Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Qupperneq 46

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Qupperneq 46
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 L>V » tefmæli ---------------- Indíana Svala r Olafsdóttir Indíana Svala Ólafsdóttir, starfs- stúlka og bústjóri, Hellisbraut 16, Reykhólum, er fimmtug í dag. Starfsferill Indíana fæddist í Reykjavík en ólst upp í Bakkakoti við Hólmsá í landi Hólms, austan við Rauðavatn. Hún gekk á bamaskóla i Árbæjar- skóla og Miðbæjarkólann í Reykja- vík, lauk prófl frá Kvennaskólanum að Staðarfelli í Dölum 1966 og tók meirapróf bifreiðarstjóra 1979. Indíana starfaði eftir kvenna- skólapróf í Kaupfélagi Króksíjarðar og var síðan talsimakona á símstöð- inni í Króksfjaröamesi nokkur misseri. Eftir það húsmóðir á Reyk- hólum. Hún starfaði að vegarlagn- ingu á Lágadal í ísafjarðarsýslu 1987, ók vörubifreið og var matráðs- kona um nokkurra ára skeið við Reykhólaskóla á vetrum. Þá var hún starfsstúlka á Dval- arheimilinu Barmahlíð og hefur verið bústjóri á Grund í Reykhólasveit undanfarin ár. Starfsferill Indíana giftist 5.12. 1972 Erlingi Jónssyni, f. 12.6. 1938, bifreiðar- stjóra. Hann er sonur Jóns Einars Jónssonar, f. 9.11. 1900, d. 31.1. 1997, og Ingibjargar Jónsdótt- ur, f. 9.1. 1902, d. 2.3. 1989, bænda á Skálanesi i Gufudalssveit. Börn Indíönu og Erlings eru Bima Erlingsdóttir Norðdahl, f. 17.3. 1967, húsmóðir í Reykjavík, en maður hennar er Stefán Steinsson læknir og eru böm þeirra Elísabet Ýr, Jón Erlingur og Róbert Valur; Ólafur Þór Erlingsson, f. 23.7.1969, bifreiðarstjór i Reykjavík, en kona hans er Brynja Haraldsdóttir sjúkraþjálfari og eru böm þeirra Indíana Svala Ólafsdóttir og Har- aldur Ólafsson; Ingibjörg Erlingsdóttir, f. 18.6. 1977, nemi í Reykjavík, en maður hennar er Bjöm Magnús Magnús- son nemi. Hálfsystkini Indíönu, samfeðra, eru Indíana Svala Ólafsdóttir f. 11.6. 1924, d. 29.12. 1942; Auð- ur Ólafsdóttir, f. 1.8. 1925; Katla Ólafsdóttir, f. 28.4. 1929. Hálfbróðir Indiönu, sammæðra, er Eggert Bjamason Norðdahl, f. 25.7. 1937, rannsóknarlögreglumað- ur, búsettur í Vogum á Vatnsleysu- strönd. Alsystkini Indíönu eru Inga Vala Ólafsdóttir, f. 7.5. 1944, verslunar- stjóri, búsett i Svíþjóð, en maður hennar er Hörður Garðarsson bif- reiðarstjóri; Þórarinn Ólafsson, f. 3.9. 1948, steypubifreiðarstjóri og sagnaþulur i Reykjavík, en kona hans er Ann Andersen söngkona; Anna Maria Ólafsdóttir, f. 1.4. 1951, bóndi og húsfreyja á Maríubakka í Fljótshverfi, en maður hennar er Guðni Sigurðsson bóndi; Vaka Helga Ólafsdóttir, f. 13.8.1958, kokk- ur á ms. Karlsey frá Reykhólum. Foreldrar Indíönu: Ólafur Þórar- insson, f. 18.3. 1904, d. 28.2. 1987, bakari i Reykjavík, og Bima Egg- ertsdóttir Norðdahl, f. 30.3. 1919, bóndi í Bakkakoti, listmálari, tré- listakona og íslandsmeistari kvenna í skák á áttunda áratugnum, lengst af búsett í Bakkakoti en dvelur nú á Dvalarheimilinu Barmahlíð á Reyk- hólum. Indíana Svala Ólafsdottir. Sigurður Jónsson Sigurður Jónsson málari, Blá- hönuurn 2, Reykjavík, verður átt- ræður á morgun. Starfsferill Sigurður fæddist á Einarsstöðum í Reykjadal í Suöur-Þingeyjarsýslu og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann stundaði nám við Héraðsskól- ann að Laugum og lærði síðar húsa- málun hjá Óskari Sigurðssyni, mál- arameistara í Vancouver í Kanada. Sigurður