Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 DV TKV *£W i Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON Aðstoöarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT111, 105 RV(K, SIMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viömælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim. Það geríst ekki hér Fáir hefðu trúað fullyrðingum fyrir þremur mánuðum um, að landsfaðir Þýzkalands í sextán ár, 1982-1998, per- sónugervingur trausts manna á þýzka markinu og þýzku efnahagslífi, sjálfur Helmut Kohl, væri sekur um athæfi, sem getur kostað hann fimm ára fangelsi. Nú er svo komið, að annan hvem dag birtast nýjar upplýsingar um stórfellt fjármálamisferli Kohls og helztu samstarfsmanna hans á sextán ára valdatíma. Þær snú- ast um mútur og þakkargreiðslur vopnasala og stóriðju- manna til frammámanna kristilegra demókrata. Wolfgang Hullen, formaður fjármálanefndar þing- flokksins, hefur framið sjálfsvíg. Manfred Kanther, fyrr- um innanríkisráðherra, hefur sagt af sér þingmennsku. Wolfgang Scháuble, arftaki Kohls sem formaður flokks- ins, hefur beðizt afsökunar í þýzka þinginu. Þingið hóf í fyrradag umfangsmikla rannsókn á pen- ingaþvotti, leynisjóðum og mútugreiðslum á vegum kristilegra demókrata. Búizt er við, að rannsóknin taki allt að tveimur árum. Áður var hafin venjuleg lögreglu- rannsókn á trúnaðarbresti Helmuts Kohl. Lítill vafi er á, að sextán ára ríkisstjórn Helmuts Kohl var til sölu. Vopnasalar á borð við Karlheinz Schreiber og stóriðjuhringir á borð við Elf-Aquitaine gátu keypt þjónustu hennar með peningum, sem notaðir voru til að halda úti starfi flokks kristilegra demókrata. Talin er hætta á, að fyrir flokki kristilegra demókrata í Þýzkalandi fari eins og samnefndum flokki á Ítalíu, sem leystist upp í frumeindir og hvarf, þegar saksóknarar ríkisins fóru að beina spjótum sínum að spillingu hans og samböndum við hættulegustu glæpaöfl landsins. Mál Helmuts Kohl hefur verið að vinda upp á sig í tvo mánuði. Það hefur orðið landi og þjóð að tímabundnum álitshnekki, en mun til lengdar sýna fram á, að stjórn- kerfi landsins malar örugglega, þótt það mali hægt. Þjóð- verjar hafa burði til að moka sinn pólitíska flór. Svipaðar hundahreinsanir hafa átt sér stað víða um Vestur-Evrópu. Öllum er kunnur uppskurðurinn á ítölskum stjórnmálum og fall valdamikilla stjórnmála- manna á Spáni og í Belgíu, þar sem fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins hrundi. Mikilsverðasta dæmið um opnun leyndardóma evr- ópskra stjórnmála var afsögn allra ráðherra Evrópusam- bandsins á síðasta ári vegna misferlis með peninga, ann- arra afglapa og aðgæzluleysis í starfi. Vestrænt lýðræði sigrast smám saman á misnotkun pólitísks valds. Allar hljóta þetta að vera undarlegar fréttir norður í bananalýðveldinu íslandi, þar sem ekki eru einu sinni lög á borð við þau, sem Helmut Kohl braut og stökktu Bettino Craxi úr landi. Hér segja menn bara eins og Kohl „treystið mér“ og komast léttilega upp með það. Óhætt mun vera að fullyrða, að atburðir á borð við þá, sem hafa verið að gerast í Þýzkalandi, munu ekki gerast á íslandi í náinni framtíð, ekki af því að íslenzkir stjórn- málamenn taki Helmut Kohl fram að siðgæði, heldur af því að lýðræðislegt aðhald virkar ekki hér á landi. Hér komast fjármálastjórar stórfyrirtækja upp með yf- irlýsingar um lítinn og engan stuðning þeirra við stjóm- málaflokka án þess að nokkur tilraun sé gerð til að prófa innra sannleiksgildi þeirra eða hvort verið sé að snúa út úr sannleikanum með orðalagi um formsatriði. Hér á landi er ekki til neitt opinbert ferli til að rann- saka, hvort innlend og erlend stórfyrirtæki geti keypt sér pólitíska