Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000 +34 Afmæli dv Kristín Á. Johansen s Kristín Asgeirsdóttir Johansen húsmóðir, Laugarásvegi 46, Reykjavík, er sextug í dag. Starfsferill Rristín fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún lauk prófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1957. Kristín hefur lengst af verið hús- móðir. Fjölskylda Kristín giftist 2.8. 1958 Rolf Jo- hansen, f. 10.3. 1933, stórkaup- manni. Hann er sonur J. Thulins Johansens, f. 7.6. 1907, d. 21.6. 1975, fulltrúa, og Svövu Þorgerðar Jo- hansen, f. 29.6. 1912, húsmóður. Börn Kristínar og Rolf eru Agn- es Johansen, f. 27.9.1958, dagskrár- gerðarmaður, búsett í Reykjavík, en dætur hennar eru Kristín Una Friðjónsdóttir, f. 3.12. 1981, og Tanja Marín Friðjónsdóttir, f. 10.3. 1984; Johan Thulin Johansen, f. 23.11. 1959, viðskiptafræðingur í Reykjavík, en kona hans er Guð- rún Þorleifsdóttir, f. 26.3. 1962; vSvava Þorgerður Johansen, f. 7.1. 1964, verslunarmaður, búsett í Reykjavík en maður hennar er Ás- geir Bolli Kristinsson, f. 15.1. 1951, og er sonur þeirra Ásgeir Frank Ás- geirsson, f. 2.8. 1996; Berglind Johansen, f. 14.5. 1966, sölustjóri, bú- sett I Reykjavík, en mað- ur hennar er Pétur Al- bert Haraldsson, f. 1.7. 1963, og eru dætur þeirra Kristjana Pétursdóttir, f. 14.3. 1992, og Karólína Pétursdóttir, f. 30.3. 1995; Ásgeir Johansen, f. 3.3. 1971, framkvæmdastjóri í Reykjavik, en kona hans er Aki Isishe Johansen, f. 20.9. 1971, og eru böm þeirra Nicole Hanna, f. 6.8. 1994, Rolf, f. 29.1. 1996, og Sebastian, f. 3.3. 1997; Kristín Johansen, f. 3.3. 1971, sölu- maður í Reykjavík, en maður hennar er Friðrik Kaldal Ágústs- son, f. 20.3. 1970. Alsystkini Kristínar eru Matthí- as Ásgeirsson, f. 14.4. 1938, at- vinnurekandi í Reykjavík; Hrafn- hildur Ásgeirsdóttir, f. 18.11. 1944, fulltrúi í Stjómarráðinu, búsett i Reykjavík. Hálfsystkini Kristinar, sam- feðra, eru Guðbjörg Ásgeirsdóttir, f. 21.11.1922, húsmóðir í Reykjavík; Sólveig Ásgeirsdóttir, f. 2.8. 1926, biskupsfrú, bú- sett í Reykjavík; Ásgeir Ásgeirsson, f. 6.5. 1931, verslunamaður á Akra- nesi. Foreldrar Kristínar voru Ásgeir Ásgeirsson, f. 11.8. 1885, d. 25.5. 1972, kaupmanns í Ásgeirsbúð við Þingholtsstræti í Reykjavík, og Agnes Matthíasdóttir, f. 25.4. 1912, d. 13.2. 1994, hús- móðir. Ætt Ásgeir var sonur Ásgeirs, hrepp- stjóra, b. og póstafgreiðslumanns á Stað í Hrútafirði, Jónssonar, hreppstjóra á Skriðnesenni í Bitrufirði, Jónssonar. Móðir Ásgeirs hreppstjóra var Hallfríður Brynjólfsdóttir, b. á Kárastöðum á Vatnsnesi, Brynj- ólfssonar. Móðir Ásgeirs kaupmanns var Sólveig Guðmundsdóttir, b. á Kollsá, Einarssonar. Agnes var dóttir Matthisar, pr. I Grímsey, Eggertssonar, barna- kennara og sýsluskrifara á ísafirði, bróður Matthíasar skálds Jochumssonar. Eggert var sonur Jochums, b. í Skógum í Þorska- firði, Magnússonar. Móðir Jochums var Sigríður, systir Guðrúnar, langömmu Áslaugar, móður Geirs Hallgrímssonar. Sigríður var dóttir Ara Jónssonar, b. á Reykhólum, og konu hans, Helgu