Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Page 12
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 DV
» útlönd
Karlheinz Schreiber, maðurinn sem lét kristilega demókrata fá milljónir:
Karlheinz Schreiber og eiginkona hans Barbara yfirgefa dómhús f Toronto í
Kanada þar sem Schreiber hefur haldiö til undanfarna mánuöi. Þýskir sak-
sóknarar vilja ræöa viö hann um fjármálasukk Helmuts Kohls og fleira.
Miðlínur á malbikiö
Schreiber fæddist í Hitlers-Þýska-
landi fyrir 65 árum. Á sjötta ára-
tugnum fór hann að viðra sig upp
við stjórnmálamenn þegar hann
reyndi að krækja sér í samninga
um að mála hvítar miðlínur á vegi
landsins. Fyrstu viðskiptin sem
hann lagði hins vegar stund á voru
kaup og sala á persneskum teppum.
Schreiber er enginn nýgræöingur
Helmut Kohl, fyrrum Þýskalandskanslari, er á leiö út úr þýskum stjórnmál-
um með skömm. Hann neitar aö uppiýsa fjármálahneyksli sem hefur skekiö
flokkinn hans, kristilega demókrata.
Karlheinz Schreiber hefur engar
áhyggjur. Maðurinn, sem hefur við-
urkennt að hafa afhent útsendurum
Helmuts Kohls, fyrrum Þýska-
landskanslara, umslag fuOt af pen-
ingum á veitingastað i Sviss segir
að hið rétta muni koma í ljós áður
en yfir lýkur.
Hann sé ekki hugsuðurinn að
baki pólitískrar spiOingar innan
KristOega demókrataflokksins í
Þýskalandi heldur fórnarlamb
hennar. Fyrrum félagar hans hafi
svikið hann, blaðamenn hafi rægt
hann og óprúttnir stjórnmálamenn
og saksóknarar hafi misnotað hann.
KristUegi demókrataflokkurinn
(CDU) hefur sokkið æ dýpra í fen
fjármálasukks frá því Helmut Kohl
viðurkenndi í síðasta mánuði að
hafa tekið við tugum miUjóna króna
í ólöglegum fjárframlögum til
flokksins og komið þeim fyrir á
leynireikningum sem hann stjóm-
aði. Til að bæta gráu ofan á svart
hefur Kohl staðfastiega neitað að
segja hverjir hafl látið hann hafa
peningana. Skiptir þá engu þótt
honum hafl verið hótað fangelsi og
þótt hann hafi orðið að segja af sér
embætti heiðursformanns kristi-
legra. „Ég svík ekki gefin loforð,"
sagði hann í vikunni.
Kohl ekki einn á báti
„Það sem ég skU ekki er hvers
vegna hann lét peningana ekki fyrst
fara inn á opinbera reikninga og
síðan inn á leynireikningana,"
sagði Schreiber um Kohl í viðtali
við bandaríska blaðið New York
Times á dögunum. Schreiber er nú í
Kanada og berst þar gegn framsals-
kröfu þýskra saksóknara.
En Kohl er ekki eini háttsetti
kristUegi demókratinn sem hefur
tekið við ólöglegum fjárframlögum.
Eftirmaður hans í embætti for-
manns CDU, Wolfgang Schauble,
hefur einnig viðurkennt að hafa
móttekiö háar fjárhæðir sem ekki
var gerð grein fyrir. Þá viðurkenndi
fyrrum innanríkisráðherra í stjóm
Kohls, Manfred Kanther, fyrir síð-
ustu helgi að flokksdeUdin í Hessen,
þar sem hann var í forystu, hefði á
níunda áratugnum sukkað með
miklar fjárhæðir mUli reikninga í
Sviss og Þýskalandi. Kanther sagði
af sér þingmennsku í kjölfarið en
Scháuble situr sem fastast, að
beiðni yfirstjómar flokksins, þeirr-
ar sömu og þvingaði Kohl úr emb-
ætti heiðursformannsins síðastiið-
inn þriðjudag.
Peningar til barna Strauss
Rannsókn á meintum skattsvik-
um Karlheinz Schreibers vakti
skyndilega mikla athygli á síðasta
Karlheinz Schreiber.
ári þegar rannsóknarmenn rákust á
nafnið Strauss í skjölum hans.
Schreiber, sem er vopnasali og
kaupsýslumaður, á að hafa látið há-
ar fjárhæðir renna tU Max Franz og
Moniku Strauss, barna Franz Josefs
Strauss, forsætisráðherra Bæjara-
lands og einhvers áhrifamesta
stjómmálamanns Þýskalands, sem
lést árið 1988. Monika Strauss gegn-
ir í dag embætti kennslumálaráð-
herra Bæjaralands.
Ákæruvaldið í Augsburg hafði
rannsakað skattamál Schreibers í
fjögur ár. Hann var grunaður um að
hafa skotið sem svarar tæpum hálf-
um öðrum miUjarði íslenskra króna
undan skatti, peningum sem hann
fékk í umboðslaun fyrir sölu á Air-
bus flugvélum, þyrlum og stríðs-
vögnum.
Peningarnir sem fóru tU Strauss
bamanna, að minnsta kosti til Max,
eru sagðir hafa komið úr þeim potti.
Schreiber hafði á sínum tíma náið
samband við Franz Josef Strauss.
Ekki óhultur í Sviss
Schreiber er grunaður um að
hafa borið fé á stjómmálamenn,
embættismenn og forstjóra og að
hafa greitt mútufé tU að tryggja að
viðskiptin sem hann átti í gengju
snurðulaust fyrir sig.