hlýju, einkaleyfi og sértækar fyrirgreiðslur. Jónas Kristjánsson Pólitísk ímynd Ekkert hefur breytt þeim forsendum, sem flestir hafa gengið út frá síðasta árið: að repúblikaninn George W. Bush, ríkisstjóri í Texas, og demókratinn A1 Gore vara- forseti bítist um forsetaembættið í Bandaríkjunum í nóvember. Kosningabaráttan er nú að hefjast fyrir al- vöru með forkosningum í Iowa og New Hamshire. Full- yrða má að Bush sé eini frambjóðandi repúblikana sem eigi góða möguleika á sigri í forsetakosningunum. Efa- semdir hafa vissulega komið fram um hæfileika hans til að gegna forsetembættinu, enda hefur hann sýnt þekk- ingarskort í ýmsum málum. En öldungadeildarþingmað- urinn John McCain, sem hefur næstmest fylgi meðal repúblikana, er of sjálfstæður og óútreiknanlegur til að hljóta brautargengi „flokkseigendafélagsins" og lykil- stuðningshópa. Eina von hans er sú að hugsanlegur sigur í New Hamps- hire hafi keðjuverkanir í för með sér í öðrum forkosningnum. Aðrir fram- bjóðendur, eins og Alan Keyes, Steve Forbes, Gary Bauer, Pat Buchanan og Orrin Hatch, eru of langt til hægri til að geta hreppt útnefningu Repúblikanaflokksins. Staða varaforsetans Fyrir nokkrum mánuðum leit út fyrir að Bill Bradley, fyrrverandi öld- ungadeildarþingmaður frá New Jers- ey, gæti jafnvel gert út um drauma A1 Gores um að verða forsetaefni demókrata. En varaforsetinn náði að snúa vörn í sókn og er nú með mikið forskot á Bradley á landsvísu. Haim hefur tryggt sér stuðning helstu áhrifamanna í Demókrataflokknum auk þess sem hann reiðir sig á mjög öfluga kosningavél. Það sem gerir stöðu Gores svo sterka er að hann hefur þrjá mikilvæga kjósendahópa á bak við sig: félaga í verkalýðsfélögum, svertingja og demókrata í Suðurríkjunum. I Suðurríkj- unum er Bradley talinn of mikill vinstri demókrati og of nátengdur valdahópum sem kenndir eru við norðaustur- strönd Bandaríkjanna. Hann hefur auk þess ekkert að- dráttarafl meðal svertingja: Þeir líta á Gore sem sam- verkamann Clintons og það er tákn um styrkleika í þeim herbúðum. Enginn forseti frá dögum Lyndons B. Johnsons á 7. áratugnum hefur notið eins mikilla vin- sælda meðal svartra og Clinton. Stuðningur við Bradley er bundinn við norðausturströnd Banda- ríkjanna, einkum þrjá ólíka hópa: vinstri demókrata, hátekjufólk úr flokki demókrata og óflokksbundna kjósendur. Það er til marks um veik- leika Bradleys að Gore komst upp með að grafa undan honum frá vinstri þegar hann virtist vera farinn að ógna stöðu vara- forsetans fyrr í vetur. Gore rifjaði upp að Bradley hefði greitt at- kvæði með skattalækkun- um Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta í upp- hafl 9. áratugarins. Reynd- ar studdi Gore sjálfur til- lögu repúblikana um að breyta stjómarskránni á þann veg að þinginu yrði meinað að afreiða fjárlög með halla. Ef sú tillaga hefði náð fram að ganga árið 1986 hefði það án efa komið harðar niður á fé- lagslega kerfinu en niður- skurður Reagans. En Erlend tíðindi Valur Ingimundarson Bradley ákvað að leiða hjá sér árásir Gores á þeim for- sendum að þær væru ekki málefnalegar. Það er góðra gjalda vert að berjast gegn spillingu í Washington, segj- ast vilja endurskilgreina stjórnmálabaráttuna með því að einblína á stóru málin eins og almenna aðild að heil- brigðisþjónustunni og draga úr áhrifum sérhagsmuna með breytingum á fjármögnun kosninga. En það þarf að bíta frá sér þegar út í slaginn er komið og Bradley hef- ur fallið á því prófi. Um 16% Bandaríkjamanna hafa enga sjúkratryggingu. Það hefur lengi verið baráttumál demókrata að bæta úr því, eins og árangurslaus tilraun Clintons á fyrra kjörtimabili sinu bar vitni um. Þegar Bradley gerði aukið aðgengi að heilbrigðiskerfinu