Árnadóttur, prests i Gufudal, Ólafssonar, lögsagnara á Eyri, Jónssonar, langafa Jóns forseta og Jens rektors, langafa Jóhannesar Nordals. Móðir Egg- erts var Þóra Einarsdóttir frá Skál- eyjum á Breiðafirði, systir Guðrúnar, ömmu skáldanna Herdísar og Ólínu Andrésdætra. Þóra var einnig systir Guðmundar, pr. og alþm. á Kvennabrekku, föður Theodóru skáldkonu, móður Guðmundar Thoroddsens, læknaprófessors og yfirlæknis. Móðir Matthiasar var Guðbjörg Ólafsdóttir, b. á Rauðumýri á Langadalsströnd, Bjamasonar. Móðir Agnesar var Guðný Guð- mundsdóttir, b. á Svertingsstöðum í Kaupangssveit, Guðmundssonar. Kristín og Rolf taka á móti gestum á Hótel Sögu, Súlnasal, á afmælisdaginn milli kl. 17.00 og 20.00. Kristín Ásgeirsdóttir Johansen. Laufey S. Valdimarsdóttir Laufey S. Valdimarsdóttir hús- ' móðir, Þelamörk 40, Hveragerði, er sextug í dag. Starfsferill Laufey fæddist i Hreiðri í Holt- um og ólst þar upp. Hún stundaöi almennt skyldunám að Laugalandi í Holtum og stundaði síðar nám við Húsmæðraskóla Suðurlands á Laugarvatni 1957-58. Laufey starfaði á ýmsum stöðum þar til hún hóf búskap. Eftir það starfaði hún að uppbyggingu fyrir- tækja þeirra hjóna, fyrst Ostagerð- inni í Hveragerði, síðan Kjörís í Hveragerði, samhliða húsmóður- störfum. Laufey hefur tekið virkan þátt í félagslifi Hvergerðinga. Hún hefur m.a. setið í stjóm Félags eldri borgara, verið formaður sóknar- nefndar Hveragerðissóknar og set- ið í stjóm Skógræktarfélags Hvera- gerðis. Hún er nú stjómarformað- ur Kjörís. Fjölskylda Laufey giftist 9.3. 1963 Hafsteini Kristinssyni, f. 11.8. 1933, d. 18.4. 1993, mjólkurtæknifræðingi og framkvæmdastjóra Kjöríss í Hveragerði. Hann var sonur Krist- ins H. Vigfússonar, f. 1893, d. 1982, húsasmíðameistara á Selfossi, og k.h., Aldísar Guðmundsdóttur, f. 1902, d. 1966, húsmóður. Böm Laufeyjar og Hafsteins eru Aldís Hafsteinsdóttir, f. 1964, kerf- isfræðingur og bæjarfulltrúi í Hveragerði, en maður hennar er Láms Ingi Friðfinnsson, f. 1962, matreiðslumeistari, og eiga þau þrjú böm; Valdimar Hafsteinsson, f. 1966, iðnaðartæknifræðingur og framkvæmdastjóri Kjöríss, en kona hans er Sigrún Kristjánsdótt- ir, f. 1968, hjúkrunarfræðingur, og eiga þau þrjú börn; Guðrún Haf- steinsdóttir, f. 1970, húsmóðir í Dorum í Þýskalandi, en maður hennar er Davíð Jóhann Davíðs- son, f. 1968, iðnrekstarfræðingur, og eiga þau tvö böm; Sigurbjörg Hafsteinsdóttir, f. 1975, nemi við KHÍ. Systkini Laufeyjar eru Sigurjón Valdimarsson, bóndi á Glitstöðum í Norðurárdal í Borgarflrði; Albert Hólmsteinn Norðdal Valdimars- son, framhaldsskólakennari i Hafnarfirði; Jóna Heiðbjört Valdi- mEU'sdóttir, bóndi i Raftholti i Holt- um í Rangárvallasýslu; Valgerður Valdimarsdóttir, verslunarmaður á Egilsstöðum. Foreldrar Laufeyjar voru Valdi- mar Sigurjónsson, f. 9.8. 