Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000 IIT"(0f'* ’w®! rm Mikill fjöldi fólks nýtur útiveru í Bláfjöllum. Bláfjöll: Bjartsýnn á að aftur snjói - segir Císli Páll jóns- son sem er enn ekki farinn að örvænta Þó rigning og hlýviðri hafa saxað verulega á snjóalög þá eru ekki allir skíðamenn famir að ör- vænta með að úr rætist. Gísli Páll Jónsson á skíðasvæðinu í Bláfjöll- um segist vonast til að senn fari að snjóa. „Snjórinn hefur minnkað tölu- vert héma upp frá en það er enn ein og ein lyfta sem við höfum get- að haldiö úti að hluta. Við getum t.d. enn hleypt í Borgarlyftuna miöja og Kóngsgilið sjálft er fært en samt ekki norðurleiöin. Þetta er svo sem ekkert óvenju- legt á þessum árstíma. Við höfum oft lent í slíku og stundum verið minni snjór en þetta, jafnvel misst aUan snjó. Við fengum hins vegar engan svona hlákukaíla í fyrra og skíðafæriö var þá yfir höfuð mjög gott.“ Gísli segir mikla aukningu á hlutfalli snjóbrettafólks í skíða- brekkunum og mikið sjáist af nýju brettafólki. Hins vegar er akstur vélsleða bannaður á svæðinu. „Það má segja aö þeir vélsleðar sem við notum við okkar störf séu hér á undanþágu. Allur annar akstur vélsleða hér utan vega er stranglega bannaður.“ - Hvemig gengur að framfylgja vélsleðabanni? „Við getum ekkert framfylgt því. Við höfum ekkert lögreglu- vald og erum auk þess á mjög litl- um sleðum. Við getum því ekki staðið í að elta fólk. Ef við sjáum fólk hins vegar gera sig líklegt til að taka niður sleða hér á bílaplan- inu þá bendum við því á þetta. I fyrra settum við upp skilti hér og þar um bann við akstri vélsleða." -HKr. Snjobrettamenningm skipulögð - mót í deiglunni bæði hérlendis og erlendis Snjóbrettamenn jafnt sem aðrir snjóunnendur horfa nú örvæntingar- augum til fjalla og vona að hlýindum og rigningu fari senn að linna. Bretta- menn sem hingað til hafa iðkað sitt sport hver i sínu homi hyggjast nú skipuleggja starfsemina. Hlutfall brettafólks í skíðalöndum Reykjavíkur hefur vaxið ört á undan- fómum ámm svo að á venjulegum virkum dögum er jafnvel talað um að 80% vetrarsportiðkenda i brekkunum sé brettafólk. Færst hefur í vöxt að ís- lenskir snjóbrettakappar reyni fyrir sér í keppnum erlendis. Það hefur þó staðið greininni nokkuð fyrir þrifum að ekki em til nein samtök snjóbretta- fólks hérlendis og því verða menn að baslast áfram á eigin spýtur. Nokkrir snjóbrettamenn munu þó vera komnir með styrktarsamninga við erlend fyrirtæki sem gefa dagpen- inga og annað sem til þarf vegna uppi- halds og keppni erlendis. Ef snjórinn lætur sjá sig að nýju er fyrirhugað að vera með brettamót í Skálafelli og á Akureyri. Hugmyndin er að reyna að drifa þá út til keppni sem standa sig best á þessum mótum. Þar er verið að tala um ferð til Sviss á stærsta bretta- mót sem haldið er i heiminum. Þar er um að ræða opið mót en þeir aðilar sem styrktir em af ISF, alþjóðasamtök- um snjóbrettamanna, þuifa að safna sér punktum til að komast áfram í keppni. Þá verða menn líka að tilheyra einhverjum félögum til að komast inn í ISF-mót. Islenskir snjóbrettamenn hafa því í hyggju að koma skipulagi á sína starfsemi og stofna félag eða deild- ir innan þeirra skíðafélaga sem fyrir em. -HKr Skálafell: Lokað vegna snjóleysis Undanfarið hefur lítið sést til skíðamanna í Skálafelli og á sím- svaranum voru einungis ein skila- boð: Lokað vegna snjóleysis. í hlákutíð eins og verið hefur að undanfómu hreinsast