Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Side 30
38
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000
íslendingar ættu aö komast til Kaupmannahafnar i sumar en farmiöar þangaö fást á góöum kjörum á fleiri en einum staö.
DV-mynd GVA
Harönandi samkeppni tveggja
stærstu ferðaskrifstofa landsins hef-
ur verið áberandi í vikunni sem leið
og svo virðist sem verðstríð sé haf-
ið. Margir hafa sjálfsagt tekið þeim
tíðindum fagnandi og hugsa sér gott
til glóðarinnar á komandi sumri.
DV-Ferðir kynnti sér helstu tilboð á
fargjöldum til Evrópu í sumar.
Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir-
Landsýn kom mörgum á óvart um
siðustu helgi þegar kynnt voru lág
fargjöld til tíu borga í Evrópu. Áður
höfðu Flugleiðir auglýst kvöld- og
næturflug til Kaupmannahafnar og
London á sérstöku tilboðsverði. Far-
gjöld SL eru seld undir hatti svo-
nefnds Flugfrelsis sem að sögn
ferðaskrifstofunnar er ný tegund
flugþjónustu hér á landi. Hægt er að
kaupa fyrirvarafaust ódýra farseðla
til tíu áfangastaða, en auk þess gefst
fólki kostur á aö kaupa miða til
einnar borgar og fljúga síðan heim
frá annarri. Áfangastaðir SL í Fiug-
frelsinu eru Kaupmannahöfn,
London, Rimini, Benidorm, Mall-
orca, Berlín, Frankfurt, Múnchen,
Zúrich og Basel. Flugfrelsið er liður
í samningum ferðaskrifstofunnar
við flugfélagið Atlanta og Islands-
flug.
Kaupmannahafnarflugið kostar
svipað og hjá Flugleiðum, eða 14.400
báðar leiðir. Aðeins dýrara er að
fljúga til London, önnur leiðin kost-
ar 8.100 eða 16.200 báðar leiðir.
Verðin eru án flugvallarskatts. Vilji
fólk baða sig i sól býður Flugfrelsið
upp á fargjöld til Mallorca, 14.900
aðra leið, Benidorm eöa Rimini á
17.900 aðra leið svo eitthvað sé
nefnt.
Tilboð SL eru ekki óþrjótandi en
ferðaskrifstofan áætlar að selja 25
þúsund sæti meö þessum hætti, sem
hlýtur að teljast gott. Flugfrelsi er
nýtt hugtak hjá SL og boðar ferða-
skrifstofan nýja hugsun og hug-
myndafræði í uppbyggingu verðs.
Eitt af því er að því fyrr sem fólk
bókar ferðir sínar, því lægri eru far-
gjöldin. Staðgreiða verður miðana
hjá SL en hægt er að breyta þeim
gegn gjaldi.
Byrjað var að selja fargjöld Flug-
frelsis SL á miðvikudag en sama
dag auglýsti ferðaskrifstofan Úrval
Útsýn lág verö til átta borga í Evr-
ópu auk Boston í Bandarikjunum.
Þar ber hæst tilboð á Kaupmanna-
hafnar- og Lundúnaflugi sem hvort
um sig kostar 14.900 báðar leiðir.
Auk þess býður ferðaskrifstofan til-
boðsverð í sumar til borganna
Amsterdam, Berlinar, Ósló, Frank-
furt, Parísar og Stokkhólms sem
hvert um sig er 24.900 krónur báðar
leiðir. Þá er ótalið tilboö til Boston
í Bandaríkjunum sem hljóðar upp á
29.700.
Skilmálarnir maravís-
legir
Mönnum hefur verið tíðrætt um
skilmála fyrmefndra tilboða og SL
hafa lagt mikla áherslu á aö fólki sé
frjálst að fljúga til einnar borgar og
heim frá annarri. Engu skipti
hvenær heimferðamiðinn er keypt-
ur og að um morgunflug sé að ræða.
