Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000 9 Utlönd Elian fær að hitta ömmur sínar í dag Ættingjar kúbska drengsins Elians Gonzalez hafa lofað að fara að skipun bandaríska dóms- málaráðuneytisins um að leyfa honum að hitta ömmur sinar á hlutlausum stað í dag. „Þeir hafa staðfest að þeir ætli að hlýða skipuninni," sagði Carole Florman, talsmaður dómsmála- ráðuneytisins, i gærkvöld. Bandarisk innflytjendayflrvöld höfðu áður ákveðið að senda skyldi Elian til fóður síns, Juans Miguels Gonzalez, á Kúbu. Elian litli fannst á reki á slöngu undan strönd Bandaríkjanna eftir að móðir hans og stjúpi höfðu drukknað er bát þeirra og fleiri flóttamanna frá Kúbu hvolfdi. Ömmur Elians, Mariela Quintana og Raquel Rodriguez, komu til New York á fóstudaginn í síðustu viku. Síðan hafa þær árangurslaust reynt að fá að taka litla drenginn með sér heim. Síðastliðinn mánudag flugu Ömmur Elians, Mariela Quintana og Raquel Rodriguez, við komuna til Bandaríkjanna í síðustu viku. Símamynd Reuter þær til Miami á Flórída en fengu ekki að hitta Elian. Vonsviknar flugu þær til Washington þar sem þær hittu að máli hóp stjórnmálamanna i gær. Útlagar frá Kúbu og íhaldsöfl í Bandaríkjunum hafa krafist þess að Elian verði um kyrrt í Bandaríkjunum. Bandarísk innflytjendayfirvöld og dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, Janet Reno, hafa hins vegar lýst því yfir að drengurinn eigi að fá að snúa aftur heim til föður síns á Kúbu hið fyrsta. Gert var ráð fyrir að ættingjar Elians í Miami kæmu með Elian til fundar við ömmumar á heimili rómversk-kaþólskrar nunnu, Jeanne O’Laughlin, við Miami í dag. Ættingjamir höfðu áður sagt að Elian fengi hvergi að hitta ömmur sínar nema heima hjá þeim þar sem drengurinn hefur dvalið síðan honum var bjargað. Tony Blair seg- ist róttækari en Magga Thatcher Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lýsti því yfir í gær að hann væri umbótasinnaðasti leið- toginn sem Bretland hefði átt og sagðist hafa verið róttækari en Margaret Thatcher á fyrstu 1000 dögum sínum í embætti. Margir höfðu verið þeirrar skoðunar að stjóm Thatcher hefði verið síð- asta róttæka ríkisstjórnin. William Hague var ekki par hrifinn af samanburðinum og lá ekki á skoðunum sínum. „Stjórn Margaretar Thatcher umbylti stöðu landsins," sagði Hague. „Þessi rikisstjóm gerir hins vegar ekki annað en blaðra og stendur ekki við neitt.“ Hua Mei, fimm mánaða gamall pandabjörn sem á heima í dýragaröinum í San Diego f Kaliforníu, fékk aö æfa sig aö klifra í trjám í gær. Starfsmenn dýragarösins eru byrjaöir aö venja bangsann við mannfjöldann sem á eftir aö flykkj- ast aö búri hans í sumar meö því aö hleypa útvöldum gestum nálægt honum. Rússneskar öryggissveitir í Moskvu við öllu búnar: Óttast árásir hryðjuverkamanna Rússnesk stjómvöld hafa sett ör- yggissveitir 1 Moskvu í viðbragðs- stöðu af ótta við hefndarárásir hryðjuverkamanna vegna fram- sóknar hersins í baráttunni við upp- reisnarmenn í Tsjetsjeníu. Stjómvöld í Moskvu segja að ráð- ist hafi verið á Tsjetsjeníu á sinum thna í kjölfar sprengjutilræða upp- reisnarmanna í Moskvu og öðrum borgum. Uppreisnarmenn neita allri aðild. Vladímír Pútin, starfandi forseti Rússlands, sagði í fyrri viku að stjómvöld hefðu upplýsingar um að frekari hryðjuverk væru áformuð. Interfax fréttastofan hafði eftir lög- reglunni í Moskvu í gær að búið væri að herða eftirlit í borginni vegna nýrra hótana. Rússneskir hermenn áttu í hörð- um bardögum við uppreisnarmenn í miðborg Grozní, höfuðborgar Tsjetsjeníu, í gær. Stjómvöld viður- kenndu þá að meira en þúsund her- menn hefðu týnt lífi í bardögum síð- ustu sex mánuðina. Margir fjölmiðlar í Rússlandi hafa sakað herinn um að leyna fjölda látinna hermanna. Lífvörður Danadrottningar var lúxusvændiskona Fyrsta konan í lífverði Margrétar Danadrottningar auglýsti lúx- usvændisþjónustu í Ekstra Bladet. Konan stundaði vændið í frítíma sínum en tók einnig við samtölum frá viðskiptavinum á vmnutima. Hún gortaði af aukavinnu sinni við starfsfélagana og bað þá um að aka sér þegar hún fór á fund viðskipta- vina. Starfsfélagamir sögðu að lokum yfirmönnum frá vændiskonunni. Danska hirðin hefur neitað að tjá sig um málið. STJORNUNAR SOOAVCGI 69 > 100 Rl YRJAVÍK - SIMI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.