var leigubílstjóri hjá Litlu bilastöðinni í Reykjavík 1941-48 og bílstjóri hjá Olíufélaginu Essó 1948-52. Hann flutti með fjöl- skyldu sinni til Vancouver árið 1952 þar sem Sigurður stundaði húsa- málun. Eftir heimkomuna 1960 starfrækti Sigurður Tískuskólann hf. í Reykja- vík ásamt konu sinni 1961-65. Hann var búsettur á Akureyri 1965-70 þar sem hann stundaði ýmis störf, var m.a. barþjónn á Hótel KEA og stundaði síðan verslunarstörf hjá herradeild JMJ. Eftir að hann kom aftur til Reykjavíkur starfaði hann við gestamóttökuna á Hótel Sögu í þrjú ár, var verslunarmaður við Herratískuna í Reykjavík í þrjú ár, starfaði um skeið við húsamálun í Reykjavík og var sundlaugavörður í Breiðholti í þrjú ár. Hann starfaði hjá Frjálsri fjölmiðlun um skeið og var síðan starfsmaður hjá Banda- lagi íslenskra skáta 1984-96. Sigurður hefur málað myndir í frístundum. Fjölskylda Sigurður kvæntist 3.8. 1947 Sig- ríði Gunnarsdóttur, f. 26.9. 1926, snyrtifræðingi. Hún er dóttir Gunn- ars Sigurðssonar, kaupmanns í Von í Reykjavík, og Margrétar Gunnars- dóttur húsmóður. Sigurður og Sig- ríður slitu samvistmn. Böm Sigurðar og Sigríðar eru Lilja, f. 28.3. 1949, tækniteiknari á Akureyri, en maður hennar er Óli G. Jóhannsson og eiga þau fjögur böm; Jón Gunnar, f. 11.4.1955, tann- smíðameistari í Vancouver í Kanada, og á hann tvö böm og eitt fósturbam en kona hans er Elsa Óskarsdóttir. Systkini Sigurðar: Haraldur, Sig- fús, Einar, Ásrún, Jón, Kristinn, Bjöm, Aðal- steinn, Sigríður, og Rósa. Hálfbróðir Sigurðar: Ingimar. Foreldrar Sigurðar voru Jón Haraldsson, f. 6.9.1888, d. 1958, b. á Ein- arsstöðum í Reykjadal, og k.h., Þóra Sigfúsdótt- ir, f. 15.10. 1893, d. 1979, húsfreyja. Ætt Jón var sonur Har- alds, oddvita á Einarsstöðum, Sigur- jónssonar, b. á Einarsstöðum, Jóns- sonar, b. á Einarsstöðum, Jónsson- ar, lamba, b. á Breiðumýri og um- boðsmanns konungsjarða. Móðir Haralds var Margrét, systir Krist- jáns, afa Stefáns Karlssonar hand- ritafræðings. Margrét var dóttir Ingjalds, b. á Mýri í Bárðardal, Jónssonar, b. á Mýri, bróður Sig- urðar, föður Jóns, alþingisforseta á Gautlöndum. Móðir Jóns Haralds- sonar var Ásrún, systir Kristínar, móður Arnórs Sigurjónssonar rit- höfundar og Halldóru, fyrrv. skólastýru. Ásrún var dóttir Jóns, b. á Rif- kelsstöðum, Ólafssonar og Halldóru, systur Ein- ars, alþm. i Nesi. Þóra var dóttir Sig- fúsar, b. á Halldórsstöð- um í Reykjadal, Jóns- sonar, b. og smiðs á Sveinsstöðum, Jónsson- ar, b. á Skútustöðum, Helgasonar, ættföður Skútustaðaættarinnar, Ásmundssonar. Móðir Sigfúsar var Marja, hálf- systir, sammæðra, Þorgils gjallandi. Móðir Þóru var Sigríður, systir Sigurðar, skálds á Arnarvatni, og Jóns, alþm. í Múla, fóður Áma, alþm. frá Múla, foður Jónasar, rit- höfundar og alþm., og Jóns Múla tónskálds. Sigríður var dóttir Jóns, skálds á Helluvaði, Hinrikssonar af Harðabóndaætt. Móðir Sigríðar var Friðrika Helgadóttir, ættföður Skútustaðaættarinnar Ásmundsson- ar. Sigurður Jónsson. Grétar Róbert Haraldsson Grétar Róbert Haralds- son vélstjóri, Hátúni 10 b, Reykjavík, verður sex- tugur á morgun. Starfsferill Grétar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp auk þess sem hann var í sveit á sumrin á árunum 1947-55. Grétar var í Austur- bæjarskólanum 1947-52, Gagnfræðaskóla Austur- Grétar Róbert Haraldsson. bæjar 1952-53, Héraðsskólanum á