Úrval Útsýn setur hins vegar skil-
mála á flugið til Kaupmannahafnar
og London þar sem tilboðið gildir
aðeins báöar leiðir og til og frá
sama flugvelli. Hvað hinar Evrópu-
borgirnar varðar þá er farþegum
ÚÚ frjálst að fljúga til einnar borgar
og heim frá annarri. Skilmálar ÚÚ
eru strangari, ekki er hægt að
breyta miðanum eftir að hann er
keyptur. Þá eru engir vildarpunktar
veittir í þessu flugi. Flugtíðnin er
mismunandi eftir ferðaskrifstofum;
Úrval Útsýn býður daglegt flug til
Kaupmannahafnar og vikulegt til
London. Hjá SL verður flogið
tvisvar í viku til Kaupmannahafnar
en einu sinni í viku til London.
Flest tilboðin sem nefnd hafa veriö
hér að ofan taka gildi um og upp úr
20. maí næstkomandi.
Fleiri tilboð
Ferðaskrifstofan Heimsferðir hóf
nýverið forsölu á farmiðum til
London í sumar. Flogið verður út á
fimmtudögum og heim á mánudög-
um. Alls eru 400 sæti í boði á tilboðs-
verði, 14.300 krónur án skatta. Sam-
kvæmt skilmálum eru m.a. þeir að
gist sé í fjórar nætur en gegn 800
króna gjaldi má losna undan þeim
skilmálum.
Ferðaskrifstofan Terra Nova, sem
áður gekk undir nafninu Ferðamið-
stöð Austurlands, hefur undanfarin
ár boðið ódýrar ferðir til Evrópu.
Verðskrá ferðaskrifstofunnar hefur
enn ekki verið lögð fram en meðal
nýjunga í sumar má nefna vikulegt
flug til Barcelóna og Rómar. Flogið
verður með flugfélaginu Corsair sem
flutt hefur farþega ferðaskrifstofunn-
ar reglulega til Parísar síðan 1998. Þá
verður í fyrsta sinn boðið upp á áætl-
unarflug með þýska flugfélaginu
LTU til Hamborgar en undanfarin ár
hefur flugfélagið flogið til og frá
Múnchen og Dússeldorf.
Hvort fargjaldaslagur ferðaskrif-
stofanna mun enn harðna skal ósagt
látið. Viðbrögð almennings létu ekki
á sér standa og skiptu þeir þúsund-
um sem bókuðu ferðir með ferða-
skrifstofunum.
Samanburður á fargjöldum
stærstu ferðaskrifsofunna í sumar
Fargjöldln gllda fyrir fer&ir fram og til baka en eru ðn flugvallarskatts
j Samvlnnuferðlr-Landsýn Úrval-Útsýn
Áfangastaður Krónur Gildlr frá Krónur Glldir frá
London 16200 26.maí 14.900 28. júni
Kaupmamuhöfn 14.800 25. maí 14.900 28. júní
Frankfurt 18200 i6. m 24.900 Lmai
Bertin 18200 16. m 24.900 Lmaí
Paris Míinchtn 18200 16. júnc 24.900 Lmaí
Osié 24.900 Lmaí
Stokkhölmur 24.900 Lmaí
Böston 27.900 Lmaí
ZBrich 18200 lljnni
Basel 12200 2. júní
Mallorca 14.900 29.maí
Bonidonn Rimini, ttalia 17.900 24. maí
17.900 20. mai
Hjð SL er um 25 þúsund sæti aö tefla en 15 þúsund hjá 00. Þess ber áb gæta áft skilmáiar (eráaskrifstofanna
eru mlsmunandi.___________________________________________________________________________________________
Vetrarferðir hjá ferðaþjónustubændum að Bakkaflöt
Dorgveiði og útigrill á fjöllum
Bakkaflöt f Skagafiröi
Ferðamannaárið er alltaf að
lengjast hér á landi og æ fleiri
ferðaþjónustubændur með opið
yflr vetrartímann. Meðal þeirra
eru hjónin Sigurður Friðriksson
og Klara Jónsdóttir sem hafa rek-
ið ferðaþjónustu á Bakkaflöt í
Skagafirði síðustu þrettán árin.
„Við erum að gera klárt fyrir
vetraropnun en reiknum ekki með
að þetta fari í fullan gang fyrr en
um mánaðamótin. Desember og
janúar vilja vera svolítið rysjóttir
en strax í febrúar er birtan orðin
meiri og betra að athafna sig,“
sagði Sigurður í samtali við DV.
