Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Síða 23
JLj\- LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 iflháloftunum * www.evropa.is legur maður sem var einnig sterk- efnaður og naut umtalsverðrar kvenhylli. Þegar hann var orðinn þekktur fyrir dirfsku sína í loftinu varð vinsælt að læra til flugs hjá honum. Það var síðan í nóvember 1916 að þekkt samkvæmisdama í New York, frú Polk, ákvað að læra að fljúga hjá meistara Sperry. Sperry var þá nýlega búinn að flnna upp sjálfstýringu fyrir flugvélar (autopilot) og í einum flugtímanum með frú Polk var hann einmitt að reyna þann búnað á flugvél sinni. Eitthvað bilaði og flugvélin sveif til jarðar og steyptist í sjóinn rétt við borgarmörkin. Sperry og frú Polk sluppu ómeidd en það vakti athygli björgunarmanna að þau voru bæði allsnakin þegar vélin lenti í sjónum. Þó hvorugt þeirra vildi skýra kring- umstæður þessar nánar tókst mönn- um að leggja saman tvo og tvo og skildu nú mun betur til hvers Sperry hafði fundið upp sjálfstýr- inguna. Þó menn viðurkenni Sperry sem brautryðjanda á þessu sviði ef- ast margir um að hann hafi verið í tilskilinni hæð í nóvember 1916 en látum það kyrrt liggja. Sperry hrapaði í Ermarsund og lést árið 1923 tæplega þrítugur að aldri. Þegar hann lést voru 24 einka- leyfi skráð á hans nafn, flest tengd flugi með einhverjum hætti. Frú Polk lauk flugnámi og fékk réttindi til einkaflugs. Gera íslendingar svona? Samræður við starfsfólk ís- lenskra flugfélaga leiddu i ljós að án efa er nokkur fjöldi íslendinga félagi í téðum klúbbi. Löng næturflug á heimleið af sólar- ströndu eru sögð vinsæll vettvangur til þess að gerast félagi. Einnig eru uppákomur af þessu tagi tíðar í flugi frá Ameríku enda fátt annað við að vera um lágnættið. Flug- stjóri sem blaðamaður ræddi við sagði að a.m.k. einu sinni í mán- uði yrðu flugáhafnir var- ar við athæfl af þessu tagi en það væri án efa miklu algengara og hann taldi að í mörgum tilvikum væri um að ræða samskipti fólks sem hefði ekki þekkst áður en það deildi saman flugvélasætum. Engan rak minni til þess að hafa orðið var við slíkt i innanlands- flugi á íslandi enda flugleiðir stutt- ar og Fokker Friendship vélar Flugfélags íslands ekki fallnar til náinna kynna þrátt fyrir nafnið. Á heimasíðu Mile High Club og reyndar víðar á Netinu má flnna skrautlegar reynslusögur. Þar kemur fram að margt frægt fólk er félagar í umræddum klúbbi og nægir að nefna fólk eins og Juliu Roberts, Jason Patric, Jodie Fost- er, Kelly MacGillis, Bono, Robert DeNiro, Tori Spelling og marga marga fleiri. -PÁÁ Það er margt hægt aö gera sér til skemmtunar á löngum flugferðum. Eitt af því er aö gerast félagi í The Mile High Club eöa Félagi 1609. ,TAKN UM TRAUST ' Faxafen 8 Sími 581 1560 Fax 581 1566 Ford F 150 XLT Ford F 250 X-CAB 8 cyl., skr. 1997, ekinn 64. þ. km, 6 manna, spil, Ijóskastarar, torkkubbur, tölvukubbur, 33“ dekk.cruisecontrol, hleðslujafnariog m.fl. Verð kr 2.690.000. 8 cyl. , skr. 1997, dísill, turbo, 7,3, skr. 1998, ekinn 30 þ. km - off road pakki, tregðulæsing, hitari á vél, 35“ dekk, plasthús. Verð 3.990,000. Það er leiðinlegt að fljúga. Ekki misskilja þessa staðhæfmgu svo að það sé álltaf leiðinlegt. Það er gam- an að fljúga eins og fugl i fallegu veðri með gott útsýni yfir land og líf en að sitja klukkustundum saman samankrepptur í málmhylki, borða dularfullan mat sem bragðast allur eins og pappamassi, horfa annað- hvort á ský út um gluggann eða rýna með hálsríg á gamla B-mynd er ekki gaman. Til þess að vega á móti leiðindun- um af því að fljúga hafa farþegar gert sér ýmislegt til dundurs. Þeir lesa sérstök tímarit sem eru gefin út í