skíðasvæðið í Skálafell fyrr af snjó en Bláfjöllin. Það þarf því engan að undra að inn á símsvarann hafl menn neyðst til að setja þau sorglegu skilaboö að lokað sé vegna snjóleysis. íslenskt veðurfar lætur þó ekki að sér hæða og víst er að veturinn er ekki enn úti. Alla vega vonast menn enn eftir snjó í Skálafellinu, enda er fyrirhug- að að halda þar Sklðalandsmót ís- lands. A^kið að gerast í skautaíþróttum: Eg ætla að halda áfram — segir hin 15 ára Sigurlaug Árnadóttir sem er annar íslendingurinn til að taka þátt í einstaklingskeppni á alþjóðlegu skautamóti Ungu skautafólki á íslandi hefur fjölgað mjög í kjölfar þess að Skauta- höll var opnuð í Reykjavík. Sigurlaug Ámadóttir, 15 ára að aldri, er annar íslendingurinn sem þátt hefur tekið í einstaklingsgrein á alþjóðlegu skauta- móti en fyrstur var Niels Finsen fyrir um 100 árum. Sigurlaug fór nú fyrir áramótin til keppni í alþjóðlegu opnu móti í Finn- landi. Þar tók hún þátt í einstak- lingskeppni í listhlaupi. Þó hún lenti ekki í efstu sætum er árangur hennar talinn góður miðað við að hún hefur nær enga keppnisreynslu að baki og hefur aldrei farið á svona mót áður. Sigurlaug mun að sögn Þorsteins Ein- arssonar, fyrrverandi íþróttafulltrúa, vera annar íslendingurinn sem tekur þátt i alþjóðlegum mótum. Sá fyrsti sem fór héðan á alþjóðlegt mót var Niels Finsen. Það mun hafa verið rétt fyrir aldamótin 1900 er hann tók þátt í móti i Gautaborg. Niels æföi sig á skautum á Reykjavíkurtjöm og þótti laginn skautamaður og einnig góður skotmaður. Anna Kristin Einarsson hjá Skauta- félagi Reykjavíkur segir að íslands- mót barna og unglinga verði haldið núna á laugardaginn 28. janúar. Það er í fyrsta skiptið sem þetta mót er haldið eftir að skipulaginu var breytt. Reykjavíkurmót var haldið í nóvem- ber, þá verður áðumefnt bama- og unglingamót og síðan íslandsmeist- aramót í mars. Þar mæta aðeins þeir bestu til leiks. „Þá hafa þrír hópar skautadansara verið að æfa og elsti hópurinn fer til Frakklands að keppa í apríl. Sá hópur fór á síðasta ári til Bretlands. Nú eram við komin með rússneskan þjálfarara, Olgu Baranovu, og það era ótrúlegar framfarir í greininni,“ segir Anna Kristín. Byrjaði á skautum 8 ára gömul „Ég er búin að æfa mig á skautum síðan ég var 8 ára og æfi nú listhlaup á skautum," segir Sigurlaug. „Mér gekk mjög vel í Finnlandi en ég hef ekki keppt áður á svona alþjóðlegu móti og „standardinn" var miklu hærri en ég hef áður keppt í.“ í æfingar klukkan 6 á morgnana „Ég var i sameinuðum skautadans- hópi og fór til Bretlands í fyrra en er hætt í honum núna. Ég æfi þrjá morgna i viku frá klukkan 6 til 8 og tvisvar á kvöldin." - Er ekkert erfitt að rífa sig upp fyr- ir klukkan sex til aða æfa skauta- hlaup? „Þú getur rétt ímyndað þér hvemig það er þegar allir aðrir eru sofandi. Svo tekur skólinn við á eftir. Þetta er samt eini tíminn sem hægt var að fá því seinna er opið fyrir almenning og síðan er það hokkl líka.“ - Er Skautahöllin þá að verða of lítil? „Það væri auðvitað best að fá aðra en ég veit ekki hvort það gengur. Ég ætla að halda áfram á fullu og ég er aðalega í þessu vegna þess hvað mér þykir þetta skemmtilegt. Svo er ég llka í jazzballett og saxafónnámi. Það er því meira en nóg að gera,“ segir þessi bráðefnilegi brautryðjandi í skautaíþróttinni. -HKr. Sigurlaug Árnadóttir ásamt Olgu Baranovu, aðalskautaþjálfara sinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.