Ýmis afþreying er i boði á
Bakkaflöt, hvort sem menn koma í
hópum eöa bara með nánustu fjöl-
skyldumeðlimum. „Við erum bæði
með vélsleða- og jeppaferðir. Við
erum þægilega staðsett hér og
hægt að bjóða upp á margar
spennandi dagsferöir. Það fer svo-
lítið eftir veðri og færð hvert farið
er hverju sinni en sem dæmi þá
erum við ekki nema þrjá tíma að
keyra á Hveravelli. Það er líka
vinsælt að fara á öxnadalsheiðina,
fram í Laugarfell og Nýjadal," seg-
ir Sigurður.
Veiðiáhugamenn geta líka haft
nóg fyrir stafni á Bakkaflöt því
hægt er að komast í dorgveiði í
Vatnshlíðarvatni og þá segir Sig-
urður að menn geti einnig stundað
netaveiði í gegnum ís.
„Við bjóðum líka fólki að draga
það á skíðum og stundum forum
við með útigrillið á fjall og mat-
reiðum ofan í mannskapinn úti í
náttúrunni. Á kvöldin slaka menn
svo gjarna á í setustofunum hjá
okkur eða skelia sér í heitu pott-
ana og láta líða úr sér,“ segir Sig-
urður Friðriksson. -aþ
Þúsundkall til Eyja
Eftir metþátttöku í 2000-til-
1 boðum íslandsflugs á undan-
I fömum tveimur vikum hefur
félagið ákveðið að halda áfram
og nú er komið að Vestmanna-
eyjum. Tilboðið hljóðar upp á
Iflug á milli Reykjavíkur og
Eyja á þúsund krónur aðra leið-
ina eða 2000 krónur báðar leið-
ir. Tilboð íslandsflug stendur
frá næstkomandi mánudegi, 24.
janúar, og lýkur sunnudaginn
30. janúar. Einungis er hægt að
bóka i þetta flug á heimasíðu ís-
landsflugs og gildir aðeins fyrir
þá sem eru á póstlista íslands-
flugs.
Skæð tölvuvilla á
Netinu
Þeir ijölmörgu sem undanfar-
ið hafa fest kaup á farmiðum
hjá bandaríska flugfélaginu
Northwest Airlines gætu lent í
vandræðum. Það er nefnilega
komið upp úr dúmum aö tölvu-
villa varð þess valdandi að
| greiðslukortanúmer og aðrar
persónulegar upplýsingar við-
| skiptavina voru ekki varðar
sem skyldi. Ekki er ljóst hversu
I lengi heimasíöan var án þessa
öryggisnets en að sögn for-
svarsmanna flugfélagsins eru
möguleikarnir á að nethakkar-
ar nái að nýta sér upplýsing-
amar harla litlar.
Minni mengun
Loftmengun hefur löngiun
verið mikil í borginni Mexíkó
I en þau góðu tíðindi bárust nú
upp úr áramótum að mengun
þar hefði ekki mælst minni í
| heilan áratug. Að sögn borgar-
I þar skapaðist neyðarástand
vegna mengunar aðeins þrisvar
á síðasta ári og stóð í samtals
í fimm daga. Til samanburðar
| var 27 sinnum lýst yfir neyðar-
ástandi árið 1991 og stóð ails 177
daga af árinu.
Kynlífsiðnaður laðar
ao ferðamenn
Ferðamálaráðið í Höfðaborg í
Suður-Afríku gerði nýlega allt
: vitlaust með nýrri skýrslu þar
sem m.a. er bent á leiðir til að
þróa frekar kynlífsiðnaðinn í
borginni í þeim tilgangi að laða
| að fleiri ferðamenn. Borgar-
| stjómin er víst æf vegna máls-
ins og segir ekkert slíkt á döf
; inni. Fulltrúi ferðamálaráðsins
tekur í annan streng og segir
1 það staðreynd að fjölmargir
ferðamenn sem sæki borgina
heim séu einmitt að leita að
þjónustu portkvenna. Ferða-
málaráðið viil ganga skrefinu
lengra, ekki síst í ljósi þess
j hversu HlV-smit er útbreitt í
borginni, og setja kynlífsiðnað-
inn í fastar skorður og láta
vændiskonur og -menn vinna
| að settum starfsreglum.