að einu helsta aðalstefnumáli sínu hefði hann getað notað sér það til framdráttar í kosningabar- áttunni. En tillögur hans voru of flókn- ar og vanhugsaðar tæknilega. Þetta vopn hefur því snúist í höndunum á Bradley með þeim afleiðingum að staða hans hefur veikst til muna. Inn á miðjuna Þótt Gore standi nú með pálmann i höndunum er alls ekki víst að aðferðir hans i baráttunni við Bradley komi sér vel í forsetakosningunum. Hann hefur lagt áherslu á að virkja grasrótina í Demókrataflokknum sem er lengra til vinstri en hinn almenni kjósandi. Það þýðir að hann verður að endurskapa ímynd sína í sjálfri kosningabarátt- unni til að laða að sér miðjufylgi. En það kann vel að vera að hann hafi þeg- ar fælt frá þá kjósendur sem eru á miðjunni eða hægra megin við hana en hvorki bundnir repúblikönum né demókrötum. Þetta varð tveimur fyrr- verandi frambjóðendum flokksins, þeim Walter Mondale og Michael Dukakis, að falli í kosningunum árið 1984 og 1988. Hér er um að ræða kjósendur sem kenndir eru við „Reagan-demókrata" vegna stuðnings þeirra við Reagan í forsetakosningunum 1984. Þeir sneru ekki til fylgis við demókrata fyrr en Clinton bauð sig fram. Stóra spurn- ingin er því sú hvort Gore nái að halda í „Reagan- demókrata" eða hvort þeir hverfi aftur í faðm repúblik- ana. Úrslit forsetakosninganna munu ráðast af þvi. I næstu viku hefjast forkosningar bandarísku flokkanna fyrir forsetakosningarnar i nóvember. Al Gore varaforseti hefur styrkt stöðu sína undanfariö meðal demókrata í baráttunni við Bill Bradley, fyrrverandi öldungadeildarþingmann. Hins vegar getur honum reynst erfitt aö endurskapa pólitíska ímynd sína sem miöju- manns f sjáifri kosningabaráttunni ef hann verður frambjóöandi demókrata. skoðanir annarra Kreppa Kohls og CDU „Það finnst áreiðanlega spilling í Þýskalandi og eng- inn skyldi sverja fyrir að eitthvað tilsvarandi gæti ekki einhvem tima gerst í Danmörku. Viö kjósum að veita því einkum athygli að í tilviki Kohls uppgötvaðist spill- ingin og pólitískar afleiðingar hennar hafa síðan verið um það bil óvefengjanlegar. Burtséð frá því hvaða flokki maður tilheyrir er erfitt að finna til annars en sorgar frammi fyrir að því er virðist óendanlegri kreppu þýska borgaraflokksins CDU og fyrrum leiðtoga hans, Helmuts Kohls. Kohl var í forystu fyrir samein- uöu Þýskalandi og hann, meira en nokkur annar, gerði Þýskaland að mikilvægum þætti i uppbyggingu nútíma- legs ESB.“ Úr forystugrein Aktuelt 20. janúar. Laumuspil með launin „Áður en við áfellumst franska atvinnurekendur fyrir laumuspil sitt vegna launanna sem þeir fá frá fýrirtækjunum sem þeir stjóma, verðum viö að muna eftir þvi að ekki eru nema fáeinig dagar síðan við fréttum aö sama leynd væri viðhöfð í sjálfu fjár- málaráðuneytinu. í raun er þama um að ræða sömu frönsku siðvenjuna, sambland fyrirlitningar og tor- tryggni í garð almenningsálitsins sem háaðallinn í bæði opinbera og einkageiranum deila.“ Úr forystugrein Libération 21. janúar. Kúgun í Malasíu „Forsætisráðherra Malasíu, sem lét fangelsa að- stoðarráðherra sinn sökum umdeildrar sakargiftar og tryggði síðan endurkjör stjómarflokks síns með því að beita fyrir sig jafn umdeildum lögum og að- ferðum, eflir nú andlýðræðislega herferð sína. I síð- ustu viku dró stjórn hans fyrir rétt ritstjóra stjóm- arandstöðublaðs, lögmann aðstoöarforsætisráðherr- ans, sem situr inni, og ýmsa aðra stjómarandstöðu- leiðtoga. Þeir voru ákærðir fyrir ýmiss konar upp- reisnaráróður, það er að segja fyrir að hafa gefið yf- irlýsingar sem Mahathir bin Mohama forsætisráð- herra féll ekki í geð.“ Úr foi'ystugrein Washington Post 18. janúar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.