Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 XD"V I fréttir Harðir dómar um búskaparhætti að Ármótum í Rangárvallahreppi: Umdeilt bú á bláþræði - eigandinn vísar ásökunum um vanrækslu á bug Pau vandamál sem hafa veriö í gangi aö Ármótum í Rangárvallasýslu hafa fyrst og fremst snúist um langvarandi vanhirðu á hrossum. Pessi mynd er tekin af útigangshrossum í Borgarfirði, sem búa sýnilega viö góöan kost. DV-mynd GVA Harðvítug málaferli virðast vera í uppsiglingu í framhaldi af aflífun 45 hrossa að Ármótum í Rangárvalla- hreppi fyrr í mánuðinum. Að sögn sýslumannsembættisins á Hvolsvelli verður málið gegn Þorkeli Steinari Ellertssyni, eiganda jarðarinnar og hrossanna, rekið eins og venjulegt sakamál hjá lögreglunni. Rannsókn stendur nú yfir á því hvort hann hef- ur gerst brotlegur við lög um búfjár- hald og dýravemdarlög. Þorkell Stein- ar hyggst leita réttar sins fyrir dóm- stólum. Hann telur að sýslumanns- embættið á Hvolsvelli og yfirdýra- læknisembættið hafi beitt hann „vald- níðslu," auk þess sem unnin hafi ver- ið „oiheldisgjörðir og níðingsverk“ gagnvari honum og dýrunum sem lóg- að var. Þorkell Steinar hefur átt jörðina Ármót í á annan áratug. í fyrstu var bústofn og umfang búskapar innan þeirra marka sem geta talist venjuleg. Svo fór eigandinn að færa út kviam- ar. Hrossum á jörðinni fjölgaði jafnt og þétt, rekið var stórt kúabú með 65-70 mjólkandi kúm og loks var farið af stað með kjúklingaeldi. Bústjórar og vinnufólk sá að mestu um búskap- inn og allt lék í lyndi. Hundar og tik- ur gengu saman og fjölguðu sér. Af- koman var seld nokkuð jafnóðum. Að sögn fólks sem þekkir vel til hef- ur búskapurinn að Ármótum gengið þar til í fyrravor, að verulega fór að síga á ógæfuhliðina. Eigandi jarðar- innar hefur raunar búið að mestu í Reykjavík. Hann er kennari við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti, en hefur haldið vinnufólk að Ármótum eins og áður sagði. Mjólkurframleiðslu hefur nú verið hætt, að sögn Þorkels Stein- ars, sem kveðst vera að draga saman seglin í nautgripabúskapnum. Þá var kjúklingaræktunin flutt frá Ármótum til tveggja annarra staða og síðan hætt. Hundahaldið hefur hins vegar verið í fullum gangi, svo og hrossabú- skapur. Raunar var það svo að vorið 1999 stöðvuðu dýralæknar sölu mjólkur úr tjósinu á Ármótum í 4 vikur eftir áminningu og fresti frá árinu 1998. Ástæðan var skortur á þrifnaði og hreinlæti. Þá voru flórar lélegir og tal- in hætta á að gripir færu niður úr þeim. Undir þeim var mykjuhús. í kjölfar stöðvunar mjólkursölu lagðist mjólkurframleiðsla að Ármótum nið- ur. Ömurlegar lýsingar Hart hefur verið tekist á um rétt- mæti þess að lóga hrossunum að Ár- mótum. Þorkell Steinar telur sig geta fært fram rök fyrir því að héraðsdýra- lækni og fulltrúa sýslumanns hafi orðið á i messunni. Þau hross sem drepin hafi verið hafi verið búin að vera á gjöf í þrjár vikur. Þar til skip- aður fóðureftirlitsmaður hafi vottað að hrossin hafi „fengið hey, vatn og skjól með vel viðunandi hætti“. í bréfi héraðsdýralæknis til Þorkels Steinars er lýsing á skoðunarferð dýralæknisins ásamt forðagæslu- manni og fulltrúa Búnaðarsambands Suðurlands að Ármótum sl. aðfanga- dag. „Heimahross reikuðu um stykki, fennt er í skurði og svell á túnum. Mjög mörg hross eru rýr, sum hver hálf reisa og þrjú lágu dauð innan um hrossin, tel ég líklegt að hor hafl ver- ið aðal dauðaorsök. ... Áberandi var hvað ungu hrossin voru illa á sig komin, svo og eldri fylsugur. ... Lítið folald lá bjarglaust á svelli, við reist- um það við, eftir smástund var það lagst aftur og hafði þá ekki þrótt til að standa upp. Ég skipaði fóðureftirlits- manni að lóga vesalingnum, enda var það svo mergsogið að það hefði dáið drottni sínum þá um nóttina." Þá kom fram að nokkrir graðhestar hafi verið í stóðinu. Hluti þeirra hrossa sem lógað var voru siðgotung- ar. Þorkell Steinar gagnrýnir að dýra- læknirinn hafi ekki tekið sýni úr dauðu hrossunum. Hann fór sjálfur með folaldsskrokk í rannsókn að Keldum. Kom í ljós að salmonella greindist í hræinu. Fréttaljós Jóhanna S. Sigþórsdóttir og Haukur L. Hauksson Uppnöguö jörö Ársæll Jónsson forðagæslumaður segir að jörðin Ármót hafl verið upp- nöguð seinni part sumars og sé þannig núna. Draga þurfi mikið úr beit og hólfa landið niður svo það nái að jafna sig. „Þetta hefði ekki fariö svona ef Þorkell Steinar hefði brugð- ist við eins