Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2000, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2000, Síða 16
16 Sport 4f ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2000 ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2000 Sport Tveir leikir viö heimsmeistarana Knattspyrnusamband íslands hefur þegið boð bandaríska knattspymusambandsins um að leika tvo leiki gegn heimsmeisturum Bandaríkjanna. Liðin hafa áður leikið tvo leiki, í maí 1998 og tapaði íslenska liðið, 0-6 og 0-1. Leikirnir eru hluti af undirbúningi bandaríska landsliðsins fyrir Ólympíuleikana í Sydney og verða leiknir þann 5. og 8. apríl. Sá síðari verður leikinn í Charlotte, Norður-Karólinu og verður sýndur í beinni útsendingu á ESPN og er miðasala þegar hafin í Bandaríkjunum enda kvennaliðið afar vinsælt eftir vel heppnaða heimsmeistarakeppni kvennalandsliða i Bandaríkjunum síðasta sumar. íslenska kvennalandsliðið heldur til Bandaríkjanna þann 3. apríl og kemur heim þann 10. apríl. -ÓÓJ Besti heimavöllur handboltans er í Eyjum: - munur á árangri karlaliðs ÍBV heima og úti Það hefur löngum verið vitað að erfltt er að spila í Vestmannaeyjum en sjaldan þó eins og nú þar sem karlalið ÍBV i handboltanum hefur unnið 16 af síðustu 19 heimaleikjum sínum þar af 5 í röð. Þegar árangur Eyjaliðsins á heimavelli í Vestmannaeyjum er skoðaður í samanburði við árangurinn á útivelli kemur þó í Ijós að það munar heilum 70%. Eyjamenn hafa aðeins tapað 2 af síðustu 19 heimaleikjum en þeir hafa ekki náð að vinna nema tvö lið á útivelli í síðustu 18 ferðum sínum upp á land. Hér til hægri má sjá graf með þessum merkilegum staðreyndum hjá karlaliði ÍBV sem vann nú síðast íslands- og bikarmeistara Aftureldingar annað árið í röð um helgina. Svipað hjá kvennaliðinu Kvennalið ÍBV leikur sama leik og strákarnir þó svo að bilið sé ekki alveg eins stórt því þar munar 33,3% á árangri á heimavelli og útivelli síðustu tvö árin en Eyjastúlkur hafa unnið 12 af síðustu 18 heimaleikjum en aðeins 5 af 18 útileikjum. Ef árangur karla og kvennaliðs ÍBV er lagður saman hafa 28 af 37 heimaleikjum á siðustu tveimur keppnistímabilum unnist en aðeins 7 af 36 útileikjum. Þarna munar alls 21 sigurleik og 52% í sigurhlutfalli. Ekki má heldur gleyma árangri knattspyrnuliðs Eyjamanna sem hefur ekki tapað i Eyjum síðan fyrir KR 22. júní 1997 og leikiö 27 deildarleiki í röð án þess að tapa. -ÓÓJ Ekki keppt í Evrópu? Frá því var sagt í morgun á síðum Financial Times að aðgerðir Evrópusambandsins gegn sjónvarpsréttarhöfum formúlunnar gætu þýtt það að ekki yrði hægt að halda keppnir á brautum í Evrópu lengur. Denys Rohan, framkvæmdarstjóri Silverstone-brautarinnar, segir að Evrópusambandið hafi „misskilið gjörsamlega" hvemig Formúla 1 virki og að þeir séu að neyða menn til að halda keppnirnar utan Evrópu. Sambandiö hefur gagnrýnt einokunarstöðu FIA gagnvart einstökum brautum sem vilja selja auglýsingarétt á keppnissvæðum. Rohan neitar því að það sé málið og segir: „Sambandið virðist gleyma því að Formúla 1 er orðin sjónvarpssirkus á alheimsvisu og að engu máli skipti hvar keppnir eru haldnar í heiminum. Það er ekkert sem mælir því í mót að halda allar keppnirnar fyrir utan Evrópu." Um leið gengur Bernie Ecclestone illa að losna við hlutabréf í Formúlu 1 eftir að Morgan Grenfell