Schreiber þóttist óhultur heima
hjá sér í Sviss þangað sem hann
hafði flutt frá bænum Kaufering
skammt frá Augsburg. Svissnesk
stjómvöld framselja jú ekki þá sem
eru ákærðir fyrir skattsvik. Þýski
ríkissaksóknarinn Reinhard Nem-
etz fékk hins vegar útgefna nýja
handtökuskipun vegna mútu-
greiðslna. Það var í maí á síðasta
ári. Schreiber sá því sæng sína upp
reidda og hafði sig þegar í stað á
brott og hélt tU Kanada. Þar hafði
hann áður stundað margvlsleg við-
skipti, meðal annars fyrir Thyssen-
samsteypuna.
í septemberbyrjun var Schreiber
handtekinn og stungið í steininn í
Kanada. Hann var þó fljótiega lát-
inn laus aftur gegn tryggingu.
Kanadísk stjómvöld hafa til þessa
ekki vUjað framselja hann tU Þýska-
lands en hann hefur aftur á móti
verið yfirheyrður um skattamálin.
í pólitískum hneykslismálum hand-
an Atlantshafsins. Ekki löngu eftir
að Schreiber stofnaði útibú frá
þýsku verktakafyrirtæki sínu í
Kanada var hann sakaður um að
hafa nýtt sér innherjaupplýsingar
frá stjórnmálamanni sem sat í
stjóm fyrirtækisins til að græða vel
á fasteignamarkaðinum í Alberta á
áttunda áratugnum. Málið var rann-
sakað og Schreiber var hreinsaður
af öUum áburði.
Peningarnir fundust ekki
Schreiber komst aftur í sviðsljós-
ið fyrir fimm árum í Kanada þegar
hann var ásakaður um að hafa
greitt miUjónir doUara tU Brians
Mulroneys, fyrrum forsætisráð-
herra, fyrir aðstoð við að selja
kanadíska Uugfélaginu Air Canada
Airbus farþegaþotur á níunda ára-
tugnum. Ásakanimar komu fram í
leynUegri beiðni kanadisku riddara-
lögreglunnar tU svissneskra yfir-
valda um upplýsingar um leynileg-
an bankareikning sem gmnur lék á
að stofnaður hefði verið fyrir Mul-
roney. Peningamir fundust aldrei
og kanadíska ríkisstjórnin neyddist
til að biðja Mulroney afsökunar og
greiða svimandi háa reikninga frá
lögmönnum hans.
Það þykir til marks um hæfileika
Schreibers að atia sér vina í áhrifa-
stöðum að tveir fyrrum ráðherrar í
stjórn Kanada lögðu tU mestan
hluta þess fjár sem þurfti tU að fá
hann leystan úr haldi gegn trygg-
ingu í september síðastiiðnum.
„Undir niðri er Karlheinz heiðar-
legur og ærlegur maður,“ segir El-
mer MacKay sem átti sæti í stjóm
Mulroneys.
Kanadíska
riddaralögreglan
hafði reitt sig á
dagbækur og
önnur gögn sem
gerð voru upp-
tæk á heimili
Schreibers og
skrifstofu í Bæj-
aralandi árið
1995. Þá byggði
kanadíska lög-
reglan og ásakanir sínar á fram-
burði svissneska endurskoðandans
Georgios Pelossis, fyrrum viðskipta-
félaga Schreibers. Upp á vinskap
þeirra slettist árið 1991.
Pelossi hafði greint þýskum sak-
sóknurum frá því að Schreiber
hefði þegið og þrjá og hálfan mitij-
arð króna í umboðslaun frá Airbus
flugvélaverksmiðjunum og tveimur
þýskum hergagnafyrirtækjum. Að
sögn Pelossis fóru peningamir í
gegn um gervifyrirtæki með aðsetur
í dvergríkinu Liechtenstein.
Wolfgang Schauble, leiðtogi kristi-
legra demókrata, hefur einnig tekiö
við fé fyrir flokkinn frá Schreiber.
Pólitískur leikur
„Ég er viss um að hann borgaði
eitthvað," segir Pelossi og á þar við
mútugreiðslur tU kanadískra eða
þýskra embættismanna.
„Alger fásinna," segir Schreiber
sjálfur um ásakanimar. „Þetta er
pólitiskur leikur.“
í síðustu viku lét hann að því
liggja í viðtali við þýska sjónvarps-
stöð að ýmislegt fleira misjafnt ætti
eftir að koma upp á yfirborðið og að
það myndi aðeins verða tU þess að
skaða Þýskaland. Aðrir flokkar hafa
einnig þegið gjafir af Schreiber, þótt
í minni mæli sé, jafnaðarmanna-
flokkur Gerhards
Schröders kanslara
og þó einkum CSU,
systurflokkur
kristUegra
demókrata í Bæj-
aralandi, flokkur
áðurnefnds Franz
Josefs Strauss.
Schreiber vísar
því alfarið á bug að
hann hafi mútað
nokkrum manni.
Þá segir hann að miUjónimar þrjá-
tíu, og rúmlega það, sem hann
greiddi tU kristUegra demókrata
séu ekki frá honum einum komnar
heldur einnig frá hópi vina hans og
viðskiptafélaga sem vUja ekki að
nöfn þeirra verði gerð opinber.
„Það varð að eins konar hefð að
maður gerði ekki grein fyrir pen-
ingunum sem maður gaf þeim,“ seg-
ir Karlheinz Schreiber.
Byggt á Washington Post,
Jyllands-Posten, New York
Times og Reuter
Erlent
imF'
sBr f
Fórnarlamb pólitískrar
spillingar í Þýskalandi