Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2000, Síða 50
58 myndbönd
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000
-J-
yndbanda
GAGNRÝNI
Allt um móöur mína:
Hlutverk móðurinnar
Fyrir átján árum flúði Manuela (Cecilia Roth) Barcelona en sakir
voveiflegs atburðar snýr hún þangað á ný. Þar glímir hún bæði
við fortíð sína og samtima i senn. Sá sem hún leitar að er horfmn, aðra hitt-
ir hún á ný og enn öðrum kynnist hún.
Hún var móðir, er móðir og verður móðir. Hún hittir aðrar mæður en svo
að segja enga feður. Almodóvar er líkt og titill myndarinnar gefúr til kynna
fyrst og fremst að vinna með móðurhlutverkið - í margvíslegum skilningi. í
kringum það spinnur hann áhugaverða frásögn þar sem tragedían er ávailt
kómedíunni yfirsterkari.
Þeir sem þekkja til höfundareinkenna leikstjórans vita að hverju þeir
ganga. Persónugalleríð, með konur í öndvegi, er mikið og fjölbreytt. Litadýrð-
in er með ólíkindum, næmnin fyrir umhverfinu mikil og flestallar ögranir
knúnar áfram af væntumþykju.
Þrátt fyrir það mikla lof sem hlaðið hefur verið á Allt um móður mína er
hún í sjálfu sér hvorki merkilegri né betri en aðrar helstu myndir
Almodóvars. Það er þó ágætt hrós út af fyrir sig.
Útgefandi: Bergvik. Leikstjóri: Pedro Almodóvar. Aðalhlutverk: Cecilia Roth, Eloy
Azorín, Marisa Paredes, Penélope Cruz og Candela Pena. Spænsk/frönsk, 1999.
Lengd: 97 mín. Bönnuð innan 12 ára. -bæn
Dick:
Nixon grátt leikinn
★ ★á
Allt frá upphafi hefur Hollywood tekið
bandariska forseta afskaplega alvarlega. Nýlegt dæmi
um það er mynd Olivers Stones Nixon (1995) en þar
túlkaði Anthony Hopkins Richard M. Nixon af miklum
þunga. Hann er sömuleiðis aðalpersóna Dick en nálg-
unin eru á fúllkomnlega öndverðum meiði. Hér er
skopast að Nixon af slíkum mætti að liklega er óhætt
að fullyrða að enginn forseti hafi áður fengið sambærilega útreið á hvíta tjald-
inu. Búin er til saga af tveimur táningsstúlkum (Kirsten Dunst og Michelle
Williams) sem fyrir röð ólíklegustu tilviljana verða Nixon að falli, sem Dan
Hedaya túlkar af þvílíku virðingarleysi að afbökunin á forsetanum illræmda
nær á köflum kómedískri unun. Bob Woodward (Will Ferrell) og Carl Bem-
stein (Bmce McCulloch) em einnig leiknir grátt, þótt eflaust beinist háðið
ekki síður að Robert Redford og Dustin Hoffman sem léku þá í All the Pres-
identís Men (1976). Annars byggist grín myndarinnar ekki á útúrsnúningi
eldri mynda heldur Watergate-hneykslinu og persónu Nixons. Hætta er á að
grínið fari að nokkm leyti fram hjá þeim sem þar þekkja lítið til. Sem sérstak-
ur aðdáandi forsetamynda get ég ekki annað en litið á þessa vitleysu sem
tímamótaverk þótt eflaust deili fáir þeirri skoðun með mér.
Útgefandl: Skífan. Leikstjóri: Andrew Fleming. Aðalhlutverk: Kirsten Dunst, Michelle
Williams og Dan Hedaya. Bandarísk, 1999. Lengd: 91 min. Öllum leyfð. -bæn
Tinseltown:
Sönn sakamál
^ Ofúrást Kanans á „sönnum" sakamálum hef-
ur skapað efnivið í nokkrar háðsádeilur á und-
anfómum árum, sbr. t.d. Natural Bom Killers. Hér er
boginn ekki spenntur jafii hátt, en þó svolítið nuddað
í þennan allt að því sjúklega áhuga á raunverulegum
hryllingi. Tveir handritshöfúndar koma slyppir og
snauðir til Hollywood og fá atvinnutækifæri era í aug-
sýn. Þeir telja sig því hafa himin höndum tekið þegar þeir komast í kynni við
raunverulegan raðmorðingja og telja að þar með séu þeir komnir með efhi sem
tryllt gæti framleiðendur og síðan áhorfendur. Það er óvitlaus kaldhæðni í
þessari ádeilu, en myndin líður nokkuð fyrir viðvaningsleg vinnubrögð. Takt-
urinn í framvindunni er fremur óreglulegur, virðist ekki alveg í jafnvægi milli
gríns og spennu, og myndin leysist af og til upp í myglaðan leikhús-“slapstick“.