sjóðnum mistókst að flnna kaupendur að 37,5% hlut hans. Deutsche Bank keypti í október siðastliönum 12,5% hlut og hefur einnig leitað eftir samstarfsaðilum um kaup á stærri hlut. Hins vegar tilkynnti Ecclestone það um helgina að hann myndi ekki selja hlut til þýska fjölmiölafyrirtækisins EM.TV en orðrómur þar að lútandi komst á kreik í síðustu viku. -NG íslenskir körfuboltamenn erlendis: Falur finnur sig - meö nýju liði sinu sem vann 7. leikinn i röð Falur Harðarson er farinn að finna sig hjá Honka, besta liði finnska körfuboltans sem vann sinn sjöunda leik í röð um helgina á Huima (mótherjum Reykjanes- bæjar í Evrópukeppninni) 87-100. Falur var eins og kunnugt er seld- ur frá ToPo á dögunum og lék sinn flmmta leik með Honka um helgina en Honka hefur nú sjö stiga forustu í finnsku deildinni og hefur unnið 21 af 24 leikjum. Falur gerði 11 stig á 20 mínút- urm og hitti úr 4 af 7 skotum sinum og hefur nú hitt úr 5 af 7 síðustu 3ja stiga skotum sínum með liðinu. Falur hafði verið rólegur í fyrstu fjórum leikjum sínum og gert að- eins 9 stig á 52 mínútum en nú hrökk hann í gang en hann er sem stendur sjöunda besta 3ja stiga skyttan í Finnlandi í vetur, með 47,4% skotnýtingu í 78 leikjum. Töp hjá Herberti og Helga Það gekk ekki eins vel hjá Her- bert Amarsyni sem gerði aðeins 5 stig og klikkaði á 6 af 8 skotum þeg- ar Donar tapaði sínum fyrsta leik í úrvalshópi A í hollensku deildinni en Donar hafði þar unnið fyrstu tvo leikina. Herbert hefur ekki fundið sig í tveimur síðustu leikjum og þar hitt aðeins 5 af 16 skotum. Helgi Jónas Guðflnnsson og fé- lagar hans í belgíska liðinu Racing Club Amtwerpen töpuðu toppslagn- um gegn Oostende, 55-59, og náði Helgi ekki að setja nema 6 stig nið- ur á 23 mínútum og nýta 2 af 7 skot- um sínum. -ÓÓJ Heimavallargryfja í Eyjum 16,7% FUNDARBOÐ Framhaldsaöalfundur knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldinn þriðjudaginn 22. febrúar, kl. 20.00, í Smáranum. Stjórnin flokki sigraði Inga Geróa Pétursdóttir, HSÞ, og í öðru sæti varð Brynja Hjöleifs- dóttir, HSÞ. Eiður Smári Guójohnsen á yfir höfði sér leikbann en hann fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiks Birminghatn og Bolton í ensku B-deildinni á laugardaginn. Eiður braut illa á einum mótherja sínum á lokamínútunni og var sendur í bað. Leó Örn Þorleifsson, línumaðurinn sterki hjá Víkingi, skoraði 3 mörk í leiknum gegn ÍR á fóstudagskvöldið en vegna mistaka féll niður nafn hans meðal markaskorara Víkings. Haukar hafa náð góðu taki á nágrönnum sínum úr Kaplakrika því Haukar unnu FH um helgina í sjötta sinn i siðustu átta deildarleikjum liðanna en Haukar hafa ekki tapað fyrir FH í deildinni í siðustu fímm leikjum og aðeins einu sinni í þess- um átta leikjum frá 1996. FH-ingar eiga aftur á móti í miklum vandræðum þessa dagana því þeir töpuðu sínum fjórða leik i röð, hafa enn ekki unnið leik á nýrri öld og eru nú komnir niður i tíunda sæti deildar- NBA-lið Houston Rockets gæti verið á leið frá Houston ef það fær ekki nýja höll fyrir árið 2003. Leigusamningurinn í Compaq Center rennur út eftir leiktímabilið 2002 til 2003 og þá gæti það orðið á götunni. Vitað er að Las Vegas hefur verið að reyna að fá körfuknattleikslið til borgarinnar og rennir hýru auga til Rocketliðsins ef ekki nást samningar um