Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2000, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000
Árshátíðir á næsta leiti:
Ódýrara að leigja sparifötin
Samkvæmisfatnaöur karla
- hvað kostar að leigja?
7.000
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
00
in
00
O nt
o
Brúöarbær
oo
(D
CNI
o
o
o>
Brúöarkjólaleiga
Borgartúns
o
in
o
o
in
iri
1 I
Fatalelga
Garðarbæjar
Smóklng
KJólföt
íslenskl hátíðarbúningurinn
o o o>
s
§ «5
CT>
Ifj
o
'S-
1
O O
O O
o> o>
co co
IL„
Brúðarkjólaleiga Brúðarkjólaleiga
Katrínar Dóru
Seinni holskefla árshátíða vetrar-
ins er að skella á og víst er að marg-
ir eru farnir að huga að þvi hverju
skal klæðast þegar stóra kvöldið
rennur upp. Mjög hefur færst í vöxt
að konur á öllum aldri klæðist fln-
um síðkjólum við slík tækifæri og
fari þá e.t.v. í hárgreiðslu og forðun
líka. Við slík tækifæri mega karl-
mennirnir ekki vera eftirbátar
kvennanna og er þeim þvi best að
draga fram smókinginn, kjólfötin,
dökku jakkafótin eða e.t.v. íslenska
hátíðarbúninginn.
En ekki búa nú allir svo vel að
eiga síðkjóla eða falleg jakkafót í
röðum inni í skáp og slík fot kosta
drjúgan skilding, sérstaklega þegar
tekið er tillit til þess að liklega
klæðist viðkomandi þeim ekki
nema nokkrum sinnum á ári.
Hagsýni fór því á stúfana og
kannaði verð og úrval af spariklæð-
um fyrir karla og konur hjá
nokkrum fataleigum á höfuðborgar-
svæðinu. Slíkar leigur bjóða mikið
úrval fallegra kjóla og karlmanns-
fatnaðar til leigu. Að sjálfsögðu er
leigan líka bara brot þess verð sem
slíkur fatnaður kostar út úr búð.
Skýrt skal tekið fram að ekki er
tekið tillit til mismunandi gæða og
þjónustu á leigunum.
Glæsileikinn í fyrir-
rúmi
„Gyllt og silfrað er mjög vinsælt
núna og svo eru hnésíðir kjólar að
verða vinsælir aftur,“ sagði eigandi
einnar leigunnar í samtali við DV.
Flestir eigendurnir voru sammála
um að glæsilegir kjólar úr flnum
efnum, t.d. með perlum eða pallíett-
um, væru að verða vinsælir aftur
og litadýrðin hefði aukist, þ.e. klass-
íski svarti kjólinn væri ekki jafn-
vinsæll og áður.
Ódýrustu samkvæmiskjólana i
könnuninni var að finna á Brúðar-
kjólaleigu Katrínar á 4.000 krónur.
Þar er samkvæmiskjólunum skipt í
þrjá verðflokka. Eldri kjólar sem
hægt er að þvo eru leigðir á 4.000
krónur, kjólar sem þarf að hreinsa
eru leigðir á 5.000 krónur og alveg
nýir kjólar eru leigðir á 6.000 krón-
ur.
Kjólarnir eru flestir alveg síðir
en þó er einnig hægt að fá hnésíða
kjóla. Brúðarkjólaleiga Katrínar
leigir einnig hatta á 2000 krónur
fyrir þær sem vilja vekja virkilega
athygli. Einnig er hægt að kaupa
ódýra skartgripi, undirföt og skó
við kjólinn hjá leigunni.
Hjá Fataleigu Garðabæjar kostar
Seinni holskefla árshátíða vetrarins
er aö skella á með tilheyrandi
veisluhöldum og tilkostnaði.
allur samkvæmisfatnaður 6.000
krónur. Þar er hægt að fá mikið úr-
val af síðum og stuttum kjólum og
auk þess dragtir, pils, blússur o.þ.h.
Þar er einnig hægt að fá leigða
hatta á 1.500 krónur og kaupa ódýra
skartgripi.
Hjá Brúðarkjólaleigu Dóru kostar
samkvæmisfatnaður kvenna
5.000-8.000 krónur. Þar er hægt að
fá siða og stutta kjóla og dragtir.
Einnig er hægt að fá leigða skart-
gripi, t.d. hálsmen, armbönd og
eyrnalokka, á 1.000-3.000 krónur og
hatta á 3.000 krónur.
Smókingurinn
ódýrastur
Af karlmannafatnaðinum reynd-
ist ódýrast að leigja smóking á flest-
um stöðum. Hins vegar virðist ís-
lenski hátíðarbúningurinn vera
orðinn mun vinsælli en smókingur-
inn þrátt fyrir að dýrara sé að leigja
hann.
Hjá Brúðarkjólaleigu Borgartúns
kosta smókingföt 4200 krónur, kjól-
föt 4900 krónur og íslenski hátíðar-
búningurinn 6.800 krónur.