Þar á ofan em leikaramir í aðalhlutverkunum fremur ómerkilegir og ágæt-
isnöfn í aukahlutverkum (Joe Pantoliano, Ron Perlman) ná ekki að lífga al-
mennilega upp á leikhópinn. Þrátt fyrir vankantana má þó með þolinmæði og
umburðarlyndi hafa nokkurt gaman af sögunni.
Skífan. Leikstjóri: Tony Spiridakis. Aðalhlutverk: Arye Gross, Tom Wood, Ron Perlm-
an, Joe Pantoliano og Kristy Swanson. Bandarísk, 1998. Lengd: 90 mín. Bönnuð inn-
an 16 ára. -PJ
Susan’s Plan:
©
Skemmtilegar persónur
Það er of litið grin i þessari mynd til að hún
geti beinlínis kallast grinmynd og of mikiö grín
til að hún geti kallast spennumynd. Varla er hægt að
stimpla hana sem drama eða hasarmynd heldur. Þessi
tegund myndar gerir út á að stytta áhorfendum stund-
ir með sniðugri sögufléttu, góðum leikurum og
skemmtilegri persónusköpun. Myndin nær varla háifa
leið með sögufléttuna, en leikaramir standa sig ágæt-
lega og persónusköpunin er i finu lagi.
Myndin segir frá Susan, sem hyggst koma sínum fyrrverandi fyrir kattar-
nef og fá líftryggingu hans greidda. Með í ráðabmggi hennar er elskhugi henn-
ar, hárgreiðslukona hennar, tveir seinheppnir smákrimmar og einn ofbeldis-
fullur mddi. Helsti gallinn við söguna er sá að fátt kemur á óvart og hún fuðr-
ar bara upp i lokin. Hins vegar em persónumar skrautlegar og mikið af góð-
um leikurum í myndinni. Skemmtilegust em Lara Flynn Boyle sem lausláta
* hárgreiðslukonan, Michael Biehn sem heimski smákrimminn og loks Dan
Aykroyd, sem virðist vera farinn að sérhæfa sig í kaldrifjuðum morðingjum
eftir langan feril í ljúflingshlutverkum í grínmyndum. Þegar allt kemur til alls
er þessi mynd vel þess virði að sjá.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: John Landis. Aöalhlutverk: Nastassja Kinski, Billy
Zane, Michael Biehn, Rob Schneider, Lara Flynn Boyle og Dan Aykroyd. Bandarísk,
1998. Lengd: 90 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Pedro Almodóvar viö tökur á Allt um móður mína.
Pedro Almodóvar:
Burðarás spænskrar
kvikmyndagerðar
Frakkar, ítalir og Þjóðverjar eiga
óneitanlega glæsta kvikmyndasögu
og veldur því heldur takmarkaður
kvikmyndaarfur Spánverja nokk-
urri furðu. Meira að segja jöfurinn
Luis Bunuel vann flestar myndir
sínar erlendis. Carlos Saura tók síð-
an að vekja athygli á sjöunda ára-
tugnum og var stærsta nafnið í
Kvikmyndaferill
Er á leið áttunda áratuginn tók
Pedro að vekja æ meiri athygli með-
al róttækra listunnenda í Madrid og
árið 1980 gerði hann sína fyrstu
mynd í fullri lengd Pepi, Luci, Bom
y otras chicas del montón (Pepi,
Luci, Bom and Other Girls on the
Heap). Það var síðan árið 1987 sem
hann sló í gegn fyrir alvöru á kvik-
myndahátíðinni í Berlín með mynd-
inni La Ley del deseo (Law of Des-
ire). í kjölfarið fylgdi síðan hver
smellurinn á fætur öðrum: Mujeres
al borde de un ataque de nervios
(Women on the Verge of a Nervous
Breakdown, 1988), Átame! (Tie Me
Up! Tie Me Down!, 1990), Tacones
lejanos (High Heels, 1991) og Kika
(1993). Sameiginlegar eiga þær
ærslafullan fitonskraft og söguper-
sónur á jaðrinum. Þótt hættulegt sé
að lesa of mikið í kynhneigð leik-
stjórans (sem er samkynhneigður)
eru hommar og reyndar sérstaklega
konur honum hugleiknar sem eru
aldrei þessu vant í brennidepli á
tjaldinu. Það hefur ekki breyst meö
síðustu myndum Almodóvars: La
Flor de mi secreto (The Flower of
My Secret, 1995), Carne trémula
(Live Flesh, 1997) og Todo sobre mi
madre (All About My Mother, 1999).