byggingu nýrrar hallar í Houston. Brynjar Valdimarsson beið um helgina sinn fyrsta ósigur í vetur í meistaraflokki í snóker þegar hann tapaði í úrslitum gegn Jóhannesi R. Jóhannssyni, 5-2. í undan- úrslitum sigraði Brynjar Ásgeir Ásgeirs- son, 4-2 og Jóhannes lagði Sumarliða Gústafsson, 4-2. Föstudaginn 18. febrúar næstkomandi veröur hið árlega Herrakvöld ÍA haldið í Verkalýðshúsinu, Kirkjubraut 40, Akra- nesi. Allir gulir og glaðir drengir eru hvattir til þátttöku. Eflum og styrkjum ÍA. Bandariski kylfmgurinn Phil Mickelson batt enda á sigurgöngu Tiger Woods, sem hafði unnið sex PGA-mót í röð, með því að sigra á PGA-móti sem fram fór á Torrey Pines golfvellinum í San Diego. Mickelson lék holurnar 72 á átján höggum undir pari. Islendingaliðin Panathinaikos og AEK áttust við í grísku A-deildinni í knattspymu á sunnudaginn. Panathinaikos hafði betur og sigraði, 1-0, og var sigurmarkið skorað á lokamínútunni. Helgi Sigurösson lék síð- ustu 35 mínúturnar í liði Panathinaikos og átti gott skot sem markvörður AEKvarði mjög vel. Arnar Grétarsson lék siðustu 10 mínúturnar fyrir AEK. Olympiakos er efst með 51 stig, Panathinakos 50 og OFIer í þriðja sæti með 43 stig. Arngeir Frióriksson úr HSÞ sigraði í karla- flokki í Bikarglímu íslands sem fram fór að Laugum í Reykjadal um helgina. 1 öðru sæti varð Kristinn Guðnason, HSK. I kvenna- Vegna mistaka hefur staðan 1 1. deild kvenna í handbolta birst vitlaust að undanfomu en hér að neðan er hún orðin rétt. FH 18 12 3 3 449-349 27 Víkingur R. 18 11 Grótta/KR 18 12 iBV Valur Stjarnan Fram Haukar 2 388-315 27 5 419-344 25 5 432-375 23 7 420-353 22 8 442-394 22 8 437-409 20 7 421-364 19 ÍR 18 5 0 13 305-388 10 KA 18 2 1 15 306-415 5 Afturelding 18 0 0 18 296-609 0 Knattspymumaðurinn Ian Wright hefur fengið frjálsa sölu frá skoska liðinu Celtic og er genginn til liðs viö 2. deildar liðið Burnley. Wright, sem gerði garðinn frægan hjá Arsenal, ætlar að leika með Burnley út leiktíðina en síðan leggur hann skóna á hilluna. Wright var seldur frá Arsenal til West Ham sem lánaði hann til Celtic. Þar tókst honum aldrei að vinna sér fast sæti í byrjun- arliði. Burnley er sem stendur 1 4. sæti 2. deildar og á í harðri baráttu við Stoke City um sæti í úrslitakeppni 2. deildar. Enska knattspyrnusambandið íhugar nú strangar aðgerðir til að bæta hegðun leikmanna á knatt- spyrnuvellinum. Fjögur félög, Chel- sea, Wimbledon, Leeds og Tottenham hafa verið kærð vegna framkomu leikmanna um síðustu helgi. Leik- menn, með milljónir króna í viku- laun, hegða sér þessa dagana eins og villidýr á vellinum og á þessu ætlar sambandiö að taka. cir Sigmundur Kristjánsson: Sló í gegn hjá Liverpool Sigmundur Kristjánsson, 16 ára knattspyrnumaöur úr Þrótti, sló í gegn í ferð sinni til Liver- pool á dögunum þar sem hann lék með 16 ára liöi liðsins gegn Bradford og Derby. Hann átti síð- an stórleik með 17 ára liðinu gegn Bolton og átti þátt í öllum mörkum liðsins í 4-0 sigri. Ev- erton og Blackburn hafa bæði sýnt stráknum áhuga og síminn stoppar ekki hjá Þrótti en málin verða skoðuð betur í framhald- inu því 2. flokkur félagsins er á leið til Englands til að spila æf- ingaleiki við Liverpool, Everton og Wrexham. -ÓÓJ spretthlaupari: Bætti metið aftur - í 60 metra hlaupi 18 ára spretthlaupari úr ÍR, Elís Bergur