Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Síða 18
18
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 TIV
fjölskyldumál
Vítamín fyrir ástina
„Hvað eigum við að gera til að
bæta sambandið heima? „ spurðu
hjón mig um daginn sem fannst
þau vera orðin leiðanum að bráð.
Við þessu er auðvitað ekkert eitt
svar til því við erum öll svo mis-
munandi. En mig langar til að
benda þeim og öðrum á nokkrar
leiðir til að „vítamínbæta" sam-
bandið, leiðir sem þið getið skoðað
yfir morgunkaffinu. Kannski eru
þær eitthvað fyrir ykkur. Hver
veit?
Húmor: Það er erfitt að elska
þann sem ekki er hægt að hlæja
með. Húmorinn er stór og mikil-
vægur hluti af sameiginlegri til-
veru okkar. Tökum ekki hvort ann-
að of alvarlega og hátíðlega . Sjáum
til þess aö húmorinn og leikurinn
fái næringu til þess að vaxa og
dafna.
Snerting: Að snerta hvort annað
mikið og oft styrkir sambandið.
Það er hægt að gefa af sér margar
hlýjar tilfinningar og mikla vænt-
umþykju með því að strjúka hvort
öðru, taka utan um hvort annað og
sýna hvort öðru blíðu án þess að
markmiðiö sé alltaf kynlíf. Þannig
opnast farvegur fyrir þær sterku
tilfinningar sem líkaminn býr yfir.
Snerting er þögul samskipti, hljóð
en hlý rödd er lendir ekki í þeim
gildrum sem orðin geta leitt okkur
i. Nú er það oft þannig að hlýjan og
innileikinn í snertingunni á það á
hættu aö hverfa eftir því sem árin
líða í sambandinu. Sumir strjúka
maka sínum á sama hátt eins og
maður strýkur hundinum sínum.
Með því að ákveða t.d. að upplifa
maka sinn upp á nýtt í gegnum
snertingu fingurgómanna einna er
hægt að opna fyrir nýjar leiðir og
endurnýjað samfélag.
***
„Augun mín og augun þín“. Hjón
sem eiga í baráttu forðast oft að
horfa hvort í augu annars. Þau
hafa hvorki kjark né mátt til að
mæta augnatilliti maka síns. En
þaö er líka hægt aö nota augna-
tillitið á jákvæðan hátt! Hvemig
væri til dæmis að búa til nýjan flöt
á ástarlífinu með því að segja ekk-
ert en taka utan um hvort annað og
horfa bara á hvort annað? Takið
þið bara eftir nýástfóngnu pörun-
um næst þegar þið farið út, t.d. að
borða á veitingahúsi. Tilfmning-
amar flæða fram og aftur á milli
augnanna, í þögninni. Og þetta er
list sem allir aldurshópar eiga sam-
eiginlega!
Samtal: Þögnin getur bæði verið
jákvæð og neikvæð. Það er sameig-
inlegt einkenni hjá flestum pörum
sem hafa lent í gildru vanans og
leiðans að þau segja: „Við erum
hætt að tala saman.“ Það er stað-
reynd að par sem viðheldur ástinni
talar mikið saman. Samtalið er fyr-
ir sambúðina eins og blóðið fyrir
líkamann. Án samtals getur sam-
búðin ekki lifað af, eins og líkam-
inn lifir ekki án blóðsins.
***
Kynlíf: Gott kynlíf er homsteinn-
inn í hverju sambandi. Kynlífið
getur viðhaldið sambandinu þó að
margt annað bregðist. Og á sama
hátt getur gott samband lent í erf-
iðleikum ef kynlífið dofnar. Það
eru líka margir sem nota rúmið til
að gera út um málin, svona rétt fyr-
ir svefninn. Afleiðingin verður sú
að kynlífinu hrakar, vandamálin
leysast ekki og andvökunætur
auka á erfiðleikana í sambúðinni.
Því ættu pör að reyna að sættast
fyrir nóttina í stað þess að breyta
Þórhallur Heimisson
hjónarúminu í dómsal.
Gjafir: Að gefa hvort öðru litlar
og stórar gjafir er ein aðferðin sem
nota má til að sýna að maður taki
eftir og sé að hugsa til maka síns.
Gjafir gefnar með jákvæðu hugar-
fari, sem tákn ástar og umhyggju,
styrkja sambandið og efla, sama
hversu árin verða mörg.
Það er hœgt að gefa
af sér margar hlýjar
tilfinningar og mikla
vœntumþykju með því
að strjúka hvort öðru,
taka utan um hvort
annað og sýna hvort
öðru blíðu án þess að
markmiðið sé alltaf
kynlíf
Tími: En umfram allt skulum við
gefa hvort öðru tíma. Því með því
að „gefa“ tíma látum við maka okk-
ar vita að það erum „við“ sem höf-
um forgang. Því oft er það tíminn
sem flýgur frá okkur með ástina í
farteskinu.
