Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Page 28
28
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000
ifréttaskýring___________________________________________
Leikfélag Reykjavíkur skelfur:
- Páll Baldvin Baldvinsson, formaður LR, og Þórhildur Þorleifsdóttir leikhússtjóri takast á um stól Þórhildar
Þaö er bylting fram undan
í Borgarleikhúsinu. Staöa
leikhússtjóra var auglýst
laus til umsóknar í vetur og
síöastliöinn mánudag rann
umsóknarfresturinn út. Nú-
verandi leikhússtjóri, Þór-
hildur Þorleifsdóttir, var
ráðin til fjögurra ára og
samningur hennar rennur út
1. september á þessu ári. í
lögum Leikfélags Reykjavík-
ur er ekki kveðiö á um aö
skylt sé að auglýsa stööu
leikhússtjóra með ákveönu
millibili. Eina ákvœöiö tekur
til þess aö leikhússtjóri skuli
ekki sitja lengur en tvö ráön-
ingartímabil sem hvort er
fjögur ár. Þaö var engu aö
síöur einróma samþykkt í
leikhúsráöi aö auglýsa stöö-
una og mun hafa veriö vísaö
til þess aö staöa þjóöleikhús-
stjóra var auglýst laus til
umsóknar og rétt vœri aö
fylgja slíku fordæmi.
Níu umsóknir hafa borist um stöðu
leikhússtjóra. Núverandi formaður
stjómar leikfélagsins, Páll Baldvin
Baldvinsson, hefur vikið sæti við um-
fjöllun um umsóknimar og falið Ellert
Ingimundarsyni, varaformanni félags-
ins, að sitja í sinn stað. Þetta gerir Páll
vegna þess að hann hefúr sótt um
stöðu leikhússtjóra og því augljós
hagsmunaárekstur. Þetta mun hafa
komið mörgum í leikhúsinu á óvart
því það var ekki fyrr en á fóstudags-
morgni sem Páll tilkynnti að hann
myndi víkja sæti og gaf þannig til
kynna að hann væri meðal umsækj-
enda.
Þetta er ekkert leyndarmál
Páll staðfesti þetta í samtali við DV
og sagði:
„Ég sé ekki að þetta sé neitt leyndar-
mál. Ég tek fram að ekkert samkomu-
lag hefur verið gert um þessa stöðu og
umfjöllun um allar umsóknir og af-
greiðsla málsins verður án efa mjög
málefnaleg."
Því er ekki að leyna að mörgum
kom þessi staða i opna skjöldu og
fannst jaðra við siðleysi af hálfu Páls
að vinna að því fyrst innan leikhús-
ráðs og stjómar LR að staðan yrði aug-
lýst án þess að þess þyrfti og sækja síð-
an um hana sjálfúr. Um þá hlið máls-
ins sagði Páll Baldvin eftirfarandi:
„Eftir langar og málefhalegar um-
ræður um stöðu leikhússins á þessum
tímamótum varð það sameiginleg nið-
urstaöa að auglýsa starflð. Ég tók
ákvörðun fyrir stuttu síðan um að
sækja um en hef lengi haft áhuga á
leikhúsrekstri og hef ágætan feril á því
sviði. Störf min í stjóm LR hafa sann-
fært mig um að þetta sé spennandi
starfsvettvangur. Ég hef um fimm ára
skeið sinnt starfl dagskrárstjóra á Stöð
2 sem hefúr verið strangur og góður
skóli og þykist hafa náð þar flestum
markmiðum sem ég hafði áhuga á að
koma fram og tilbúinn til að takast á
við ný verkefni."
Þórhildur sækir líka um starfið
Þórhildur Þorleifsdóttir, núverandi
leikhússtjóri, er einnig meðal umsækj-
enda þannig að ljóst er að hún ætlar
ekki að láta deigan síga þótt túlka
hefði mátt einróma ákvörðun leikhús-
ráðs um að auglýsa stöðu hennar sem
Borgarleikhúsið hefur oft verið vettvangur átaka síðan það var opnað fyrir tíu árum. Nú er skollið á stríð enn einu sinni.
Örnólfur Thorsson situr í leikhús-
ráði Borgarleikhússins fyrir hönd
borgarstjóra. Hann mun hafa lagt
fram tillögu um að auglýsa starf
Þórhildar án þess að hafa til þess
samþykki borgarstjóra.
vantraustsyfirlýsingu.