og hann var beðinn um 1 haust. Þá hefði þurft að taka trippi og kálfa inn á gjöf en taka hrossin strax úr högum Ármóts og setja á betra beitiland." Þorkell Steinar var raunar með tvær landspildur á leigu, eins og kom- ið hefur fram. Hann hefur framvísað vottorði frá Ólafi Dýrmundssyni land- nýtingarráðunaut, sem tók út aðra spilduna og mat hana í hæsta flokki. En það segir ekki alla söguna. Forða- gæslumaðurinn segir að farið hafi verið með hrossin á leigulandið um mánaðamótin október-nóvember, en þá átti eigandinn að vera búinn að taka þau af því samkvæmt leigusamn- ingi. Þegar leið nær jólum gerði harð- indakafla, þannig að jarðbönn urðu. Þá voru hrossin á leigulandinu þar til rétt fyrir fyrir jól. Það vinnufólk sem hefur verið á Ármótum ber Þorkeli Steinari mis- jafnlega söguna. Birkir Tómasson, Móeiðarhvoli, sem annaðist hrossin veturinn 1997-1998, vottar að þá hafi þeim verið gefnar að meðaltali 26 heyrúllur annan hvern dag, þannig að fóðrun hafi verið í góðu lagi. Þórarinn Geir Gunnarsson, sem var bústjóri á Ármótum frá vori 1998 til 15. desem- ber sama ár, gagnrýnir hirðuleysi og slæman aöbúnaö á skepnum. Hann segir að þá hafi verið búið að rifa upp gamla steinbita í gólfi hluta fjóssins til að betrumbæta þá. Hætt hafi verið við framkvæmdina í miðjum klíðum, þannig að 2-3ja metra gat hafi verið ofan í haughúsið. Þar hafi farið niður kálfar og stórt naut, sem verið hefði í fjósinu, hefði gufað upp og aldrei fundist. Þórarinn Geir segir að ein- hverju sinni, er hann hafi verið að taka mykju úr haughúsinu með haugsugu, hafi orðið fyrir harður köggull. Aðbúnaður á skepnum hefði verið slæmur og hið sama hefði átt við um aðbúnað vinnufólks. Vinnu- álag hefði verið óhóflegt, þar sem að- eins þrír einstaklingar hefðu verið til að sjá um búið. Kom, sá og kærði Þórarinn Geir kvaðst hafa komið að Ármótum sl. sumar. Eftir þá fór hefði hann kært aðbúnaðinn, bæði til dýralækna og lögreglunnar. Þá hefðu verið a.m.k. 25-30 hundar í viðbygg- ingu við íbúðarhúsið á öllum aldri, tíkur á lóðaríi, hundar og nýgotnar tíkur með hvolpa sína. Þess má geta að Hundaræktarfélag íslands hefur beðið sýslumannsembættið á Hvols- velli að afla upplýsinga um umönnun og aðbúnað hundanna á Ármótum. Lýsingar héraðsdýralæknis á aðbún- aði hundanna eru á þann veg að nokkrir hvolpar hafi verið lokaðir inni í litlum verkfæraskúr, „rúður brotnar, gólfið elgur af hundaskít, þvagi og vatni, niðurtætt rusl saman við. Fnykur af öllu ólýsanlegur. Engin fóðrunaraðstaða sást“. Fleiri hundar voru í viðbyggingu við hús og gangi íbúðarhúss. Uppákomur hafa orðið að Ármótum þar sem lögreglan hefur komið við sögu. Ekki verða þau mál öll talin upp hér, því um persónuleg og viðkvæm mál er að ræða. En önnur voru af öðr- um toga, t.a.m. þegar vinnukona hætti störfum á bænum. Þá varð að kalla til lögreglu vegna deilna um hver ætti hvaða reiðtygi, Þorkell Steinar og vinnukonan. Þá hefur lögregla þurft að fara ófáar ferðimar að Ármótum með stefnur og kærubréf. Eigandinn kveðst hins vegar ekki hafa séð nein- ar stefnur né kærur. Þorkell Steinar hefur, að sögn, selt talsvert af hrossum, einkum til Norð- urlanda. Nú er staðan sú að um 200 hross eru á búinu og tæplega 100 naut- gripir. Raunar standa vonir til að hægt sé að selja nautgripina. Sá sem hefur í hyggju að kaupa þá hirðir um þá nú og fóðrar á eigin heyjum. Er talið líklegt að kaupin nái fram að ganga finnist ekki frekari salmonella í búinu. Tveir aðrir sjá um að fóðra hrossin, annar gefur hrossum sem eru á húsi en hinn gefur útigangshrossunum. Loks fer tilsjónarmaður frá hreppnum daglega að Ármótum til að líta eftir að allar skepnur fái fóður. Ársæll Jóns- son forðagæslumaður segir að hey endist fram í aprílbyrjun sé miðað við að eingöngu hross verði fóðruð á því. Fóðrun hrossanna verður áfram und- ir eftirliti, að sögn yfirdýralæknis. Samband dýravemdunarfélaga hefur einnig fylgst með þróun mála að Ár- mótum frá því í febrúar 1999. Að sögn Sigríðar Ásgeirsdóttur formanns gerir sambandið kröfu til þess að eigandinn verði sviptur leyfi til að halda skepn- ur. gHgglgg Chiropractic tmlsudýnumar Svefnherbergishúsgögn Heilsukoddar Htiföardýnur Rúmteppasett Hágœða bónudkaiök Sœngur Scmgurver Inmpar Speglar jAvík - akúj^ Listhúsinu Laugardal, sími 581 2233 • Dalsbraut 1, Akureyri, sími 461 1150 • www.svefnogheilsa.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.