Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Side 28
Biskupstungur í gær: Landeigendur fúlir á fundi DV, Biskupstungum: Sendiherra á puttanum - gleymdist á fLugvelli „Þama urðu mannleg mistök. Mað- urinn sem átti að sækja mig ruglaðist dögum og Namibíumenn eru búnir að biðja mig þrá- faldlega afsökimar á þessu,“ sagði Eiður Guðnason sendiherra sem af- henti trúnaðar- bréf sitt sem sendiherra ís- lands í Namibíu í Eiöur Guöna- 8ær- Er Eiður son kom til Namibíu í fyrradag var eng- inn til að taka á móti honum eins og venja er. Eiður stóð lengi á flugvellin- um með töskur sínar og beið móttöku- nefndarinnar sem aldrei lét sjá sig. „Þá rakst ég á íslending sem hér jgrtarfar, Vilhjálm Wium, sem var að skutla félaga sínum út á flugvöll og hann leyfði mér að sitja í inn til borg- arinnar," sagði Eiöur þegar DV ræddi við hann í gær en þá var sendiherr- ann kominn á Kalahari Sands hótelið i höfuðborginni Windhoeck. I fylgd með Eiði Guðnasyni í Namibíu er Bjöm Dagbjartsson, for- stjóri Þróunarsamvinnustofnunarinn- ar, sem er vel kunnugur í landinu. Eiður lét vel af dvölinni í Windhoeck og var búinn að eiga viðræður við f.:!tM,úa í utanríkisráðuneyti Namib- “■fú: „Bér er fallegt og margt sérstakt," sagði Eiður Guðnason sendiherra sem vafalítið verður fylgt út á flugvöll þeg- ar hann snýr heim á ný. -EIR Namibía: Húsfyllir var á borgarafundi í Biskupstungum í gærkvöldi þar sem fram kom mikil óánægja land- eigenda með þau mörk sem þjóð- lendunni eru sett. Samþykkt var fcályktun til fjármálaráðherra um að draga kröfulínu ríkisins þegar út fyrir þinglýst mörk eignarlanda þeirra jarða sem að henni liggja. Oddur Hermannsson landfræð- ingur lýsti kröfulínunni. Þar kom fram að um 87% af því landi sem um ræddi í Árnessýslu félli innan þjóðlendunnar en hæsta hlutfallið er af útjörð Úthlíðar, 99,3%, sem er á milli 60 og 70% af heildarlandi jarðarinnar. t máli fjármálaráðherra kom fram að ríkið mundi kosta þau málaferli sem landeigendur þurfi að standa í vegna málsins. Geir sagði að samkvæmt kröfu landeigenda væru engar þjóðlendur upp af Ár- nessýslunni. -NH ER EIOUR EKKI REI0UR? FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö f DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANUAR 2000 Morten Bjerre átti ekki í miklum erfiöleikum meö aö plata slaka varnarmenn íslands upp úr skónum f gær þegar frændur okkar Danir sigruðu íslendinga á EM í Króatíu, 26-24, og nú er Ijóst aö ef íslendingar ætla aö komast á stiga- töflu keppninnar veröa þeir aö spýta f iófana og rífa upp húmorinn og sigra Slóvena á morgun. Allt um tapleikinn á síöu 27. Fleuter Tómas Zoéga, yfirlæknir geödeildar Landspítalans: Utilokar að af henda sjúkragögn - býst við átökum um málið og málaferlum „Mín persónulega skoðun er sú að afhending slíkra gagna komi ekki til greina," segir Tómas Zoega, yfir- læknir á geðdeild Landspítalans, um afhendingu upplýsinga úr sjúkra- skrám í miðlægan gagnagrunn á heil- brigðissviði. „Það verður reyndar ekki leitað til okkar formlega, það verður leitað til sjúkrahússtjórnar- innar samkvæmt reglunum. En lang- flestir geðlæknar eru í hópi þeirra sem hafa lýst yfir að þeir muni engin gögn láta af hendi og ég held að fyrir flesta sé það óbreytt. Þetta rekstrarleyfi er svo sem ekki mikið annað en menn bjuggust við en það breytir í sjálfu sér ekki grund- vallarafstöðu langflestra lækna um það, að það sem fer á milli þeirra og sjúklinga er trúnaðarmál og