Núpi 1955-56, stundaði nám við Iðnskólann á Seyðisfirði og lauk það- an prófum 1962, stund- aði nám við Vélskóla Is- lands frá 1962, lauk vél- stjóraprófi 1964 og frá rafmagnsdeild 1965, stundaði vélvirkjanám við Vélsmiðju Seyðis- flarðar 1960-64 og Vél- smiðju Sigurðar Svein- bjömssonar í Reykja- vík, lauk sveinsprófi í vélvirkjun 1967 og öðlaðist meistararéttindi 1970. Grétar var verkamaður til sjós og lands til 1960, var vélstjóri á hval- veiðibátnum Hval 7 1965, vélstjóri á farskipum með hléum 1965-73, vann við hafnarframkvæmdir í Straums- vík 1967-68, við niðursetningu á túrbínum i Búrfellsvirkjun 1968-69, við stækkun Kísilgúrverksmiðjunn- ar við Mývatn 1970, við stækkun Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi 1971-72, var við vélgæslu hjá ísfé- lagi Vestmannaeyja á Kirkjusandi 1973-74, var auk þess bifreiðarstjóri hjá Steindóri 1973 og vagnstjóri hjá SVR 1976 en starfaði hjá ÁTVR, Reykjalundi, Hilmari Helgasyni heildverslun og Örtækni á árunum 1975-89. Loks hefur hann verið starfsmaður hjá Múlalundi. Fjölskylda Kona Grétars frá 2.3.1988 er Guð- björg Albertsdóttir, f. 1.7. 1947, hús- móðir. Fóstursystkini Grétars vora Ólaf- ur Haraldsson, f. 1922, d. 1944; Hulda Haraldsdóttir, f. 1927, d. 1993. Hálfsystkini Grétars, samfeðra, eru Lilja Magnúsdóttir, f. 1943; Páll Magnússon, f. 1944. Hálfsystir Grétars, sammæðra, er Hulda Ingvarsdóttir, f. 1937. Kjörforeldrar Grétars voru Har- aldur Ólafsson, f. 1895, d. 1978, skip- stjóri í Reykjavík, og Ásta Ólafsson Smith, f. 1899, d. 1979, húsmóðir. Foreldrar Grétars voru Magnús Þórðarson, f. 1915, d. 1967, og Guð- rún Runólfsdóttir, f. 1911, d. 1992. Ætt Magnús var sonur Þórðar Magn- ússonar og Guðrúnar Magnúsdótt- ur. Guðrún var dóttir Runólfs Guð- mundssonar og Þóreyjar Eyjólfs- dóttur. Til hamingju með afmælið 22. janúar 95 ára Guðlaugur Stefánsson, Hrafnistu, Reykjavík. 90 ára Gyða Helgadóttir, Víðihlíð, Grindavík. 85 ára__________________ Jón Valgeir Ólafsson, Búðarstíg lOb, Eyrarbakka. 80 ára Auður Sigurjónsdóttir, Grænumörk 5, Selfossi. Jón Þ. Sigurðsson, Brekkugötu 24, Þingeyri. Ólöf Ólafsdóttir, Hafnarstræti 47, Akureyri. 75 ára_____________________ Ásgeir Bjömsson, 'Hafnargötu 22, Siglufirði. Hjördís Helgadóttir, Smyrlahrauni 24, Hafnarfirði. 70 ára_______________ Ólöf Friðjónsdóttir, Eystri-Leirárgörðum I, Akranesi. 60 ára María Ingibjörg Hagalínsdóttir, Dalbraut 3, Hnífsdal. Sigurður Oddsson, Vesturströnd 5, Seltjamamesi. 50 ára_________________ Amdís Erla Ólafsdóttir, Ásgarði, Búðardal. Hallveig Guðný Kolsöe, Hraunbæ 20, Reykjavik. Jakob Guðnason, Fögrukinn 16, Hafnarfirði. Kristbjörg Magnúsdóttir, Smárarima 82, Reykjavík. 40 ára Anna Alfreðsdóttir, Möðrufelli 9, Reykjavík. Bryndís Guðmundsdóttir, Engihjalla 9, Kópavogi. DóróHiea Dagný Tómasdóttir, Skálagerði 4, Akureyri. Guðbjörg Jóna Tómasdóttir, Hlaðhömrum 15, Reykjavík. Hafdis Vilhjálmsdóttir, Sólvallagötu 54, Reykjavík. Hjörleifur H. Guðmundsson, Hjallabraut 2, Hafnarfirði. Magni Ólafsson, Maríubakka 22, Reykjavík. Pálmi Haraldsson, Brekkutúni 13, Kópavogi. Sigurður Ingimundarson, Hnappavöllum V, Fagurhólsmýri. Svanur Steinarsson, Höfðaholti 10, Borgamesi. Unnur Ema Óskarsdóttir, Hörgatúni 9, Garðabæ. 7 TJrval - 960 síður á ári - fróðleikur og skemmtun semlifirmánuðumog árumsaman

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.