Sigurbjörnsson, bætti eigið unglingamet, sem hann setti á dögunum, á Meist- aramóti íslands sem haldið var um helgina. Elís hljóp metrana sextíu á 7,08 sekúndum í undanúrslitum og var annar inn í úrslitahlaup- ið þar sem hann varð reyndar að sætt sig við fjóröa sætið. -ÓÓJ í Vestmannaeyjum - 14 Sigur Jafnt Tap á meginlandinu Stjörnuhelgi NBA í Oakland um helgina: Duncan og i - báðir menn stjörnuleiksins, Carter Það fór svo að hinir snöggu og leiknu leikmenn Austurdeildarinnar réðu ekkert við stæi leikmanna Vesturdeildarinnar í 49. stjörnuleik NBA sem fram fór aðfaranótt mánudags Vestrið vann 137-126 og stærstu menn Vestursins, Kevin Garnett, Tim Duncan og Shaquille O’Neal sameinuðust um 70 stig og 33 fráköst. Tveir þeir síöastnefndu urðu þriðja parið í sögunni til að vera kosnir menn leiksins, líkt og þeir Elgin Baylor og Bob Petit 1959 og John Stockton og Karl Malone 1993. Shaq skoraði 22 stig, tók 9 fráköst og varði 3 skot en Duncan lék nánast óaðfínnanlega, gerði 24 stig, tók 14 fráköst auk þess að hitta úr 12 af 14 skotum sínum og gefa 4 stoðsendingar. Stig Vesturdeildarinnar: Kevin Garnett 24 (10 fráköst), Duncan 24, O'Neal 22, Kobe Bryant 15, Jason Kidd 11 (14 stoðsendingar), Michael Finleý 11, John Stockton 10 (5 af 5 í skotum), Rasheed Wallace 9, Chris Webber 6, Gary Payton 5 (8 stoðsendingar). Stig Austurdeildarinnar: Allen Iverson 26 (9 stoðsending- ar), Alonzo Mourning 15 (4 varin skot), Ray Allen 14, Vince Carter 12, Allen Houston 11, Glenn Robinson 10, Eddie Jo- nes 10, Jerry Stackhouse 8, Grant Hill 7, Reggie Miller 5, Dikembe Mutombo 4, Dale Davis 4, Hornacek vann 2 skotkeppnir Á laugardeginum fór fram nýliðaleikur- inn þar sem annars árs strákamir töpuðu fyrir nýliðunum í ár, 83-92 í framlengingu en sama dag vann Vince Carter troðslu- keppnina með glæsibrag og Jeff Homacek vann 3ja stiga skotkeppnina annað skiptið í röð auk þess að vinna paraskotkeppnina með leikmanni kvennaliðs Utah, Natalie Williams, þegar þau unnu Jason Kidd og Jennifer Gillam hjá Phoenix. -ÓÓJ Valdimar sagði nei við Wuppertal Valdimar Grímsson neitaði formlega í gær tilboði frá þýska félaginu Wuppertal og þar með er endanlega ljóst að hann mun ekki leika með liðinu áfram. Er hann á leið til íslands eftir tímabiliö ef ekkert óvænt kemur upp. Eins og komið hefur fram í DV voru þjálfarar Wuppertal reknir og í framhaldi var leikmönnum boöinn nýr samningur á mun lægri launum en áðúr. Valdimar neitaði þessu tilboði endanlega í gær og það munu þeir Dagur Sigurðsson og Heiðmar Felixson einnig ætla að gera. Ef þessir leikmenn komast ekki að hjá öðrum liðum ytra fyrir næstu leiktíð er ekki útilokað að þeir leiki allir hér á landi næsta vetur. Paul Gascoigne handarbrotnaði - er Middlesborough lá gegn Villa Paul Gascoigne var enn einu sinni í sviðsljósinu í ensku knattspyrnunni í gærkvöld er Middles- borough tapaði á heimavelli fýrir Aston Villa, 0-4. Þá sló Gascoigne fólskulega til eins leikmanns Aston Villa og handarbrotnaði í leiðinni. Var Gassi fluttur á sjúkrahús í kjölfarið og leikur örugglega ekki með Midlesborough næstu vikumar. Leikmenn Aston Villa voru allsráðandi í leiknum í gærkvöld og það voru þeir Benito Carbone og Juli- an Joachim sem skoruðu tvö mörk hvor fyrir Villa. -SK +

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.