þessum tilgangi, þeir lesa þykka reyfara sem eru í laginu eins og múrsteinar og eru seldir á flugvöll- um, þeim eru sýndar kvikmyndir og borinn í þá matur og drykkur eins og þeir hafa lyst á. Sumum farþég- um, sem leiðist lestur eða kvik- myndir og geta ekki sofið, getur jafnvel dottið í hug að stunda kynlíf. Þá þarf tvennt til. Annaðhvort áhugasaman samferðamann/konu eða viljugan farþega sem er staddur í sömu flugvél og vill svo til að er í sömu hugleiðingum. Þegar félagi er fundinn halda mönnum engin bönd sem gætu skapast af erfiðum að- stæðum, þrengslum eða óheppilegri tímasetningu. Þeir sem fremja þessa vinsælu iðju í hefðbundinni ferðahæð flug- véla eru þar með orðnir félagar í sérstökum og óvenjulegum klúbbi sem snýst nákvæmlega um þetta og ekkert annað. Þetta er hinn frægi Mile High Club eins og hann er nefndur á ensku. Ein míla eins og þær sem klúbburinn er kenndur við Ástalíf ofar skýjum -The Mile High Club (Félag 1609) og hvernig á að gerast fálagi er 5280 fet eða 1609 metrar. Það ligg- ur því beinast við að snara heiti fé- lagsins í Félagið 1609 eða Sextán- hundruð og níu samtökin. 5280 fet eru sama og 1609 metrar Þessi klúbbur hefur starfað lengi og hefur eins og fleiri virt samtök komið sér upp opinberri heimasíðu á Netinu, www.milehighclub.com, þar sem menn geta fræðst um tilurð klúbbsins, pantað boli, peysur, húf- ur og jakka með merki félagins og lesið sögur frá klúbbfélögum sem yf- irleitt fialla um þá atburði sem leiddu tÚ inngöngu þeirra í selskap- inn. Ekki þarf að sanna afrek sin á þessu sviði til þess að fá að kaupa minjagripi merkta félaginu en til þess að fá þar til gert skírteini sem sannar að maður sé félagi þarf að senda höfuðstöðvunum lýsingu á at- vikum ásamt undirskrift og vottun þess sem tók þátt í leiknum eða undirskrift flugstarfsmanns. Reglumar eru' annars afar ein- faldar og taka í rauninni aðeins til flughæðarinnar sem þarf að vera meiri en téð 5.280 fet sem er um það bil lágmarksflughæð. Á heimasíð- unni er þeim sem vilja gerast félag- ar ráðlagt að taka næturflug, taka með sér teppi, hafa augun hjá sér eftir farþegum sem ferðast einir og fá að færa sig til þeirra þegar vélin er komin á loft í þeirri von að þeir séu sama sinnis. Það er fullyrt að gott geti verið að hafa fest kaup á bol merktum klúbbnum og vera í honum. Það leiðir til samræðna sem síðan leiða menn áfram. Kandídötum er ráðlagt að bíða þar til kvikmyndasýningar hefiast almennt en láta það ráðast af að- stæðum og áhuga hvort sætið er lát- ið duga eða hvort væntanlegir klúbbfélagar leita á náðir klósetts flugvélanna. Þeir sem eru stórvaxn- ir geta þurft að beita hugmyndaflugi félagar í Mile High Club. Julia Roberts, Jodie Foster og Robert De Niro eru dæmi um frægt fólk sem eru við þessar aðstæður en flest flug- vélasalemi rúma varla einn fullorð- inn hvað þá tvo. En hér dregur vilj- inn ríflega hálft hlass. Hver varð fyrstur til að gera þetta? Svo skemmtilega vill til að vitað er hver getur gert tilkall til þess að vera fyrsti félaginn í þessum skrýtna klúbbi og þarf kannski ekki að koma á óvart að þessi iðja er næstum því jafngömul fluginu. Upphafsmaðurinn hét Lawrence Sperry og fæddist í Bandaríkjunum árið 1892. Hann var sérlega vel gef- inn og mikill uppfmningamaðúr. Hann fékk snemma áhuga á flugi og smíðaði fyrstu sviffluguna sína að- eins 18 ára gamall árið 1910 og eign- aðist fljótlega flugvél. Sperry var mikill glæfraflugmaður og sýndi oft kúnstir sínar meðal annars með því að fljúga undir brýr og þess háttar sem þótti ekki góð latína þá frekar en nú. Sperry var lífsglaður og myndar-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.