1900, d. 1986, bóndi í Hreiðri í Holtum, og Guðrún Margrét Albertsdóttir frá Neðsta-Bæ i Húnavatnssýslu, hús- freyja og bóndi. Ætt Valdimar var sonur Sigurjóns, b. í Hreiðri í Holtum, Jónssonar. Móðir Valdimars var Margrét, systir Ólafar, ömmu Eiðs Guðna- sonar sendiherra. Margrét var dóttir Áma, b. á Skammbeinsstöð- um, bróður Jóns yngra, langafa Ingu, móður Þorgerðar söngstjóra og Rutar fiðluleikara. Annar bróð- ir Áma var Jón á Skarði, langafl Guðna Kristinssonar á Skarði og Guðnýjar, móður Guðlaugs Tryggva Karlssonar. Ámi er sonur Áma, b. á Galtalæk, Finnbogason- ar, ættfoður Reynifellsættar, Þor- gilssonar. Guðrún Margrét var dóttir Al- berts Gottskáls, b. í Neðstabæ í Norðurárdal í Austur-Húnavatns- sýslu, Bjömssonar, b. á Kolgröf, Gottskálkssonar. Móðir Alberts var Jóhanna Jóhannsdóttir, b. á Stekkjarflötum, Hrólfssonar. Móðir Guðrúnar Margrétar var Hólmfríður Margrét Guðjónsdóttir, b. í Áshildarholti, Jónssonar, eldri, b. í Bitrugerði í Kræklingahlíð, Ólafssonar. Móðir Guðjóns var Guðrún Jónsdóttir. Móðir Hólmfríðar Margrétar var Sæunn Bjömsdóttir. Afmæli Til hamingju með afmælið 26. janúar 80 ára Sveinsína Traustadóttir, Hjallabraut 33, Hafnarfirði. 75 ára Bjöm Jónatan Björnsson, Brunnum 9, Patreksflrði. Jón Ingimundarson, Holtsgötu 1, Reykjavík. 70 ára Baldur Sigurbaldursson, Heiðarhrauni 21, Grindavík. Hjalti Gíslason, Kárastig 7, Hofsósi. 60 ára Hjálmar Hjálmarsson, Hábergi 3, Reykjavík. Ólafur Guðmimdsson, Grundarvegi 1, Njarðvík. Rósa Guðmundsdóttir, Goðdölum, Skagafirði. Sigrún Björgvinsdóttir, Jörundarholti 16, Akranesi. 50 ára Sigurbjörg Sigurðardóttir húsmóðir, Tjarnarmýri 4, Seltjamamesi. Eiginmaður hennar er Kristinn Hraunfjörð Hugason. Þau munu taka á móti gestum i safnaðarheimili Seltjamarneskirkju í dag milli kl. 17.00 og 21.00. Sveinn Ágúst Guðmimdsson, Þórunnargötu 9, Borgarnesi. 40 ára Egill Þórarinsson, Narfastöðum, Sauðárkróki. Halla Sif Svavarsdóttir, Brekkusíðu 5, Akureyri. Helga Kristín Árnadóttir, Svarfaðarbraut 22, Dalvík. Magnús Viðar Arnarsson, Múlasíðu 24, Akureyri. Margrét R. Þorvaldsdóttir, Grettisgötu 92, Reykjavík. Nanna Baldursdóttir, Hafnarbraut 20, Neskaupstað. Sigriður Ingólfsdóttir, Bárustíg 16, Sauðárkróki. Sigurlaug S. Einarsdóttir, Furubyggð 21, Mosfellsbæ. Blaðberar óskast í eftirtalin hverfi: Njálsgötu Grettisgötu Síðumúla Háaleitisbraut Álfhólsveg 70-115 Melaheiði Tunguheiði Ahugasamir hafi samband við afgreiðslu blaðsins í síma 550 5777. Heilsárshótel að Laugum - breytingarnar kosta Dalabyggð 50-60 milljónir króna DV, Dalabyggð: Vinna er hafin við breytingar á eldri heimavistinni að Laugum í heilsárshótel, að sögn Gunnólfs Lár- ussonar, aðstoðarmanns sveitar- stjóra Dalabyggðar. „Eftir breytingarnar verður á Laugum hótel með 22 tveggja manna herbergi með baði og öllum nýtískulegustu þægindum og ætlun- in er að reka þama heilsárshótel,“ sagði Gunnólfur. Kostnaðurinn við breytingamar verður á bilinu 50-60 milljónir króna og ekki er ákveðið hverjir muni reka hótelið. Menn eru enn þá í viðræðum við hugsanlega rekstr- araðila og það hlýtur að skýrast á næstu vikum hvað út úr þeim kem- ur. -DVÓ Sundlaugin að Laugum er ein sú albesta á landinu og ekki spillir að hún er rétt viö hótelið. DV-mynd Meikorka

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.