verði ekki látið í hendurnar á öðrum nema með leyfi viðkomandi sjúklinga." Tómas Zoéga yfirlæknir. Eruð þið tilbúnir að fara i hart? „Ég ætla að vona að við þurfum ekki að fara í hart með það en ef svo fer munu flestir gera það. Langt er í samninga, a.m.k. nokkrir mánuðir samkvæmt ákvæðum um fyrstu samninga. Kveðið er á um að samn- ingar fari fram milli framkvæmda- stjómar heilbrigðisstofnana og þær skulu hafa forystu um samráð við viðkomandi sérgreinafélög, yfirlækni stofhunar, forstöðulækna sviða og hjúkrunastjórnendur. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu eru starfsheitin forstöðulæknar sviða ekki til en þar er talað um yfirlækna sem verður að leita til. Þetta atriði í rekstrarleyfinu er eitt af mörgum sem fer í bága við gildandi lög og reglur. Ég tel því að það komi tO með að verða mjög mikil átök og örugg- lega málaferli um þetta, það er engin spuming um það,“ segir Tómas. -hdm Veðrið á morgun: Slydda eða snjókoma vestanlands Á morgun verður vestanátt, 5-8 m/s og stöku él allra nyrst en annars skýjað með köflum. Vind- ur snýst í suðaustanátt, 10-15 m/s með slyddu eða snjókomu vestan- lands um kvöldið. Frost verður á bilinu 0 til 5 stig. Veðrið í dag er á bls. 37. Náttúruverndarráð: Siv hlustar ekki - formaður hættir „Umhverfisráðherra hefur hvorki þegið ráðgjöf okkar né beinlínis leit- að ráðgjafar hjá okkur,“ segir Ólöf Guðný Valdi- marsdóttir, for- maður Náttúru- vemdarráðs og varaþingmaður Framsóknar- flokksins, sem hyggst ekki gefa kost á sér áfram á þingi ráðsins nk. fóstudag.. Hún segir það Olöf Guöný Valdimarsdóttir. hafa verið erfitt að vera formaður Náttúruverndarrráðs, þar sem mis- munandi skilningur sé á ráðgjafar- hlutverki ráðsins. Tíma sínum til umhverfismála sé betur varið á öðr- um vettvangi. „Við geröum athugasemd við rammaáætlun ríkisstjórnarinnar í umhverfismálum og fengum mikla gagnrýni fyrir það. Við höfum ítrek- að lagt til við stjómvöld að Fljóts- dalsvirkjun fari i mat á umhverfisá- hrifum. Þvi hefur ekki verið sinnt. Óánægju hefur gætt innan ráðsins með undirtektir stjómvalda.“ -JSS 10-11: Rekinn fýrir pepsí og snúð Sautján ára drengur var rekinn fyrirvaralaust úr starfi hjá 10-11 versluninni við Laugalæk í Reykja- vík eftir að eftirlitsmaður fyrirtæk- isins hafði staðið hann að þvi að drekka flösku af pepsi án þess að greiða fyrir. „Þetta var ekki bara pepsí. Hann fékk sér snúð með,“ sagði Þórður Þórisson, framkvæmdastjóri hjá 10-11. „Reglumar hjá okkur eru ein- faldar og við ætlumst / _____ til þess að starfsfólk fari eftir þeim. Ég held reyndar að svona tilvik séu nCDCI algengari en menn gera sér | grein fyrir," sagði Þórður. Einn eftirlits- maður starfar ein- göngu fyrir 10-11 verslanirnar en öryggis- deild Baugs er einnig með í eftirlit- inu: „Þeir koma hingaö reglulega og maður þekkir þá á því að þeir hvorki heilsa né bjóða góðan daginn og eru ákaflega merkilegir með sig. Þetta eru nokkurs konar spæjarar," sagði einn af fyrrum samstarfs- mönnum „pepsídrengsins" í morg- un. „Strákurinn var bara búinn að vinna hér í þrjár vikur og var iðinn og duglegur. Ég held að hann hafi ekki ætlað að stela pepsíflöskunni." -EIR Neskaupstad brother P-touch 9400 Stóra merkivélin sem þollr álagið 10 leturgerðir margar leturstærðir 16 leturstillingar prentar 110 linur borði 6 til 36 mm Rafport Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport______ / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.