Meðal annarra umsækjenda er sagt
að séu eftirtaldir: Hávar Sigurjónsson,
leiklistargagnrýnandi á Morgunblað-
inu, Jón Viðar Jónsson gagnrýnandi,
Guðjón Pedersen leikstjóri og Hafliði
Amgrímsson leikhúsfræðingur en
einnig hafa heyrst nefnd nööi eins og
María Kristjánsdóttir, Elísabet Brekk-
an, Halldóra Friðjónsdóttir og Sveinn
Einarsson.
Ellert Ingimundarson, varaformað-
ur Leikfélags Reykjavíkur, sagði I sam-
tali við DV að listi yfir umsækjendur
yrði formlega gefinn upp næsta mið-
vikudag og í framhaldi af því myndi
stjómin ræða við umsækjendur.
Stjóm félagsins er nokkur vandi á
höndum. Þórhildur er, eins og fyrr seg-
ir, samningsbundin til 1. september á
þessu ári en verði hún ekki ráðin aft-
ur þarf arftaki hennar að hefja störf
fljótlega því hans fyrsta verkefhi yrði
væntanlega að skipuleggja næsta leik-
ár. Inn i þetta blandast sá vandi að
Þórhildur er í þann veginn að hefja æf-
ingar á söngleiknum Kysstu mig, Kata
sem hún ætlar að leikstýra og á að
fhimsýna í lok mars. Þetta er sýning
sem miklar vonir em bundnar við sem
mikið kassastykki. Innan leikhússins
óttast menn að Þórhildur gangi út
strax verði annar ráðinn og þá er sýn-
ingin á Kötu í uppnámi og þar með
hugsanlega fjárhagsleg afkoma félags-
ins á þessu ári.
Eróhrædd því árangurínn er
góður
Þórhildur Þorleifsdóttú-, núverandi
leikhússtjóri í Borgarleikhúsinu, sagði
í samtali við DV að hún sæktist eftir
að gegna stöðunni áfram vegna þess að
hún teldi sig eiga mörgu ólokið á þessu
sviði.
„Menn skulu ekki gleyma því að ég
kom hér að rústum í listrænu, fjár-
hagslegu og félagslegu tilliti. Fyrsta
árið eftir að ég tók við var eitt það
versta í sögu félagsins en síðastliðið ár
komu fleiri áhorfendur í Borgarleik-
húsið en nokkm sinni áður í sögu
Leikfélags Reykjavíkur. Hingað hafa
komið til staría fjölmargir listamenn,
bæði innlendir og erlendir, og er liður
í þeirri uppbyggingarstarfsemi hér
hefur átt sér stað með þeim árangri að
áhorfendur em komnir aflur til okkar
fleiri en nokkm sinni fyrr en þeir vom
sannarlega famir þegar ég kom að
þessu. Ég tel að ég sé ekki búin að
ljúka því starfi sem ég hóf og sæki þess
vegna um á ný.
Ég tel aö meirihluti félagsmanna
geri sér ljóst að við erum á réttri leið
eftir erfiðan kafla í sögu félagsins og
það er engin ástæða til þess aö fara
setja allt í bál og brand aftur. Ég er
óhrædd við mat manna því tölumar
sýna svo ekki verður um villst á hvaða
leið við erum. Ég hef litið á aukinn
fjárstuðning borgarinnar sem staðfest-
ingu á þessari velgengni."
Bnkennileg vinnubrögð
Þórhildur vissi ekki um umsókn
Páls Baldvins, síns nánasta samstarfs-
maims, fyrr en á fostudag. Um það vill
hún segja eftirfarandi:
„Mér fmnast það í meira lagi ein-
kennilega vinnubrögð ef minn nánasti
samstarfsmaður til þriggja ára hefur
lengi haft það í huga að sækjast eftir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri studdi Þórhildi til starfsins fyr-
ir fjórum árum. Sagt er að hún sé
ekki alveg ánægð með framgang
Örnólfs Thorssonar í leikhúsráðinu.
starímu. Ég lít á umsókn hans sem
vantraust á mig og mín störf.“
Skv. lögum Leikfélagsins þyrfti nýr
leikhússtjóri að hefjast handa nú þeg-
ar við að skipuleggja næsta leikár.
