur um Ragnheiði Hanson og
vonda fjölmiðla sem segja svart
vera hvítt. Gárungar segja að
þarna sé sýslumaður að setja góð-
látlega ofan í við Finnboga Her-
mannsson, fréttamann Ríkisút-
varpsins á ísafirði, sem Qallaði
nokkuð um skyndilega komu
Mick Jaggers til ísafjarðar...
Fyndinn...
Lúðvík Bergvinsson, hefur
; stimplað sig inn sem hugsanleg-
| ur frambjóðandi til formanns
Samfylkingarinnar. Flestum er
enn minnisstæð
umdeild knatt-
spymuferð Lúð-
víks og félaga til
Færeyja i sumar
en Lúðvík hefur
sjaldan eða aldrei
lent i jafh miklu
klandri vegna
umræðunnar
sem kom upp og
því telja menn tæpt að Lúð-
vik geti orðið formaður. Þegar
ónefndur útfararstjóri i Reykja-
vík, sá viðtal við Lúðvik um
hugsanlegt framboð hans, gall í
honum: „Og ég sem hélt að það
væri búið að velja fyndnasta
mann ársins!“...
Símanúmer í arf
Ef að hringt er í hið gamla núm-
er Þjóðviljans (55)17500 í dag árið
2000 svarar símsvari Alþýðubanda-
lagsins og kemur á framfæri skila-
boöum frá Alþýðu-
bandalaginu og
Samfylkingunni.
Jafnvel símalinan
er óslitin. Það er
því ekki ónýtur
heimanmundur
sem Alþýðu-
bandalagið hefur
með sér í sam- ________
fylkingarsambúðina meðAf'
þýðuflokknum: tugir milljóna í
skuldir og simanúmer Þjóðviljans.
En liðsmenn Alþýðubandalagsins
eru reyndar fæstir hluti af ráða-
hagnum. Þeir eru flestir skuldlaus-
ir í flokki Vinstri grænna Stein-
gríms J. Sigfússonar...
Umsjón: Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is