Hjá Brúðarbæ kosta smókingfót
4000 krónur, kjólföt 4800 krónur og
islenski hátíðarbúningurinn 5800
krónur.
Hjá Fataleigu Garðabæjar kostar
smókingur 4.500 krónur, kjólföt
5.500 krónur, ,jacket“ 5.500 krónur
og íslenski búningurinn 6.500 krón-
ur.
Brúðarkjólaleiga Katrínar leigir
smóking á 4.900 krónur, kjólföt á
5.900 krónur, jakkaföt með vesti á
4.500 krónur og íslenska hátíðar-
búninginn á 6.500 krónur.
Brúðarkjólaleiga Dóru leigir
smókinginn einnig á 4.900 krónur,
kjólföt á 6.900 krónur og íslenska
hátíðarbúninginn einnig á 6.900
krónur.
I öllum tilfellum er um alklæðnað
að ræða, þ.e. skyrtur, lindar og allt
tilheyrandi fylgir með er fötin eru
leigð.
í öllum tilfellum er um sólar-
hringsleigu að ræða en um helgar
er yfirleitt hægt að fá fötin á föstu-
degi og skila þeim á mánudegi.
Snyrting og hár-
greiðsla
Þær sem vilja taka kvöldið með
trompi hyggja e.t.v. lika á smávegis
dekur á hár- og snyrtistofum fyrir
árshátíðina. Lausleg athugun á
förðun, hárgreiðslu í sítt hár og
handsnyrtingu á nokkrum hár og
snyrtistofum leiddi í ljós að kvöld-
förðun kostar að meðaltali
2.000-2.500 krónur, hárgreiðsla um
4.500 krónur og handsnyrting um
2.000-2.500 krónur. Hér er ekki um
ítarlega könnun að ræða og því
sjálfsagt hægt að fá ódýrari þjón-
ustu á sumum stöðum.
Það er því ljóst að það kostar sitt
að skarta sínu fegursta á árshátíð-
inni, jafnvel þótt fötin séu leigð.
Karlmaðurinn greiðir að meðal-
tali um 5.500 krónur fyrir útlitið en
konan um 13.500 krónur ef snyrttng
og hárgreiðsla er tekin með.
-GLM
Hagsýni I innkaupum
Búðu til innkaupalista áður en þú ferö að versla - og haltu þig viö hann. List-
inn kemur í veg fyrir að þú kaupir eitthvaö í hugsunarleysi.
Ekki kaupa inn á
hverjum degi
Þeir sem eiga bíl ættu að gera
stórinnkaup i matvöruversluninni
þegar þeir fá útborgað en hinir ættu
að reyna að kaupa ekki oftar inn en
einu sinni í viku.
Innkaupalisti
Búðu til innkaupalista áður en þú
ferð að versla - og haltu þig við
hann. Listinn'kemur í veg fyrir að
þú kaupir eitthvað í hugsunarleysi
og sennilega kemur hann líka í veg
fyrir að þú kaupir mikið af óholl-
ustu sem ekki litur vel út á listan-
um. Mundu einnig að það er óráð-
legt að fara svangur að kaupa í mat-
inn.
Nesti í vinnuna
Taktu með þér nesti í vinnunna,
t.d. grófar samlokur með áleggi,
jógúrt eða ávexti, í stað þess að
stökkva út í sjoppu eftir skyndibita.
Þú sparar bæði stórar upphæðir á
þessu og auk þess er líklegt að þér
líði betur líkamlega og línumar
verði fallegri.
Heimabakað brauð
Alls kyns matarbrauð eru stór
hluti af mataræði kjarnafjölskyld-
unnar og þau kosta sitt. Því er ráð
að baka brauðið sjálfur, annaðhvort
á gamla mátann í ofni eða í brauð-
bakstursvél. Vélin kostar sitt en
hún er fljót að borga sig upp ef mik-
ið er borðað af brauði á heimilinu.
Heimagerður
barnamatur
Tilbúinn barnamatur i krukkum
og pökkum er talsvert dýr. Hægt er
að spara umtalsverðar fjárhæðir
með því að búa barnamatinn til
sjálfur og frysta hann síðan í litlum
handhægum pokum.
Barnafötin bætt
Gefðu gömlum bamafötum nýtt
líf með því einfaldlega að skipta um
tölur eða setja skrautlegar bætur á
þau. Þar með getur yngra systkinið
notað fötin og verið sátt við sitt.
Notaðu upplýsinga-
tæknina
Hringdu í Gulu línuna eða önnur
upplýsingafyrirtæki þegar þig vant-
ar einhvem hlut sem þú ert ekki al-
veg viss hvar fæst, í stað þess að
eyða bensíni á bílnum í það að fara
á milli staða og leita að hlutnum.
-GLM
HJÓLSÖG
FESTO
FESTO
öll verkfæri
og þú getur andað léttar!
..það sem
fagmaðurinn
nota1,1
Hægt er að tengja
FESTO-ryksuguna við
öll verkfærin frá FEST0