Munt þú geta starfa við hlið Páls út
leikárið fari svo að hann hljóti starfið?
„Það er fúllsnemmt að svara því en
á þessari stundu held ég að ég myndi
eiga erfitt með það.“
Hver er vandinn?
Á þessu ári verða liðin tíu ár frá því
að Leikfélag Reykjavíkur flutti upp í
Kringlumýri úr gamla Iðnó. Síðan hef-
ur mikið verið rætt og ritað um
„vanda“ Borgarleikhússins og Leikfé-
lagsins. Skuldir LR eru nú um 80 millj-
ónir og hafa aukist jafnt og þétt síðan
flutningamir fóru fram. Með flutning-
unum rættist gamall draumur sem hef-
ur síðan snúist upp í hálfgerða
martröð. Þórhildur er fjórði leikhús-
stjórinn í Borgarleikhúsi eftir flutning-
Jón Viöar Jónsson er frægur
gagnrýnandi. Hann er sagður meðal
umsækjenda.
ana. Hallmar Sigurðsson var fyrstur,
þá Sigurður Hróarsson, þá Viðar Egg-
ertsson og síðast Þórhildur. Þessi tiðu
skipti segja sína sögu um það í hveiju
vandinn felst.
Stjómsýslulegur vandi félagsins
felst því fýrst og fremst í of miklu lýð-
ræði. Leikhússtjórinn á allt sitt undir
þriggja manna stjóm félagsins en al-
mennur félagsfúndur getur reyndar
rekið ákvarðanir stjómar til baka. Al-
mennir félagsmenn ráða of miklu.
Þetta hefúr leitt af sér mikið valdatafl
innan veggja hússins þar sem hver
leikhússtjóri reynir að koma „sínu“
fólki í hlutverk og embætti en ýtir fót-
gönguliðum „hinna“ út í staðinn.
Ákveðnir leikarar og leikstjórar njóta
góðs af þessu og em atvinnulausir eða
á kafi í verkefnum eftir því hver situr
við völd.
Fjárhagsvandi félagsins er síðan allt
Hafliði Arngrímsson starfaði meö
Þórhildi um tíma en hætti síðastlið-
ið vor. Hann er sagður meðal þeirra
sem sækjast eftir starfinu.
önnur saga. Reykjavíkurborg hefur
alltaf lagt félaginu til styrki og vom
þeir lengst af bundnir við ákveðinn
fjölda starfsmanna á ákveðnum laun-
um. Fyrst eftir flutninginn í nýja hús-
ið vom borgaryfirvöld treg til að
hækka styrkina til samræmis við
stærra húsnæði og mjög aukin umsvif.
Þetta hefúr gerst hægt og rólega og á
þessu leikári leggur borgin Leikfélagi
Reykjavíkur til 170 milljónir en styrk-
ur þessi var 120-140 milljónir árlega
áður.
Hvaðvarþað sem gerðist?
Aðdragandinn að því að staða Þór-
hildar var auglýst er talirrn í nokkrum
mánuðum. Vorið 1999 var fjallað um
það í blöðum að nokkrir starfsmenn
hefðu horfið frá Borgarleikhúsinu,
sumir vegna samstarfsörðugleika við
hana. Þeir sem þama vom nefndir til
leiks vora Ingibjörg Elfa Bjamadóttir
sýningarstjóri, Hafliði Amgrímsson
leiklistarráðunautur, Jóna Finnsdóttir
framkvæmdastjóri og Valdís Gunnars-
dóttir leikhúsritari. Af þessum starfs-
mönnum tjáðu tveir, Hafliði og Ingi-
björg, óánægju sina með störf Þórhild-
ar.
Fljótlega komst á kreik umræða um
að rétt væri að auglýsa stöðu leikhús-
stjóra og þyrfti að gera það eigi síðar
en í byrjun september. Um þetta var
fjallað á fundum í leikhúsráði sem Þór-
hildur var ekki boðuð á þótt leikhús-
stjóri eigi að eiga sæti í ráðinu.
Ekki var alger samstaða um þessa
framvindu í fyrstu og lagðist Þorsteinn
Gunnarsson, ritari stjómar LR, gegn
því að staðan yrði auglýst og vildi gera
áframhaldandi samning við Þórhildi
þegar núverandi samningi lyki. Máhð