Qfimni breytingar
Myndimar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur er
að gáð kemur í ljós að á myndinni
til hægri hefúr funm atriðum ver-
iö breytt.
Finnir þú
þessi
fimm at-
riði
skaltu
merkja
við þau
með
krossi á
myndinni til hægri og senda okk-
ur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigur-
vegaranna.
1
1. verðlaun:
United-sími með
símanúmerabirti frá
Sjónvarpsmiöstöðinni,
Sfðumúla 2,
að verömæti kr. 6.990.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti
kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og
Kólibrísúpan eftir David Parry og
Patrick Withrow.
Vinningarnir veróa sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm
breytingar? 549
c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík
Finnur þú fimm breytingar? 549
BRETLAND
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Tom Clancy: Rainbow Six.
2. Danielle Steel: The Klone and I.
3. Dick Francis: Field of Thirteen.
4. Ruth Rendell: A Sight for Sore
Eyes.
5. Sebastian Faulks: Charlotte Grey.
6. James Patterson: When the Wind
Blows,
7. Elvi Rhodes: Spring Music.
8. Charlotte Bingham: The Kissing
Garden.
9. Nicholas Evans: The Loop.
10. Jane Green: Mr Maybe.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Amanda Foreman: Georgina,
Duchess of Devonshire.
2. Chris Stewart: Driving over
Lemons.
3. Tony Adams o.fl.: Addicted.
4. Anthony Beevor: Stalingrad.
5. Frank McCourt: Angela's Ashes.
6. Bill Bryson: Notes from a Small
Island.
7. John Gray: Men Are from Mars,
Women Are from Venus.
8. Richard Branson: Losing My
Virginity.
9. Simon Winchester: The Surgeon
of Crowthorne.
10. Tony Hawks: Around Ireland with
a Fridge.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Dick Francis: Second Wind.
2. Thomas Harrls: Hannibal.
3. Danielle Steel: Granny Dan.
4. Roddy Doyle: A Star Called Henry.
5. Penny Vincenzi: Almost a Crime.
6. Ruth Rendell: Harm Done.
7. lain Banks: The Business.
8. Jill Cooper: Score!
9. Kathy Reichs: Death Du Jour.
10. Elizabeth George: In Pursuit of
the Proper Sinner.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. Alex Ferguson: Managing My Life.
2. John Humphrys: Devil's Advocate.
3. Simon Singh: The Code Book.
4. Bob Howitt: Graham Henry;
Supercoach.
5. Brian Keenan o.fl.: Between
Extremes.
6. Lenny McLean: The Guv'nor.
( Byggt á The Sunday Times)
BANDARÍKIN
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Anita Shreve: The Pilot's Wife.
2. Tom Clancy: Rainbow Six.
3. Penelope Fitzgerald: The Blue
Rower.
4. Arthur Golden: Memoirs of a
Geisha.
5 Judy Blume: Summer Sisters.
6. Patricla Cornwell: Point of Origin.
7. Rebecca Wells: Divine Secrets of
the Ya-Ya Sisterhood.
8. Margaret Truman: Murder at
Watergate.
9. Sidney Sheldon: Tell Me Your
Dreams.
10. Tami Hoag: Still Waters.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Robert C. Atklns: Dr. Atkins' New
Diet Revolution.
2. Frank McCourt: Angela's Ashes.
3. John Berendt: Midnight In the
Garden of Good and Evil.
4. Michael R. Eades o.fl.: Protein
Power.
5. John E. Sarno: Healing Back Pain.
6. Jared Diamond: Guns, Germs and
Steel.
7. Sebastian Junger: The Perfect
Storm.
8. Adeline Yen Mah: Falling Leaves
9. Willlam L. Ury: Getting Past No.
10. Gary Zukav: The Seat of the
Soul.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Patricia Cornwell: Black Notice
2. Thomas Harris: Hannibal.
3. Meilssa Bank: The Girl's Guide to
Hunting and Rshing
4. Jeffery Deaver: The Devil's
Teardrop.
5. Tim F. LaHaye: Assasins.
6. Catherine Coulter: The Edge.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. Suzanne Somers: Suzanne
Somers'Get Skinny on Fabulous
Food.
2. Mitch Albom: Tuesdays with
Morrie.
3. Christopher Andersen: Bill and
Hillary: The Marriage.
4. Blll Phillps: Body for Life.
5. H. Leighton Steward o.fl: Sugar
Busters.
6. Sally Bedell Smlth: Diana, in
Search of Herself.
(Byggt ð The Washlngton Post)