Þær eru aftur á móti orðnar yfirveg-
aðri og jafnvel eilítiö tragískari.
Konumar eru þó sem fyrr í aðal-
hlutverki og karlpersónur þeirrar
siðastnefndu reyndar orðnar ansi
brjóstgóðar.
-Bjöm Æ. Norðfjörð
Carné tremula eða Live Flesh frá ár-
inu 1997.
spænski kvikmyndagerð allt þar til
Álmodóvar sló í gegn á níunda ára-
tugnum. Þessi umdeildi leikstjóri
hefur notið sívaxandi hylli, jafnt
heima fyrir sem á alþjóðavettvangi,
allar götur síðan. Og gott ef hann
átti ekki á síðasta áratug fleiri
myndir í kvikmyndahúsum hér
heima en nokkur annar leikstjóri
handan Hollywood.
Upphafsár
Pedro Almodóvar Caballero fædd-
ist 25. september árið 1951 í smá-
borginni Calzada de Calatrava sem
er í héraðina La Mancha. Hugur
hans lá snemma til kvikmyndagerð-
ar og sextán ára gamafl hélt hann til
Madrid. Þaö var þó hægara sagt en
gert fyrir ungan og djarfan lista-
mann að koma sér á framfæri i
kvikmyndabransanum sem var í
heljargreipum menningarfasisma
Francos. Þess í stað fékk Pedro sér
vinnu hjá Símanum en birti efni í
neðanjarðarblöðum og teikni-
myndasögum. Á endanum tókst
honum að spara sér fyrir einfaldri
tökuvél og árið 1974 gerði hann sína
fyrstu mynd, Dos Putas. Á næstu
árum gerði hann fjölda ódýrra stutt-
mynda auk þess sem hann söng í
rokkhljómsveit, lék i avant-garde
leikritum og tók að skrifa játningar
klámdrottningarinnar Patty Dip-
husa sem var hans eigið hugarfóst-
ur.
Myndbandalisti vikunnar
..Tl FYRRI 1 VIKUR ■■ VIKA Á LISTA • 1 l 1 TITIll ÚTGEF. J TEG.
1 ] 1 4 | Entrament sr*. Sp«u
2 3 1 3 ! The out-of-towners CIC Myndbðod Cioun J
3 1 2 1 4 1 Notting hill J Hátktfafrtf Gaman
4 ] HÝ I i J 1 1 Instinct j Myndform Spema
5 { NÝ ! 1 ! Office spacc Skifan Caman
6 9 2 Go J Skítan
7 1 5 ! 7 1 EdTv J CIC Myndböod taman
8 4 5 10 things 1 hate about you SAM klyndbönd ; - J ' Gaman
9 J 6 3 J Virus Spuna
10 7 3 1 l The Asironauts wife ) Myndfonn Spmma
11 J 20 1 2 Octobersky j CIC Myndbönd Drama
12 HÝ 1 Ringmaster HfcMahtf Gaman
13 13 4 Mod squad 1 Wamer Myndir Spetma
1 14 8 7 1 j Matrix WamerMyndir Sperma
15 j 10 8 Cruel intentions Skífan Spetma
16 HÝ 1 Goodbey lover Wamer Myndir Spetma
17 1 11 J 9 Truecrime WarnerMynfir Spetma
18 12 10 Foreesof nature j OCMyndböod Spetma
19 18 5 Svartur köthsr, hvftur köttnr Háskólabíó Gaman
20 HÝ 1 Mktsmnnsers night's dreasn \ Skían Speona