Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2000, Side 25
ufótur Mummi Siggi Lísa og Láki Andrés önd Gissur gullrass Hvutti Hrollu
ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2000
33
Myndasögur
f'tg hélt einmitt'
að þær væru
eitthvað fyrir
‘,þinn smekk,
— Mummi.,/
Fréttir
hótel. Björn Öli Hauksson sveitarstjóri réttir samgönguráðherra
stunguskóflu til aö taka fyrstu skóflustunguna. Á þessu auöa svæöi rétt viö
bæinn mun stórt hótel rísa í Tálknafiröi á næstu mánuöum.
Stórhuga Tálknfirðingar:
Hefja byggingu 40
herbergja hótels
- hluti þess á að verða tilbúinn strax í sumar
DV, Tálknafiröi:
Hluti af ijörutíu herbergja fyrsta
flokks hóteli verður tekinn í notkun
á Tálknafirði í sumar. Nýlega tók
Stm-la Böðvarsson samgönguráð-
herra fyrstu skóflustunguna að nýju
hóteli á tveim hæðum.
Stofnað hefur verið hlutafélagið
Þingból hf. um bygginguna en upp-
hafsmaður að stofnun þess er Gunn-
ar Egilsson sem á Veitingahúsið
Hópið á Tálknafirði. Fjölmargir ein-
staklingar og fyrirtæki í bænum
hafa gerst hluthafar í hinu nýja
félagi og ríkir bjartsýni meðal fólks
hér vegna þessara framkvæmda. I
ávarpi samgönguráðherra við þetta
tækifæri kom fram að hann kann
vel að meta áræði Vestfirðinga á
þessum vettvangi. Benti hann á að
ferðaþjónustan væri að stærsum
hluta óplægður akur á Vestfjörðum
en möguleikamir óteljandi. Með
markvissu átaki í kynningu á Vest-
fjörðum mætti beina ferðafólki í
auknum mæli inn á þennan lands-
hluta. í sama streng tók Einar K.
Guðfinnsson, þingmaðm’ Vestfjarða,
sem flutti ávarp við sama tækifæri
og hvatti heimamenn til dáða i þess-
um efnum.
Arkitekar nýja hótelsins eru
Guðrún Stefánsdóttir, Inga Sigur-
jónsdóttir og Gunnlaugur Björn
Jónsson. -KA
„Margra peninga virði“:
Kalhætta úr sögunni
Bændum varð það ekki síst léttir
og nokkur ánægjuauki þegar
skammdegisgaddinn leysti um miðj-
an síðasta mánuð og allt láglendi
varð nánast snjólaust. Þegar lát
varð á hlýviörinu var það margra
álit að óvíða væri klaki finnanlegur
í túnum, nokkuð sem gefur frekar
en ánnað fyrirheit um að tún verði
án kals þegar vorar og það er á við
marga peninga eins og einn bóndi
komst að orði.
En óþægindi og tjón af völdum
kals varð mörgum bóndanum þung
byrði að bera á síðasta ári. Þann
mánuð sem liðinn er frá breyting-
um á veðurfari hér um slóðir hefur
rétt folvað og veðurfar flesta daga
verið frostlítið og afar hagstætt.
-Guðfinnur.
Úrsagnir
á heilbrigðissvíði
Að gefnu tilefni skal tekið fram að enn er hægt að segja upplýsingar um sig
eða börn sin úr miðlægum gagnagrunni á heilbrigðissviði, þrátt fyrir að
rekstrarleyfi hafi verið veitt. Líklegt er að það dragist einhverja mánuði að
gera samninga við heilbrigðisstofnanir, en að því loknu getur færsla gagna
í grunninn hafist. Eftir að byrjað verður að setja gögn í grunninn verður að
gera ráð fyrir að þau séu óafturkræf. Alltaf má senda Landlæknisembættinu
tiikynningu um að ekki verði bætt frekari gögnum í grunninn og eru engin
tímatakmörk á því. Áfram má nota þau eyðublöð sem notuð hafa verið til
þessa, en unnið er að gerð nýrra eyðublaða í samræmi við breyttar aðstæður
í kjölfar samninga. Verður þeim eyðublöðum dreift til apóteka,
heilsugæslustöðva og sjúkrastofnana, auk þess sem nálgast má blaðið á
skrifstofu embættisins og á heimasíðu þess (http://www. landlaeknir.is)
undir liðnum auglýsingar. Einnig skal nefnt að þeir sem áður hafa óskað
eftir að gögn fari ekki í grunninn geta hvenær sem er skipt um skoðun, en
tilkynna verður skriflega um það til Landlæknisembættisins (ekki sérstök
eyðublöð).
Landlæknisembættið.